SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 40
40 8. ágúst 2010
A
rkitektinn og hönnuðurinn Guðlaug Jóns-
dóttir hefur um árabil búið og starfað í Los
Angeles þar sem hún lærði arkitektúr í Sci Arc
eða Southern California Institute of Architect-
ure. Í nóvember síðastliðnum setti Gulla á fót sína eigin
arkitektastofu, G+ Gulla Jonsdottir Design. Eitt fyrsta
verkefni hennar í sínu eigin fyrirtæki var hönnun á mexí-
kóska veitingastaðnum Red O en þar starfar einn frægasti
kokkur Bandaríkjanna, Rick Bayless. Hann bjó og ferðað-
ist um Mexíkó í 12 ár og skrifaði mexíkóskar kokkabækur
þegar hann kom til baka. Hann kann því að elda alvöru
mexíkóskan mat og er mjög vinsæll kokkur ytra.
„Ég hafði nú aldrei heyrt um Rick þegar ég byrjaði að
hanna staðinn en maturinn er mjög góður,“ segir Gulla og
hlær. „Í fyrra fór ég til Cabo í frí með íslenskum vinkon-
um mínum og hannaði eiginlega staðinn daginn eftir að
ég kom til baka þó auðvitað hafi tekið lengri tíma að
teikna allt upp og ganga frá. En staðurinn ber þess merki
að ég var enn undir áhrifum frá ströndinni, pálmatrjánum
og suðrænni sól þegar ég teiknaði hann fyrst upp. Hug-
myndin er að heimsókn á staðinn sé eins og að fara í frí til
Mexíkó og þannig er t.d. pálmatré á staðnum sem stendur
upp úr og sker bygginguna eiginlega í miðju. Það minnir
mig mjög á þá sérstöku tilfinningu að vera berfætt á
ströndinni undir pálmatré í Mexíkó. Síðan pantaði ég líka
nokkra hluti til að skreyta staðinn með úr verslunum sem
ég fann þegar ég bjó sjálf í Mexíkó í tæp tvö ár en þar
starfaði ég við að hanna hótel. Utan á húsinu er síðan stál-
borði sem á að tákna að staðurinn sé dálítið eins og gjöf frá
Mexíkó. Það er skemmtilegt við þessa hönnun að þegar
sólin skín þá skín hún á stálið og endurkastar mynstri inn
í bygginguna,“ segir Gulla.
Í gegnum tequila-göng
Við hönnunina segist Gulla hafa hugsað sér að staðurinn
þyrfti að þjóna mismunandi hlutverkum, meðal annars
með fjárhag eigandans í huga. Því er staðurinn hannaður
þannig að fólk geti komið þangað seinnipart dags og verið
fram á nótt. Hægt er að byrja á því að fá sér fordrykk á bar
með þægilegri rólu við barborðið þar sem fólk getur haft
það notalegt og fengið sér einn drykk eins og það væri á
ströndinni. Síðan er hægt að fá sér að borða ýmist inni á
veitingastaðnum eða úti á stórri verönd. Loks geta gestir
haldið á tequila-barinn en þangað liggur gangur um te-
quila-göng, eins konar vegg með gleri þar sem ýmiss
konar tequila-flöskum hefur verið komið fyrir. Á þeim
bar geta gestir smakkað ýmiss konar tequila en þar hefur
einnig verið komið fyrir arni sem Gulla lét hönnuði í ís-
lenska fyrirtækinu Secret North búa til fyrir sig. Stað-
urinn hefur strax hlotið lof og leigðu forsvarsmenn kvik-
myndahátíðarinnar í Los Angeles staðinn til að mynda
fyrir opnunarhátíð sína. Þá hefur verið skrifað um Red O
meðal annars í Los Angeles Times, Wallpaper og Elle De-
cor.
„Ég hef hannað hótel og veitingastaði núna í ein níu ár
og finnst gaman að taka að mér svona lífsstílstengd verk-
efni. Það á voða vel við mig en annars stefni ég á stærri
verkefni í framtíðinni sem var líka ástæðan fyrir því að ég
stofnaði mitt eigið fyrirtæki. Mig langar að færa út kví-
arnar og snúa mér meira að arkitektúr sem ég lærði á sín-
um tíma og fást ekki eingöngu við innanhússhönnun sem
ég hef mikið starfað við undanfarið. Helst langar mig að
gera stórar byggingar, skýjaklúfa og slíkt. Það er á fram-
tíðarplaninu en í kreppunni tek ég þannig lagað hverju
sem er. Núna er hótelgeirinn aðeins í pásu en meira um að
ég taki að mér veitingastaði og þetta verkefni var ég mjög
heppin með því veitingastaðurinn er á frábærum stað í
bænum og hefur fengið mikla athygli. Það var líka stórt og
skemmtilegt verkefni að hanna bygginguna jafnt að utan
sem innandyra,“ segir Gulla.
Svifið inn í borgina
Gulla hefur ekki einungis fengist við hönnun bygginga en
hún var nýverið í hópi hönnuða sem fengnir voru til að
hanna listaverk fyrir opnunarsýningu A+D, nýs arkitekt-
úra- og hönnunarsafns í Los Angeles. Verkið sem Gulla
hannaði er stórt stállistaverk sem hún kallar City of Ang-
els, sem er í raun annað nafn Los Angeles. „Verkið sýnir
alla sem svífa inn í LA frá mörgum áttum en á spjalli mínu
við stállistamann, sem aðstoðaði mig við verkið, fannst
okkur báðum dálítið að LA væri eins og Aþena 21. ald-
arinnar þar sem hingað kemur fólk úr öllum áttum og af
mismunandi ástæðum. Þannig þróaðist hugmyndin sem
síðan varð úr að setja fram með stórum stálskúlptúr.
Arkitektúr er viss list og mér finnst mjög gaman að list-
inni í arkitektúr og verð fyrir miklum áhrifum frá nátt-
úrunni, list og tísku. Því var mjög gaman að gera svona
skúlptúr þar sem hugmyndaflugið fær að ráða ferðinni og
maður þarf ekki endilega að hringja í verkfræðinginn á 10
mínútna fresti til að vita hvort eitthvað virkar. Verkið
mitt hékk uppi í nokkra mánuði og það var mikill heiður
að fá að sýna með þeim listamönnum sem þarna voru en í
hópnum voru meðal annars arkitektarnir Richard Meier
og Frank Gehry sem báðir eru margverðlaunaðir og
þekktir hér ytra auk tveggja fyrrverandi kennara minna
úr Sci Arc. Þegar sýningunni lauk setti ég síðan skúlptúr-
inn utan um nýju bygginguna mína og mér finnst hann
njóta sín vel þar,“ segir Gulla sem segist vera komin til að
vera í Los Angeles. „Ég ætlaði alltaf að flytja til New York
en er alveg hætt við það í bili enda er ég farin að kunna
svo vel við mig í Los Angeles. Hér er friðsælt og fólk hefur
allt til alls, hægt er að fara í fjallgöngu, á skíði og niður á
strönd,“ segir Gulla.
Dreymir
um að
hanna
skýjakljúfa
Arkitektinn Gulla Jóns er búsett
í Los Angeles þar sem hún rekur
eigin arkitektastofu. Hún hefur
hannað glæsilega veitingastaði
og hótel ytra en dreymir um að
hanna skýjakljúfa.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Við enda tequila-ganganna má smakka deserta og tequila. Gulla setur upp verk sitt City of Angels.
’
Hugmyndin er að heimsókn á
staðinn sé eins og að fara í frí til
Mexíkó og þannig er t.d. pálma-
tré á staðnum sem stendur upp úr og
sker bygginguna eiginlega í miðju.
Hönnun