SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Page 29
8. ágúst 2010 29
skrítið að sjá nánast allt líf sitt í huganum
í loftköstunum þegar maður hélt að nú
væri þetta allt búið. Við lentum á hjól-
unum eftir að hafa flogið á milli tveggja
hraunnibba og sluppum heilir á húfi. Palli
sagði í myrkrinu um leið og bíllinn
stoppaði: „Það væri fáránlegt og eiginlega
ekki hægt að drepast í bílslysi eftir að
hafa lifað það af að klífa Eldey.“
Myndirnar sem ég tók í Eldey þennan
dag voru eins og stóri laxinn sem slapp
frá veiðimanninum, mjög flottar að mér
fannst. En sá aðili sem ætlaði að nota
myndirnar í bók týndi þeim og ég hef
aldrei séð þær síðan. Þar fór afborgunin
af íbúðinni fyrir lítið. Ég varð að bjarga
mér öðruvísi, vann myrkranna á milli í
margar vikur. Þannig var virðingin fyrir
ljósmyndum á Íslandi á þessum árum og
er enn, nema hjá örfáum aðilum sem
skilja mikilvægi þess að eiga sögu atburða
á Íslandi á myndum. Kannski förum við
aftur og tökum nýjar myndir, kannski
ekki. Rollan gæti verið á gangi aftur yfir
veginn á leiðinni til baka. Það er ekki víst
að við slyppum eins vel og síðast við það
að fljúga út í hraun.
Halldóra Filippusdóttir, fyrsta konan sem steig fæti á Eldey. Horft í svarrandi brimið á leið niður þverhníptan hamarinn.
’
Hávaðinn í súlubæl-
inu var svo mikill að
súlan hefði sennilega
ekkert heyrt þó skotið hefði
verið úr fallbyssu við haus-
inn á henni.