Morgunblaðið - 16.03.2010, Síða 10
Morgunblaðið/Þorkell
MISTÖK urðu við löndun olíufarms úr olíuskipinu
Bro Glory í Hafnarfjarðarhöfn í fyrrakvöld og
leiddu til þess að eldsneyti var dælt inn á rangan
tank í birgðastöð Atlantsolíu. Um var að ræða
helming farmsins eða um tvær milljónir lítra.
Að sögn Huga Hreiðarssonar, upplýsingafull-
trúa Atlantsolíu, uppgötvuðust mistökin þegar um
helmingi farmsins hafði verið dælt. Ekki er ljóst
hve mikið var af eldsneyti fyrir í tankinum sem
dælt var í. Afganginum af farminum verður skipað
upp í Örfirisey. Birgðastöð Atlantsolíu í Hafnar-
firði er lokuð á meðan hluteigandi aðilar skoða
málið og meta tjónið. Unnið er að því að stöðin
verði tæmd og hreinsuð.
Hugi segir að samkvæmt verklagsreglum sé
birgðastöð ávallt lokuð í sólarhring eftir að löndun
hefur farið fram. Því sé tryggt að ekkert af því
eldsneyti, sem var dælt með röngum hætti úr
farmi Bro Glory, fari í umferð. Þá segir hann að at-
vikið hafi engin áhrif á eldsneytisframboð á bens-
ínstöðvum Atlantsolíu. Tryggingafélög vinna nú
að því að meta tjónið. Hugi sagði að búast mætti
við að tjónið næmi 150-200 milljónum króna.
gummi@mbl.is
Olíufarmi var dælt í rangan tank
Tjónið talið nema 150-200 milljónum Stöðin verður tæmd og hreinsuð
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
Kyrrð færðist yfir Icesave-máliðeftir að þjóðin sagði sitt. Þar var
talað skýrt. Það hafði skort nokkuð á
skýrleikann fram að því.
Flestum hefði þótt eðlilegt að þettamál væri sett til hliðar, að
minnsta kosti af Íslands hálfu.
Kosningarmunu fara
fram í Bretlandi
eftir fáeinar vikur
og nokkru síðar í
Hollandi. Vilji þau
stjórnvöld ræða
þessar kröfur á
ný, þótt þær eigi
ekki lagastoð, þá
gera þær vart við
sig. Þetta virðist
eðlilegasti hátturinn.
En svo er birt viðtal við Steingrím J.Sigfússon. Sá segir að erfitt hafi
verið að koma viðræðum við Breta
og Hollendinga í gang á nýjan leik.
Með öðrum orðum þá hafi íslenskifjármálaráðherrann verið að
rembast við að koma lífi og þreki í
kröfugerðarmenn eftir að íslenska
þjóðin vankaði þá með vinki sínu.
Það væri óneitanlega æskilegt ef
Steingrímur færi að átta sig á í hvaða
liði hann eigi að vera.
Honum ætti að hafa stórlega léttþegar engin af hrakspám hans
rættist í kjölfar þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Nú eru senn liðnir 3
mánuðir frá því lögunum var synjað
og ekki ein einasta ógnarspá hans og
Jóhönnu hefur ræst. Þvert á móti
hafa öll þau merki sem borist hafa í
kjölfar hennar verið í jákvæða átt.
Er því ekki ágæt hugmynd að látaþessa andstæðinga okkar, Breta
og Hollendinga, um að snúa sjálfum
sér í gang. Það eru nefnilega ótal úr-
lausnarefni sem bíða þess að á þeim
sé tekið hér á landi. Og sú bið er orð-
in lengri en verjandi er.
Steingrímur J.
Sigfússon
Raskar ró rukkaranna
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 5 alskýjað Lúxemborg 9 skýjað Algarve 18 heiðskírt
Bolungarvík 4 alskýjað Brussel 10 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt
Akureyri 6 skýjað Dublin 9 skýjað Barcelona 12 léttskýjað
Egilsstaðir 4 skýjað Glasgow 8 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað London 11 heiðskírt Róm 13 léttskýjað
Nuuk -6 snjókoma París 12 léttskýjað Aþena 11 léttskýjað
Þórshöfn 4 þoka Amsterdam 6 skýjað Winnipeg 2 skýjað
Ósló 2 heiðskírt Hamborg 2 skúrir Montreal 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað Berlín 1 slydda New York 7 alskýjað
Stokkhólmur 0 skýjað Vín 4 skýjað Chicago 7 alskýjað
Helsinki -5 léttskýjað Moskva -5 skýjað Orlando 19 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
16. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.45 0,4 6.50 3,9 13.01 0,3 19.04 3,8 7:43 19:31
ÍSAFJÖRÐUR 2.41 0,2 8.42 2,0 15.02 0,1 20.53 1,9 7:48 19:35
SIGLUFJÖRÐUR 4.56 0,1 11.10 1,2 17.14 0,1 23.27 1,2 7:31 19:18
DJÚPIVOGUR 4.05 1,9 10.09 0,2 16.15 2,0 22.28 0,2 7:12 19:00
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Austanátt, 10-15 m/s á annesj-
um norðan til og við suður-
ströndina, en hægari annars
staðar. Víða rigning með köflum
og slydda eða snjókoma sums
staðar norðan til, en úrkomulítið
vestanlands. Hiti 0 til 8 stig,
hlýjast um landið suðvestanvert.
Á fimmtudag
Austlæg átt, víða 5-10 m/s. Él á
Norður- og Austurlandi og dálítil
rigning af og til suðaustanlands,
en annars þurrt að kalla. Heldur
kólnandi.
Á föstudag og laugardag
Nokkuð ákveðin austan- og
norðaustanátt og dálítil él norð-
an- og austanlands, en bjartviðri
sunnan- og vestanlands. Frost 0
til 5 stig, en frostlaust við suður-
og suðvestuströndina.
Á sunnudag
Lítur út fyrir austlæga átt með
dálítilli slyddu af og til sunnan-
lands en þurru veðri norðan til.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðaustan og austan 5-10 m/s
með rigningu en sums staðar
slyddu norðan til. Hiti 0 til 7
stig, hlýjast sunnan- og suð-
vestanlands.
2 fyrir 1
af rétti dagsins
eftir kl. 16 alla virka daga.
Opið virka daga kl. 10—20
Laugardaga kl. 10—17
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
sími 58 58 700
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
sími 58 58 710
Hafnarborg
220 Hafnarfjörður
sími 58 58 700