Morgunblaðið - 16.03.2010, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2010
SÝND SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í HÁSKÓLABÍOI
BRÁÐSKEMMTILEG
RÓMANTÍSK GAMAN-
MYND MEÐ AMY ADAMS
ÚR „ENCHANTED“
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Besta leikkona
í aukahlutverki
Besta handrit
2 ÓSKARSVERÐLAUN
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
„Myndin er fallega
tekin og óaðfinnan-
lega leikin af
stjörnuleikurunum
- mynd sem veitir
manni töluvert til-
finningalegt högg”
- Todd Brown, twitch-
film.net (eftir Toronto
kvikmyndahátíðina)
HHH
-Dr. Gunni, FBL
HHHH
-H.S.S., MBL
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HÖRKU SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓ
HHHH
-Roger Ebert
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
PAUL GREENGRASS KEMUR
EIN BESTA SPENNUMYND ÁRSINS
HHHH
-Ó.H.T. - Rás 2
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
The Good Heart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
From Paris With Love kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Legion kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Percy Jackson / The Lightning Thief kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 10 ára
Nikulás litli kl. 6 LEYFÐ
The Green Zone kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára
The Good Heart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.10 ára
Precious kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára
Mamma Gógó (síðustu sýningar) kl. 6 LEYFÐ
The Green Zone kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
From Paris With Love kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Shutter Island kl. 5:20 B.i. 16 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 5:20 B.i. 14 ára
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
Síðustu
sýningar
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR
LÍSA í Undralandi, eða Undirlandi
eins og það heitir víst í myndinni,
heldur toppsætinu aðra helgina í röð
en hasarmyndin Green Zone kemur
í kjölfarið með garpinn Matt Damon
innanborðs. 17 milljónir króna hafa
fengist með miðasölu á Lísu og ætti
það að þykja harla gott.
The Good Heart, nýjasta kvik-
mynd Dags Kára Péturssonar, er í
áttunda sæti og nema tekjur af
henni frá fyrstu sýningum um 1,7
milljónum króna.
Það kemur fátt á óvart á Bíólist-
anum, Loftkastalinn sem hrundi
heldur þriðja sætinu og mun sjálf-
sagt halda jafnri og góðri aðsókn
næstu helgar.
Avatar er í sjötta sæti en sá smell-
ur hefur rakað krónunum inn í pen-
ingakassa bíóhúsanna, tæp 141
milljón króna, takk fyrir. Þó hefur
kvikmyndin verið sýnd í 13 vikur.
Óskarsverðlaunamyndin The
Blind Side var frumsýnd fyrir helgi
en hún er í fjórða sæti. Afbragðs-
ræman Precious er í 9. sæti, dettur
niður um fjögur.
Ein teiknimynd er í efstu tíu sæt-
unum, í því tíunda, Skýjað með kjöt-
bollum á köflum.
Lísa að hætti
Burtons heillar
Bíólistinn
Var
síðast KvikmyndNr.
Vikur
á lista
SMAIS vann listann
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Mest sóttu kvikmyndirnar í bíóhúsum á Íslandi
Alice in Wonderland
Green Zone
Loftkastalinn sem hrundi
Blind Side, The
Shutter Island
Avatar
The Good Heart
From Paris With Love
Precious
Cloudy with a Chance of Meatballs
1
Ný
3
Ný
2
10
8
4
5
7
2
Ný
4
Ný
3
13
2
2
3
7
12. – 14. mars
Hattarinn óði Depp er býsna
skrautlegur í Lísu í Undralandi.
TEKJUHÆSTU KVIKMYNDIR HELGARINNAR»
DAGANA 16. apríl til 6. maí verður
kvikmyndahátíðin Bíódagar 2010
haldin í Regnboganum. Tuttugu og
tvær myndir verða sýndar á hátíð-
inni og úrvalið er fjölbreytt og
glæsilegt. Margar myndanna hlutu
tilnefningar til Óskarsverðlauna, t.d.
The Imaginarium Of Doctor Par-
nassus (síðasta mynd Heath Led-
ger), Fantastic Mr. Fox, The Last
Station, The Messenger, Un Prop-
héte og síðast en ekki síst Crazy
Heart, en fyrir frammistöðu sína í
myndinni hlaut Jeff Bridges verð-
launin fyrir besta leik í aðal-
hlutverki. En þegar svo margar
flottar myndir eru sýndar á einni
kvikmyndahátíð liggur beint við að
spyrja af hverju þær séu sýndar þar
en ekki settar í almenna sýningu?
Ísleifur B. Þórhallsson varð fyrir
svörum.
„Staðreynd málsins er sú að út-
gáfa á svona myndum er mjög erfið.
Það er bara erfitt að láta þær borga
sig,“ segir hann, og á hér við myndir
eins og Crazy Heart, sem hann seg-
ir þokkalega stóra mynd en þess-
lega að hún nái ekki inn nógum að-
sóknartekjum til að hún standi
undir sér. „Mál hafa þróast þannig
að eftir þetta blessaða hrun höfum
við fundið fyrir ákveðinni breytingu;
að fólk sækir ennþá meira í léttmeti,
afþreyingu. Strax og þetta gerðist
fundum við fyrir því að myndir sem
voru ekki bara alger afþreying áttu
enn þá erfiðara uppdráttar.“
En Ísleifur segir að hátíðin sé ein-
mitt tækifæri fyrir fólk að sjá þess-
ar myndir og að í raun sé lítill mun-
ur á sýningum á hátíðinni og
almennum sýningum. „Þetta eru í
raun og veru venjulegar sýningar.
Crazy Heart til dæmis, af því að hún
er eitt af flaggskipunum, hún verður
örugglega sýnd á
hverjum einasta
degi, þrisvar
sinnum, bara eins
og hún sé í venju-
legri útgáfu. Hún
verður bara
klukkan sex-átta-
tíu í Regnbog-
anum í þrjár vik-
ur. Það er ágæt-
issýningartími á
mynd. Þetta eru tuttugu og tvær
myndir og við tökum yfir alla sýn-
ingartíma í fjórum sölum þannig að
myndirnar fá mjög svipað tækifæri
eins og ef það væri verið að gefa
þær út. Og fólk fær tækifæri til að
sjá þær.“
Úrval myndanna er eins og áður
sagði mjög fjölbreytt og til stendur
að skipta þeim niður í fimm til sex
flokka. Miðaverð verður hefðbundið
en þegar nær dregur verður hægt
að kaupa afsláttarpassa sem munu
sennilega gilda inn á tíu sýningar. Í
ár verður áhorfendum í fyrsta sinn
boðið að kjósa um bestu myndina en
dregið verður úr innsendum seðlum
og verður það því heppinn áhorfandi
sem hlýtur verðlaun en ekki mynd-
in. Opnunarhátíðin verður einnig
með breyttu sniði en að þessu sinni
verður hver salur með sína mynd í
stað þess að ein mynd verði sýnd í
öllum eins og tíðkast hefur og verð-
ur því haldið leyndu hvaða myndir
verða sýndar. „Okkur finnst þetta
bara ótrúlega skemmtileg hug-
mynd; að hleypa inn í fjóra sali og
fólk veit ekkert hvað það er að fara
að sjá. Við bara veljum fjórar mynd-
ir. Og svo er partí eftir á þannig að
þeir sem fara á stystu myndina geta
byrjað að drekka fyrst,“ segir Ísleif-
ur og hlær.
Dagskrá og upplýsingar má finna
á heimasíðu Græna ljóssins og fés-
bókarsíðu. Miðar og passar verða
seldir á midi.is. holmfridur@mbl.is
Gæðamyndir sem
standa ekki undir sér
Ísleifur
Þórhallsson
Imaginarium Síðasta mynd Heath Ledger verður sýnd á hátíðinni.
Tuttugu og tvær myndir sýndar á Bíódögum í Regnboganum