SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 31
28. nóvember 2010 31 Melchior á sokkabandsárunum, að ofan frá vinstri: Karl, Hróðmar, Ólafur Flosason, Kristín, Gunnar og Hilmar. Ólafur mun grípa í óbóið með hljómsveitinni á tónleikunum framundan. Morgunblaðið/Kristján Þegar törninni eftir útgáfuna á Silf- urgrænu ilmvatni lauk komst los á mann- skapinn. „Þá fóru menn að ákveða hvað þeir ætluðu að gera í lífinu. Hilmar fór í nám til útlanda, Karl ákvað að fara í líf- fræði og ég var kominn í gítarnám og fór svo í tónsmíðarnar síðar,“ segir Hróðmar. „Við fórum því hver í sína áttina og hljómsveitin leystist upp. Við sömdum reyndar tónlist við barnaleikritið Krukku- borg sem var í Þjóðleikhúsinu og var eftir pabba Hilmars, Odd Björnsson, og það var sýnt veturinn sem Hilmar var í Frakk- landi.“ Hilmar heldur áfram: „Við vorum samt búnir að ákveða, þrátt fyrir að við værum ekki að spila, að hittast um sumarið og gera aðra plötu. Hún átti að vera allt öðru- vísi, við vildum vinna hana mjög þétt og taka hana upp nánast „live“. Þetta gekk eftir og sumarið 1979 tókum við upp Bala- popp á Bala í Mosfellsbæ, sem var hús Dieters Roths.“ Líkt og með fyrstu plötuna var það Dieter Roth sem fjármagnaði út- gáfuna. „Garðar Hansen upptökustjóri átti líka mikinn þátt í því að við gætum gert þetta,“ segir Hróðmar. „Hann bjó til lítið stúdíó uppi á Bala með segulböndum Dieters og hellingi af græjum sem hann kom með með sér, og það var það sem gerði þetta mögulegt. Við vorum síðan þarna allt sumarið að búa til músík og taka upp.“ Balapopp kom út árið 1980 án nokk- urrar eftirfylgni af hálfu hljómsveit- arinnar. „Við gáfum bara út plötuna og fórum svo í frí,“ segir Hróðmar. „Við spil- uðum nánast ekkert af lögunum af plöt- unni á tónleikum. Það var ekki fyrr en 30 árum síðar að við frumfluttum þau fyrir tónleikagesti. Við vorum einfaldlega komnir hver í sína áttina.“ Karl verður fyrir svörum þegar þeir eru inntir eftir því hvaða móttökur Balapoppið fékk. „Hún fékk í fyrsta lagi litlar móttökur því þetta var lítið upplag sem við gáfum út sjálfir og fylgdum ekkert eftir. Við fengum dóma í tveimur blöðum og þeir voru báðir öm- urlegir,“ segir hann og hlær. Hilmar sér sig knúinn til að koma Balapoppinu til varnar. „Ég man eftir einum dómi þar sem plötunni var líkt við aðra plötu Spilverks- ins, sem var líka hrá og tilraunakennd. Mér fannst það vera jákvæður dómur.“ Tónskáldið í poppinu Þótt enginn hefði orð á því gerðu menn meira og minna ráð fyrir því að Melchior hefði runnið sitt skeið. „Við vorum samt alltaf í sambandi og við Hróðmar höfum örugglega unnið svona tíu sinnum saman síðan, en þá á þeim forsendum að ég sé kvikmyndaleikstjóri og hann tónskáld. T.d. samdi hann kvikmyndatónlistina við mína fyrstu bíómynd, Eins og skepnan deyr. Popplögin voru mín en hann samdi allt „skorið“.“ Raunar átti Karl líka drjúg- an þátt í þeirri mynd því hann samdi text- ana við nokkur popplaganna og söng að auki. Hróðmar átti svo síðar eftir að semja tónlist við ýmsar sjónvarps- og kvik- myndir Hilmars. Melchior tók hins vegar ekki upp þráð- inn fyrr en 2007 eftir að sú hugmynd kom upp að gefa gömlu lögin út á geisladisk. „Við ætluðum upphaflega að sleppa nokkrum lögum sem okkur fannst léleg og illa heppnuð en bæta við nokkrum nýjum í staðinn,“ segir Hróðmar. „Nýju lögunum fjölgaði hins vegar hratt og voru orðin sautján áður en við vissum. Á endanum ákváðum við því að gefa fyrst út disk með nýju lögunum, sem kom út í fyrra, sum- arið 2009.“ Ekki urðu miklar manna- breytingar í fastahópi hljómsveitarinnar, en þó þær að Steingrímur Guðmundsson slagverksleikari hefur gengið til liðs við bandið en Ólafur Flosason og Arnþór Jónsson eru fjarri góðu gamni. „Við héldum bara áfram þar sem frá var horfið,“ segir Karl og Hróðmar kinkar kolli: „Við ákváðum að hittast einu sinni í viku til að æfa og það var strax eins og ekkert hefði breyst, það var bara gaman að hitta félagana og spjalla og svona. En það tók lengri tíma að koma einhverri rútínu í gang því á hverri æafingu var maður búinn að steingleyma hvað hafði gerst síðast.“ Karl tekur undir: „Þegar ég var búinn að syngja í eitt ár áttaði ég mig á því hvað maður hafði misst rosalega mikið niður á þessum 30 árum og það sama gilti um hljóðfæraleikinn. Þetta var eins og vél sem þurfti að smyrja.“ Hróðmar, sem er þekktari í dag sem nútímatónskáld, segir þó átakalaust að skipta yfir í Melchior-gírinn. „Ég hefði kannski haldið fyrirfram að þetta myndi eitthvað trufla en það er frekar að þetta hjálpi hvort öðru. Ég nýti þennan heim í mín tónverk og fæ útrás fyrir að spila sjálfur, sem ég var eiginlega alveg hættur að gera. Nú gerir eldri strákurinn minn, sem er í klassískri tónlist, grín að mér og segir að ég sé orðinn poppari, en hann lætur sig þó hafa það að spila með okkur.“ Hann er þó ekki eina afkvæmi Melchior- manna sem leggur hönd á plóg, því dætur þeirra Hilmars og Gunnars hafa gripið í hljóðfæri með bandinu, auk þess sem kona Kalla leikur með þeim á fiðlu. Hilmar, Hróðmar og Karl semja öll lög- in, hver í sínu lagi. Þekking Hróðmars kemur svo að góðum notum við að skrifa útsetningar hljómsveitarinnar niður. „Á endanum er þetta orðið gegnsýrt af okkur öllum, en grunnhugmyndin er alltaf feðr- uð einhverjum einum okkar.“ Í haust urðu svo þau tímamót að út kom geisladiskurin Melchior < 1980, sem inni- heldur gömlu plöturnar þrjár. „Þegar til kom var merkilegt hvað okkur fannst þær standa fyrir sínu. Við hættum t.d. við að sleppa lögum. Þau eru þarna öll nema eitt en við endurhljóðblönduðum tvö þeirra og gerðum nýjar upptökur af tveimur,“ segir Hróðmar. „Ég upplifi þetta sem sátt,“ heldur Hilmar áfram. „Á tímabili gat ég ekki hlustað á ýmislegt á Silf- urgrænu ilmvatni því ég fékk bara aum- ingjahroll. En þegar við vorum aðeins búnir að fikta í þessu áttaði maður sig á því að það var ástæða fyrir því að við ákváðum að taka upp þessi lög og hún er sú að okk- ur fannst þau góð. Mér hefur aldrei þótt Silfurgrænt ilmvatn jafngóð plata og í dag.“ Að þessu sinni ætla þeir að standa sig betur í kynningarmálunum en þegar Bala- poppið kom út í fyrra skiptið. Síðustu vik- ur hafa þeir því verið iðnir við tónleika- hald og framundan eru a.m.k. tvennir í viðbót en í desember spila þeir bæði í Slippsalnum og í Landnámssetrinu í Borg- arnesi. „Á þessum tónleikum munum við frumflytja nokkur ný lög,“ upplýsa þeir og í ljós kemur að Melchior hefur sjaldan verið jafnskapandi og nú. Í bígerð er að gefa út nýja plötu eftir tvö ár. „Við ætlum að gefa okkur smátíma í þetta,“ segja þeir, skipulagðir að vanda. Það er augljóst að þarna eru menn sem hafa gaman af því sem þeir eru að gera, enda verða menn sennilega ungir á ný að endurupplifa menntaskólabrekin með þessum hætti, eða hvað? „Jújú, þess vegna erum við að þessu,“ svara þeir hlæjandi. „Ekki erum við að græða pening á þessu, svo mikið er víst. Þetta er rándýrt hobbí, en stórskemmtilegt.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Þeir voru með raf- magnshljóðfæri og gátu dúndrað upp stuði og allir voru ofsalega hrifnir. Við höfðum aldrei efni á svoleiðis og urðum því alltaf bara að sitja og vanda okkur. „Það var strax eins og ekkert hefði breyst, það var bara gaman að hitta félagana og spjalla og svona,“ segja þeir um það þegar Melchior tók að æfa á ný eftir 30 ára hlé frá störfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.