Morgunblaðið - 16.03.2010, Qupperneq 19
Minningar 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
✝ Rannveig Árna-dóttir fæddist í
Reykjavík 14. apríl
1924. Hún lést á líkn-
ardeild Landakots 4.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Árni Einarsson,
klæðskerameistari í
Reykjavík, f. 4.12.
1886, d. 19.1. 1974, og
Guðrún Árnadóttir,
húsmóðir í Reykjavík,
f. 5.9. 1885, d. 29.9.
1960. Systkini Rann-
veigar eru: 1) Árni
Hreiðar, f. 30.11. 1920, kvæntur
Jytte Árnason, 2) Einar Hreiðar, f.
18.12. 1921, d. 28.2.2010, ókvæntur,
3) Margrét, f. 4.1. 1923, d. 14.9.
1996, ógift, 4) Ólafur Hreiðar, f. 1.9.
1926, kvæntur Magnúsínu Guð-
mundsdóttur, 5) Gunnar Hreiðar, f.
5.5. 1928, d. 14.11. 2009, kvæntur
Margréti Steingrímsdóttur. Systk-
ini sammæðra Rannveigu voru:
Arndís Kristín Thomsen, Elín
Magdalena Thomsen og Kristinn
Thomsen, þau eru öll látin.
Rannveig giftist Borgþóri H.
Jónssyni, f. 10.4. 1924, d. 12.11.
2002, hinn 20. október 1951. Þeirra
dóttir er Erna Borgþórsdóttir förð-
unarfræðingur, f. 28.1. 1960, gift
Óskari Alvarssyni húsasmið, f.
10.8.1963. Þeirra börn eru: 1) Rann-
veig, f. 17.12. 1979, með BA í guð-
fræði og nemi, henn-
ar sambýlismaður er
Jóhann T. Maríusson,
kerfisfræðingur og
nemi, f. 21. 2.1978,
börn þeirra eru: 1)
Huginn Þór, f. 21.11.
2000, og 2) Elísabet, f.
26.5. 2008, Jóhann á
úr fyrra sambandi
Arnór, f. 30.8. 1996.
2) Borgþór Alex
nemi, f. 25.4. 1989, og
3) Margrét Birta
nemi, f. 23.4. 1990.
Rannveig útskrif-
aðist frá Kvennaskólanum í Reykja-
vík 1943. Hún starfaði hjá Veð-
urstofu Íslands, Íslenskum
aðalverktökum í Keflavík, Endur-
skoðendaskrifstofu Þórhalls í
Keflavík og Kosta Boda Reykjavík.
Á efri árum vann hún sem sjálf-
boðaliði hjá Rauða krossi Íslands
við afgreiðslu á Landspítalanum við
Hringbraut. Rannveig ólst upp við
Bergstaðarstræti í Reykjavík. Bjó
hún svo í SP húsunum í Keflavík til
1952, en fluttist árið 1958 í Grænás
3. Þá flutti hún aftur til Reykjavík-
ur með fjölskyldu sína á Háteigsveg
38, árið 1973 og bjó þar lengst af
eða þar til 2006 en þá flutti hún í
Hvassaleiti 58.
Útför Rannveigar fer fram frá
Háteigskirkju í dag, 16. mars 2010,
og hefst athöfnin kl. 13.
Í dag kveð ég móður mína sem
lést þann 4. mars síðastliðinn á líkn-
ardeild Landakotsspítala, aðeins 4
dögum á eftir Einari bróður sínum.
Það er svo margt búið að fara í
gegnum huga minn þessa síðustu
daga, bæði gleði, sorg og þakklæti.
Gleði og þakklæti fyrir að hafa feng-
ið hlutdeild í þínu lífi og sorg yfir að
missa þig. Bernska mín var ljúf og
kannski svo lítið sérstök. Ég er
einkabarn og alin upp á Keflavík-
urflugvelli. Ég fékk þó að kynnast
því að litlum hluta þó hvernig það
væri að vera systir og kemur þar til
sögunar Guðrún Erla frænka mín,
sem missti pabba sinn, litla bróður
mömmu, þann 14. nóvember 2009.
Mamma mín var einstakleg barn-
góð og reyndist mér, börnum mín-
um og barnabörnum alveg frábær-
lega vel og ekki margir sem geta
farið í skóna hennar. Ég var bara lít-
il stelpa þegar ég ákvað að ég ætlaði
að gifta mig einu sinni á ævinni og á
brúðkaupsdegi foreldra minna og
það gerði ég á 40 ára brúðkaups-
afmæli þeirra. Ég vil þakka öllum
sem komu að umönnun hennar
mömmu minnar eins og Jóhönnu
Jónasdóttur heimilislækninum
hennar, öllum á 13 G á Landspít-
alanum, Sigurði Blöndal lækni og
starfsfólki á L 5 á Landakoti fyrir
einstaka hlýju og nærgætni.
Innilegar samúðarkveðjur sendi
ég Rönku minni og Búdda mínum
sem reyndust ömmu sinni svo frá-
bærlega vel, bæði áður en hún veikt-
ist og í hennar veikindum, ásamt
Birtu, Arnóri, Hugin og litlu Lísu
minni og auðvitað Guðrúnu Erlu
frænku minni. Ég kveð þig, mamma
mín, með þessu ljóði eftir Þórunni
Sigurðardóttur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
Þín dóttir,
Erna.
„Komdu hingað í meterinn minn“
sagði amma mín við mig og vafði
mig í fangið sitt. Við amma áttum
margar góðar stundir saman, ég
mun sakna hennar mikið. Ég las
guðfræði inni í borðstofunni á Há-
teigsveginum á meðan amma og
Huginn minn sátu frammi í sjón-
varpsholi en amma sá um hann fyrir
mig meðan ég las fyrir prófin. Því
var erfitt þegar hún flutti í Hvassa-
leitið að brjóta upp venjuna og að
missa æskuslóðirnar okkar mömmu.
Við þurfum öll að aðlagast þeim
breytingum sem fjölskyldan mín
stendur frammi fyrir núna.
Við borðuðum oft saman í hádeg-
inu undanfarin ár, oft voru börnin
mín með okkur, þetta var góð stund
og ég mun sakna hádegishléanna
okkar. Síðasta skiptið sem ég kvaddi
hana í Hvassaleitinu spurði hún
hvort ég vildi ekki að hún bróderaði
flugu í klaufina á kápunni sem hún
gaf mér. Við samþykktum að hún
myndi gera það næst þegar ég kæmi
til hennar. Ég tók upp eftir henni og
lærði að sauma, prjóna og að „kríla“
bönd. Amma var stolt af því sem féll
af prjónunum mínum og naut þess
að fá að skoða það sem ég gerði.
Amma dekraði mig og minnist ég
þess hversu vel hún fór með mig eft-
ir baðferðirnar á Háteigsveginum,
þá dugði ekki 1 handklæði til að
þurrka mér, heldur 2-3 stykki sem
höfðu verið látin á ofninn, var ég svo
umvafin þeim og nudduð þar til ég
var orðin hlý. Amma las mikið fyrir
okkur, ég vildi helst láta lesa skrípl-
ur fyrir mig og það gerði hún, ég get
enn heyrt rödd hennar að lesa fyrir
mig. Amma tók öllu sem við systk-
inin gerðum með jafnaðargeði og
kippti sér ekki upp við það að við
skemmdum hlutina hennar, ég
klippti fóðrið á gardínunum hennar
og Boggi braut stóra styttu í glugg-
anum, en það var allt í lagi, henni
fannst hún hvort eð er ljót og ætlaði
alltaf að henda henni.
Amma getur verið stolt af
mömmu sem hefur umvafið mig
hlýju og styrk á þessum tíma og
passað að allt fari rétt fram. Ég
samhryggist fjölskyldu minni á
þessum tíma, en við mamma og
Boggi eyddum miklum tíma með
ömmu og sáum til þess að hún þyrfti
ekki að reyna of mikið á sig. Það var
ekki auðvelt því það mátti aldrei
hafa fyrir henni, því voru merkin um
stuttan tíma orðin greinileg því hún
var farin að leita mikið til okkar. Ég
hafði lært að ef ég vildi gera eitt-
hvað fyrir ömmu þá þýddi ekkert að
bjóða henni það, heldur bara fram-
kvæma. Jói eldaði alltaf auka-
skammt af mat sem við gáfum
ömmu, en henni fannst maturinn
hans svo góður.
Merkilegt er að sama er hvaða
tíma við fáum til að undirbúa okkur
undir það að missa ástvini okkar, og
þótt við séum sátt við það er það
samt sárt þegar að því kemur, en
eins og tengdamóðir mín benti mér
réttilega á fara tilfinningar og rök
ekki alltaf saman. Nú lýkur stórum
kafla í lífi okkar og við sem eftir er-
um byrjum á nýjum.
Gleðstu yfir góðum degi,
gleymdu því sem miður fer.
Sýndu þrek og þolinmæði
þegar nokkuð út af ber.
Hafi slys að höndum borið
hefði getað farið ver.
(Heiðrekur Guðmundsson.)
Elsku amma mín, hvíldu í friði og
skilaðu kveðju.
Þín,
Rannveig (Ranka).
Amma langa var mjög góð kona
og hún var mjög góð við okkur.
Borðaði pizzu með okkur í hádeginu
og við skemmtum okkur mjög vel
saman. Mér fannst gott að koma til
hennar á Háteigsveginn, en svo
flutti hún í Hvassaleitið og ég sakn-
aði gamla heimilisins hennar. En
það var samt líka gott að koma til
hennar í Hvassaleitið.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Huginn Þór Jóhannsson.
Elsku Nanna frænka mín er látin.
Ég man eftir Grænásnum á Kefla-
víkurflugvelli þar sem Nanna og
Borgþór bjuggu, hversu gaman var
að leika í móunum með Ernu og
hundinum Tótu. Ég man eftir sann-
kölluðum dekurdögum þegar Nanna
passaði mig, eftir kakói og fransk-
brauði í morgunmat sem ég fékk
aldrei heima hjá mér og flottasta
piparkökuhúsi í heimi með ljósi inní.
Ég man eftir spenningnum við að fá
útlenskt nammi í vinnunni hjá Borg-
þóri þegar innflutningshöft voru á
sælgæti. Nanna sagði aldrei „nei“
við mig, aldrei. Ég man eftir allri
fjölskyldunni, hver í sínum bíl, í
einni halarófu á Keflavíkurveginum
á leið í fjölskylduboð í Grænásnum
hjá Nönnu og Borgþóri. Ég þakka
fyrir fallegar minningar um bestu
frænku í heimi.
Guðrún Erla Gunnarsdóttir.
Rannveig Árnadóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
sonur og bróðir,
REYNIR EÐVARÐ GUÐBJÖRNSSON
rafvirkjameistari,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
1. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug.
Kolbrún Kolbeinsdóttir,
Guðfinna Eðvarðsdóttir, Arnar Einarsson,
Aðalbjörg Eðvarðsdóttir, Jón Ágúst Hreinsson,
Aðalbjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SVANLAUG EINARSDÓTTIR,
Birkimörk 8,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, að
morgni laugardagsins 13. mars.
Sigurður Z. Skúlason, Gréta Sigfúsdóttir,
Skúli Skúlason, Elsa Aðalsteinsdóttir,
Baldvin E. Skúlason, Unnur Tessnov,
Ölver Skúlason, Katrín Káradóttir,
Gillý S. Skúladóttir, Bjarni S. Þórarinsson,
Elías S. Skúlason, Kittý M. Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALSTEINN ÞÓRÐARSON,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður Gunnarssundi 9,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn
11. mars.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 19. mars kl. 15.00.
María Aðalsteinsdóttir, Stefán Sandholt,
Þórstína Aðalsteinsdóttir, Guðmundur Einarsson,
Svanhvít Aðalsteinsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR INGVAR SVEINJÓNSSON
húsasmíðameistari,
Selvogsbraut 21A,
Þorlákshöfn,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtu-
daginn 11. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Valdís Árnadóttir,
Lilja Guðmundsdóttir, Guðmundur Vignir Hauksson,
Andrea Guðmundsdóttir, Eysteinn Sigurðsson,
Helga Guðmundsdóttir, Ævar Rafn Kjartansson,
Guðrún Ólöf Sveinjónsdóttir, Jóhannes Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
INGVAR ÞORGILSSON
fyrrv. flugstjóri,
Vogatungu 19,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa-
vogi laugardaginn 13. mars.
Inga Thorlacius,
Ágústína Ingvarsdóttir, Kristinn Sigtryggsson,
Haraldur Ingvarsson, Nanna K. Árnadóttir,
Þorgils Ingvarsson, Hólmfríður Benediktsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNA GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Hraunbúðum,
áður Sóleyjargötu 12,
Vestmannaeyjum,
lést föstudaginn 12. mars.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 20. mars kl. 14.00.
Ólafur Eggertsson,
Gunnar Marel Eggertsson, Þóra Guðný Sigurðardóttir,
Guðfinna Edda Eggertsdóttir, Kristinn Hermansen,
Sigurlaug Eggertsdóttir, Halldór Kristján Sigurðsson,
Eggert Jón, Guðrún Björk, Sigurður Hjalti, Aldís, Eggert,
Guðni Agnar, Jóna Guðrún, Kristján Bjarki
og langömmubörn.