SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Qupperneq 24
24 15. ágúst 2010
Gunnlaugur með suðurafrískum barnakór sem syngur á væntanlegri plötu Earth Affair.
Þ
ó flestir þekki Gunnlaug Briem eflaust helst fyr-
ir það að vera trommuleikari í Mezzoforte, hef-
ur hann einnig unnið talsvert að sólóverkefni
síðustu ár. Verkefnið kallar hann Earth Affair og
gaf út plötu undir því nafni fyrir fimm árum. Ný plata er í
vinnslu og meðal annars tekin upp í Suður-Afríku þar
sem Gunnlaugur kynnti sér stafsemi Nelson Mandela
stofnunarinnar sem starfar í anda hugmyndafræði
Mandelas.
Fyrsta Afríkuferðin
Gunnlaugur var nýlega staddur í Suður-Afríku með
Mezzoforte, sem lék á Cape Town International-
djasshátíðinni í fyrsta sinn. Að sögn Gunnlaugs hafði þá
félaga lengi langað til að leika þar, en þetta var fyrsta Afr-
íkuferð sveitarinnar frá því hún varð til fyrir aldarþriðj-
ungi eða svo, en hún hefur víða farið á þeim tíma. Gunn-
laugur segir og að það fylgi ákveðin forréttindi því að vera
í hljómsveit eins og Mezzoforte, bæði það að sjá ólík lönd
og svo að kynnast áhugaverðu fólki. „Djasshátíðin í
Höfðaborg er þriðja stærsta djasshátíð í heimi og ótrúlegt
að fá að spila í þessari heimsálfu á „Green Market Square“
í Höfðaborg fyrir tíú þúsund dansandi Afríkubúa. Við
höfum stefnt lengi að því að taka þátt í hátíðinni, má segja
að við höfum haft það á dagskránni í fimmtán eða tuttugu
ár.“
Gunnlaugur segist jafnan hafa nýtt ferðir sveitarinnar
til að skoða sig um í viðkomandi löndum eftir því sem færi
hefur gefist og hann hafi líka gert það í þessari heimsókn
til Suður-Afríku. „Eftirminnilegast fyrir mig var að fá að
heimsækja Nelsons Mandela-stofnunina í Jóhannesarborg
og fá að kynnast starfi hennar og því hvernig arfleifð
Mandelas er haldið á lofti. Innan stofnunarinnar starfar
öflugt fólk, en hann er enn tengdur henni þó hann sé orð-
inn 92 ára, kemur enn á skrifstofuna heilsar upp á starfs-
fólkið, skrifar undir skjöl o.fl. sem sýnir mikla tryggð við
málstaðinn. Hann hefur gefið 67 ár ævi sinnar í baráttunni
til félagslegs réttlætis og er mikil fyrirmynd okkar allra,“
segir Gunnlaugur.
Earth Affair-hljómsveit Gunnlaugs lék á sínum tíma á
sérstökum tónleikum til heiðurs Nelson Mandela í Noregi,
en tónleikarnir sem haldnir voru í Tromsö í júní 2005
voru liður í alþjóðlegri alnæmistónleikaröð undir heitinu
46664, sem var fanganúmer Mandela í nærfellt þrjá ára-
tugi á Robben eyju. Í framhaldinu gerðist Gunnlaugur
ambassador fyrir Mandela og 46664. Heimsóknin til Jó-
hannesarborgar var honum því innblástur, enda segir
hann að sér þyki mikilvægt að geta tengt tónlist við eitt-
hvað sem hann hafi trú á. „Ég hljóðritaði 10 barna kór í
útjaðri Jóhannesarborgar fyrir nýju plötuna. Þau syngja
ásamt íslenskum börnum svo það má segia að þarna syngi
saman börn frá tveimur ólíkum heimsálfum sem búa við
ólík skilyrði. Einnig var ég svo lánsamur að kynnast suð-
ur-afrísku stórstjörnunni Vusi Mahlasela sem syngur með
mér í einu lagi.Vusi er mikill karakter, vinur Mandela og
frábær fulltrúi 46664. Hann er svona Bubbi Morthens
þeirra Suður-Afríkubúa og syngur um harðræðið sem
þetta fólk hefur þurft að þola.“
Við getum gert heilmikið
„Það hafa margir fínir listamenn sett nafn sitt við þessi
samtök og vilja gera eitthvað til að halda hugmyndum
Mandela lifandi, enda hafa menn eðlilega áhyggjur af því
hvað gerist þegar hann er horfinn, vilja reyna að halda
þeim krafti sem er í samtökunum og þar komum við sem
erum í músík aðeins við sögu. Okkar hlutverk er að gera
það sem ég er að gera núna, að tala um starfið og láta það
berast hvað stofnunin er að gera,“ segir Gunnlaugur, en
hann fékk góða kynningu á starfseminni og því hvernig
Mandela hefur barist gegn félagslegu óréttlæti í Afríku og í
raun um heim, enda nái skilaboð hans til alls heimsins.
„Það var líka upplifun að fá að hitta hann á sínum tíma,
hann er svo gríðarlega sterkur einstaklingur með svo
sterka rödd.“
Þó aðskilnaðarstefnan hafi verið lögð af í Suður-Afríku
er enn margt ógert í landinu, þar er víða mikil fátækt og
Öll tónlist
er guðleg
Gunnlaugur Briem hefur eytt lunganum af
ævinni í að spila á trommur með Mezzo-
forte, án þess þó að hafa beinlínis ætlað
sér það. Hann segist hafa velt því fyrir
sér um tíma að hætta að spila á trommur
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Mezzoforte spilar á Cape Town International Jazz Festival í Suður-Afríku í apríl sl.