Morgunblaðið - 16.03.2010, Blaðsíða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
✝ Kristín Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
24. apríl 1920. Hún
lést á Hjúkrunarheim-
ilinu Garðvangi,
Garði, 5. mars 2010.
Móðir Kristínar var
Valgerður Bjarna-
dóttir húsfreyja, f. 12.
ágúst 1896 í Grinda-
vík, d. 25. maí 1987.
Faðir Kristínar var
Guðmundur Elísson,
sjómaður og fiskmats-
maður, f. 3. sept-
ember 1895 á Hvalsnesi, d. 29. októ-
ber 1978. Systkini Kristínar voru:
Ólafur Ríkarð, f. 1917, d. 1975, Sig-
urbergur Elías, f. 1923, d. 1997,
Bára, f. 1925, d. 2008.
Fyrri eiginmaður Kristínar var
Emil Eðvarð Guðmundsson, f. 11.
mars 1918, d. 5. september 1978.
Hann var bifreiðastjóri. Þau skildu.
Foreldrar Emils voru Guðmundur
Helgi Ólafsson, kaupmaður og út-
gerðarmaður í Keflavík, f. 1883, d.
1959. Kona hans Jane María Ólafs-
son, f. 24. ágúst 1880, d. 1929.
Börn Kristínar og Emils: a) Val-
gerður Elsý, f. 1. júlí 1938, maki
Arnar Sigurðsson, f. 1. apríl 1932.
Börn þeirra eru: 1) Kristín Arnars-
dóttir, maki Sigurgeir Sigmundsson
og eiga þau 3 börn. 2) Hallfríður
Arnarsdóttir, maki Jörgen Erlings-
son og eiga þau 2 syni, annar er lát-
inn. b) Emilía Súsanna, f. 3. október
1940, maki Hreiðar Þórhallsson, f.
20. apríl 1940. Börn þeirra eru: 1)
Eðvarð Ingi Hreiðarsson, maki
Auður Ósk Ingimarsdóttir og eiga
þau 3 börn. 2) Ingibjörg Hreið-
átti Sigrún dótturina 1) Guðrúnu
Sævarsdóttur, maki Sheffie Fabre
og eiga þau 3 börn. Einnig 2) Ólaf
Skúla Guðmundsson, maki Kolbrún
Vilhelmsdóttir og eiga þau 3 börn.
h) Ómar, f. 7. júlí 1951, d. 16. mars
1996, maki Pálína Sigurbjörns-
dóttir, f. 15. júlí 1950. Þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Ómar. 2) Reynir.
Seinni kona Ómars var Tina Em-
ilsson, d. 1993. Barn þeirra Lindsey
Kristín, d. 25. mars 1990 aðeins 5
ára að aldri.
Seinni eiginmaður Kristínar var
Hjálmtýr Jónsson, símstöðvarstjóri
í Keflavík, f. 18. janúar 1923, d. 24.
mars 2007. Móðir hans var Ingi-
björg Guðlaugsdóttir, f. 1896, d.
1979. Faðir hans var Jón Sum-
arliðasson, f. 1885, d. 1957. Dóttir
Kristínar og Hjálmtýs er Helena,
17. júní 1957, maki Hafsteinn Em-
ilsson. Börn þeirra eru: 1) Emil
Hjálmtýr, sambýliskona Anna
María Jónsdóttir og eiga þau einn
son. 2) Þórdís María, maki Guð-
mundur Georg og eiga þau einn son.
Kristín var verslunar- og verka-
kona í Keflavík. Hún stofnaði versl-
unina Stjörnuna, fyrstu verslun
sinnar tegundar í bænum. Og var
hún einnig fyrst til að setja upp
neonskilti utan á húsnæði versl-
unarinnar. Samhliða þeim rekstri
og heimilishaldinu starfaði hún við
fiskverkun. Síðar fór hún að starfa í
þvottahúsi varnarliðsins og gerði
það í mörg ár. Þegar hún hætti þar
fór hún til starfa í mötuneyti varn-
arliðsins og vann þar á meðan aldur
leyfði.
Útför Kristínar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 16. mars
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
arsdóttir, maki Þor-
steinn Einarsson og
eiga þau 2 börn. 3)
Heiður Huld Hreið-
arsdóttir, maki Þór-
ólfur Gunnarsson og
eiga þau 2 börn. Þau
skildu. c) Edda, f. 15.
október 1941, maki
Rúdolf Thorarensen,
f. 4. desember 1937, d.
5. október 1994, og
áttu þau eina dóttur
Stellu Maríu Thor-
arensen, maki Skúli
Ágústsson og eiga
þau 3 börn. d) Kolbrún, f. 13. febr-
úar 1944, maki Robert Wayne For-
rester, f. 16. febrúar 1944. Þau
skildu. Börn þeirra eru: 1) Kirsten
Ray , maki James Buchanan og eiga
þau 3 börn. 2) Jana María, maki
John Ruest og eiga þau 2 börn.
Seinni maki Kolbrúnar er Harry
Biela, f. 23. janúar 1944. e) Guð-
mundur Óskar, f. 5. ágúst 1946,
maki Eygló Kristjánsdóttir, f. 10.
ágúst 1946. Börn þeirra eru: 1) Ár-
elía Eydís, maki Sigurður Áss Grét-
arsson og eiga þau 2 börn. Fyrir átti
Árelía eina dóttur með Baldri Þór-
hallssyni. 2) Kristín Gerður, hún
lést 20. apríl 2001. 3) Berglind Ósk,
sambýlismaður Júlíus Júlíusson og
eiga þau 2 börn. 4) Kristján, maki
Ciji Davis. f) Valur, f. 26. október
1947, maki Guðrún Valtýsdóttir.
Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Em-
il. 2) Guðmundur Valtýr og á hann
einn son. Seinni kona Vals var
Deborah K. Emilsson. Þau skildu. g)
Sigrún, maki Mikael Edward Delav-
ante eiga þau einn son. 3) Eric, maki
Dana og eiga þau eina dóttur. Fyrir
Elsku mamma mín.
Ég sit hér hálfdofin og mér finnst
þú ennþá vera hér hjá okkur, en kall-
ið er komið og hinn sári raunveru-
leiki hellist yfir mig. Ég hugga mig
við að þú sért sátt og komin þangað
sem ljósið er og búin að hitta pabba
og fólkið okkar sem farið er í ljósið.
Mig langar að lýsa þér svolítið. Þú
varst ekki mannblendin kona en vin-
ur vina þinna. Þú varst ófeimin að
nota sterka og fallega liti í klæðnaði
og varst afar glysgjörn. Þér fannst
þú ekki fín nema þú værir á háum
hælum. Ég hló oft að þér á þínum
pinnahælum í snjó og hálku þegar
þú sagðir að þetta væru bestu skórn-
ir í svona tíð. Því þú stakkst hæl-
unum niður í snjóinn og þannig
gekkst þú örugg.
Þið pabbi ferðuðust mikið alla tíð
og ber heimili ykkar merki um
ferðalög ykkar. Þar eru fallegir
munir frá mörgum löndum. Þú
stóðst alltaf sterk við hlið mér og í
dag kveð ég ekki bara móður mína,
heldur líka bestu vinkonu.
Síðustu árin þín varst þú nánast
blind og tókst því afar illa, en þú
vildir ekki gefast upp. Þú hélst
áfram að halda þitt heimili, en það
hefði aldrei gengið nema því aðeins
að Valur bróðir bjó hjá þér og við
systkinin önnuðumst þig af natni og
blíðu. Þú söngst alltaf mjög vel og
hafðir mikla unun af allri tónlist,
enda komin af tónelsku fólki. Ég
minnist þess þegar þú varst að fara á
árshátíðir með pabba í sérsaumuð-
um kjólum með fallega skartgripi
hvað mér fannst þið glæsilegt par.
Elskulega mamma mín, megi al-
góður Guð umvefja þig faðmi sínum
við komu þína í ríki hans.
Ég kveð þig með þessu ljóði, því
það segir allt sem segja þarf.
Takk fyrir tímann sem með þér áttum,
tímann sem veitti birtu og frið.
Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram,
lýsa upp veg okkar fram á við.
Gefi þér Guð og góðar vættir
góða tíð yfir kveðjuna hér,
þinn orðstír mun lifa um ókomna daga,
indælar minningar í hjarta okkar ber.
(P. Ó. T.)
Blessuð sé minning þín.
Þín dóttir,
Helena Hjálmtýsdóttir.
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð barna þinna,
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim góða anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa,
og eykur þeirra afl og trú,
en það er eðli mjúkra móðurhanda
að miðla gjöfum eins og þú.
Í augum þínum sá ég fegri sýnir
en sólhvít orð og tónar geta lýst, –
svo miklir voru móðurdraumar þínir,
þó marga þeirra hafi frostið níst.
Sem hetja barst þú harmana og sárin,
huggaðir aðra – brostir gegnum tárin,
viðkvæm í lund, en viljasterk.
Þau bregða um þig ljóma, liðnu árin.
Nú lofa þig – þín eigin verk.
Ég flyt þér, móðir, þakkir þús-
undfaldar,
og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt.
Er Íslands bestu mæður verða taldar,
þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt.
Blessuð sé öll þín barátta og vinna,
blessað sé hús þitt, garður feðra minna,
sem geymir lengi gömul spor.
Haf hjartans þakkir, blessun barna
þinna,
– og bráðum kemur eilíft vor.
(Davíð Stefánsson.)
Farðu í friði, elsku mamma,
Guðmundur Óskar.
Ég gleymi því aldrei þegar amma
Stella kvaddi afa fyrir þremur árum.
Eftir að hafa þakkað honum fyrir
allar þær stundir sem þau áttu sam-
an sagði hún: „Við sjáumst svo bráð-
um.“ Í dag er þessi stund runnin upp
og þau eru komin saman á ný. Þín
verður sárt saknað, elsku amma.
Upp er komin stundin sem allir kviðu,
að líkaminn fengi nóg.
Þau voru tæp níutíu árin sem liðu,
og fyrir viku hún dó.
Hún kvaddi okkur öll með hjartslætti
sterkum,
í leit að innri frið.
Eftir við sitjum með grátstaf í kverkum,
en vitum að nú geta þau saman verið.
Hvíl í friði,
Edda Rós Skúladóttir.
Amma Stella eins og hún var
ávallt kölluð hefur kvatt þennan
heim í hárri elli. Hún var af þeirri
kynslóð sem man tímana tvenna þar
sem varla nokkurn tímann áður í
mannkynssögunni hafa verið jafn
miklar breytingar og þróun í heim-
inum og síðustu hundrað árin.
Amma Stella eða amma skvísa
eins og ég kallaði hana oft varð ein-
stæð móðir með sjö börn aðeins 32
ára gömul en áttunda og elsta barnið
ólst upp hjá móðurömmu sinni. Þó
að amma hafi alltaf viljað vera fín og
flott þá vílaði hún ekki fyrir sér að
bretta upp ermarnar ef þurfti og
þess þurfti svo sannarlega, börnun-
um skyldi hún koma til manns.
Hún opnaði því sjoppu á neðri
hæð heimilisins og nefndi hana
Stjarnan, sem átti vel við þar sem
gælunafnið hennar ömmu, „Stella“
þýðir stjarna á latínu. En ekki veit
ég hvort hún vissi það á þeim tíma.
Það var ekki nóg til að framfleyta
öllum barnahópnum og því vann hún
líka í frystihúsi. Henni taldist til
þegar við ræddum þetta einu sinni
að hún hlyti að hafa unnið 20 klst. á
sólarhring að jafnaði ásamt því að
hugsa um heimilið. Svo gantaðist
hún oft með hvað hún skyldi nú hafa
fengið í barnabætur með allan þenn-
an hóp hefði það verið í boði á þess-
um tíma.
Amma var ekki lengi einstæð því
hún kynntist seinni manni sínum,
Hjálmtý Jónssyni, og eignaðist með
honum dóttur. Þeirra hjónaband var
farsælt. Þeirra líf og yndi var að
ferðast vítt og breitt um heiminn á
meðan heilsan entist. Hjálmtýr lést
fyrir þremur árum og má segja að
amma hafi verið sorgmædd upp frá
því. Hún var líka nánast orðin blind
síðustu árin og það var líka hluti af
hennar sorg því hún var mikil hann-
yrðakona.
Því má ekki heldur gleyma hvað
amma var tónelsk kona. Í minning-
unni finnst mér eins og hún hafi allt-
af verið syngjandi, enda komin af
söngelsku fólki.
Nú er komið að leiðarlokum og
hún vonandi komin á betri og
þrautalausan stað með ástvinum
sem hafa kvatt þetta jarðlíf.
Elsku amma, ég bið góðan Guð að
varðveita þig og trúi því að við mun-
um hittast síðar.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur huga þinn og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess sem var gleði þín.“
(Kahlil Gibran)
Stella María Thorarensen.
Elsku amma mín.
Mér finnst það svo leiðinlegt að
vera að kveðja þig og sérstaklega í
bréfi. En því miður kemst ég ekki
heim til Íslands, svo þetta er næst-
best.
Það er svo mikið sem mig langar
að segja, en veit ekki almennilega
hvar ég á að byrja.
Ég ætla að byrja á því að segja að
ég tel mig heppna að hafa átt svona
sérstaka ömmu eins og þig. Þú hefur
alltaf verið góð við mig. Alltaf varstu
til í að baka handa mér pönnsur og
þú meira að segja leyfðir mér að
vinna þig í ólsen-ólsen nokkrum
sinnum.
Það eru orðin þó nokkur ár síðan
ég hef komið heim og hitt þig, en þú
hefur alltaf verið í hjarta mínu og
huga. Mér fannst ávallt svo gott að
tala við þig í símanum og ég fann
hvað þú varst óánægð með lífið eins
og það var, í síðustu skiptin sem við
töluðumst við. Það hlýtur að hafa
verið erfitt fyrir þig.
Ég veit að í dag líður þér betur en
þér hefur nokkurn tímann liðið og
mér líður vel vitandi það.
Ég vildi óska að börnin mín hefðu
fengið að kynnast þér, elsku amma
og ég skammast mín fyrir að þau
hafa aldrei komið heim en það er
engin spurning að við eigum öll eftir
að vera saman aftur og þá geta þess-
ar elskur loksins fengið að kynnast
langömmu sinni.
Hvíl í friði, amma mín,
ég elska þig.
Guðrún Sævarsdóttir Fabre.
Í dag kveðjum við elskulegu
ömmu Stellu. Frábæra konu með
frábæran húmor.
Minningarnar um ömmu Stellu
eru óteljandi. Amma Stella var alltaf
svo mikil „lady“, hárlagningin, há-
hæluðu skórnir, varaliturinn og fínu
fötin. Ein dýrmætasta minningin er
þegar frumburðurinn okkar hann
Hafsteinn fæddist 2006. Þá lá
Hjálmtýr afi á næsta gangi og komu
þau nokkrum sinnum saman yfir á
sængurdeildina til okkar, röltu þar
inn ganginn og leiddust hönd í hönd
svo ástfangin og ánægð hvort með
annað. Þau sátu hjá okkur og skipt-
ust á að halda á litla unganum okkar
á meðan þau horfðu á hann með
aðdáunaraugum. Þessi minning er
okkur dýrmæt og munum við vera
dugleg að segja Hafsteini frá þessu
og sýna honum myndirnar sem eru
ófáar.
Núna ertu komin yfir í afa Hjálm-
týs faðm, þú knúsar hann fast frá
okkur.
Guð geymi þig, elsku amma.
Emil Hjálmtýr og Anna María
Það er aðfangadagskvöld og eins
og venjulega förum við til Stellu
ömmu þegar við höfum opnað pakk-
ana. Hjá ömmu er margt um mann-
inn, við fáum ekta heitt súkkulaði
með rjóma og borðið svignar af
hnallþórum. Amma sér til þess að
allt sé í lagi. Skemmtilegast var að
skoða skartgripaskrínið hennar, því-
líkar gersemar, allir litir og allar
gerðir af skartgripum, hún notaði þá
líka vel. Stundum næstum alla í einu.
Amma kom reglulega í heimsókn
til okkar og alltaf var hún jafn fín og
iðulega með uppsett hárið. Þegar inn
var komið bað hún um öskubakkann
sinn, en hún var sú eina sem mátti
reykja á okkar heimili, og spurði
frétta. Hún gaf sér einnig tíma til að
spyrja okkur krakkana frétta og
hlustaði vel á það sem á daga okkar
hefði drifið. Stella amma var ein af
hvunndagshetjum þessa lands, rúm-
lega þrítug var hún einstæð móðir
með átta börn og þurfti að vinna af
hörku til að láta enda ná saman og
fæða þau og klæða.
Seinna kynntist hún Hjálmtý og
eignaðist eitt barn með honum.
Heimili þeirra Hjálmtýs var ákaf-
lega snyrtilegt og þau höfðu yndi af
því að skreyta heimili sitt með
skrautmunum frá ferðalögum sín-
um, kristalslampar, framandi gull-
styttur og símar í hverju herbergi.
Þeim fannst skemmtilegt að ferðast
og voru dugleg að fljúga heimshorn-
anna á milli. Amma hefði líklega
sómt sér betur á hlýrri stað í veröld-
inni, hún klæddi sig aldrei í úlpu, var
oftast berfætt í hælaskóm hvernig
sem viðraði.
Stella amma bar ekki sorgir sínar
á torg, hún var fordómalaus og það
einkenndi hana ákveðið æðruleysi,
hún tók því sem að höndum bar með
ró. Við þökkum ömmu fyrir að kenna
okkur að taka því sem að höndum
ber, vera dugleg og umfram allt vera
vel til höfð. Minning hennar lifir í
hjörtum okkar.
Árelía Eydís, Berglind Ósk
og Kristján Guðmundsbörn.
Kristín Guðmundsdóttir HINSTA KVEÐJA
Ég kveð þig, hugann heillar minn-
ing blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Elsku hjartans amma Stella,
hafðu þökk fyrir allt og megi
Guð fylgja þér.
Eðvarð Ingi, Ingibjörg
og Heiður Huld.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
FINNBOGI K. EYJÓLFSSON,
Sóltúni 13,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 18. mars kl. 13.00.
Guðrún Jónsdóttir,
Katrín Finnbogadóttir, Oddur Eiríksson,
Guðrún Oddsdóttir,
Ragnar Finnbogason, Lingdi Shao,
Ósk Ragnarsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR,
áður Ásvegi 16,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn
17. mars kl. 13.00.
Ólöf Einarsdóttir, Bogi Þórðarson,
Sigurlaug Einarsdóttir,
Erna Einarsdóttir, Bergþór Einarsson,
Einar Örn Einarsson, Hulda Sólborg Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.