Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 6
Í HNOTSKURN »Tvö fyrirtæki eru lang-stærst á fóðurmarkaði, Fóðurblandan og Lífland. Fóð- urblandan er í eigu Kaup- félags Skagfirðinga og Auð- humlu. Fóðurblandan keypti á sínum tíma Áburðarverk- smiðjuna og Bústólpa. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „ÞAÐ hljóta að gilda einhverjar leikreglur þegar kemur að skulda- niðurfellingu. Það hefur orðið hrun. Þetta eru hamfarir og það er verið að reyna að laga til þannig að fólk geti haldið áfram að búa hérna og starfrækja fyrirtæki. Það getur ekki verið að mál séu afgreidd með þeim hætti að niðurstaðan ráðist af því undir hvaða ljósastaur maður stendur,“ sagði Bergþóra Þorkels- dóttir, framkvæmdastjóri Líflands. Arion banki hefur samþykkt að lækka skuldir Fóðurblöndunnar niður í um tvo milljarða, en fyr- irtækið skuldaði 5,1 milljarð í árs- lok 2008. Á móti ætla hluthafarnir að koma með 600 milljónir í aukið eigið fé. Helsti samkeppnisaðili Fóðurblöndunnar er Lífland. Bergþóra sagði að það væri að sjálfsögðu jákvætt að bankarnir væru að taka á skuldavanda fyrir- tækja og heimila, en það væri full ástæða til að hafa áhyggjur af framkvæmdinni. „Maður hlýtur að gera þá kröfu til bankanna að það sé gert með sama hætti fyrir alla og þau hagi sér eins gagnvart fyrirtækjunum.“ Skekkt samkeppnisstaða Bergþóra sagði að í ársreikn- ingum fóðurfyrirtækjanna kæmi fram að eiginfjárhlutfall Líflands og Fóðurblöndunnar hefði verið svipað í árslok 2008. Þá var eigin- fjárhlutfall Fóðurblöndunnar 12% og Líflands 15%. „Það segir sig sjálft að þegar Fóðurblandan fær u.þ.b. 60% eftirgjöf á skuldum ef miðað er við heildarskuldir og koma á móti með 12% í nýtt hlutafé, að ef við eigum ekki að njóta sambærilegra kjara þá felur það í sér afar skekkta samkeppnis- stöðu. Ég hlýt að gera þá kröfu að bankarnir skekki ekki alvarlega samkeppnisstöðu fyrirtækja í svip- uðum greinum.“ Bergþóra sagðist hafa kannað hjá viðskiptabanka Líflands hvort fyrirtækið gæti fengið felldar niður skuldir líkt og Fóðurblandan og standa þær viðræður enn yfir. Þó er óhætt að segja að þunglega hafi verið tekið í viðlíka lausn og raun- in varð á í tilfelli Fóðurblöndunn- ar. Þess má geta að nýlega kom fram í fréttum að Sláturfélag Suðurlands, sem einnig er í fóður- innflutningi, hefði fengið felldar niður skuldir sem nema 575 millj- ónum. Bergþóra sagðist reikna með að Fjármálaeftirlitið og Samkeppnis- eftirlitið hefðu eftirlit með þessu. Það hlyti að vera verkefni þeirra að tryggja að fyrirtækin væru skil- in eftir samkeppnishæf gagnvart hvort öðru. Miklar fjárfestingar Lífland hefur staðið í miklum fjárfestingum, en fyrirtækið er á næstu vikum að taka í notkun nýja fóðurverksmiðju á Grundartanga. Framkvæmdirnar eru fjármagnað- ar að stórum hluta með sölu eigna í Reykjavík. Bergþóra sagði að Lífland væri í svipaðri stöðu og flest fyrirtæki í landinu. Á því hvíldu skuldir í erlendri mynt sem hefðu næstum tvöfaldast með hruni krónunnar. Spyr um leik- reglur við niður- fellingu skulda  Fyrirtækið Lífland undrandi á mikilli skuldalækkun Fóðurblöndunnar Morgunblaðið/RAX Lífland Á næstu vikum tekur Líf- land í notkun nýja verksmiðju. 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010 FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is HILDIGUNNUR Hafsteinsdóttir, lögfræðingur hjá Neytendasamtök- unum, segir að samtökin hafi í gegn- um tíðina fengið ótal fyrirspurnir vegna gjafabréfa og þá fyrst og fremst vegna gildistíma þeirra. Lendi fólk í því að eiga gjafabréf eða hafa gefið slíkt bréf frá fyrirtæki sem hafi verið tekið til gjaldþrota- skipta beri það yfirleitt harm sinn í hljóði. Vissulega sé hægt að gera kröfu í viðkomandi þrotabú, en það sé almenn krafa sem fari neðst í ruslakistuna. Fæstir nenni að standa í því enda líkurnar á að fá eitthvað greitt ansi takmarkaðar. Stuttur gildistími Engin lög eða reglur eru til um gjafabréf. Hildigunnur bendir á að almennur fyrningarfrestur sé fjögur ár, en semja megi um skemmri tíma. Fólk átti sig ekki á því að oft gildi bréfið aðeins í þrjá til sex mánuði og sá tími sé fljótur að líða. Vissulega sé auðveld lausn fyrir gefanda að gefa gjafabréf, ekki síst þegar viðtakandi „eigi allt“ eða viðkomandi hafi lýst yfir áhuga á vörum í tiltekinni versl- un, en reynslan sýni að meiri áhætta sé fólgin í því að kaupa gjafabréf frá einni verslun en verslunarkjarna eins og Kringlunni, Smáralind eða miðbænum. Ein verslun geti orðið gjaldþrota en tæplega allar í sama kjarna á sama tíma. Bankarnir bjóði einnig upp á gjafadebetkort en þau hafi líka sína ókosti. Gildistími þar sé t.d. skemmri en almenni fyrningarfresturinn. Hún bendir á að nýlega hafi komið upp mál þar sem viðkomandi hafi ætlað að nota gjafabréf eftir að það rann út. Verslunin hafi verið í fullum rekstri en hafi neitað að taka við gjafabréfinu. Samt sem áður segist hún ekki vilja ganga svo langt að vara við gjafabréfum vegna þess að þau séu mjög þægileg gjöf og í lang- flestum tilvikum gangi þau án vand- kvæða en engu að síður þurfi að gæta sín á ákveðnum atriðum. Hildigunnur segir það spurningu hvort ekki þurfi að setja lög eða regl- ur sem verndi neytendur við gjald- þrot fyrirtækja, rétt eins og t.d. launakröfur. Það geti reyndar verið erfitt vegna þess að fyrirtæki verði gjaldþrota af því að það eigi ekki fyr- ir kröfum. Varðandi gjafabréf sé aðalatriðið að brýna fyrir gjafþega að nota bréfið sem fyrst. Fyrirtæki geti orðið gjaldþrota eða hætt starf- semi og verðmætið rýrni með tím- anum. Tapað fé Gísli Tryggvason, talsmaður neyt- enda, tekur í sama streng. Hann áréttar að gjafabréf sé tapað fé fari viðkomandi fyrirtæki á hausinn, en selji fyrirtæki gjafabréf fram á síð- asta dag gegn betri vitund áður en það sé tekið til gjaldþrotaskipta sé ekki útilokað að hægt sé að halda fram fjársvikasjónarmiðum. Hins vegar sé ólíklegt að eigandi gjafabréfsins hafi árangur sem erf- iði. Falskt öryggi  Gjafabréf geta verið varasöm á tímum tíðra gjaldþrota  Gildistíminn er oft mjög stuttur og því vá fyrir dyrum Fyrirtæki auglýsa gjarnan að ábyrgð sé á tiltekinni vöru til svo og svo langs tíma. Sé fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta er ábyrgðin fyrir bí. Hildigunnur Hafsteinsdóttir segir að kaupandi vörunnar eigi kröfu á fyrirtækið en sé það hætt starfsemi sé í sumum tilfellum hægt að leita til framleiðanda og í öðrum tilvikum taki annað fyrirtæki yfir skuldbindingar hins en ekkert sé tryggt í þessu efni. Gísli Tryggvason segir að almennt sé talað um kvörtunarfrest til tveggja ára og til fimm ára í undantekningartilvikum. Stundum sé boðið upp á rík- ari ábyrgð, svokallaða samningsbundna ábyrgð, en fari fyrirtækið á haus- inn kunni ábyrgðin að vera glötuð. Ábyrgð án ábyrgðar Morgunblaðið/Eggert Trygging Öruggara er að kaupa gjafabréf sem gilda í öllum verslunum í verslunarkjörnum en þau sem aðeins er hægt að nota í einni ákveðinni verslun, í tiltekinni þjónustu eða á ákveðnum veitingastað. Gjafabréf getur verið heppileg lausn, þegar gefa á gjöf, en margs ber að varast á tímum tíðra gjaldþrota og mörg dæmi eru um að viðtakandi hafi setið uppi með verðlaus bréf. TVEIR af reyndustu pólförum heims eru nú á göngu yfir Vatnajökul með þriðja pólfaranum, Haraldi Erni Ólafs- syni. Þeir lögðu upp á sunnudagsmorgun og komu í Grímsvötn í gær. Þaðan taka þeir strikið austur jökulinn og gera ráð fyrir að koma niður af honum til móts við Snæfell á föstudag. Harald Örn þarf vart að kynna en hann hefur gengið á báða pólana, Everest-fjall, hæstu tinda hverrar heims- álfu og svo mætti áfram telja. Børge Ousland var fyrstur til að ganga einn á Norður- pólinn, án utanaðkomandi aðstoðar og sá fyrsti til að ganga einn og óstuddur yfir Suðurskautslandið. Erling Kagge skráði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann var sá fyrsti til að komast á alla þrjá „pólana“, þ.e Norðurpólinn, Suðurpólinn og á tind Everest-fjalls, hæsta fjalls heims, en það kleif hann árið 1994. Þegar Kagge útskrifaðist sem lögfræðingur árið 1989 hafði hann þegar siglt tvisvar yfir Atlantshafið, farið fyrir Hornhöfða og til Suðurskautslandsins. Hægt er að lesa um ferðina í pistlum Haraldar á mbl.is. runarp@mbl.is Þrír pólfarar saman í Vatnajökulsleiðangri Morgunblaðið/Einar Falur Reynsluboltar Þeir hafa allir farið á Norðurpólinn en ekki endilega tjaldað á sama stað og Haraldur.  Komu að Grímsvötnum í gær og taka stefnuna austur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.