Morgunblaðið - 16.03.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FREGNIR af utanvegaakstri öku-
manna torfæruhjóla koma alltaf upp
öðru hvoru, þó að þær hafi frekar ver-
ið fátíðari undanfarin tvö ár en árin
tvö þar á undan. Árlega bætast þó
ávallt ungir ökumenn í hóp hinna
reyndari og hættan á kunnáttuleysi
og mistökum er ætíð meiri í hóp
þeirra.
Nokkuð bar á því á umliðnum vik-
um að lögreglu höfuðborgarsvæðisins
væri tilkynnt um akstur torfæruhjóla
– og eru fjórhjól þá meðtalin – á reið-
stígum ætluðum hestamönnum í
grennd við Rauðavatn og á svæðum
fyrir ofan höfuðborgina. Í flestum til-
vikum hafi verið um að ræða ómerkt
hjól.
Frímann Ólafsson, félagsmaður í
Hestamannafélaginu Andvara, er
einn þeirra sem mætt hafa hjóla-
mönnum á hestastíg. „Sumir virðast
ekki átta sig á eðli hrossa, en þegar
þau sjá svona farartæki flýja þau
hættuna. Og það getur valdið stór-
hættu,“ segir Frímann og nefnir nær-
tækt dæmi um framferði tveggja
ungra manna.„Þegar þeir urðu hesta-
fólksins varir sneru þeir hjólum sín-
um snögglega við og spændu af stað,
með þeim afleiðingum að steinum
rigndi yfir fremsta hestinn og konu
sem var á baki. Hesturinn fældist og
spretti úr spori með konuna sem hef-
ur ekki þorað á bak síðan.“ Auk þessa
hefur hann horft upp á hestamenn
detta af baki eftir að hestar þeirra
fældust af sambærilegum ástæðum.
Frímann tekur þó fram að einnig
hafi hann mætt torfæruhjólamönnum
sem hægðu á sér og stoppuðu, og
hann hafi þakkað þeim kærlega fyrir.
Segist hann vona að aðeins sé um
misskilning að ræða hjá óvönum tor-
færuhjólamönnum, og vill að málin
séu leyst í sátt og samlyndi. „Það þarf
enda að vera pláss fyrir alla, menn
þurfa aðvirða merkta stíga, hægja á
sér og fara rólega sjái þeir hesta-
menn á ferð.“
Vélhjólaíþróttaklúbburinn hefur
ötullega unnið að bættri samvinnu við
aðra útivistarunnendur. Hrafnkell
Sigtryggsson, formaður félagsins,
segir afstöðu félagsins alveg skýra,
að ekki sé hjólað á hestastígunum. Í
þeim tilvikum þegar hrossum er
mætt – á sameiginlegum stígum – sé
aðalmálið að kunna að haga sér, fara
út í kant og drepa á hjólunum. Hrafn-
kell segir hvimleitt ef menn séu að
fara eftir þessum stígum enda auki
kurteisi og virðing fyrir áhugamálum
annarra líkurnar á skilningi þeirra á
sportinu.
Í óleyfi á hestastíg
Brögð eru að því að brunað sé á torfæruhjólum um merkta
hestastíga Hestamaður vonar að um misskilning sé að ræða
ÁHUGI á torfæruhjólum og því sem þeim tengist hefur aukist ár frá ári og
virðist kreppan ekki hafa mikil áhrif þar. Sést það hvað best á því að á að-
eins sólarhring skráðu 400 manns sig til leiks í Klausturkeppnina svo-
nefndu sem haldin verður 23. maí nk. á Kirkjubæjarklaustri, en auk þess er
langur biðlisti. Búist er við á milli fimm og sjö þúsund manns á Kirkjubæj-
arklaustur á meðan á keppninni stendur.
Hrafnkell Sigtryggsson, formaður Vélhjólaíþróttaklúbbsins, segir ljóst
að minni fjármunir séu fyrir hendi hjá iðkendum en menn eyði þeim mun
meiri tíma í að hjóla og spá í hjólamennskuna. Torfæruhjólin eru því komin
til að vera hér á landi, hvað sem efnahagsástandi líður.
Áhuginn eykst og hjólin betur nýtt
Morgunblaðið/Ómar
Riðið Merktir reiðstígar eru í grennd við Rauðavatn og eru vel nýttir af hestamönnum. Torfæruhjólamenn hafa að
undanförnu sést oftar á þessum stígum en það er að sjálfsögðu bannað að aka þar um á vélknúnum ökutækjum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bolalda Torfæruakstur nýtur hylli.
Með hækkandi sól og hlýnandi
veðri halda véhjólamenn út að
aka. Líkt og svo oft áður er vert
að minna ökumenn torfæruhjóla
á að ábyrgt og skynsamlegt akst-
urslag er öllum til góða.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
NOKKUR sveitarfélög eru búin und-
ir það að hefja framkvæmdir við
byggingu hjúkrunarheimila í vor. Það
ræðst þó af því hvenær tekst að ljúka
samningum við ríkið. Drög að samn-
ingum eru tilbúin en eftir er að út-
færa þau þannig að lántaka sveitarfé-
laganna hjá Íbúðalánasjóði rýri ekki
lánshæfi þeirra.
Unnið er að undirbúningi bygg-
ingar hjúkrunarheimila á níu stöðum
á landinu, alls 360 rýma. Félags- og
tryggingamálaráðuneytið hefur aflað
sér nauðsynlegra lagaheimilda og
samningar við sveitarfélögin eru á
lokastigi. Hugmyndafræðin grund-
vallast á því að sveitarfélögin byggja
og eiga hjúkrunarheimilin og Íbúða-
lánasjóður lánar fyrir stofnkostnaði
en ríkið tekur þau á leigu.
Árni Páll Árnason, félags- og
tryggingamálaráðherra, segir eðli-
legt að taka upp samvinnu við sveit-
arfélögin um þjónustu við aldraða.
Samningar um uppbyggingu hjúkr-
unarheimila séu liður í því. Þá segir
hann að með aðkomu Íbúðalánasjóðs
skapist möguleikar til að fjármagna
þessa uppbyggingu sem ríkið annars
ekki hefði á samdráttartímum.
Áætlaður kostnaður við þessi 360
hjúkrunarrými er 9,5 milljarðar og
dreifist nokkurn veginn jafnt á árin
2010 til 2012. Ef helmingur kostnaðar
er vinna má reikna út að 300 manns
gæti fengið störf við uppbygginguna
samfellt í þrjú ár.
200 rými verða notuð til að bæta
aðstöðu á núverandi heimilum og því
fjölgar hjúkrunarrýmum aðeins um
160.
Leigusamningur til eignar?
Sveitarfélögin þurfa að taka lán
fyrir uppbyggingunni en fá á móti
leigusamning við ríkið. Samningurinn
miðast við að sveitarfélögin fái lög-
bundinn hlut ríkisins, 85% kostnaðar,
til baka á 40 árum.
Hvort sem sveitarfélögin eru vel
eða illa stödd vilja þau ekki að þetta
verkefni leiði til skerts lánshæfis.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í
Mosfellsbæ, sem verið hefur í forystu
fyrir sveitarfélögin í samningum við
ríkið, segir að nú sé verið að kanna
áhrif samningsins á reikningsskil
sveitarfélaganna. Hann bendir á að
sveitarfélögin séu í raun að taka að
sér verkefni fyrir ríkið og fái kostn-
aðinn til baka með öruggum leigu-
samningi og því eigi samningurinn
ekki að hafa áhrif á fjárhag þeirra.
Til tals hefur komið að færa leigu-
samningana til eignar á móti lánum
Íbúðalánasjóðs í reikningum sveitar-
félaganna.
Lántakan rýri
ekki lánshæfi
sveitarfélaga
300 störf við byggingu hjúkrunarheimila
Í HNOTSKURN
»Seltjarnarnes, Mosfells-bær, Borgarbyggð,
Reykjanesbær og Fljótsdals-
hérað undirbúa byggingu 30
rýma heimila.
» Í Kópavogi og á Akureyriverða 45 rými og 60 í
Garðabæ og Hafnarfirði.
Níu sveitarfélög byggja hjúkr-
unarheimili á næstu þremur ár-
um. Íbúðalánasjóður lánar þeim
fyrir uppbyggingunni. Sveitar-
félögin greiða lánin til baka með
leigugreiðslum frá ríkinu.
„Við erum með nánast fullhannað
hús og gætum byrjað fyrir sum-
arið, ef samið verður á næstu tíu
dögum,“ segir Björn Bjarki Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Dvalarheimils aldraðra í Borg-
arnesi og forseti sveitarstjórnar.
Nokkur sveitarfélög eru langt
komin með undirbúning að bygg-
ingu hjúkrunarheimila og geta
byrjað fljótlega, Mosfellsbær,
Garðabær og Reykjanesbær auk
Borgarbyggðar. Sum sveitar-
félögin fela fyrirtækjum eða stofn-
unum að annast uppbyggingu og
rekstur heimilanna sem ýmist eru
ný eða viðbyggingar við eldri
hjúkrunarheimili.
Gætum byrjað fyrir sumarið
Við vökum yfir
fjármunum þínum 13,1%
ávöxtun
EIGNASAFN 2
*