SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Síða 24
24 28. nóvember 2010
henni hefði þó kannski margt farið á ann-
an veg. Eiríkur konungur, sem hlaut við-
urnefnið prestahatari og var sonarsonur
Hákonar gamla, var ekki eins og fólk er
flest. Hann varð fyrir slysi á unga aldri,
hestur fældist og óð yfir hann með þeim
afleiðingum að hann fótbrotnaði og hann
varð draghaltur. Eiríkur var afskaplega
drykkfelldur og vanstilltur ungur maður,
ekki farsæll konungur og enn síður góður
faðir. Margrét fer átta ára gömul út í heim
og á langa vegferð fyrir höndum, miklu
lengri vegferð en enskar og norskar heim-
ildir herma. Samkvæmt norskum heim-
ildum liggur hún í steinkistu í kirkju í
Noregi. Spurningin er bara: Er það líkið af
henni sem liggur í kistunni? Um það eru
menn ekki á eitt sáttir. Ég fer ekki dult
með mína skoðun á því.
Skáldsaga mín snýst um það hvað varð
um Margréti drottningu. Þar byggi ég á
ýmsum sögulegum heimildum þar sem Ís-
land kemur mjög sterklega inn í myndina
enda voru Íslendingar helstu sagnameist-
arar þessa tíma. Fyrsti hluti bókarinnar
gerist því á Íslandi og það af eðlilegum
ástæðum því íslenskur prestur, Hafliði
Steinsson, var hirðprestur Eiríks og þar
með Margrétar litlu en jafnframt kennari
hennar og leiðbeinandi. Hafliði þekkti
þessa litlu stúlku betur en flestir aðrir.
Hann flutti til Íslands eftir að hún lagði af
stað til Skotlands og staðreynd er að ís-
lenskir annálar segja aðra sögu um örlög
borði að fá þessa ungu dömu sem tengda-
dóttur og gifta hana syni sínum, Játvarði
krónprins Englands. Þetta var rakin leið
fyrir Játvarð konung til að leggja Skotland
undir sig. Í eðli sínu er þetta því stór-
pólitísk sorgarsaga. Játvarður, sem var
stórskuldugur, greiddi Noregskonungi sem
var enn blankari en hann sjálfur gríðarlega
háa upphæð til að liðka fyrir hjúskapnum.
Margrét sigldi síðan til Skotlands til hjóna-
vígslu og krýningar, einungis átta ára
gömul. Hún fór ein með hirðfólkinu sem
fylgdi henni í brúðkaupið. Þúsundir gesta
biðu hennar við dómkirkjuna í Skotlandi á
brúðkaupsdaginn enda voru England,
Skotland og Noregur að tengjast nánum
böndum. En af einhverjum dularfullum
ástæðum kom drottningin unga aldrei í
eigið brúðkaup. Hvað gerðist er einmitt
efni þessarar bókar. Brúðkaupið sem aldrei
var haldið átti hins vegar eftir að hafa ör-
lagarík áhrif á sögu þessara þriggja ríkja.
Þarna hófust 300 ára blóðug átök Eng-
lendinga og Skota enda gaf Játvarður það
ekki eftir að ná Skotlandi undir sig og upp
úr vinskap Norðmanna og Englendinga
slitnaði.
Í dag er lítt skiljanlegt að átta ára gömul
stúlka sé skilin frá fjölskyldu sinni og send
til fjarlægs lands til að verða þar drottning.
Það liggur í hlutarins eðli að Margrét fór
þessa ferð gegn vilja sínum en þetta var
leið föður hennar til að bjarga norska rík-
inu frá gjaldþroti. Ef hann hefði farið með
D
rottning rís upp frá dauðum er
ný söguleg skáldsaga eftir
Ragnar Arnalds. Þetta er þriðja
skáldsaga Ragnars en hann hef-
ur einnig sent frá sér sex leikrit. Ragnar er
kunnur stjórnmálamaður, var mennta-
málaráðherra og fjármálaráðherra fyrir Al-
þýðubandalagið, en síðustu árin hefur
hann einkum sinnt skáldskaparskrifum.
Nýja skáldsagan hans byggist á afar at-
hyglisverðum og ævintýralegum atburðum
seint á 13. öld og þar er Margrét konungs-
dóttir í Noregi aðalpersónan.
„Ég valdi þetta söguefni vegna þess að
mér fannst það áhugavert og aðalpersónan
mjög sérstök,“ segir Ragnar. „Þetta er ör-
lagasaga ungrar konu og saga hennar á
varla neinn sinn líka. Þótt ég sé ekki vanur
að fást mikið við reyfara og spennusögur
þá verður atburðarásin stundum í þeim
anda. Ég kemst ekki undan því þar sem
þarna er um að ræða mikil örlög og magn-
aða atburði.“
Hvað varð um Margréti?
Þegar Ragnar er beðinn að greina frá
sögulegum bakgrunni sögunnar um
Margréti segir hann: „Margrét kon-
ungsdóttir var einkadóttir Eiríks, kon-
ungs Norðmanna og um leið Íslend-
inga. Þegar afi hennar, Alexander
Skotakonungur, dó varð hún
drottning Skotlands. Þá sá Játvarður
1. Englandskonungur sér leik á
Viðtal
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Stórpólitísk sorgarsaga
Ragnar Arnalds skrif-
ar í nýrri skáldsögu
um Margréti kon-
ungsdóttur í Noregi
sem á 13. öld, þá átta
ára gömul, var send í
örlagaríka ferð.
Ragnar, sem segir ör-
lagasögu Margrétar
vart eiga sinn líka,
ræðir um sögulegar
staðreyndir, nýju
skáldsöguna og skáld-
skapinn.
Ragnar Arnalds: Þótt ég sé ekki vanur að fást
mikið við reyfara og spennusögur þá verður at-
burðarásin stundum í þeim anda.