Morgunblaðið - 16.03.2010, Síða 28
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
VIÐAMIKIL hönnunarhátíð,
HönnunarMars, hefst á
fimmtudaginn. Boðið verður
upp á mikinn fjölda viðburða,
sýningar og fyrirlestra og er
dagskráin ætluð hönnuðum og
fyrirtækjum sem og áhugafólki
um hönnun; almenningi og er-
lendum gestum. Stjórnandi há-
tíðarinnar er Greipur Gíslason
en Hönnunarmiðstöð Íslands
réð hann til að stýra verkefninu.
„Það er byrjað að skipuleggja HönnunarMars
um leið og þeim síðasta sleppir,“ segir Greipur um
undirbúningsvinnuna. „HönnunarMars er fjögurra
daga hátíð íslenskrar hönnunar, uppskeru- og
vorhátíð, þar sem Hönnunarmiðstöð Íslands, regn-
hlífarbatterí fyrir alla íslenska hönnun, skapar
grundvöll fyrir hönnuði að kynna sig fyrir almenn-
ingi, fjölmiðlum, ráðamönnum og kannski ekki síst
erlendum fjölmiðlum og kaupendum sem við flytj-
um inn til landsins ásamt Norræna húsinu og hönn-
unarsjóði Auroru,“ segir Greipur. Fjöldi erlendra
blaðamanna sé væntanlegur til landsins að fylgjast
með viðburðinum og einnig kaupendur frá Norð-
urlöndum sem hitta munu íslenska hönnuði. Því sé
þetta bæði kaupstefna og borgarhátíð.
Miða við HönnunarMars
Greipur segist hafa orðið var við fyrir þennan
HönnunarMars að það sé orðið hönnuðum kapps-
mál að koma verkum sínum á hátíðina. Hönn-
unarMars var haldinn fyrsta sinni í fyrra og stefnir
í að hann verði árviss viðburður.
– Er allt í blóma í íslenskri hönnun?
„Já, það er sko allt í blóma. Það er gríðarlegur
uppgangur og gríðarleg vakning meðal almennings
og svo er mikill meðbyr, við fundum það strax í
fyrra þegar við gerðum þetta fyrst. Þá voru nú bara
örfáir mánuðir liðnir frá hruninu,“ segir Greipur.
„Það er alla vega nóg af dóti til að sýna.“
– Haldið þið að almenningur verði sífellt áhuga-
samari um hönnun?
„Það held ég að sé engin spurning. Og það skýr-
ist af mörgu. Ekki síst er mikil áhersla á hið ís-
lenska í þjóðfélaginu, svona „íslenskt er betra“, og
það hjálpar. Út frá viðskiptasjónarmiði eru fleiri
farnir að gera sér mat úr íslenskri hönnun, versl-
anir með íslenska hönnun farnar að spretta upp á
ólíklegustu stöðum,“ svarar Greipur. Íslendingar
séu farnir að veita íslenskri hönnun meiri athygli og
það megi m.a. þakka sölu á vörum sem nýtist öllum.
Greipur nefnir einnig að auðveldara sé orðið að
sækja hönnunarnám innanlands, m.a. nám í arki-
tektúr í Listaháskóla Íslands.
Risastór tískuhátíð, RFF
„Á hátíðinni í ár er líka mikil fatahönnunarslags-
íða sem við erum mjög ánægð með. Það hlýst m.a.
af því að það er risastór viðburður, Reykjavík Fas-
hion Festival, inni í dagskránni okkar,“ segir Greip-
ur og er orðinn óðamála enda mikið að gera og
margt í boði. RFF sé án efa einn stærsti viðburð-
urinn innan HönnunarMars en hann fer fram 19.
mars í Ó. Johnsson og Kaaber-húsinu í Sætúni 16.
HönnunarMars hefur þegar verið þjófstartað,
með sýningu á hönnun fyrir börn í Hafnarborg, og
annað kvöld mun Félag íslenskra teiknara, FÍT,
veita verðlaun fyrir grafíska hönnun í Iðu-húsinu
við Lækjargötu. Aðgangur er ókeypis að öllum við-
burðum og öllum heimill sem er gott í kreppunni.
Gríðarlegur uppgangur
í íslenskri hönnun
HönnunarMars verður haldinn öðru sinni dagana 18.-22. mars Íslenskir
hönnuðir kynna verk sín almenningi, fjölmiðlum, ráðamönnum og kaupendum
Mundi vondi Fyrirsætur í flíkum frá Munda vonda. Mundi sýnir hönnun sína á RFF.
Greipur Gíslason
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
Vegur Steed Lord í Ameríku fer
vaxandi. Sveitin hefur nú gert
samning við AM only, öflugasta
tónleikabókara Ameríku hvað raf-
tónlist áhrærir, og vinnur nú með
umboðsmanni í Los Angeles, þar
sem sveitin býr. Ný smáskífa, „Bed
Of Needles“, kom þá út í dag raf-
rænt.
Steed Lord semur við
öflugan bókunaraðila
Fólk
HINN 9. apríl næstkomandi verða haldnir stórir
þungarokkstónleikar á Nasa þar sem sex af sveitt-
ustu rokkböndum Íslands koma fram. Það er fyr-
irtækið Localice sem stendur að tónleikunum í
samstarfi við Kerrang, sem er eitt stærsta þunga-
rokkstímarit Bretlands, og til stendur að streyma
tónleikunum beint á vefsíðu tímaritsins. „Localice
er staðsett í Bretlandi líka (auk Íslands) og er
kvikmynda- og multi-production fyrirtæki,“ segir
Unnar Helgi Daníelsson, framleiðandi hjá Local-
ice. Hann segir verkefnið hugsað sem nokkurs
konar „showcase“ fyrir íslensku böndin, en allir
tölvunotendur með breskar IP-tölur koma til með
að geta horft á tónleikana á netinu. Kerrang er
stórt nafn í bransanum og því hlýtur það að teljast
nokkur sigur að fá þá með í verkefnið. „Þetta er
lítill bransi þessi tónlistar- og kvikmyndabransi
þegar maður er kominn inn í þetta og farinn að
kynnast fólki,“ segir Unnar um samstarfið við
tímaritið, „þeir hafa líka áhuga á Íslandi, ég held
að það sé stór partur af því líka.“ Hvað íslenska
netnotendur varðar, segir Unnar það í skoðun að
streyma tónleikunum hér heima líka.
Hljómsveitirnar sem koma fram á Localice Live
2010 eru Cliff Clavin, For A Minor Reflection,
Noise, Ten Steps Away og Nevolution. Að auki
mun hljómsveitin Sign koma fram en þetta verða
fyrstu tónleikar sveitarinnar í rúmt ár og koma
þeir til með að spila gamalt efni auk þess að frum-
flytja nýtt efni af væntanlegri plötu. Húsið verður
opnað kl. 20 og miðasala er hafin á midi.is.
holmfridur@mbl.is
Kerrang streymir íslensku þungarokki
Morgunblaðið/Sverrir
Sign Spila saman á tónleikum eftir árs hlé.
Eins og greint var frá í áreiðan-
legri, skemmtilegri og lipurlega rit-
aðri frétt í Morgunblaðinu var stór-
söngvarinn Geir Ólafs lóðsaður út
til Kaliforníu um síðustu helgi af
sjálfum Don Randi, fyrrverandi pí-
anista Franks Sinatra og eiganda
eins frægasta djassklúbbs þar um
slóðir, The Baked Potato. Söng
Geir þar um síðustu helgi ásamt
Randi og sveit hans og tókst svo vel
til að píanistinn sendi Morgun-
blaðinu tölvupóst þar sem hann lof-
ar frammistöðu söngvarans, fólk
hafi bókstaflega elskað krúnukall-
inn knáa. Randi er svo væntanlegur
hingað til lands í ágúst þar sem
hann mun taka upp plötu með Geir.
Píanisti Sinatra ánægð-
ur með Geir Ólafs
Akureyringaball verður haldið á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi
næsta laugardag. Endurvakin verð-
ur stemningin á þremur heims-
frægum skemmtistöðum á Akur-
eyri; Sjallanum, H-100 og Dynheim-
um. Fram koma Skriðjöklar, Bravó,
Hunang og Dægurlagapönk-
hljómsveitin Húfa auk skemmti-
kraftanna Rögnvaldar gáfaða og
Kalla Örvars.
Norðanvindar blása
um Spot næstu helgi
„Margar fagstéttir hönnuða eru með samsýn-
ingar á mörgum stöðum í bænum; leirkerasmiðir
eru með fallega samsýningu niðri í Fógetastofu í
Aðalstræti, gullsmiðir eru með glæsilega sam-
sýningu á Skólavörðustíg og svo eru arkitekta-
félögin þrjú, þ.e. Arkitektafélag Íslands, Félag ís-
lenskra landslagsarkitekta og Félag húsgagna-
og innanhússarkitekta, með sameiginlega mið-
stöð við Höfðatorg,“ nefnir Greipur sem dæmi
um áhugaverðar sýningar. Af öðrum einstökum
viðburðum má einnig nefna sýninguna Reykjavík
Rewind en fyrir hana fékk hópur nemenda við
Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík
frumkvöðla á sviði íslenskrar hönnunar til að
velja hluti sem tilheyra íslenskri hönnunarsögu
frá 6. og 7. áratug síðustu
aldar. Á vefsíðu Hönn-
unarmiðstöðvar má finna
dagskrána í heild sinni,
honnunarmidstod.is.
Ýmsir fyrirlestrar verða
haldnir á HönnunarMarsi og
erindi. Meðal fyrirlesara
verður Bandaríkjamaðurinn
David Carson, einn áhrifa-
mesti grafíski hönnuður tí-
unda áratugar síðustu aldar,
þekktur af frumlegri hönnun sinni fyrir tímarit
og tilraunir með notkun á leturgerðum. Það er af
nógu að taka á HönnunarMarsi.
Carson Heims-
kunnur hönnuður.
Einn áhrifamesti grafíski hönnuður tíunda áratugarins
Ekki mat þó í þetta sinnið, heldur
mun hann framreiða eyrnakonfekt
í líki hljómlistar. Nú á miðvikudag-
inn hefst Íslandshátíð í Toronto er
kallast A Taste of Iceland og mun
Mugison koma fram á Drake-
hótelinu næstu helgi, á meðan mat-
reiðslumeistarinn Þórarinn Egg-
ertsson sér um matinn. Myndin var
tekin af þeim félögum fyrir helgi er
þeir prufukeyrðu mat og hljómlist.
Með þeim á myndinni er Anthony
Rose, yfirkokkur á Drake.
Mugison kokkar
ofan í Kanadamenn