SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 10
10 28. nóvember 2010 É g hef verið að velta því fyrir mér að undanförnu, hvort vaxandi óheiðarleiki sé óhjákvæmilegur fylgifiskur kreppu og síaukinnar skattpíningar Steingríms J. Sigfús- sonar og Jóhönnu Sigurðardóttur. Er svindl, svínarí, þjófnaður og ómerkilegheit eitthvað sem fólk grípur til í auknum mæli, þegar skórinn kreppir og réttlætir slíkt með því að um sjálfsbjargarviðleitni sé að ræða? Ekki veit ég hvort svarið við spurningunni er já eða nei, en hitt veit ég, að ég hef fengið svo margar frásagnir af fólki, sem er að svindla á kerfinu á kostnað okkar hinna, að mér beinlínis blöskrar. Síðasta miðvikudag var frétt á forsíðu Morgunblaðsins undir fyrirsögninni „Dvöldu erlendis og því sviptir bótum“. Fréttin fjallaði um að á þessu ári hefði komið í ljós að 226 einstaklingar á atvinnuleysisbótum frá okkur skattborgurum Íslands, dvöldu í raun erlendis. Þetta leiddi til þess að 109 einstaklingar voru teknir af bótunum og gagnvart 117 öðr- um einstaklingum var öðrum viðurlögum beitt. Ekki kom fram í fréttinni hvaða öðrum viðurlögum var beitt. Hvers konar siðferði er það hjá fólki, að dvelja í útlöndum, væntanlega í góðu yfirlæti, þiggja atvinnuleysisbætur frá íslenska ríkinu, sem við skattborgarar þessa lands fjármögnum, og vera yf- irhöfuð alls ekkert að leita sér að atvinnu? Það er lélegt siðferði; það er í raun og veru ekkert siðferði; það er bara siðleysi. Mér finnst að framkoma af þessu tagi sé svo svívirðileg og ómerkileg að birta eigi nöfn þeirra einstaklinga, sem brjóta með þessum hætti gegn samfélagi okkar og það á ekki að láta nægja að svipta þessa einstaklinga atvinnuleysisbótum, heldur á að beita þá háum fjársektum. Og enn getur slæm hegðun orðið verri, því ég veit fyrir víst, að þess gerast dæmi að einstaklingar á atvinnuleysisbótum taka að sér að vinna svart. Í því að vinna svart felst vitanlega það að svíkja undan skatti; að greiða ekki til samfélagsins fyrir þátttökuna í samfélaginu; að stela sér ókeypis fari. Þeir sem vinna svart taka meðvitaða ákvörðun um það að við hin, sem borgum okkar skatta, greiðum fyrir skólagöngu barna hinna svörtu sauða; við borgum fyrir þá heilbrigðisþjónustuna sem þeir eins og aðrir njóta; við borgum fyrir þá vegina sem þeir keyra á; við borgum fyrir þá alla þá þjónustu sem ríki og sveitarfélög veita. Svört vinna þýðir vitanlega það að færri borga til samfélagsins og færri standa því undir þeim kostnaði, sem við eigum lögum samkvæmt að standa undir. Það þýðir aftur það, að við sem borg- um okkar skatta og skyldur höfum það ekki jafngott og við hefð- um, ef allir stæðu skil á sínu. Þetta er svo einfalt reikningsdæmi, að mér er fyrirmunað að skilja, hvað þá hafa samúð með þeim, sem kaupa svarta vinnu. Þeir eru ekki síður sekir, en þeir sem selja vinnu sína svart. Þeir sem samþykkja nótulaus viðskipti og greiða fyrir svarta vinnu með reiðufé, sem er, að mér skilst, krafa þjóf- anna, eru með því að taka þátt í því að skerða lífskjör íslenskra skattgreiðenda og fjölskyldna þeirra. Ég hef nú yfirleitt verið þeirrar skoðunar, að eftirlitsiðnaðurinn hér á landi hafi fyrir margt löngu þanist út fyrir öll velsæmismörk. En bankahrunið og það hvernig bankarnir voru rændir innan frá, sýndi okkur að eftirlit með fjármálastofnunum var hvergi nærri nógu mikið og sterkt. Það hvernig ósvífnir þjófar stela sér framfærslu á kostnað okkar hinna, vinna svart og gjalda keisaranum ekki það sem keisarans er, sýnir okkur því miður fram á að eftirlitið þarf einnig að auka á þessu sviði. Þeir sem haga sér með þessum hætti koma óorði á hina, sem í neyð þiggja bætur og eru í raun og veru að leita sér að atvinnu. Siðblinda á kostnað okkar hinna Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is ’ Þeir sem greiða fyrir svarta vinnu með reiðufé eru með því að taka þátt í því að skerða lífskjör ís- lenskra skattgreið- enda 06.30 Vakna og næ í blöðin frá deginum áður því ég komst ekki yfir að lesa þau vegna anna. Blöðin í dag verða að bíða fram á kvöld. Rölti upp og fæ mér kjarngóðan morgunverð - múslí með prótíndufti, banana og und- anrennu. 07.00 Vek 6 ára dótturina og gef henni morgunmat - cheer- rios, banana og lýsi. Kem henni síðan í öruggar hendur hjá kon- unni sem vaknaði á undan öllum upp úr kl. 6! 07.45 Konan farin í vinnuna og ég skutla dótturinni í skólann. Á móti nær konan í dótturina úr skólanum á daginn. 08.15 Kominn í vinnuna og verkefnin bíða. 08.30-12.00 Fer á fullt að undirbúa og fylgja eftir markaðs- plönum og birtingaráætlunum fyrir stóra útgáfu á DVD-titlum sem við gefum út daginn eftir, m.a. Knight and Day, Besta úr Audda og Sveppa og Skoppu og Skrítlu út um hvippinn og hvapppinn sem og fyrir bíó- myndina Skyline sem við frum- sýnum föstudaginn 19. nóv- ember. Það þarf að hanna herferðir og fara yfir „budget“ og svara pósti frá erlendum stúd- íóum og innlendum tenglum. 12.00- 13.00 Fundur með Stöð 2 ásamt kollegum mínum vegna birtingar Senu á miðlum 365. Byrjum á að japla á gómsæt- um og súrsætum réttum frá Nings og síðan er farið í kynn- inguna og spurt og svarað og málin rædd. 13.00-15.00 Brunað upp í Smárabíó og farið á prufusýningu í leðrinu góða á væntanlegri stó- mynd frá Sony - Burlesque - með Christinu Aguilera og Cher í aðal- hlutverkum. Mjög stór þáttur í starfinu er að horfa á allar myndir sem við erum með til að áætla að- sókn og teikna upp herferðir út frá viðkomandi mynd því engar tvær myndir eru eins og áherslur mismunandi hverju sinni. 15.00-17.00 Hendist nið- ur í Laugarásbíó til að „screena“ væntanlega mynd sem þeir eru með og heitir Morning Glory og við komum til með að sýna með þeim. Stórgóð mynd með sjálfum Harrison Ford í aðalhlutverki ásamt hinni stórgóðu Rachel McAdams. Mjög mikilvægt að sjá hana þar sem hún er sett á sama tíma og Burlesque og menn þurfa að bera saman bækurnar um hvað er best fyrir hvora mynd og hvort þær skarast í markhópum o.s.frv. Og að end- ingu var Morning Glory færð viku seinna. 17.00-20.00 Kominn aft- ur í vinnuna. Verkefni dagsins hafa hlaðist upp. Oftast reynir maður að fara í ræktina í hádeg- inu en þau tækifæri eru ekki mikil á þessum árstíma þegar gríðarlega mikið er að gera. Ég verð þó að fylgja eftir frétta- tilkynningum og svara auglýs- endum sem vilja komast inn með auglýsingar í bíóin okkar á föstu- daginn þegar við uppfærum aug- lýsingakerfi bíóanna. Einnig fer ég yfir uppsetningu á daglegum bíóauglýsingum fyrir blöðin fyrir helgina þegar Skyline byrjar. 20.00-21.00 Kominn heim og rétt næ að hlýða dóttur minni yfir heimalesturinn. Hún er komin í náttföt og í kjölfarið eru tennur burstaðar og svo leggjumst við saman upp í rúm og ég les stutta bók fyrir hana. Því næst förum við saman með faðirvorið og ég kyssi hana góða nótt og slekk ljósið. 21.30 Klára nokkra pósta í Blackberry við daufa tíru tungls- ins meðan dóttirin festir svefn. Áður en ég veit af þyngjast augnalokin og ég sofna við hlið hennar með símann á maganum og ólesin dagblöð dagsins á gólf- inu og grunlausa konuna velt- andi því fyrir sér hvað hafi orðið um mig! Dagur í lífi Guðmundar Breiðfjörð, markaðsstjóra kvikmyndadeildar Senu Morgunblaðið/Eggert Í VIP bíó í vinnunni Hér má sjá hundaþjálfara með hunda sína í Hundaþjálf- unarskóla kólumbíska hersins í Bógóta. Alls eru þjálfaðir um 900 hundar á ári í skólanum. Þjálfun hundanna tekur eitt ár en eftir útskrift þjóna hundarnir hernum í fimm til sjö ár sem leitarhundar en þeir hafa þann hæfileika að geta þefað uppi sprengjur. Veröldin Hundar í herskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.