SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Qupperneq 34
M
aðurinn er aldrei jarð-
bundnari en svo, jafnvel
hinn jarðbundnasti mað-
ur, að hann fari ekki til
Ameríku,“ skrifaði Halldór Kiljan Lax-
ness í Sjálfstæðu fólki.
New York er borg sem lyftir and-
anum. Þó ekki væri nema þegar augun
klifra upp skýjakljúfana. Það má öðlast
skilning á Íslandssögunni með því að
fara til Kaupmannahafnar, en New
York er ein þeirra borga sem nauðsyn-
legt er að heimsækja til að botna í
mannkynssögunni.
Manhattan er tiltölulega lítill reitur
stórra atburða, enda vex borgin þar
upp í loftið. Það má rekast á fræg
kennileiti víða og þvælast um breið-
götur með risaverslunum. En meira
heillandi er að hanga í Soho og Lower
East Side og skoða litlar búðir, margar
sérviskufullar, og staldra við á smærri
veitingastöðum og fá sér góðan mat.
Þá er freistandi að leggja leið sína í
Greenwich Village á kvöldin, til dæmis
á Washington Square Park, samlagast
ljósunum og myrkrinu og hverfa inn í
stórborgina. Svo má líka hafa ýmislegt
fyrir stafni.
„Teflirðu í klúbbi?“ spyr tortrygginn
skákmaður þegar nálgast miðnætti.
Honum líst ekki á það þegar hann
heyrir um þjóðerni mótherjans. Ísland.
En lætur sig hafa það, blaðamaður
leggur fimm dollara á borðið og skákin
byrjar.
Þetta er fyrir utan skákbúðina Vil-
lage Chess Shop í Thompson-götu.
Eigandanum bregður svo við atganginn
að hann stingur höfðinu út. Þetta er
lánsklukka og hann vill að hún haldist
heil.
Mannmergðin er
mikil við Times
Square, torg auglýs-
ingaskiltanna, enda
þarf að koma fyrir
ógrynni af fólki og
bílaumferð að auki.
Fjölmargir hlaupa í Central Park, ekki síst á morgnana, og er óhætt að mæla með þeirri upp-
lifun við hvern þann, sem vill kynnast hinni hliðinni á stórborgarlífinu – þeirri björtu.
Sumir eru alltaf að hreyfa sig. Svo finnst öðrum notalegt að virða bara fyrir sér mannlífið.
Fáir staðir eru kjörnari fyrir slíka tómstundaiðju en Central Park.
Tíminn er fljótur að
renna manni úr
greipum í stórborginni
New York. En það er
líka allt í lagi. Manni
leiðist ekki á meðan.
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is