SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Page 42
42 15. ágúst 2010
S
ony hefur gengið illa að halda
lífi í MGM, þar sem eini blóð-
gjafinn undanfarna áratugi er
einmitt bálkurinn vinsæli um
spæjara hennar hátignar, James Bond.
Til stóð að sýna 23. myndina árið 2012,
á 50 ára afmæli eins langlífasta „vöru-
merkis“ kvikmyndasögunnar, þess í
stað hlaðast hindranirnar upp, illvígari
en nokkrar aðrar í langri sögu mynda-
flokksins. Fyrir utan fjármálavandann
og síaukið álag listamannanna sem eiga
að koma við sögu, virðast erfiðleikarnir
við að skrifa nothæft handrit, meiri en
nokkurn grunaði. Það er ekki enn kom-
ið fram á sjónarsviðið eftir stanslausa,
áralanga yfirlegu.
Í síðustu viku birtist ný hraðahindrun
á torfærri leiðinni að 23. Bond-
myndinni, þegar Daniel Craig, stjarna
tveggja síðustu verkanna í bálknum,
Casino Royale og Quantum of Fortune,
skuldbatt sig til að leika í Hollywood-
útgáfu The Girl With the Dragon Tattoo,
eins og metsölubók Stiegs Larsson,
Karlar sem hata konur, nefnist á ensku.
Hún á að verða sannkölluð stórmynd
undir leikstjórn Davids Fincher og eiga
tökur að hefjast með haustinu. Það
þýðir að Craig verður vant við látinn
langt fram eftir árinu 2011. Nú um
stundir er hann að leika í Cowboys and
Indians, og búinn að lofa að manna
framhaldsmynd – ef af verður.
Á meðan Craig fjarlægist æ meir 007,
er MGM að drukkna í baneitraðri
skuldasúpu. Gamla stórveldið hefur
safnað 4 milljörðum dala í hítina og
hefur þegar orðið að gráta út sex fresti
til að greiða niður vextina. Nú er komið
að skuldadögum, lánardrottnar hafa
gefið MGM lokafrest til 15. sept., annars
fer fyrirtækið í gjaldþrot. Í millitíðinni
fær það ekki leyfi til að stunda kvik-
myndaframleiðslu. Löglega skotheldir
samningar handhafa „vörumerkisins“,
EON Productions, hafa staðið í vegi fyr-
ir því að önnur kvikmyndaver hafi get-
að hremmt þessa gullnámu.
Á meðan fjárhagsvandamál og yf-
irvofandi þrot MGM hafa verið nánast
einu fréttirnar af þessu fyrrverandi
stolti kvikmyndaborgarinnar, herma
fregnir að þessi vandamál séu síður en
svo þau einu hjá fyrirtækin. Leyndarm-
úrar EON útiloka mestan hluta frétta
um ástandið innan veggja kvikmynda-
versins, en heimildarmenn, kunnugir
innviðunum og óska nafnleyndar, segja
að ósamkomulag listamanna og fram-
leiðenda um útlit og inntak mynd-
arinnar hafi tafið og skaðað hana gríð-
arlega. Þessar heimildir greina frá því
að Óskarsverðlaunahafinn Sam Mendes
hafi unnið langtímum saman við að
slípa og koma lagi á handrit Peters
Morgan (Frost/Nixon), sem sjálfur hafði
tekið yfir handrit Neils Purvis og Ro-
berts Wade, gamalkunnra Bond-
handritaskrifara. EON er því ekki búið
að senda nothæft handrit til kvik-
myndaversins sem á að dreifa mynd-
inni, og er í þessu tilfelli MGM, eitt án
stuðnings Sony, sem fjármagnaði síð-
ustu tvær myndir.
Vandinn er því sá að jafnvel þó að
nýir eigendur komi að MGM og straui
yfir hrukkurnar (talað er um Warner,
eða samruna MGM, Spyglass og Sum-
mit), þá bólar einfaldlega ekkert á skot-
heldu handriti. Aukinheldur gæti 23.
myndin lent í leikaravandræðum; Bond
er búinn að skjóta Craig upp á stjörnu-
himininn (hann fer t.d. með eitt aðal-
hlutverkið í Tinna-mynd Spielbergs á
næsta ári), og fræðingar telja víst að nýr
leikari í hlutverkið komi ekki til greina.
Handritsvandi nýjustu Bond-
myndarinnar er hjúpaður leynd og
þagnarskyldu en bestu menn hafa kom-
ið við sögu og enginn efast um að að-
dráttaraflið er enn til staðar. Einn
vandinn er að gera myndina hæfa sem
lok þrennu sem hófst á Casino Royale,
en það hefur jafnan verið ásetningurinn.
Þá þarf að fylla þúsund göt með góðum
línum sem leysa erfiðleikana, m.a.
vandann vegna fráfalls Vesper Lynde,
ástkonu spæjarans.
Það er augljóst að mikið er í húfi,
ekki aðeins fyrir framleiðendurna,
heldur alla leikarasúpuna sem hefur
tekist á flug í síðustu tveimur myndum
– sem tóku inn röskan milljarð dala á
heimsvísu. Einlægir aðdáendur upp-
götvuðu í Bondinum hans Craigs nýjan,
myrkan Bond sem fjarlægðist gömlu
njósnamynda-klisjurnar og yf-
irgengilega brelluverkið sem allt var að
kæfa í myndum Brosnans.
Þó að vandi MGM lægi í loftinu, þá
stóð aldrei til að hlutirnir færu á þenn-
an veg. Þegar Mendes og Morgan komu
að myndinni í ársbyrjun var MGM von-
glatt um að tökur hæfust í sumar og
myndin tilbúin að ári. Nú eru kvik-
myndagerðarmennirnir sem áttu að
leiða MGM og James Bond út úr eyði-
mörkinni, horfnir á braut. Þó Mendes
hafi ekki gefið James Bond #23, op-
inberlega frá sér, er hann að hefja tökur
á nýrri mynd, On Chesil Beach, sem
byggð er á rómaðri bók Ians McEwan.
Daniel Craig í hlutverki sínu sem James Bond. Skyldi sögu njósnarans á hvíta tjaldinu ljúka með honum?
REUTERS
Er James Bond
dauðans matur?
Þar kom að því, nýjasta James Bond-myndin er í uppnámi. Öskur gamla
ljónsins, MGM, eru að kafna í skuldafeni og engin bjargráð lengur tiltæk.
Sjálfur 007, Daniel Craig, hefur engan tíma til að taka að sér hlutverkið í
bráð og viðunandi handrit er ekki komið í leitirnar.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Laugardagur 14. ág., kl. 22.40 (RUV).
Jackie Brown (1997) Leikstjóri Quentin
Tarantino. J.B. (Pam Grier), flugfreyja, sem
hefur lifað sitt fegursta, drýgir lág launin
með peningaflutningum fyrir Ordell (Samu-
el L. Jackson), smákrimma sem vill vera
stórlax. Lögguna grunar einnig að skilorðs-
gæslumaðurinn Louis (Robert Forster) sé
með óhreint mjöl í pokahorninu. Við sögu
koma hjásvæfa Ordells, hin gufuruglaða
og bólgraða Melanie (Bridget Fonda) og
seinheppinn smákrimmi (Robert De Niro).
Allir reyna að snúa á alla, en aðeins einn
stendur uppi að lokum, með fúlguna í
höndunum. Prýðileg skemmtun, glórulaust
ofbeldið sem einkenndi fyrri myndir Tarant-
inos, nánast horfið, nema sem nauðsyn-
legt krydd í þessa gráglettnu jaðartilveru.
Er á mörkum þess að sligast undir hömlu-
lausri lengd, Q.T. hefði betur sleppt nokkr-
um blaðsíðum úr bók Leonards. De Niro er
óborganlegur sem einskisnýtur aulabárður
og gaman að sjá Forster og Grier, smá-
stjörnur frá sjöunda áratugnum, í fullri
reisn.
Atriði í myndinni eru ekki við hæfi ungra
barna. Gómorra –
Gomorra (2008)
Sunnudagur 15. ág. Kl. 21:00 (RUV).
Leikstjóri:Matteo Garrone. Aðalleikarar:
Toni Servillo, Gianfelice Imparato, Maria
Nazionale.
Ein eftirtektarverðasta og afdráttarlaus-
asta mynd um ítök mafíunnar á Ítalíu á
síðustu áratugum. Gómorra er byggð á
bók Roberto Saviani um starfsemi glæpa-
fjölskyldna í Napoli, háborg skipulagðrar
glæpastarfsemi í landinu. Myndin hefur
farið sigurför um heiminn, einkum á kvik-
myndahátíðum og er hvalreki öllum kvik-
myndaunnendum. Vann til fjölda verð-
launa, meðal annars Gullpálmann í
Cannes og Evrópsku kvikmyndaverðlaunin.
Atriði í myndinni eru ekki við hæfi
barna.
½
Myndir helgarinnar í sjónvarpi
Smástjörnur
í fullri reisn
Kvikmyndir