SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Page 9

SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Page 9
15. ágúst 2010 9 Þeir voru eitt vinsælasta stráka- bandið á sínum tíma og trylltu ófáar unglingsstúlkurnar sem kiknuðu í hnjánum yfir syk- ursætum drengjunum í Take That. Segja má að nýtt Bítlaæði hafi gripið um sig í heimaland- inu og lög eins og Pray og Back for good fóru beint í efsta sæti breska vinsældalistans og víðar. Ævintýrið entist í um áratug en einn góðan daginn fékk Robbie Williams nóg og skildi við félaga sína sem eftir stóðu ráðalausir og hljómsveitin var lögð niður. Frægðarsól Robbie Williams hef- ur heldur betur risið síðan þá en það eru líklegast ekki margir sem vita um afdrif hinna hljóm- sveitarmeðlimanna. Einn sykursætu drengjanna í Take That er Manchester- drengurinn Jason Thomas Or- ange sem fæddist í iðnaðarborg- inni góðu hinn 10. júlí árið 1970. Jason hætti í skóla 16 ára gamall til að láta draum sinn um að verða dansari ræt- ast og fékk loks starf sem dans- ari í sjónvarpsþættinum The Hit- man And Her sem vinsæll var í Bretlandi á sínum tíma. Þannig komust Jason og félagi hans í kynni við Nigel Martin Smith sem þá var að setja saman strákaband. Þetta var árið 1990 og rúllaði boltinn hægt af stað en um 1992 fór allt að gerast og lög Take That að slá í gegn. Þegar draumurinn var úti ákvað Jason að nóg væri komið af því að dansa og syngja í bili, venti sínu kvæði í kross og hélt í ferðalag til Taílands. Þar kúpl- aði hann sig algjörlega út úr lífi hinna ríku og frægu og eyddi þess í stað dágóðum tíma í and- lega leit að sjálfum sér. Það datt því engum í hug að hann myndi nokkurn tímann snúa aft- ur á sviðið en hann stóðst þó ekki mátið árið 2006 þegar Take That kom saman aftur og hélt í tónleikaferð. Síðan þá hef- ur Jason aðallega komið fram í breskum sjónvarpsþáttum bæði sem leikari og söngvari. Nú í sumar fagnaði Jason fertugs- afmæli sínu í Manchester ásamt tvíburabróður sínum Just- in og leigði heilt hótel undir her- legheitin svo honum virðist hafa tekist að koma ár sinni ágæt- lega fyrir borð. Hvað varð um... ...Sæta sykurpúðann úr Take That Jason, annar til vinstri, ásamt félögum sínum í Take That. Óþekktaranginn Robbie er sjálfsagt frægastur Take That meðlima. Reuters nú er besti tíminn til aÐ byggja, breyta og bæta nýtum tækifærið og ráðumst í framkvæmdir! Þeir sem grípa tækifærið og ráðas t í framkvæmdir núna, fá 100% endurgreiðslu á virðisaukas katti af keyptri vinnu á byggingarstað. Að auki fæst frá dráttur frá tekjuskattsstofni sem getur numið allt að 300.000 krónum.* Við álagningu opinberra gjald a árin 2011 og 2012 getur fólk fengið frádrátt frá tekjuskattsstofni sem nemu r 50% af þeirri fjárhæð sem greidd var vegna vinnu á byggingarstað (án vsk.) á ár unum 2010 og 2011. Hámark fr ádráttarins er 200.000 kr. hjá einstaklingi og 300.000 kr . hjá hjónum og samsköttuð um. DÆMI: Hjón láta vinna trésmíðavinnu hjá sér árið 2010. Heildarfjárhæð m. vsk.: 937.050 kr. þar af er vinna án vsk.: 493.121 kr. Endurgreiðsla vsk. samtals: 125.746kr. Til viðbótar lækkar tekjuskatts stofn þess sem hefur hærri stofninn um 2 46.560 kr. við álagningu árið 2011. * H V T A H S I /S A 1 0 -1 2 5 7

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.