SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Qupperneq 8
8 15. ágúst 2010
S
á yðar sem syndlaus er kasti fyrsta stein-
inum,“ segir í Jóhannesarguðspjalli að
Jesús Kristur hafi svarað til þegar skorað
var á hann að dæma í máli konu sem
staðin var að því að drýgja hór. Lögmál Móses
boðaði að slíkar konur skyldu grýttar til dauða.
Dauðarefsing með grýtingu hefur tíðkast í mörg-
um trúarhópum og menningarsamfélögum í
gegnum tíðina.
Slíkar refsingar tíðkuðust meðal Forn-Grikkja
og á þær er minnst bæði í Gamla og Nýja Testa-
mentinu og í Talmúð. Í Kóraninum er hinsvegar
hvergi minnst á grýtingu, en engu að síður eru
dauðarefsingar með þessum hætti fyrst og fremst
tengdar íslam í dag og vekja jafnan mikinn óhug
umheimsins.
Börnin berjast fyrir lífi móður sinnar
Eitt slíkt dæmi hefur verið í kastljósi vestrænna
fjölmiðla síðustu vikur. Vorið 2006 mátti Sakineh
Mohammadi Ashtiani þola 99 svipuhögg fyrir að
eiga í ólöglegu ástarsambandi við tvo menn eftir
að hún varð ekkja.
Haustið sama ár var mál hennar tekið upp að
nýju og hún sökuð um að hafa haldið fram hjá eig-
inmanni sínum meðan hann lifði. Fyrir hið meinta
hórdómsbrot var hún dæmd til að verða grýtt til
dauða. Hún hefur setið í fangelsi síðan og beðið
dauða síns en athygli umheimsins var ekki vakin
fyrr en í sumar fyrir þrotlausa baráttu tveggja
barna hennar sem segja að móðir þeirra sé höfð
fyrir rangri sök og vilja lífi hennar þyrmt. Sonur
hennar Sajad, sem var á sínum tíma, þegar hann
var 17 ára gamall, þvingaður til að horfa á Ashtiani
hýdda, segir að tilhugsunin um móður þeirra
grafna í jörðu og grýtta hafi verið honum og systur
hans Farideh martraðarefni árum saman.
Málið hefur orðið hið óþægilegasta fyrir írönsk
yfirvöld eftir að börnum Ashtiani tókst, með að-
stoð íranska lögfræðingsins Mohammed Mostafaei
og þýska mannréttindafrömuðarins Mina Ahadi,
að ná athygli vestrænna fjölmiðla, en breska blað-
ið Guardian sagði fyrst frá því.
Síðan hafa borist misvísandi skilaboð frá yf-
irvöldum í Íran. Fyrst var tilkynnt að dauðarefs-
ingunni hefði verið breytt úr grýtingu í hengingu
en síðar héldu embættismenn í Íran því fram að
Ashtiani væri einnig sek um aðild að morði manns-
ins síns og skyldi eftir sem áður verða grýtt. Fjöl-
miðlum í Íran er bannað að fjalla um málið og lög-
fræðingur Ashtiani, Mohammed Mostafei er nú
eftirlýstur og flúinn frá heimalandinu. Hann hefur
óskað eftir pólitísku hæli í Noregi.
Óvænt „játning“ í sjónvarpinu
Ashtiani hefur alla tíð neitað því að hafa átt þátt í
morði eiginmanns síns. Það er að segja þangað til
síðastliðinn miðvikudag. Þá kom hún óvænt fram í
ríkissjónvarpi Írans og játaði með titrandi röddu
bæði framhjáhald og þátttöku í morðinu. Lögfræð-
ingur hennar segir að hún hafi verið pyntuð og
barin í tvo sólarhringa áður en hún las upp játn-
inguna. Í útsendingunni fordæmdi hún meðal ann-
ars vestræna fjölmiðla fyrir að skipta sér af einkalífi
hennar. Hún gagnrýnd einnig lögfræðinginn Mos-
tafaie fyrir að blanda sér í málið. „Hvers vegna
þurfti hann að fara með mál mitt í sjónvarpið?
Hvers vegna hefur hann niðurlægt mig svona,“
sagði hún.
Fleiri bíða sömu örlaga
Málflutningur hennar í „játningunni“ stangast al-
gjörlega á við allar yfirlýsingar hennar hingað til
sem og viðtal sem birtist við hana í The Guardian í
síðustu viku. „Þeir ljúga. Þessi alþjóðlega athygli á
máli mínu er svo óþægileg fyrir þá að þeir reyna
hvað þeir geta til að dreifa athyglinni og rugla fjöl-
miðla svo þeir geti drepið mig í laumi,“ hafði Gu-
ardian eftir Ashtiani. Stuðningsmenn hennar óttast
að nú þegar játning hafi verið þvinguð fram verði
dauðadómnum yfir Ashtiani flýtt og honum fram-
fylgt í skjóli nætur. Annað eins hefur gerst.
Það óvenjulega í máli Ashtiani er ekki grimmdin
í dómnum, heldur að hún fékk athygli umheims-
ins, þökk sé börnum hennar. Írönsk yfirvöld til-
kynna aldrei opinberlega þegar dæmt er til grýt-
ingar. Það er því undir ættingjum og lögfræðingum
komið að upplýsa fjölmiðla um slíka dauðadóma og
fæstir taka þá áhættu. Að minnsta kosti 12 konur og
3 karlar sitja dauðadæmd í Íran og bíða þess að
verða grýtt. Flest munu þau mæta örlögum sínum
án þess að nokkur heyri sögu þeirra.
Grýtt til bana
Vikuspegill
Una Sighvatsdóttir una@mbl.is
Grimmileg refsing sem
viðgengst enn
Dauðadæmd
„Þegar ég sofna
á kvöldin velti ég
því fyrir mér
hverjir gætu
hugsað sér að
grýta mig,“ segir
Sakineh Ashti-
ani.
Dauðadómur með grýtingu er framkvæmdur
þannig í Íran að hinn dæmdi er vafinn í hvít
klæði og grafinn í jörð. Karlar eru grafnir upp
að mitti en konur upp að hálsi. Þá er sér-
staklega kveðið á um það í lögum að grjótið
megi ekki vera svo stórt að það geti fram-
kallað dauða í fyrsta kasti, né svo lítið að
áverkar verði of vægir og aftakan dragist á
langinn.
Ítarlega skilgreint
Grýtingar eru ekki rótgróið form dauðarefsingar í
menningu Írans heldur voru þær innleiddar eftir
byltinguna árið 1979 en á síðustu árum hafa þær
raunar verið fremur fátíðar.
Hugmyndafræðin á bak við grýtingu virðist vera
sú að um refsingu alls samfélagsins sé að ræða,
þar sem einn steinn, byssukúla, reipi eða eitur-
sprauta valdi ekki dauðanum heldur sameiginlegt
átak.
Lögfræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn Shir-
in Ebadi rifjar það upp í pistli, sem hún skrifar um
mál Ashtiani og birtist í The Guardian, að þegar
hún starfaði sjálf sem dómari í Íran fyrir bylting-
una hafi lagabókstafurinn á engan hátt skipt sér
af kynlífi tveggja fullorðinna einstaklinga.
Með byltingunni hafi hinsvegar verið innleidd
lög sem séu ótrúlega ströng, jafnvel fyrir íslam.
Skv. þeim var kynlíf utan hjónabands gert refsi-
vert með 100 svipuhöggum. Refsingin fyrir
framhjáhald er grýting. Mun fleiri konur hljóta
þann dóm en karlar, þótt fræðilega séð eigi refs-
ingin við um bæði kynin.
Dauðarefsing með grýtingu er afar umdeild
meðal múslímskra klerka og ekki ríkir eining um
hvort hún samræmist íslam eða ekki. Fjöldi ísl-
amskra dómara og lögfræðinga hefur gagnrýnt
grýtingu harðlega, þar á meðal Ayatollah Yousef
Saanei. Auk Írans hafa verið dæmi um aftökur
með grýtingu m.a. í Sómalíu, Afganistan og Súd-
an. Síðan sjaríalög voru innleidd í Nígeríu árið
2000 hefur líka fjöldi múslíma verið dæmdur til
grýtingar þar en engum dómanna hefur enn verið
framfylgt.
Engin eining um
grýtingu í íslam
Írönsk kona vekur athygli á grimmdinni sem felst
í grýtingu með mótmælastöðu í Brussel.