Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010 ✝ Fanney Sig-urgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 29. maí 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík 2. mars sl. Foreldrar hennar voru Sig- urgeir Björnsson, fæddur á Gafli í Flóa 25.10. 1899, d. 18.11. 1943 og Fanney Jóns- dóttir, fædd í Bræðra- borg, Seyðisfirði 7.3. 1909, d. 26.10. 1943. Systkini Fanneyjar eru: Guðrún Guðlaug, f. 25.8. 1926; Rósa María, f. 27.11. 1928, d. 13.1. 2010; Benný, f. 9.9. 1929, d. 3.9. 2008; Jónbjörn f. 2.3. 1931, d. 5.8. 1951; María, f. 30.8. 1933; Friðgeir, f. 18.6. 1935; Margrét Sigurbjörg, f. 1.9. 1936; Sigvaldi, f. 16.2. 1939. Eftirlifandi maki Fanneyjar er Magnús Albertsson, f. 24.2. 1932, í Reykjavík, matsveinn, en þau giftust 25.12.1965. Foreldrar hans voru Al- bert Guðbjartur Pálsson, f. 11.9. 1893, d. 17.11. 1971, og Ragnhildur Sumarlína Magnúsdóttir, f. 22.10. 1902, d. 4.7. 1967. Börn Fanneyjar eru: 1) Ásdís Margrét, f. 15.8. 1956, hjá elliheimilinu Grund 1967-1969 er hún hóf störf á Borgarspítalanum við ræstingar og í býtibúri. En með því starfi vann hún í Breiðholtskjöri á árunum 1971-82. Fanney hætti 67 ára að vinna og hafði þá unnið á Borgarspítalanum í 30 ár. Fanney var mikill vinnuþjarkur, vandvirk og ósérhlífin. Hún var nær aldrei veik frá vinnu öll þau ár sem hún vann. Fanney bjó nær alla sína ævi í Reykjavík, þ.e. á Bjarnaborg við Hverfisgötu, á Miklubraut, Sogavegi og tæp 40 ár í neðra Breiðholti og þá í Grafarvogi. Um 68 ára aldur greindist Fanney með Alzheimer- sjúkdóminn, sem dró hana ásamt öðru með tímanum til dauða. Fann- ey fór í dagvistun á Eir 2005, eftir dagvistun sá barnabarn hennar, Fanney, um umönnun hennar og fær hún sérstakar þakkir fyrir það. Fanney veiktist í mjöðm haustið 2006 og í kjölfarið var hún lögð inn á hjúkrunarheimilið Skjól, og síðar á hjúkrunarheimilið Eir í mars 2009, en þar leið henni mjög vel. Fanney fékk hægt andlát að viðstöddum nánustu ástvinum sínum. Útför Fanneyjar Sigurgeirsdóttur fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 16. mars 2010 og hefst athöfnin kl. 15. gift Þór Kristjánssyni, börn þeirra: a) Magn- ús Kristján, f. 23.9. 1976, í sambúð með Ólínu Kristínu Jóns- dóttur. b) Solveig Margrét, f. 26.4. 1979, sonur hennar Ásþór Breki, f. 28.4. 2003. c) Fanney Bjarnþrúður, f. 11.4. 1984. 2) Ágúst, f. 15.7. 1966. Fanney lauk prófi frá húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1956 og sótti síðar ýmis námskeið um ræstitækni. Fanney ólst upp í stórum systkinahóp. Þau bjuggu í Bjarnaborg við Hverfisgötu í Reykjavík. Foreldra sína missti Fanney með þriggja vikna millibili árið 1943, aðeins 11 ára gömul. Var hún þá send til föðurbróður síns Friðgeirs, f. 1891, d. 1966, og konu hans Soffíu Richter. Fimmtán ára fór hún til vinnu að Saurum, 16 ára gömul á Elliheimilinu Grund sem hún vann til ársins 1958. Þá starfaði hún hjá þvottahúsinu Grýtu til 1960 er hún fluttist á Akranes. Þar vann hún ýmis störf en flytur aftur til Reykjavíkur 1965. Hún starfar aftur Elsku besta mamma mín. Nú eru allar þjáningar þínar að baki, Nú ertu laus við Alzheimerssjú- dóminn og líður vel hjá guði, og nú ertu búin að hitta Bóbó sem þú beiðst eftir að hitta, mömmu þína og pabba og systur þínar, þær Rósu og Benný. Mikið var erfitt að horfa á þig verða svona veika og fjarlægast okkur hægt og hægt og heyra þig gráta og kalla á mömmu þína. Oft fór ég að gráta þeg- ar ég var komin út í bíl eftir að ég var hjá þér. Elsku mamma mín, ég man hve það var yndislegt að liggja á handleggnum á þér þegar ég var að sofna og þú fórst með bænirnar og versin með mér og svo töluðum við saman lengi á eftir. Ég man hversu stolt þú, pabbi og ég vorum þegar þú eignaðist litla bróður minn. Ég man hversu dugleg þú varst, alltaf boðin og búin að hjálpa okkur og öðrum. Margar veislurnar bakaðir þú fyrir okkur og aðra. Ef mig vant- aði aðstoð við saumaskapinn, prjóna peysu, bakstur eða hvað sem var komst þú og hjálpaðir mér. Ég man eftir jólunum hjá þér, hve þú varst kröfuhörð um að jólatréð væri vel skreytt, hversu þú varst allt- af rausnarleg í gjöfum, þó að lítil pen- ingaráð væru þá áttu allir að fá góða jólagjöf. Ég man þegar við tipluðum yfir allar mýsnar á gólfinu þegar við þurftum á klósettið niðri á kvöldin í Miðengi þar sem við áttum heima. Ég man þegar þú þurftir að fara út í frost og kulda og laga olíufíringuna með því að blása í rörið og losa stífluna svo olían kæmist í gegn. Ég man hvað það var fínt hjá okkur í aðeins 30 fm íbúð. Hve stolt þú varst að flytja í eigin íbúð í Breiðholtinu, hvað okkur fannst við vera komin í stóra höll, enda 80 fm. Ég man hvað þér fannst gaman á gamlárskvöld að horfa með okkur á allar raketturnar, fyrst alltaf hjá Geira og Rósu í Gauks- hólum og seinna hjá okkur Þór og barnabörnunum í Dúfnahólum. Ég man hvað þér þótti gaman að ferðast með fjölskyldunn bæði í hústjaldinu og tjaldvagninum, og eins í ferðabíl- unum ykkar. Alltaf hafðirðu tíma fyr- ir krakkana að leika við þau í útilegu- num og með fulla dalla af snúðum og vínarbrauðum. Mikið fannst þér gaman þegar þú fórst til útlanda, til 8 landa, með Gunnu og Nonna. Eins þegar þú, ég, Solla og Fanney fórum til Benidorm, og þegar þú, vatnshrædda konan, lést þig fljóta á vindsænginni í sjónum. Og hvað þér fannst kokteillinn góður sem þú fékkst að smakka. Hafðir aldrei smakkað svoleiðis áður. Ég man hve gott var að tala við þig þegar mér leið illa og gott að hringja í þig og spjalla, mér var strax farið að líða betur við að heyra röddina í þér í símanum. Þú varst alltaf besti trúnaðarvinur minn. Elsku mamma mín, ég þakka þér fyrir að hafa átt þig fyrir móður, eng- in mamma var betri en þú. Elsku mamma mín, þakka þér hve þú varst dásamleg við börnin mín og mikill trúnaðarvinur þeirra líka. Elsku mamma mín, ég þakka þér hve þú varst yndisleg við Þór. Elsku mamma mín, guð blessi þig. Ég kveð þig með vísunni sem þú fórst alltaf með ásamt mér fyrir svefninn. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þín dóttir. Ásdís Margrét. Elsku mamma. Það var erfitt að vakna við símann, þriðjudaginn 2. mars sl. þegar dóttir þín sagði mér að koma strax heim til pabba. Þá vissi ég hvað var í vændum, einhvern veginn fann það á mér að þessi dagur ætti eftir að verða þinn síðasti. Og dag- arnir síðan hafa verið erfiðir, grátið, en við að hugsa um að þú hafir nú fengið hvíldina frá þessum hræðilega sjúkdómi og fengið nýtt líf hjá guði frelsara okkar og komin í starf fyrir hann á himnum, hefur það gefið mér frið og að vita að þú ert nú komin til Bóbó bróður þíns sem þú sagðir mér þegar ég var ungur að þig hlakkaði til að hitta þegar kall þitt kæmi, og svo ertu nú hjá systkinum þínum og for- eldrum. Ég veit þú hefur það gott þar í dag, örugglega farið beint í afmælisveislu bróður þíns sem fæddist einmitt dag- inn sem kall þitt kom. Það er margs að minnast og margs að þakka. Ætla ég rétt að fara yfir nokkrar af minn- ingum mínum um þig. Frá æsku minni man ég allar stundirnar sem ég átti með þér á vinnustöðum þínum, á Borgarspítal- anum, fara í góðan sunnudagsmat þar var fastur liður. Svo í Breiðholtskjöri hvar ég síðar varð starfsmaður 12 ára gamall. Þá er líka í minningunni þeg- ar þú last með mér fyrir próf, hafðir sjálf bara venjulega menntun en last bækurnar vel til að geta spurt spurn- inga sem líklega kæmu á prófi. Var líka alveg frábært hvernig þú hjálp- aðir Magga og Sollu, með lestur fyrir ökupróf þeirra. Og svo líka, er ég varð eldri og trúaður, ferðirnar í messu með þér. Í dag er efst í minningunni síðasta skiptið sem ég hitti þig á Eir og þú sagðir: „Ertu nú kominn elsku dreng- urinn minn,“ og straukst kinn mína. Og ávallt kemur í hugann vögguljóðið sem þú söngst fyrir mig með Ásdísi þegar ég var krakki, sem er: Farðu nú að sofa, Þá skal ég þér lofa litlum bíl á morgun, svo þú gleymir sorgum. Nú í dag dáist ég að því hvað þú varst dugleg í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú hafðir yndi af að ferðast um landið og eru í minning- unni ferðir með systkinunum þínum og fjölskyldum þeirra. Þá er í minningunni ferðalag þitt með minni fyrrverandi, Sirrý, til Ed- inborgar. Hvað þú gast labbað og hvað þú reyktir lítið í þeirri ferð. Var líka yndislegt hvað þið náðuð vel sam- an. Það er svo margt sem maður minnist en ekki hægt að koma fleira að hér. Ég vil þakka þér hvað þú hjálpaðir mér mikið við allt og ekki síður þegar ég fór að búa einn, og hvað þú hugsaðir alltaf vel um allt. Þú varst alla tíð minn trúnaðarvinur og ég gat leitað til þín með allt. Þú vissir líka allt um mig. Ég elska þig svo mikið og er þér svo þakklátur fyrir tímann okkar saman og að hafa fengið að halda í höndina þína og strjúka enni þitt, stundina sem þú kvaddir, og verið þér nálægur síðustu klukkutímana. Ég bið guð um að styrkja okkur öll í sorg- inni. Þá vil ég ásamt fjölskyldunni þakka starfsfólki Hjúkrunarheimil- anna Skjóls og Eir alla umönnun mömmu og á Eir leið henni vel. Þakka einnig pabba hvað hann var duglegur að sinna henni í veikindum hennar bæði hér heima og á hjúkrunarheim- ilunum. Guð blessi minningu Fann- eyjar Sigurgeirsdóttur. Ágúst Magnússon. Elsku amma. Nú ertu laus við þennan hræðilega sjúkdóm. Og nú ertu komin til mömmu þinnar og pabba og systkina þinna Bóbó, Bennýar og Rósu og veit ég að þú ert svo ánægð að vera komin til þeirra og þau munu passa þig fyrir mig. Ég er sest niður og skrifa nokkur minningarorð um þig, elsku amma mín. Ég man þegar ég var lítil, þá elskaði ég að koma til þín í vinnuna og hjálpa þér að vinna. Bæði á Borgar- spítalanum og þegar þú varst að skúra í stigagöngunum. Alltaf mátti ég hjálpa þér að þrífa gólfin og setja í vélarnar. Þér fannst líka svo gaman að hafa mig hjá þér og fórst með mig inn í eldhús og gafst mér mjólk og kex og montaðir þig aðeins á nöfnu þinni. Man alltaf á jólunum, þá dönsuðum við kringum jólatréð. Bæði þegar ég var lítil og þegar ég var að koma með börnin sem ég var að passa. Þú hafðir yndi af börnum og öll börnin sem ég passaði tókstu sem þín eigin barna- börn og þau voru farin að kalla þig ömmu. Þú alveg elskaðir að dansa og syngja við lög. Alltaf þegar mér leið illa þá rölti ég til þín og alltaf gastu komið mér í gott skap. Mér fannst líka svo gaman að koma og fá að gista hjá ykkur afa þó þú hafir ekki sofið mikið þær nætur því ég vildi alltaf vera alveg upp að þér. Þú elskaðir að baka og það besta sem ég gat fengið voru snúðarnir þín- ir og vínarbrauðin. Svo fannst þér svo gaman að ferðast með okkur fjöl- skyldunni og ættingjunum. Þá kom ég til þín í ferðabílinn og fékk snúða eða vínarbrauð. Svo varstu alltaf með fullt box af smurðu brauði með eggj- um og fleira góðgæti. Eftir að þú veiktist af alzheimer- sjúkdómnum þá var ég mikið með þig og fannst þér rosalega gaman að kíkja smá-rúnt og kaupa okkur ís, þú alveg elskaðir að fá ís og svo fannst þér rosa-gaman að kíkja til Rósu og Geira. Ég man í hittiðfyrra, þá fór ég með þér í jólaföndur upp á Skjól og þú stóðst upp og söngst með og svo dillaðir þú þér. Allir dáðust að þér og sögðu ég ætti svo skemmtilega ömmu að þú værir alltaf að syngja og dansa. Ég er svo þakklát að hafa fengið að vera hjá þér þegar þú kvaddir þennan heim. Ég þakka þér fyrir að hafa komið fyrstu nóttina í draumum mín- um og nú veit ég að þú ert á góðum stað þar sem þér líður vel. Og ég mun passa afa og börnin þín fyrir þig eins og þú baðst um í draumnum. Hvíldu í friði, elsku amma mín, og takk fyrir allt. Ég veit að við munum hittast seinna á himninum. Elska þig, amma mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta, skæra veki þig með sól að morgni. (Ásbjörn Morthens.) Þitt barnabarn, Fanney Bjarnþrúður Þórsdóttir. Elsku amma. Nú ertu loksins laus við þennan hræðilega sjúkdóm, og ert búin að hitta mömmu þína og pabba, sem þú ert búin að þrá svo lengi. Systkinin þín Bóbó, Bennýju og Rósu. Ég ætla að skifa nokkur minning- arorð um þig, elsku amma mín. Ég man að þegar ég var lítil varst þú sú eina sem máttir passa mig. Við náðum svo vel saman, ég hló að þér og fannst þú æðisleg. Man líka skemmtilega tíma í úti- legunum með þér, ég vildi alltaf fá að gista í húsbílnum ykkar eða tjald- vagninum. Tala nú ekki um þegar við fórum í sumarbústað til ykkar, þú bakaðir dag og nótt, fullt af boxum af kanelsnúðum og vínarbrauðum, þetta voru sko ömmusnúðar og ömmuvín- arbrauð. Þú varst líka algjör barnagæla, tókst alltaf svo vel á móti mér með öll börnin sem ég kom með til þín í heim- sókn, þú dekraðir við þau alveg í bak og fyrir, oft á jólunum dansaðir þú við þau í kringum jólatréð heima í stof- unni hjá þér. Og öll kölluðu þau þig ömmu. Þú varst minn trúnaðarvinur, ég gat sagt þér allt, og alltaf þegar mér leið ílla þá labbaði ég til þín í Grýtu- bakka og þú komst mér til að brosa eða hlæja. Ég kom oft grátandi til þín og þú knúsaðir mig fast og straukst tárin úr andlitinu mínu og sagðir allt- af þetta er allt í lagi, viltu fá þér mjólk og matarkex, eða mjólk og vínar- brauð? Þegar ég svo var að taka bílprófið lastu með mér yfir bókina, og studdir mig í bak og fyrir. Þú ætlaðir að láta mig ná þessu, og gafst ekki upp, ég kom alltaf til þín eftir skólann. Og þú last með mér yfir bókina. Og þegar ég féll þá studdirðu mig áfram þegar ég var svo sár að ná ekki, og þú last enn betur með mér og þegar ég náði varstu svo ánægð. Og þegar ég fékk ökuskírteinið varstu með þeim fyrstu sem fengu að koma í bíltúr með mér. Þegar ég sagði þér að ég væri ólétt að litla englinum, varstu svo spennt að fá loksins langömmubarn. Fylgd- ist með öllu, og fékkst að koma með í sónar, það fannst þér æði, að sjá hann hreyfa sig og sjá hjartsláttinn og svo fengum við að vita kynið. Svo þegar hann fæddist komst þú að kikja á hann og fékkst að halda á honum. Ég man að þér fannst hann alveg eins Maggi bróðir þegar hann var lítill, þú varst svo stolt amma. Þú varst alltaf svo stolt að fá að passa hann, enda elskaði hann að fara til þín í pössun. Þú komst honum allt- af til að hlæja eða brosa. Þegar mamma og léttsveitin voru með tónleika bauð ég þér alltaf með. Þú ljómaðir alveg þegar þú hlustaðir á þær, enda hafðirðu svo gaman af tónlist. Eftir að þú veiktist þá fórum við oft í ísrúnt, þér fannst ís svo góður, alveg elskaðir hann. Við fórum líka með Ás- þór Breka að gefa öndunum brauð og fannst þér það rosagaman. Ég er svo þakklát fyrir að hafa ver- ið með þér allan daginn sem þú kvaddir þennan heim. Hvíldu í friði, elsku amma mín, ég elska þig, Takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Ó, hún var ambáttin rjóð hún var ástkonan hljóð hún var amma svo fróð. Ó, athvarf umrenningsins inntak hjálpræðisins líkn frá kyni til kyns. (Ómar Ragnarsson.) Þín dótturdóttir, Solveig Margrét. Amma mín, ég elska þig, elsku amma mín Þú varst alltaf svo góð við mig þeg- ar ég var lítill. Þú gafst mér alltaf fallega gjöf þeg- ar ég var lítill. Þegar ég var alltaf að leika mér í bíló varst þú oft að leika með mér þegar ég var lítill. Ég sakna þín svo mikið, elsku amma mín. Ég veit að þú passar mig hjá Guði, elsku amma mín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elska þig, Ásþór Breki. Fanney Sigurgeirsdóttir Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.