Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttir una@mbl.is HEILDARSKULDIR ríkissjóðs hafa aukist um 866 milljarða í kjölfar falls bankanna, eða úr 310 milljörð- um króna árið 2007 í 1.176 milljarða í lok árs 2009. Þetta þýðir að heildarskuldir rík- issjóðs sem hlutfall af landsfram- leiðslu voru 78% í lok árs 2009. Fjármálaráðuneytið segir að rekja megi stærstan hluta þessarar miklu skuldaaukningar til fjárfestingar í eignum sem standi á móti þeim skuldum. Þannig hafi erlendar skuldir ríkissjóðs numið 356 millj- örðum í lok árs 2009 en á móti þeim standi gjaldeyrisvaraforði að fjár- hæð 281 milljarður. Hreinar erlend- ar skuldir voru því 75 milljarðar. Innstæður 164 milljarðar Þá nema skuldir vegna endur- reisnar á bankakerfinu um 186 millj- örðum króna en á móti þeim standa samsvarandi eignarhlutar og lán- veitingar til bankanna. Innlendar markaðsskuldir nema 625 milljörðum en á móti þeim eru innstæður ríkissjóðs í Seðlabankan- um að fjárhæð 164 milljarðar. Ráðuneytið segir að núverandi lausafjárstaða ríkissjóðs sé góð og voru innstæður ríkissjóðs í Seðla- bankanum 164 milljarðar um síðustu áramót. Ríkissjóður getur því, að sögn fjármálaráðuneytisins, endur- fjármagnað lán að andvirði 130 millj- arða, sem eru á gjalddaga á árinu. Fjárþörf ríkissjóðs vegna halla- reksturs hafi verið fjármögnuð að fullu á innlendum skuldabréfamark- aði sem sé til marks um það traust sem fjárfestar beri til ríkisins. Minnkandi skuldir á næsta ári Samkvæmt langtímaáætlun í rík- isfjármálum sem lögð var fyrir Al- þingi síðastliðið haust er gert ráð fyrir því að heildarafkoma ríkissjóðs verði í jafnvægi árið 2012 og að af- koman verði jákvæð 2013. Skv. áætluninni munu skuldir fara minnkandi frá og með næsta ári. Ríkið skuldar 1.176 ma.kr. Í HNOTSKURN »Heildarskuldir ríkissjóðs íárslok 2009 námu 78% af vergri landsframleiðslu. »Á sama tíma námu hreinarskuldir ríkissjóðs 395 af VLF en á móti þeim standa eignir s.s. í orkufyrirtækjum.  Heildarskuldir ríkissjóðs hafa tæplega fjórfaldast eftir hrun bankakerfisins  Lausafjárstaðan er þó trygg og stendur undir afborgunum fram á næsta ár STARFSFÓLK Loðnuvinnslunnar hafði nóg að gera í gær eftir að norska loðnuveiðiskipið Staalöy kom til hafnar á Fáskrúðsfirði um fimmleytið með 1.200 tonn af loðnu úr Barents- hafi. Að sögn Gísla Jónatanssonar, fram- kvæmdastjóra Loðnuvinnslunnar, voru hrogn unnin úr loðnunni í gærkvöldi og í nótt. „Það er mikið að gera á Fáskrúðsfirði og hljóðið er gott í fólki,“ en búið er að vinna um 7.500 tonn af loðnu það sem af er vetri. „Við förum í um 10.000 tonn með þessu,“ sagði Gísli, því von er á öðru skipi með 1.200 tonna loðnufarm til Fáskrúðsfjarðar á miðvikudag – fimmtudag. Ágætlega hafi líka gengið þrátt fyrir litla loðnuúthlutun þetta árið. „Þannig að við getum bara verið nokkuð sáttir.“ Ljósmynd/Albert Kemp Loðna úr Barentshafi unnin á Fáskrúðsfirði Nóg að gera hjá Loðnuvinnslunni MAÐURINN sem lést í umferðar- slysi á Vallarvegi á Héraði á laugar- dagsmorgun hét Þórólfur Helgi Jón- asson og var frá Lynghóli í Skriðdal. Hann var fæddur árið 1988 og var ógiftur og barnlaus. Lést í umferðarslysi EIGANDA Nesvegar 107 ber að færa sjóvarnargarð á lóð sinni í fyrra horf án tafar. Þetta er úrskurður byggingafulltrúa Seltjarnarnes- bæjar og hefur eigandanum, sem er fasteignafélagið B-16, verið veittur frestur til að verða við tilmælum bæjaryfirvalda. Í húsinu býr Guðmundur Krist- jánsson útgerðarmaður, löngum kenndur við Brim hf. Athygli vakti á síðasta ári er hann lét ryðja niður sjóvarnargarði á nokkurra metra belti fyrir framan hús sitt án þess að fá leyfi fyrir aðgerðunum. Breytingin á sjóvarnargarðinum getur hins vegar skapað hættu að mati Siglingastofnunar sem mælist til þess að garðurinn verði færður í fyrra horf. Í bréfi byggingafulltrúa Seltjarnarness til eiganda Nesvegar 107 segir að ljóst sé að „framan- greindar breytingar á lóðinni og fjörunni geta skapað hættu og leitt af sér tjón á fasteignum á svæðinu“. Hljótist tjón geti það ennfremur leitt til bótaskyldu lóðarhafa skv. al- mennum skaðabótarétti. Eigandi Nesvegar 107 óskaði, eft- ir að honum bárust athugasemdir bæjaryfirvalda og áður en úrskurður byggingafulltrúa lá fyrir, eftir sam- vinnu um hönnun sjóvarnargarðsins. Stefán Eiríkur Stefánsson, bæjar- verkfræðingur á Seltjarnarnesi, seg- ir beiðnina ekki breyta úrskurðinum. „Það var ekki sótt um leyfi fyrir framkvæmdunum fyrirfram líkt og hefði átt að gera,“ segir hann. Sjónarmið eigandans varðandi að- gengi að fjörunni eigi þó fullan rétt á sér. „Garðinn má vel hanna með til- liti til þess og vilji hann gera það, þá er eðlilegast að hann geri það í sam- vinnu við Siglingastofnun og leggi hönnunina svo fyrir.“ annaei@mbl.is Endurreisi varnargarð  Eigandi getur reynst skaðabóta- skyldur verði tjón Morgunblaðið/Ómar Rof Varnargarðurinn var rofinn. HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjaness um að móðir og fósturfaðir barns sæti farbanni til 6. apríl. Er maðurinn grunaður um að hafa hrist barnið og valdið því áverka. Fram kemur í úrskurði héraðs- dóms að barnið var lagt inn á Land- spítala í ágúst 2009 vegna hratt vax- andi höfuðmáls. Við rannsóknir á barninu vaknaði sterkur grunur um að barnið hefði orðið fyrir áverka, líklega hristingsáverka. Áverkarnir voru taldir alvarlegir og kynnu að hafa í för með sér varanlegar heilsu- farslegar afleiðingar. Eftirlýstur í Póllandi Lögreglan yfirheyrði manninn, sem kannaðist við að hafa í nokkur skipti í leik hent barninu upp í loftið og gripið það. Kvaðst vitni hafa séð manninn hrista barnið með harka- legum hætti. Í úrskurðinum kemur fram að upplýsinga um manninn hafi verið aflað frá Interpol í heimalandi hans, Póllandi. Þar sé hann eftir- lýstur, sem og þekktur að líkams- árásarbrotum, fjársvikum, efna- hagsbrotum og ölvunarakstri. Móðir barnsins er einnig erlend að uppruna. Segir í úrskurði héraðs- dóms, sem Hæstiréttur staðfesti, að nauðsynlegt sé að hún og barnið dvelji hér áfram svo hægt sé að rannsaka afleiðingar ætlaðs brots og af hverju áverkarnir kunni að stafa. Í farbanni fyrir að hrista barn Áverkarnir alvarlegir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.