SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Síða 32
32 28. nóvember 2010
E
lly er ein helsta fyr-
irmynd söngkvenna á
Íslandi, hvort sem
þær eru af minni
kynslóð, eldri eða yngri. Mínar
fyrirmyndir voru alltaf hún og
Diddú – slíkar afburða-
söngkonur koma ekki fram
nema annað slagið,“ segir
Guðrún Gunnarsdóttir í sam-
tali við Morgunblaðið, en hún
var fengin til þess að velja 60
lög með Elly sem nú eru komin
út á safndiskum.
Henný Eldey Vilhjálmsdóttir,
alltaf kölluð Elly, fæddist 28.
desember 1935, í Merkinesi í
Höfnum, og hefði því orðið 75
ára í árslok. Elly lést hins veg-
ar um aldur fram 16. nóvember
1995, þegar hana vantaði rúm-
an mánuð í sextugt.
„Þegar ég var lítil hlustaði ég
á Ellu Fitzgerald og fleiri er-
lendar stórstjörnur í útvarp-
inu, á gömlu Gufunni, og man
að mér fannst Elly passa vel
inn í þann hóp. Ég hlustaði á
lögin sem ómuðu í óskalaga-
þáttunum og þessi einstaka og
fallega rödd gat ekki farið fram
hjá manni,“ segir Guðrún
Gunnarsdóttir.
Ráðin á staðnum
Það var um sumar á sjötta ára-
tugnum, þegar Elly var 17 ára,
að framtíð hennar sem dæg-
urlagasöngkonu réðst.
Hún starfaði þá á skrifstof-
unni hjá Agli Jacobsen í Aust-
urstrætinu þegar auglýst var
eftir söngvaraefnum í prufu hjá
hljómsveit Kristjáns Kristjáns-
sonar, sem lék á skemmti-
staðnum Tjarnarcafé. Elly fékk
að skjótast úr vinnunni, söng
eitt lag fyrir KK og félaga og
sagan segir að hún hafi verið
ráðin á staðnum, eins og Guð-
rún tekur til orða.
„Hún stökk fram á sjón-
arsviðið með þessa fallegu
rödd, ekki alsköpuð söngkona
en hún sjóaðist mjög fljótt,
enda hljómsveitir að spila
fimm eða sex kvöld í viku á
þessum árum, og hún varð
fljótt ein besta söngkona á Ís-
landi. Mér finnst reyndar alltaf
leiðinlegt að tala um að ein-
hver sé bestur, því söngvarar
eru svo ólíkir, en rödd Ellyar
var einstök; svo fögur og
hljómmikil.“
Guðrún hefur eftir Elly að
þegar hún fór í söngprufuna
hjá KK hafði hún aldrei séð
hljóðnema nema tilsýndar!
Jónatan Garðarsson skrifar
um Elly á tonlist.is og þar
kemur fram að hún söng inn á
sína fyrstu plötu árið 1960.
„Annað lagið sló í gegn og hef-
ur hljómað síðan, Ég vil fara
upp í sveit. Það var svo ekki
fyrr en þrem árum síðar að
næsta tveggja laga plata var
gefin út. Á henni voru lögin
Vegir liggja til allra átta og
Lítill fugl.“
Frsta kvikmyndalagið
„Fyrra lagið varð um leið
fyrsta íslenska kvikmyndalag-
ið, því Sigfús Halldórsson
samdi það sérstaklega fyrir
kvikmyndina 79 af stöðinni,“
segir Jónatan. „Bar lagið upp-
haflega þann titil á plötunni
þótt honum hafi verið breytt
við endurútgáfu. Myndin var
gerð eftir skáldsögu Indriða G.
Þorsteinssonar, sem jafnframt
samdi textann við lagið. Lítill
fugl átti að verða einskonar
uppfyllingarlag, en hefur lifað
jafngóðu lífi í rúm 30 ár og
Vegir liggja til allra átta.“
Guðrún Gunnarsdóttir segir
að á þessum árum hafi söngv-
arar gjarnan flutt lagið einu
sinni í hljóðveri og sú upptaka
notuð til útgáfu. „Það var erfitt
Hljómlist | Þrefaldur safndiskur sem spannar allan feril Ellyjar Vilhjálms
Elly með hljómsveit Svavars Gests. Hljómsveitarstjórinn og eiginmaður hennar er lengst til hægri.
„Einstök rödd“
Söngkonan ástkæra Elly Vilhjálms hefði orðið 75 ára á
þessu ári. Af því tilefni er nú gefinn út þrefaldur safndiskur
sem spannar allan feril hennar. Guðrún Gunnarsdóttir
söngkona valdi lögin 60 sem eru á diskunum.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Elly Vilhálmsdóttir söng um það
bil 100 lög inn á hljómplötur.
Prins Póló
Jukk
Fyrst og fremst bætir og hressir
og kætir, gerir þig fallega og
hraustlega alveg eins og malt.
Það er viðeigandi að vísa í
texta sjálfs Prins Póló, öðru nafni Svavars
Péturs Eysteinssonar, til að lýsa þeim
áhrifum sem nýjasta plata hans, Jukk, hefur
á áheyrandann. Jukk nefnilega bætir og
hressir og kætir.
Ingveldur Geirsdóttir
Björgvin
Duett II
Duett II er mikið til bland í poka
og sumir molarnir bragðast
betur en aðrir. Björgvini til
tekna er hversu duglegur hann
er að sækja til sín unga söngvara.
Arnar Eggert Thoroddsen
Ensími
Gæludýr
Það er eins og Ensími-liðar hafi
verið í þörf til að koma saman,
skapa tónlist og spila, það er
einhver áþreifanleg gredda á
þessari plötu. Það er eins og þeir hafi verið
við það að springa og þurft að koma þessu
frá sér, og þessi áhugi og kraftur skilar sér til
áheyrandans. Þetta er Ensími, gamlir
aðdáendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af
öðru, en um leið er þarna eitthvað nýtt,
tímalaust og töff; sumum gæti jafnvel fundist
þetta betra en kynlíf og súkkulaði til samans.
Ingveldur Geirsdóttir
Helgi Valur & The Shemales
Electric Ladyboy Land
Hér er á ferðinni nokkuð
torkennilegt popp; rækilega
útsett og með feitum hljómi,
með strengjum og brassi og
öllum græjum. En undir niðri slær þó hjarta
trúbadúrsins.
Arnar Eggert Thoroddsen
Friðrik Dór
Allt sem þú átt
Ég tek ofan fyrir Friðriki Dór fyrir
að gefa út útúrtanað,
hnakkavænt gæða „ruslpopp“
sem er auk þess „átótjúnað“ í
drasl. Án þess að blikna. Það er ekki vottur
af kaldhæðni í gangi hérna, og það
svínvirkar.
Arnar Eggert Thoroddsen
Gildran
Vorkvöld
Hér er á ferðinni upptaka frá
30 ára afmælistónleikum
sveitarinnar sem haldnir voru í
vor, í Hlégarði að sjálfsögðu ...
Elsta efni sveitarinnar kemur langbest út, lög
eins og „Snjór“, „Mærin“ og „Ævisagan“ eru
sígild. Haganlega samin og dramatísk
rokklög með innihaldsríkum textum bornum
uppi af tjáningarríkri og sterkri söngrödd
Birgis Haraldssonar. Frábær rokksöngvari
þar á ferð.
Arnar Eggert Thoroddsen
GRM
MS
Fyrst og síðast er þetta
skemmtileg plata, þessir þrír
meistarar tækla sína lagabálka
í sameiningu, skiptast á línum
og forsöng og það er auðheyranlegt að það
var gaman að gera þessa plötu. Maður sér
þá fyrirsér skellihlæjandi á milli upptakna.
Arnar Eggert Thoroddsen
Cliff Clavin
The Thiefs’s Manual
Spilamennskan er eiturþétt og
söngur prýðilegur.
Gagnrýnispunktar sem má
tiltaka eru þeir að lögin verða
fulleinsleit er á líður. Í þessu bandi er
auðheyranlega máttur og gróska til að taka
þetta upp á næsta stig ... skotheldur
frumburður frá einkar efnilegri rokksveit sem
hefur allt að vinna og engu að tapa.
Arnar Eggert Thoroddsen
Útidúr
This Mess We’ve made
Platan This Mess We’ve Made
er þægileg áheyrnar og
stendur vandaður söngur og
hljóðfæraleikur upp úr eftir
hlustun hennar ... Þetta er því fínasta
frumraun hjá Útidúr sem smellpassar við
góðan bolla af café au lait.
María Ólafsdóttir
Baggalútur
Næstu jól
Þetta er bráðskemmtileg plata
og jólaleg á sinn einkennilega
hátt. Lögin eru misskemmtileg
eins og við er að búast,
„Jólaknús“ hefði t.d. mátt missa sín
(„Cruisin“ eftir William Robinson Jr.) Gaman
væri líka að heyra Baggalút semja sín eigin
jólalög. En þá væri Baggalútar ekki að stela
jólunum.
Helgi Snær Sigurðsson
Prófessorinn og Memfismafían
Diskóeyjan
Skemmst frá að segja gengur
allt upp á þessari plötu, og þá
meina ég allt. Lög Braga
Valdimars eru einföld en
grípandi og maður er farinn að syngja með
eftir eina og hálfa hlustun. Spilamennska öll
er til fyrirmyndar, útsetningar glúrnar og
söngvarar allir frábærir.
Arnar Eggert Thoroddsen
Örför
Örför
Verkið er stutt, sjö lög samtals,
og rúllar það vel af stað með
laginu „Eyra til að heyra“.
Sérkennilega hljómaframvinda,
saman með sérkennilegum söng valda því
að maður leggur eyrun óhjákvæmilega við.
„Krókurinn“ í laginu er líka vel beittur.
Munnharpa og bakrödd slaufar svo laginu
með glans. Eftir þessa byrjun hallar hins
vegar fljótlega undan fæti... Hringlandi
þriggja gripa popp sem skilur lítið eftir.
Arnar Eggert Thoroddsen
Skúli mennski og hljómsveitin Grjót
Skúli mennski og hljómsveitin Grjót
Tónlistin er þungbúin, nett
djössuð og fagmannlega leikin,
lífræn bæði og næm. Söngrödd
og textar Skúla fylgja Cohen/
Waits línum, drafandi, hálftalandi og textar
býsna glúrnir; vangaveltur um mannsandann,
örbirgð hans, vonir og væntingar. Stefnumót
tónlistar og skálds er í heildina vel heppnað;
heimsósómakvæði felld að hæfandi tónlist og
úrvinnslan heilsteypt.
Arnar Eggert Thoroddsen
Ástvaldur Zenki Traustason
Hymnasýn
Ástvaldur hefur að sjálfsögðu
útsett alla sálmana og samið
forspil og eftirspil sem rammar
skífuna vel inn í þá hugarró er
yfirleitt ríkir í tónlistinni. Þetta er skífa sem
gott er að bregða á er menn vilja ná jafnvægi
í sálarlífinu, finna fegurð skýjum ofar, en fá
jafnframt skammt af sveiflu.
Vernharður Linnet
Stína August
Concrete World
Stína er þrælfín söngkona og
söngur hennar nýtur sín best í
djasssveiflunni og
angurværum lögum. Úr
síðarnefnda flokknum ber sérstaklega að
nefna smell Jóhanns, „Don’t Try To Fool Me“,
dásamlegt lag sem versnar svo sannarlega
ekki í meðförum Stínu...
Helgi Snær Sigurðsson
Retro Stefson
Kimbabwe
[S]veitinni tekst vel að fylgja
stórgóðri fyrstu plötu eftir sem
sýnir að sjálfstraustið er í góðu
lagi á þessum bæ (svo margar
hljómsveitir fara á taugum þegar að hinni
voðalegu „plötu númer 2“ kemur). Innihaldið
endurspeglast líka vel í frábæru umslagi og
er hönnunin þar öll til mikillar fyrirmyndar.
Hið besta mál.
Arnar Eggert Thoroddsen
Sunna Gunnlaugsdóttir
The dream
Frjálsi spuninn milli
hefðbundnari laganna gefur
plötunni nýja vídd, dýpkar
hana og bætir. Þetta er best
samleikandi kvartett sem Sunna hefur
stjórnað og það fer ekki milli mála frá fyrsta
til síðasta tóns að þarna er alvöru
atvinnumannahljómsveit á ferð sem hefur
fullt vald á hverri tónhendingu. Kannski er
diskurinn dálítið seinteknari en fyrri diskar
Sunnu, en því meira gefur hann þegar
nokkrum sinnum hefur verið hlustað.
Vernharður Linnet
Ólöf Arnalds
Innundir skinni
Það er búið að vera mikið
„suð“ í kringum Ólöfu eða
„böss“ eins og það er kallað í
bransanum og ekki að ósekju.
Því að auk tónlistarinnar sjálfrar ber Ólöf
með sér gnótt af óræðum, algerlega
einstökum sjarma sem verður trauðla lýst
með orðum. Hann liggur yfir og undir öllum
smíðunum og ljær þeim þessa töfra sem
hafa heillað mann og annan um velli víða ...
Áhugafólk um tónlist, sem gerð er af hinum
einu og réttu forsendum; þ.e. af
hjartahreinni þörf hins sanna listamanns,
ætti að kanna þetta verk og það rækilega.
Arnar Eggert Thoroddsen
The Go-Go
Darkness
Platan virkar vel sem einslags
ábætir fyrir Singapore Sling
aðdáendur og þó að slóðirnar
hér séu vel troðnar þá eru þær
fetaðar af smekkvísi og næmi og lögin tíu
bera öll með sér eitthvað sem fær eyrun til
að reisa sig við.
Arnar Eggert Thoroddsen