Morgunblaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010
Í DAG, laugardag, kl. 14:00 standa
Austfirðingar og Vestfirðingar fyr-
ir mótmælum fyrir framan starfs-
stöðvar RÚV á Egilsstöðum og Ísa-
firði. Þar verður mótmælt niður-
skurði og uppsögnum starfsmanna
Svæðisútvarps Austurlands og lok-
un stöðvarinnar á Ísafirði.
Í tilkynningu frá hópnum á Aust-
urlandi segir að Ríkisútvarpið
standi ekki lengur undir nafni sem
útvarp allra landsmanna og þessar
uppsagnir komi sérlega illa við
Austurland. „Ríkisútvarpið hefur
bæði öryggis- og menningarlegum
skyldum að gegna og því skorum
við á stjórn RÚV og menntamála-
ráðherra að grípa inn í þessa at-
burðarás,“ segir í tilkynningu Vest-
firðinga.
Mótmæla við RÚV
UPPLÝSINGA-
VEFUR dóms-
málaráðuneyt-
isins um
framkvæmd
þjóðaratkvæða-
greiðslunnar 6.
mars nk. hefur
verið opnaður. Á
vefnum sem hef-
ur slóðina www.kosning.is er að
finna fróðleik og hagnýtar upplýs-
ingar er lúta að framkvæmd þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar. Upplýs-
ingarnar nýtast almennum
kjósendum og þeim sem vinna að
kosningunum, t.d. varðandi kjör-
skrá, utankjörfundaratkvæða-
greiðslur og atkvæðagreiðslu á
kjördegi. Fjallað er um lög og
reglugerðir, framkvæmd kosninga
og fleira.
Upplýsingar um
þjóðaratkvæða-
greiðsluna
Kanarí
5. febrúar - 12 nætur
Ótrúlegt sértilboð
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 154.900
-með „öllu inniföldu”
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn,
2-11 ára, í herbergi á Hotel Dunas Mirador í 12
nætur með „öllu inniföldu“. Netverð á mann,
m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“.
167.900 kr. Aukalega m.v. gistingu á Hotel
Eugenia Victoria með „öllu inniföldu“ kr. 33.300.
Frá kr. 154.900
með „öllu innifö
ldu”
HOTEL DUNAS MIRADOR - Ótrúlegt sértilboð!
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 5. febrúar á frábæru
tilboði. Í boði er m.a. frábært sértilboð með „öllu inniföldu“ á Hotel Dunas
Mirador Maspalomas, sem er gott hótel í Sonnenland í Maspalomas sem er
frábær kostur fyrir bæði pör og barnafjölskyldur. Þetta eru allra síðustu sætin
í febrúar - fleiri sértilboð eru einnig í boði í mars. Ath. aðeins örfá sæti í boði!
Flogið er til London á leið til Kanaríeyja. Beint flug heim frá Kanaríeyjum.
ÞÚSUNDIR landsmanna hafa sent
landsliðsmönnum stuðningskveðjur
á ibs.is, eða „Í blíðu og stríðu“, vett-
vangi til stuðnings landsliðinu í
handbolta. Vefurinn er einskonar
miðstöð áhangenda landsliðsins
meðan á Evrópumótinu í Austurríki
stendur og þar gefst fólki kostur á
að taka upp hljóð- og myndkveðjur
með vefmyndavél. Þátttakan hefur
verið gífurlega mikil og hægt að
taka upp kveðjur í gegnum mbl.is
og visir.is. Í gærmorgun höfðu
meira en 2.000 myndkveðjur verið
settar inn á vefinn til að styðja
strákana og yfir 23.000 heimsóknir
eru á ibs.is á hverjum degi.
Morgunblaðið/Kristinn
Áfram Ísland! Öflugur stuðningur.
Mikill stuðningur
FÉLAGIÐ Sterkara Ísland – þjóð
meðal þjóða, hefur opnað nýjan
samfélagsvef á slóðinni www.
sterkaraisland.is. Sterkara Ísland –
þjóð meðal þjóða, er félagsskapur
fólks sem vill vinna að aðild Íslands
af Evrópusambandinu með því að
stuðla að hagstæðum aðildarsamn-
ingi og upplýstri umræðu um aðild-
ina. Vefurinn er vettvangur fyrir
skoðana- og upplýsingaskipti þar
sem fjallað verður um öll málefni
sem tengjast aðildarumsókn Ís-
lands að Evrópusambandinu. Með
vefnum og samskiptum þar getur
fólk hvaðan sem er af landinu verið
virkt í starfinu, segir í tilkynningu.
Sterkara Ísland –
þjóð meðal þjóða
STUTT
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
MUNNLEGUR málflutningur um
frávísunarkröfu í skaðabótamáli um
300 manns á hendur Steingrími J.
Sigfússyni fjármálaráðherra fyrir
hönd fjármálaráðuneytisins vegna
íslenska ríkisins fer fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í næstu viku.
Hilmar Gunnlaugsson hrl. rekur
málið fyrir hönd stefnenda.
Viðurkenni ábyrgð ríkisins
Hver stefnandi krefst þess að við-
urkennd verði sjálfskuldarábyrgð
ríkisins á tjóni viðkomandi vegna
þess mismunar sem var á verðmæti
hlutdeildarskírteina í peningabréf-
um Landsbankans við lokun mark-
aða 3. október 2008 og við uppgjör til
hlutdeildarskírteinishafa 29. október
sama ár. Tjón stefnenda felst í því að
hlutdeildarskírteini þeirra voru met-
in 68,8% af skráðu verðgildi síðasta
opna markaðsdag hjá Kauphöllinni.
Til vara er þess krafist að viður-
kennd verði einföld ábyrgð ríkisins á
tjóninu.
Til þrautavara er þess krafist að
viðurkennd verði með dómi skaða-
bótaábyrgð ríkisins á tjóni stefn-
enda vegna þess mismunar sem var
á verðmæti hlutdeildarskírteina í
peningabréfunum sem hlaust af
setningu neyðarlaganna, sem tóku
gildi 7. október 2008.
Til þrautaþrautavara er þess kraf-
ist að viðurkennd verði með dómi fé-
bótaábyrgð ríkisins á tjóninu vegna
neyðarlaganna.
Þess er jafnframt krafist að ís-
lenska ríkið greiði stefnendum máls-
kostnað.
Orð ráðherra standi
Í stefnunni er meðal annars vísað
til orða þáverandi forsætisráðherra
við lokun banka mánudaginn 6. októ-
ber 2008 og við setningu neyðarlag-
anna skömmu síðar þess efnis að all-
ar innistæður Íslendinga og
séreignarsparnaður í íslenskum
bönkum væru trygg og ríkissjóður
myndi sjá til þess að þessar inni-
stæður skiluðu sér til sparifjáreig-
enda að fullu.
Krefst frávísunar
Skarphéðinn Þórisson hrl. flytur
málið fyrir hönd ríkisins. Hann
krefst þess að málinu verði vísað frá
dómi og stefnendur greiði máls-
kostnað. Til vara er þess krafist að
ríkið verði sýknað af öllum kröfum
og að stefnendur greiði máls-
kostnað.
Stefndi mótmælir því að ráð-
herrar hafi lýst því yfir að ríkið
myndi tryggja hlutdeildarskírteini
og segir að ákvæði um forgangsrétt
innistæðukrafna við slit fjármálafyr-
irtækja í neyðarlögunum taki ekki til
ýmissa ávöxtunarsjóða og þar á
meðal peningamarkaðsbréfa.
Um 300 manns höfða mál á
hendur íslenska ríkinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Réttur Þeir sem áttu peningamarkaðsbréf í Landsbankanum töpuðu þriðj-
ungi af sparnaði sínum og vilja að ríkið tryggi að þeir fái tjónið bætt.
Í HNOTSKURN
»Í stefnunni kemur fram aðstarfsmenn Landsbankans
hafi hvatt viðskiptavini bank-
ans til að fjárfesta í hlutdeild-
arskírteinunum sem áhættu-
lausum eða -litlum
fjárfestingarkosti.
»Þegar stefnendur keyptu ípeningabréfum nutu inni-
stæðureikningar ábyrgðar
sérstaks tryggingarsjóðs.
Eigendur peningamarkaðsbréfa í Landsbankanum leita saman réttar síns
KOSIÐ verður til sveitarstjórna hér á landi í maí næstkomandi.
Morgunblaðið mun þangað til reglulega birta fréttir sem tengjast
framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl.
Kosningar árið 2010
Framsóknarmenn í Kópavogi efna til prófkjörs hinn 27.
febrúar nk. Kosið verður í sex efstu sætin á framboðs-
lista flokksins við sveitarstjórnarkosningarnar sem fram
fara 29. maí næstkomandi.
Eftirtaldir bjóða sig fram í prófkjörinu:
Alexander Arnarson málarameistari, Andrés Pét-
ursson, skrifstofu- og fjármálastjóri, Baldvin Sam-
úelsson tryggingaráðgjafi, Birna Árnadóttir húsmóðir,
Einar Kristján Jónsson rekstrarstjóri, Gestur Valgarðsson verkfræð-
ingur, Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, Kristján Matthíasson efna-
fræðingur, Ólöf Pálína Úlfarsdóttir kennari, Ómar Stefánsson bæjar-
fulltrúi, Ragnhildur Konráðsdóttir ráðgjafi, Sigurjón Jónsson
markaðsfulltrúi og Una María Óskarsdóttir, uppeldis- og mennt-
unarfræðingur.
Prófkjör framsóknarmanna í Kópavogi
HELGA Ragnheið-
ur Stefánsdóttir
varabæjarfulltrúi
hefur ákveðið
að gefa kost á sér í
3.-4 sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnar-
firði sem fram fer í dag. Helga
Ragnheiður hefur setið í fræðslu-
ráði og starfað ötullega að félags-
málum í Hafnarfirði.
Helga Ragnheiður
stefnir á 3-4. sæti
EINAR Kristján
Jónsson rekstrar-
stjóri býður sig
fram í 1. sæti í
prófkjöri Fram-
sóknarflokksins í
Kópavogi. Hann
hefur verið virkur
í flokksstarfi Framsóknar um langt
skeið. Þá hefur Einar Kristján setið
í ýmsum nefndum Kópavogs á und-
anförnum árum.
Einar Kristján
stefnir á 1. sætið
SKARPHÉÐINN
Orri Björnsson,
varabæjarfulltrúi
og framkvæmda-
stjóri, gefur kost á
sér í eitt af efstu
sætunum í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði sem fram fer
í dag. Hann hefur verið varabæjar-
fulltrúi með hléi frá árinu 1998.
Skarphéðinn stefn-
ir á efstu sætin
KRISTINN Ander-
sen, verkfræð-
ingur og rann-
sóknastjóri hjá
Marel, gefur kost
á sér í 2. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Hafnarfirði í dag. Kristinn hefur
starfað í mörgum nefndum bæjar-
ins undanfarin 15 ár auk annarra
trúnaðarstarfa.
Kristinn gefur kost á
sér í 2. sæti listans