SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Síða 21
15. ágúst 2010 21
V
ið „Við meðhöndlum í fyrsta lagi fólk með
hjartabilun sem er langt gengin og þá erum við
að gefa því lyf í æð, fylgjast með einkennum,
hvernig lyfjameðferðin virkar og fylgjast með
blóðprufum,“ segir Anna G. Gunnarsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á göngudeild hjartabilunar.
„Þetta fólk er í viðvarandi eftirliti og þarf mikinn stuðn-
ing. En síðan kemur hingað fólk með vægari stig hjartabil-
unar, sem er kannski hérna í þrjá til sex mánuði. Þá erum
við að stilla lyfjameðferð við hæfi, fræða fólk um sjúk-
dóminn og hjálpa því aftur af stað út í sitt daglega líf. Það
heldur áfram með sína daglegu rútínu og er áfram í eftirliti
hjá sínum hjartasérfræðingi úti í bæ.“
– Orsakir hjartabilunar geta verið ýmsar?
„Já, algengasta orskökin er kransæðasjúkdómur, síðan
eru það lokusjúkdómar, hár blóðþrýstingur og hjarta-
vöðvasjúkdómar sem geta verið meðfæddir.“
– Er forvörn í því að greinast snemma?
„Já, forvarnir skipta mjög miklu. Því fyrr sem fólk
greinist t.d. með háþrýsting, kransæðasjúkdóm eða loku-
sjúkdóma, því betra. Ef fólk er til dæmis með háan blóð-
þrýsting í nokkur ár og ekkert er að gert, þá leiðir það
smám saman til þess að starfsemi hjartavöðvans skerðist
og oft er það ekki afturkræft. Of háum blóðþrýstingi fylgja
ekki endilega nein einkenni en þó stundum höfuðverkur
og svimi. Ég get nefnt sem dæmi, að ef konur greinast með
háan blóðþrýsting á meðgöngu, þá þarf að fylgja því eftir.
Yfirleitt gengur það til baka, en ekki endilega. Hingað hafa
koma konur sem hafa fengið háan blóðþrýsting á með-
göngu og einhverra hluta vegna ekki haldið áfram í eftirliti
og blóðþrýstingurinn áfram verið of hár. Það hefur síðan
leitt til starfsemisskerðingar í hjartavöðvanum.
Hvað varðar kransæðasjúkdóm þá leyna einkenni sér
yfirleitt ekki, honum fylgir brjóstverkur, með eða án
leiðni út í handleggi eða kjálka og þrekskerðing. Þetta eru
einkenni sem vekja strax grunsemdir. Mikilvægt er að fólk
sé vakandi fyrir þessu og ef það er ættarsaga um krans-
æðasjúkdóm þess þá heldur. Við vitum að það er sterk
fylgni í fjölskyldum.“
– En háþrýstingur er varasamari?
„Háþrýstingur er varhugaverður, hann getur komið
aftan að fólki, því honum fylgja ekki endilega ákveðin ein-
kenni. Hann hefur því stundum verið nefndur „the silent
killer“, því hann skaðar ef ekkert er gert til langs tíma.
Hjartavöðvinn er þá stöðugt að dæla blóði gegn háum
þrýstingi í slagæðakerfinu. Það er áreynsla fyrir hjarta-
vöðvann og með tímanum stækkar hann og samdrátt-
argetan minnkar.“– Hvað koma margir á göngudeildina?
„Á hverjum tíma eru að meðaltali fimmtíu einstaklingar
í virku eftirliti, langflestir með alvarlega hjartabilun, langt
gengna. Þá stýrum við lyfjameðferðinni, fólk fer í rann-
sóknir eftir þörfum, það getur verið hjartaómun, rönt-
genmyndataka, blóðprufur. Það er fundað um hvern
sjúkling fyrir sig og farið yfir hvað er skynsamlegast í
stöðinni ef einkennin versna mikið, hvaða úrræði höfum
við. Þessir sjúkingar þurfa mikinn stuðning en lífsgæði
þeirra eru oft mjög skert vegna mikilla einkenna auk þess
sem álag á maka og aðra nákomna er mikið. Innlagnir á
sjúkrahús eru gjarnan mjög tíðar en okkur hefur tekist að
draga úr þeim með því að veita meðhöndlun hér í göngu-
deildinni. Við reynum að vera í miklu samstarfi við
heimaþjónustuna í Reykjavík, til að létta sjúklingum okk-
ar sporin, þannig að þeir þurfi ekki alltaf að koma hingað.
Þá gefur heimahjúkrunarfræðingur lyfin í æð og er í sam-
ráði við okkur.
Það er athyglisvert að þrátt fyrir að sjúklingar með
hjartabilun hafi oftast fengið mikla og góða fræðslu í gegn-
um tíðina, er gjarnan misskilningur um margt bæði er
varðar orsakir og einkenni. Það er afar mikilvægt að
þekkja einkennin til að geta lifað með þennan sjúkdóm,
hvernig á að bregðast við og hvert er hægt að hringja ef
eitthvað kemur upp á. Og það er meðal annars hlutverk
göngudeildarinnar að taka við slíkum símtölum.
Þetta gengur í raun út á að fólk geti lifað eins eðlilegu lífi
og hægt er, þannig að sjúkdómurinn nái ekki að stjórna
daglegu lífi. Um leið og einkennin versna, mæðin eykst
og/eða þyngdin fer hratt upp á vigtinni, er það af því að
það safnast fyrir vökvi/bjúgur. Þá þarf það strax að vita
hvaða lyf á að taka eða hafa samband og koma hingað.
Fólk þarf því að þekkja vel inn á sjúkdóminn, þannig að
geti haft nokkra stjórn, og það getur síðan leitað til okkar
eftir þörfum.“
– Hvað um forvarnir gagnvart kransæðasjúkdómum?
„Reykingar eru mjög stór áhættuþáttur, mataræðið skipt-
ir miklu og hreyfingin og einnig hefur langvarandi streita
slæm áhrif. Einnig hefur sykursýki áhrif og mjög mik-
ilvægt er að greina hana og meðhöndla. Það er ráðlegt að
forðast þetta feita fæði, franskar og kokteilsósu, og hörðu
fituna eða dýrafituna – alla fitu sem harðnar í ísskáp. Það
er ágæt þumalputtaregla. Það er óhagstæð fita, sem safnast
inn á æðaveggina.
Kransæðasjúkdómur kemur til af því, að með tímanum
harðna æðaveggirnir, missa eftirgefanleika sinn, og það
leiðir til þess að úrgangsefni úr blóðinu safnast inn á æða-
veggina. Þetta sést í kransæðamyndatöku, að æðavegg-
irnir fara að þrengja að blóðrennslinu. Þarna getur síðan
myndast blóðsegi og þá er yfirvofandi bráð lokun í krans-
æðinni og öllu máli skiptir að enduropna hana sem fyrst til
að lágmarka skaðann sem af hlýst í hjartavöðvanum.
Við sjáum það strax í hjartalínuriti ef þetta gerist, förum
beint með sjúklinginn á þræðingarstofu, tekin er röntgen-
mynd af kransæðunum til að sjá hversu stór stíflan er og í
hvaða æð, og svo er bara hafist handa við að enduropna
æðina og gjarnan sett stoðnet til að halda henni opinni. En
fyrir utan lífsstíl sem við stjórnum auðvitað alfarið sjálf þá
eru ákveðnir áhættuþættir sem við getum ekki stjórnað.
Sumir eru óheppnir og gen virðast hafa þarna áhrif., Tíðni
hjarta-og æðasjúkdóma er meiri í sumum fjölskyldum en
öðrum. Þannig t.d. er algengi hárrar blóðfitu meira í sum-
um fjölskyldum en öðrum. Stundum má lækka kólester-
ólmagn í blóðinu með því að hreyfa sig rösklega reglulega..
– Af hverju hafa reykingar áhrif?
„Af því að það eru mörg skaðleg efni í sígarettum, eitt
þeirra er níkótín sem eyðileggur æðaveggina að innan, það
veldur háum blóðþrýstingi og eykur hjartslátt. Reykingar
stuðla þannig beint að kransæðasjúkdómi. En reykingar
eru ekki aðeins slæmar fyrir kransæðarnar, heldur einnig
fyrir allt slagæðakerfið. Margir karlmenn sem reykja glíma
við getuleysi og reykingar hafa svipuð áhrif á kynlíf
kvenna. Þannig að við getum ekki bara einblínt á að reyk-
ingar valdi kransæðasjúkdómum, þó okkur stafi mest ógn
af þeim, heldur þurfum við að horfa til allrar líkamsstarfs-
seminnar, útlima og líffæra.“
– Er mikið um reykingafólk hér á göngudeildinni?
„Hér eru flestallir hættir að reykja. Við þurfum yfirleitt
ekki að hjálpa fólki að hætta að reykja, það er yfirleitt
komið með það mikinn sjúkdóm, að það hefur náð því að
hætta að reykja upp á eigin spýtur. En auðvitað hafa alls
ekki allir reykt sem koma hingað.“
– En harðari efni?
„Kókaín er sérstaklega hættulegt, því ef fólk sprautar sig
með því, þá veldur það svo miklum æðasamdrætti, krans-
æðarnar geta lokast og fólk dottið niður í hjartastoppi.
Þannig að kókaín veldur skyndidauða og hjartsláttartrufl-
unum. Þetta getur líka gerst ef fólk sniffar það. Það koma
hingað á Hjartagáttina einnig unglingar með hjartslátt-
aróreglu af því að neyta örvandi efna og það getur þurft að
leggjast inn til meðferðar. En það á líka við um ýmis þess-
ara efna sem fólk neytir í tenglsum við líkamsrækt, það
kemur alltaf annað slagið upp á yfirborðið, fyrir utan ster-
ana sem geta verið skaðlegir og valdið því að hjartavöð-
vinn stækkar og fer að missa samdráttargetu.“
Forvarnir skipta máli
Stoðkerfi hjartans: Gunnar Mýrdal, hjartaskurðlæknir, Anna G. Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur göngudeild
hjartabilunar, Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir hjartadeildar, og Inga Þráinsdóttir hjartasérfræðingur.
Göngudeildarstarfsemi í hjartalækningum á Landspít-
alanum hefur verið vaxandi á undanförnum árum, ekki síst
sérhæfð þjónusta eins og göngudeild hjartabilunar.
Þá var nýlega opnuð hjartamiðstöð sem er kölluð Hjarta-
gátt, en þar er samtvinnuð þríþætt starfsemi fyrir hjartasjúkl-
inga; bráðaþjónusta, dagdeild og göngudeild, að sögn Dav-
íðs O. Arnar, yfirlæknis Hjartagáttar. Áform eru um að efla
dag- og gögnudeildarstarfsemi enn frekar á haustmánuðum.
„Hjartagátt er staðsett á Hringbraut, í návígi við aðra mik-
ilvæga þjónustu fyrir hjartasjúklinga, legudeildir, hjartarann-
sókn og hjartaþræðingastofu. Hjartagáttin sinnir sjúklingum
með allar tegundir hjartasjúkdóma þar með talið hjartabilun.
Bráðveikum sjúklingum með hjartabilun er þannig sinnt á
bráðaþjónustuhluta Hjartagáttar en þeim er síðan vísað
áfram á legudeild hjartadeildar ef þörf krefur eða þeir útskrif-
aðir til eftirlist á göngudeild hjartabilunar.“
Meðal annara sérhæfðra göngudeildir sem eru í boði fyrir
hjartasjúklinga er göngudeild gangráða og bjargráða en þar
er fylgt eftir einstaklingum sem hafa slík tæki. Starfsemi
göngudeildar gangráða og bjargráða er mjög umfangsmikil
með á fjórða þúsund heimsóknir á ári.
„Notkun gangráða og bjargráða hefur farið vaxandi hjá
þeim sem hafa hjartabilun,“ segir Davíð. „Sér í lagi hefur
notkun á svokölluðum tvíslegla-gangráðum reynst gagnleg
hjá þeim sem hafa hjartabilun. Niðurstöður rannsókna hafa
sýnt að hjá völdum sjúklingum getur meðferð með tvíslegla-
gangráði bætt hjartabilunareinkenni, bætt áreynsluþol og
fækkað innlögnum á sjúkrahús vegna hjartabilunar-
einkenna. Þessi ávinningur kemur til viðbótar við gagnsemi
af lyfjameðferð við hjartabilun. Notkun tvísleglagangráða
hefur farið vaxandi hérlendis undanfarin ár.“
Hjartagátt
Flestallir eru löngu hættir að
reykja, sem eru á göngudeild
fyrir hjartabilun, að sögn
Önnu G. Gunnarsdóttur
hjúkrunarfræðings. Það er
ekki að ástæðulausu.