SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 29
28. nóvember 2010 29
Þ
að er sláandi að lesa um skilyrðin sem fólk bjó við á Íslandi, sem glímdi við
geðveiki í upphafi síðustu aldar. Rithöfundurinn Kristín Steinsdóttir lýsir því í
Ljósu, áhrifamikilli skáldsögu sem er nýkomin út. Þar styðst hún við frásagnir
af ævi ömmu sinnar, sem um tíma var geymd í dárakistum, nokkurs konar
búri eða kró, og mátti teljast lánsöm að vera ekki í útihúsi, eins og var hlutskipti margra.
„Það var opinberun fyrir mig að kynna mér þennan aðbúnað,“ segir Kristín í viðtali
sem Pétur Blöndal skrifar í Lesbók.
„Ég var nógu vitlaus til að halda að ég gæti farið eitthvað og séð þessar dárakistur, en
þær eru gjörsamlega gleymdar og búið að henda þeim í ystu myrkur. Kannski er það gott,
þó að maður hefði gjarnan viljað sjá þær, búr eða kistur eða kró, eins og karlarnir kölluðu
það sem ég talaði við fyrir austan. Þessu var slegið upp oft í útihúsum, en í Ljósu tilfelli var
það inni, þar var hlýrra og hún var nær fólkinu sínu, sem sýnir góðan hug.“
Styrmir Gunnarsson gerði bókina að umtalsefni í pistli í Sunnudagsmogganum fyrir
hálfum mánuði, þar sem hann sagði meðal annars: „Fyrir nokkrum árum sagði gamall
vinur minn, sem nú er kominn nokkuð á níræðisaldur og ólst upp í æsku norður á
Ströndum, mér frá því, að hann hefði séð með eigin augum geðveikan einstakling geymd-
an í lokuðu búri, sem var utanhúss á bæ þar norður frá. Að lokum var Ljósa geymd um
skeið í slíku búri, sem í bókinni er lýst sem eins konar fjárkró, en innanhúss. Nokkru síðar
skoðaði ég gamla sjúkrahúsið á Ísafirði, sem er merkileg bygging. Í kjallara þess mátti
finna næsta stig þessa búnaðar. Lítið lokað herbergi, með bólstruðum veggjum. Á hurð-
inni var skilti. Á skiltinu stóð: Geðveiki.“
Þá var öldin önnur. Lífsbaráttan hörð og ekkert svigrúm fyrir frávik, einstaklinga sem
geðveiki sótti á. Kristín segist lengi hafa hugsað um líf ömmu sinnar, sem hana langaði að
vita meira um, en vissi lítið annað en að hún hefði verið geðveik. „Og einhvern veginn var
aldrei talað um hana, þessa alvarlegu konu, sem hékk á vegg inni í stofu.“
Nú er saga Ljósu komin út á bók. Og það er rétt sem Styrmir segir: „Ljósa var amman,
sem aldrei var talað um. En nú er hún orðin amman, sem mun lifa með þessari fjölskyldu
og mörgum fleirum um aldur og ævi. Kona mikilla örlaga og erfiðra. Í þessari sögu eru
margar hetjur.“
Það getur verið lærdómsríkt að rifja upp söguna.
Stundum er talað eins og ekkert hafi áunnist á Íslandi á umliðnum árum og áratugum.
En Kristín bendir á að þó að stutt sé síðan þetta var veruleikinn sem við bjuggum við, þá
sé það mörg ljósár frá okkur:
„Ef þú leiðir hugann að því, þá deyr þessi kona sem ég hef til hliðsjónar árið 1938. Þá er
byrjað að byggja steinhús, en margir eru ennþá í moldarkofunum. Við látum nefnilega oft
eins og lífsskilyrðin hafði alltaf verið eins og núna, en okkur er hollt að líta til baka og sjá
hversu ótrúlega margt hefur breyst á skömmum tíma hjá einni þjóð.“
Sem betur fer búa þeir sem stríða við geðveiki við allt önnur og betri skilyrði í dag. Eftir
samfellda og ósérhlífna uppbyggingu á lýðveldistímanum státa Íslendingar af einu öfl-
ugasta velferðarkerfi sem dæmi eru um í heiminum. Það sýnir hversu mikið hefur áunn-
ist. Og það er ekki sjálfsagt, eins og blasir við þeim sem lesa skáldsöguna Ljósu.
Á skiltinu stóð: Geðveiki
„Sjáumst á morgun, kæru barnaníð-
ingar.“
Sarkozy Frakklandsforseti við blaðamenn sem
spurðu um meint tengsl hans við spillingarmál.
„Ekki hægt að saka ríkisstjórnina um
aðgerðaleysi á þessu sviði.“
Birgir Ármannsson alþingismaður. Ráð-
herrar hafa skipað 150 nefndir frá 1.
febrúar 2009.
„Hann er líka virtur líf-
fræðingur.“
Jón Bjarnason vegna ráðningar
Bjarna sonar hans í starfshóp um
fiskveiðistjórnunarmál.
„Bankarnir hafa m.a. af-
skrifað milljarða á millj-
arða ofan hjá drullu-
sokkum eins og Halldóri
Ásgrímssyni og Jakobi
Valgeiri Flosasyni …“
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir al-
þingismaður.
„[Þú kallaðir] mig fífl,
að fjölda vitna við-
stöddum, og ekki einu sinni heldur
fjórum sinnum.“
Heiðar Már Guðjónsson, sem fór fyrir hópi fjár-
festa sem vildi kaupa Sjóvá, í tölvupósti til Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra.
„Ég held að sé alveg ljóst að álver á
Bakka er mjög hæpin framkvæmd
í ljósi þessara niðurstaðna.“
Árni Finnsson, framkvæmdastjóri Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands. Skipu-
lagsstofnun telur framkvæmdir hafa
umtalsverð óafturkræf umhverfisáhrif.
„Meginniðurstaðan er sú að
framkvæmdaaðilar þurfa að
taka tillit til ákveðinna þátta og
það munu menn reyna
að gera og gera af
metnaði. Fyrir okk-
ur sem hér búum er
þetta bara gleði-
dagur.“
Bergur Elías Ágústsson,
sveitarstjóri Norð-
urþings, í kjölfar skýrslu
Skipulagsstofnunar.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
urinn við Grikkland og Írland. Og að Belgía og
Ítalía séu líkleg til að bætast við sjúklingahópinn
auk Portúgals og Spánar sem mikil veikindamerki
höfðu áður sést á. Og hin fréttin segir að staða
kanslarans í eina evruríkinu sem nokkurt raun-
verulegt hald er í slíkum efnahagslegum ólgusjó
hafi veikst mikið. Spiegel segir að vísu að orðspor
kanslarans sé undirorpið skítugum slettum í huga
íbúa annarra Evrópulanda. Hitt er alvarlegra að
þolinmæði Þjóðverja sjálfra er á þrotum. Vitað
hefur verið að stjórnvöld í Berlín hafa verið að
undirbúa mikla herferð hræðsluáróðurs um þær
ógnir sem yrðu ef kanslarinn fengi ekki stuðning
við að senda stórkostlegar fjárhæðir til að auka við
skuldavanda Íra. (Bjarga þeim.) Þegar Þjóðverjar
átta sig á að Portúgal, Spánn, Ítalía og Belgía munu
þegar verið komin í beiningarmanna biðröðina
eru yfirgnæfandi líkur á að þeir segi Nei. Og það
verði nei, sem jafnvel Evrópusambandið sem aldr-
ei tekur mark á neinu sem almenningur segir
komist ekki framhjá. Og næst munu svo Þjóð-
verjar spyrja fyrst svona er komið: Kanslari góður,
hvar er þýska markið okkar?
Íslenskur hringlandi bregst ekki
Forsætisráðherra Tékklands segir að það land sé
því miður skuldbundið til, samkvæmt samningum
við ESB, að taka upp evru, en landið muni samt
setja það mál í bið eins lengi og það kemst upp
með það. Slóvakía, sem eitt landa neitaði að setja
fé í björgunaraðgerðir fyrir Grikki, hefur einnig
sagt sitt. Forsætisráðherra landsins sem tók upp
evru fyrir ári segir að gjaldmiðillinn minni helst á
ponzi-pýramída, það er að segja sjóð eins og fjár-
málasnillingurinn Madoff rak frá New York áður
en hann komst í klefa. Utanríkisráðherra Breta
segir opinberlega að helmings líkur séu á að evran
lifi af. Og það sagði hann áður en ljóst varð að erfitt
yrði að takmarka faraldurinn við Grikki og Írland.
En á Íslandi, sem Lísa í Undralandi stjórnar,
voru snillingar á ráðstefnu um upptöku evru á
sama tíma og áhugamanneskja um stjórnmál sagði
það „hringl“ að hætta núverandi vegferð um
aðildarviðræður að ESB, þótt þær hefðu breyst í
aðlögunarviðræður og hefðu verið fengnar fram
með hótunum og svikum og þótt Evrópa stæði í
efnahagslegum logum. Svo voru menn að tala um
að Merkel hefði fallið í áliti.
Dönsk björg-
unarþyrla á æfingu
í vetrarsólinni á
Faxaflóa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg