SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Side 48

SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Side 48
48 15. ágúst 2010 Þ að sem þú gerðir, þú bauðst ro- samörgum, svo fylltirðu upp með starfsmönnum, skilurðu? Þú keyptir allt miðað við ákveðinn fjölda, svo býðurðu öllum og þú veist að svona líkleg nýting er ákveðin prósenta og svo ertu búinn að, svo býð- urðu ákveðnum lykilstarfmönnum þú vilt að starfsmenn séu að mingla við kúnnana, er, til þess að tryggja, mynda tengsl við þá, það er þá hugsunin, og menn kynnist inn í bankann, það er hugsunin, og síðan þegar eru einhver laus sæti þá bara fylltirðu með fleiri starfsmönnum.“ (Úr rannsóknarskýrslu) Það er alkunna að þjóðir koma sér upp aðli, jafnvel mörgum gerðum í einu. Við Íslendingar erum þar engin undantekn- ing; við höfum, eftir því sem tímarnir hafa liðið og samfélagið tekið breytingum, fundið okkur ýmsar gerðir aðals. Síðasta tegundin var sú versta, fjármálaaðallinn, sem nú hefur vonandi kvatt. Það er eitt einkenni aðalsfólks víða um heim að það tileinkar sér málfar sem verð- ur nokkurs konar merkimiði þess; alþýð- an mátti síðan mæla á óæðri tungu. Það vildi og fylgja aðlinum að þróa með sér ákveðna fyrirlitningu á þeim sem undir hann þjónaði, siðum þeirra, hugmyndum og ekki síst tungutaki þeirra. Það má hafa í huga að franska byltingin gekk ekki ein- göngu út á það að velta úreltu kerfi aðals- ins úr sessi, tungumáli hans var og úthýst sem valdatæki ónýtrar stéttar. Ég hef verið að glugga í rannsókn- arskýrsluna margumtöluðu, sorglegasta rit íslenskt frá öndverðu og ætti að vera skyldulesning allra Íslendinga. Þar er lýst hnignun þjóðar, sem lendir á villigötum, og loks falli hennar. Einn höfunda skýrslunnar lét þess getið að ýmislegt, sem þar kæmi fram, væri svo hryggilegt að það megnaði að kalla fram tár. Það voru orð að sönnu. Það sem vakti meðal annars athygli mína, og margra fé- laga minna raunar, var tungutak hins ís- lenska fjármálaaðals og margra áhangenda hans sem birtist í skýrslutökunni. Það sem við blasir er átakanleg orðfæð auk þess sem myndun setninga og málsgreina er sem hjá litlum börnum sem eru að byrja að tala. Slettur margar og óþarfar eru og áberandi auk undarlegara hugtaka sem fá- ir skilja en virðast hafa verið notuð einmitt vegna þess. Þetta fólk er ekki heimskt, hefur margt háskólanám að baki og langa reynslu af samskiptum við annað fólk. Hvað veldur því þá að málfar þess stendur á þeim brauðfótum sem raun ber vitni? Flestir kannast við það úr æsku sinni að hafa unnið sér eitthvað til óhelgi og þurft að standa fyrir máli sínu gegnt brúnasíð- um föður og harmi lostinni móður. Þá gat okkur skrikað tungufóturinn meðan við vorum að semja haldgóðar sögur (ekki alltaf trúlegar) til að bjarga skinninu. Ekki er ólíklegt að svo hafi nú farið hjá þeim sem nú þurftu að gera þjóð sinni reikn- ingsskil. Varla hefur þeim öllum liðið vel frekar en börnunum. Svo má líka velta því fyrir sér hvort þetta fólk hefur haft nokkurn áhuga á tungumáli þjóðar sinnar. Það hafði í raun sagt skilið við hana og örlög hennar, lifði öðru lífi, þáði önnur laun, barst svo á að engin dæmi eru slíks á Íslandi. Heims- frægur hroki þess og rembingur auk lífs- stíls, sem minnir mest á hegðan ólæsra kókaínbaróna í Suður-Ameríku, átti lítið skylt við lífsbaráttu alþýðunnar á Fróni. Íslensk tunga, fegurð hennar og við- gangur, hefur áreiðanlega ekki verið með- al helstu áhugamála hinnar tignu stéttar. Ekki efa ég að brátt mun enn rísa nýr aðall á Íslandi. Þá ríður á að hann sé vand- anum vaxinn, geti t.d. orðið til fyr- irmyndar öðru fólki, ekki síst því sem er að vaxa úr grasi. Fjármálaaðall okkar var það ekki. Öllu heldur víti til að varast. Það er deginum ljósara að hinn nýfallni aðall þarf nú að meta líf sitt og lífsskoðanir að nýju, verða nýtt og betra fólk, hluti af samfélagi fólksins, ekki yfir neinn hafinn. Hann þarf sem sé að endurfæðast fyrst fyrri fæðingin tókst svo hrapallega. Og hann þarf að læra móðurmálið! Fjármálið ’ Þetta fólk er ekki heimskt, hefur margt háskólanám að baki og langa reynslu af samskiptum við annað fólk. Hvað veldur því þá að málfar þess stendur á þeim brauðfótum sem raun ber vitni? Höfundur veltir því fyrir sér hvers vegna málfar fjármálaaðalsins hafi verið jafn fátæklegt og sjá mmegi í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Frá kynningu Kaupþings á rekstrartekjum 2007. Morgunblaðið/Golli Tungutak Þórður Helgason, thhelga@hi.is Í Bókmennta- og kartöfluböku- félaginu segir frá rithöfundinum Juliet Ashton sem er að skapa sér nafn í London árið 1946 þegar hún fær bréf frá Dawsey nokkrum Adams. Dawsey þessi býr á Guernsey og hefur fyrir tilviljun eignast eintak af bók eftir Charles Lamb sem eitt sinn var í eigu Juliet. Hann biður hana aðstoðar við að útvega sér fleiri og áður en langt um líð- ur á Juliet í bréfaskriftum við meðlimi hins sérkennilega Bókmennta- og kart- öflubökufélags eyjarinnar, sem stofnað var við furðulegar kringumstæður á hernámsárum Þjóðverja á eynni. Höfundur bókarinnar er Mary Ann Shaffer en árið 1980 varð hún stranda- glópur á flugvellinum á Guernsey þegar mikil þoka lagðist yfir eyna. Á meðan hún beið eftir að veðrinu létti úti fyrir, las hún bækur um hernám Þjóðverja á eynni og tuttugu árum seinna lauk hún við skáldsöguna sem byggð er á lífi eyj- arskeggja á árunum 1939-1944. Mary Ann veiktist áður en hún gat gengið frá handritinu eins og útgefandinn vildi en fékk systurdóttur sína, barnabókahöf- undinn Annie Barrows, til að ljúka verkinu. Mary Ann lést í febrúar 2008. Áratuga vinna í ruslið – Ég las einhvers staðar að Mary Ann hefði alltaf verið að skrifa en hefði aldrei lokið við neitt? „Já, hún var alltaf að byrja á einhverju verkefni en kláraði þau aldrei. Hún skildi ekkert eftir sig en í minningunni er hún alltaf að skrifa. Ég man eftir því að þegar ég var lítil skrifaði hún saka- málasögu og frænkur mínar, dætur hennar, muna eftir hverju verkefninu á fætur öðru sem hún var að vinna að en lauk aldrei við. Og hún henti þessu öllu.“ – Veistu af hverju? „Ég held að hún hafi einfaldlega ekki verið sátt við það sem hún skrifaði og ég held líka að hún hafi orðið þreytt á miðri leið. Ég held að oft hafi þetta verið þannig að hún vann að verkefni þar til henni fannst það ekki ganga upp og þá henti hún því.“ – Hún var sem sagt með dálitla full- komnunaráráttu? „Já. (Hlær) Og ég held að henni hafi fundist þessi óþægilega tilfinning, þessi efi á miðri leið, vera tákn um að það sem hún var að vinna að væri mis- heppnað. Að ef þú hefðir efasemdir þá væri eitthvað að. Ég held að þetta sé alls ekki rétt, maður þarf að gefa sér tíma til að vinna sig í gegnum efann, en ég held að hún hafi trúað því að hæfileikinn til að skrifa og semja væri náðargáfa frá guði frekar en vinna og æfing; að ef þú værir ekki fæddur með þessa töfrandi náðargáfu myndi efinn sækja að þér en ef þú hefðir hana myndi þetta bara ger- ast að sjálfu sér.“ – En af hverju heldur þú þá að hún hafi náð að klára Bókmennta- og kart- öflubökufélagið eftir öll þessi ár? „Ég held að það sé tvennt sem skiptir máli hvað það varðar og það fyrra er sú staðreynd að hún hætti að vinna. Það er virkilega erfitt að vera að skrifa og vera í fullu starfi og henni tókst að ljúka við bókina eftir að hún hætti að vinna þannig að ég held að það sé pottþétt tenging þarna á milli. En ég held líka að rithópurinn sem hún var í hafi spilað mjög stórt hlutverk hvað þetta varðar. Þau hjálpuðu henni í gegnum þessi tímabil þegar hún var í miðju kafi og eitthvað var að pirra hana, efinn sótti að henni og þetta var allt ómögulegt.“ – Heldur þú að hún hafi haft hug- mynd um það að bókin yrði eins vinsæl eins og raun ber vitni áður en hún lést? „Ég vona það. Og já, ég held það. Það voru teikn á lofti en ég veit ekki hversu miklu máli það skipti hana. Viku eftir að samið var um útgáfuréttinn í Bandaríkj- unum var búið að semja um útgáfuna í Bretlandi og Ástralíu. Þegar hún lést var ljóst að bókin yrði gefin út í tólf lönd- um, þannig að við vissum að það yrði eitthvað úr þessu en gerðum okkur Bókmennta- og kartöflu- bökufélagið Það tók Mary Ann Shaffer 20 ár að ljúka við Bók- mennta- og kartöflubökufélagið, skáldsögu sem fjallar um hernámsárin á Guernsey í seinni heimsstyrjöldinni. Hún veiktist áður en hún gat gengið frá bókinni til útgáfu en frænka hennar, Annie Barrows, lauk við verkið. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.