SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Blaðsíða 33
28. nóvember 2010 33
Ben Frost
By the Throat
By the Throat er fjölbreytt verk
sem hlýða þarf á oft til að ná
öllu nostrinu og
smáatriðunum. Á plötunni
togast á mýkt og harka, fegurð og hryllingur.
En vissulega er svona tónlist ekki allra.
Helgi Snær Sigurðsson
Bjartmar & Bergrisarnir
Skrýtin veröld
Það fyrsta sem slær mann við
plötuna er ólgan í flutningnum,
það er hreinlega eins og
Bjartmar sé að springa úr
tjáningarþörf. Sem er vel. ... Lagasmíðarnar
eru velflestar prýðilegar, einfalt þriggja gripa
rokk með kröftugum viðlögum og sjá traustir
Bergrisarnir um þéttan og rokkandi undirleik.
Arnar Eggert Thoroddsen
BlazRoca
Kópacabana
Erpur/BlazRoca sýnir að hann
er hæfileikaríkur
tónlistarmaður og kraftmikill
rappari á fyrstu sólóplötu sinni.
Á Kópacabana ættu hipphopp-unnendur að
fá nóg fyrir sinn snúð ... Hér er allt litrófið til
staðar, hrein og klár partílög sem og
grjóthörð ádeilulög ...
Helgi Snær Sigurðsson
Orri Harðarson
Albúm
Einn maður og gítar er
innihaldið hér, og jú, einn
hljóðnemi líka. Berstrípuð
nálgun sem virkar vel.
Hljómurinn á plötunni er silkimjúkur og hlýr
og það er líkt og Orri sitji við hlið hlustandans
í brakandi tréstól og syngi beint upp í eyrað á
honum. Natni sú sem Orri leggur í þessa
plötu, og ekki síst einlægnin sem liggur í
lágværum en einbeittum söngnum, skilar
sér þannig sterkt til hlustandans.
Arnar Eggert Thoroddsen
Jóhann G. Jóhannsson
JohannG In English
Í árdaga „ ...stöndugur
minnisvarði um list Jóhanns og
ber höfundinum fagurt vitni,“
segir m.a. í dómi um nýja plötu
Jóhanns G. Jóhannssonar. Allt í allt er þetta
þó afar stöndugur minnisvarði um list
Jóhanns og ber höfundinum fagurt vitni.
Frágangurinn ætti að vera öðrum til
eftirbreytni í þeim efnum og víst að lög
Jóhanns eiga eftir að lifa bæði manninn og
okkur öll.
Arnar Eggert Thoroddsen
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna
Þú komst í hlaðið
Lagavalið er virkilega gott,
hefðbundin íslensk sönglög í
bland við töffaðri lög eins og
„Reiðmenn vindanna“, sem
mér finnst eitt það besta á disknum, og
„Bíólagið“ sem hefði mátt vera aðeins
kraftmeira. Annars er allur flutningur til
fyrirmyndar og Helgi er góður
dægurlagasöngvari sem skilar réttri
tilfinningu í lögin og fer ekkert með þau út af
hinni hefðbundnu braut.
Ingveldur Geirsdóttir
Miri
Okkar
Yfir allri plötunni liggur léttur
hljómur en hún er mjög
fjölbreytileg og einkenna hana
jákvæðar tilfinningar sem
kunna jafnvel að springa út í lúðraþyt og
aðra óskammfeilna lífsgleði. Henni tekst
samt að víkja sér undan allri væmni. Þvert á
móti má kalla flest á plötunni frekar svalt.
Guðmundur Egill Árnason
Ólafur Arnalds
Þau hafa sloppið undan þunga myrkursins
Þetta er áhrifamikil plata með
strengja og píanóþungamiðju.
Hún nær góðum tengslum við
það tilfinningaróf sem hún
gerir að viðfangsefni sínu, en það eru
umskipti úr erfiðleikum og þunga í gleði og
léttleika. Ólafi tekst líka að láta manni
finnast semmaður sé á rólegum stað eftir
mikil átök.
Guðmundur Egill Árnason
Hitaveitan
Ýmsir flytjendur
Sumarið er svo sannarlega að
finna á Hitaveitunni og ná lögin
á henni að breyta ískalda
Atlantshafinu og kolsvarta
sandinum í kristaltæran sjó við hvíta strönd
á afskekktri eyju í suðurhöfum. Það er því
tilvalið að hækka í ofnunum, skella sér á
stuttbuxur og hlýrabolinn og svo hrista sér í
eitt hressilegt sumar-hanastél með
marglitum regnhlífum. Hitaveitan er vel
heppnuð sumarplata sem fær sólina svo
sannarlega til að skína.
Matthías Árni Ingimarsson
Markús & The Diversion
Sessions
Markús er að gera ágæta hluti
á þessari plötu ... Á endanum á
platan þrjú sjarmerandi lög og
öll hafa eitthvert aðdráttarafl.
Að niðurlagi skákar þetta Skátunum.
Guðmundur Egill Árnason
Hvanndalsbræður
Hvanndalsbræður
Á plötunni Hvanndalsbræður
eru ekki flóknar lagasmíðar, en
þær eru skemmtilegar og
grípandi með góðum textum
og vel útsettar ... Þetta er platan til að hafa í
spilaranum þegar hringurinn verður keyrður í
sumar, hún bætir, hressir og kætir.
Ingveldur Geirsdóttir
For a Minor Reflection
Höldum í átt að óreiðu
Það er erfitt að velja ákveðin
lög af plötunni og flokka sem
betri en önnur, lögin renna
saman í eitt heildarverk og
taka sum hver óvæntar beygjur, t.a.m. „Flóð“
sem býr yfir dæmigerðri stígandi en endar
með upptöku af drengjum að leik, blandaðri
forvitnilegum rafhljóðum. Ókosturinn við
plötuna er hins vegar sá að laglínurnar eru
ekki sérlega eftirminnilegar og þrátt fyrir
ítrekaða hlustun festast lögin seint í minni,
a.m.k. í tilfelli undirritaðs.
Helgi Snær Sigurðsson
Benni HemmHemm
Retaliate
Já, ég nefndi angurværa
tónlist. Flestir þekkja tónlist
Benna Hemm Hemm af
miklum lúðrablæstri og stuði. Á
Retaliate kveður við annan tón, þar er gítar,
rólegheit og angurværð, órafmögnuð
stemning. Þessi nýi stíll fer Benna mjög vel
og svolítið sérstök söngrödd hans hentar
tónlistinni vel. Það mætti lýsa tónlist
stuttskífunnar sem svolítið þjóðlagaskotinni
og huggulegri en samt kraftmikilli, öflugri.
Ingveldur Geirsdóttir
Laddi
Bland í poka
Höfuðmistök Bland í poka eru
þau að ekki liggur vel fyrir hvort
um grín, barnatónlist eða
dægurtónlist er að ræða.
Sumstaðar virðist Laddi ætla sér að vera
fyndinn og tekst það á köflum, líkt og í laginu
um gömlu karlana sem vilja fara á kenderí í
„Bingó, bingó, bingó“ en fyrir hvert lag sem
er skondið finnast tvö semmyndu kannski
sóma sér vel á barnaplötu.
Guðmundur Egill Árnason
Deep Jimi and the Zep Creams
Better When We’re Dead
Þessi fjórða plata Deep Jimi
and the Zep Creams verður
seint talin til meistaraverka,
heldur tilþrifalítil og skilur lítið
eftir sig ... Eftir að hafa hlustað á plötuna
nokkrum sinnum stóð undirritaður sig að því
að hoppa yfir lög, í leit að einhverju
skemmtilegu. Það getur varla talist gott.
Helgi Snær Sigurðsson
Johnny Stronghands
Good People of Mine
Breiðskífan getur á engan hátt
af sér þá tilfinningu að Johnny
sé að reyna að þröngva sér inn í
tónlistarstefnu sem honum er
ekki eðlileg, heldur er þetta heiðarlegt framlag
til blús. Platan er skemmtileg og rúllar vel.
Guðmundur Egill Árnason
Pollapönk
Meira pollapönk
Platan er [...] ekki gallalaus og
nokkur laganna hefðu mátt
missa sín, t.d. lag um Ómar
Ragnarsson sem erfitt er að
átta sig á til hvers eigi að höfða. Platan
missir aðeins dampinn þegar á líður en engu
að síður er hún skemmtileg ... Niðurstaðan
er í stuttu máli þessi: Meira pollapönk kallar
á enn meira pollapönk.
Helgi Snær Sigurðsson
Diddi Fel
Hesthúsið
Þessi skýring nægir alveg enda
tekur flytjandinn sig ekkert of
hátíðlega. Textarnir eru
stórfínir, auðvitað mjög grófir á
köflum og það þýðir ekkert að setja á sig
kynjagleraugu, eða -eyru, þegar rýnt er í
þessa plötu. Þetta er s.s. ekki „kynjuð“
plöturýni. Hér er rappað um „kerlingar og
stellingar“ og þeir sem ekki þola slíkt munu
eiga erfitt með að hlusta...
Helgi Snær Sigurðsson
Who Knew
Bits and Pieces of aMajor Spectacle
Bits and Pieces of a Major
Spectacle er vel unnin og flott
frumraun frá hljómsveit sem
áhugavert verður að fylgjast
með í framtíðinni.
Matthías Árni Ingimarsson
að laga upptökurnar á þessum
árum og aðeins bestu söngv-
ararnir verða vinsælir til upp-
töku við þær aðstæður. Ég held
að aðrir hafi helst úr lestinni.“
Hún segir mjög athyglisvert að
heyra á upptökum hve jafnvel
Elly hafi sungið í hljóðveri og á
böllum og sama megi segja um
fleiri. „Menn voru jafn góðir á
sviði og í upptökum. Elly var
með skýra framsögn, var mjög
tónviss og það sama má segja
um Vilhjálm bróður hennar.
Þau eru einstök í sinni röð.“
Guðrún hefur lengi haft
miklar mætur á söngkonunni
Elly og kynntist henni lítillega
þegar báðar unnu á Rík-
isútvarpinu. Hún stóð svo fyrir
minningartónleikum um Elly
árið 2002.
„Ég hafði gengið með þessa
hugmynd í maganum frá því
að hún lést. Mig langaði að
halda nafni Ellyjar á lofti og
heiðra minningu hennar.“
Auglýstir voru einir tón-
leikar í Salnum í Kópavogi en
þeir urðu nokkrir og alltaf var
fullt út úr dyrum. Fólk vildi
greinilega heyra lögin hennar.“
Við val laganna á umrædda
safndiska í haust studdist Guð-
rún eingöngu við eigin smekk.
„Ég ákvað að taka þann pól í
hæðina að velja þau lög sem
mér fannst hún syngja best.“
Það gamla sérlega gott
Guðrún telur að margt af því
fyrsta sem tekið var upp með
Elly, lög frá sjötta og sjöunda
áratugnum, hafi elst best. „Lög
í klassískum útsetningum,
grand lög. Mér finnst líka mjög
vænt um lögin sem hún söng
löngu seinna með stórsveit
Reykjavíkur; það eru líklega
síðustu upptökurnar með Elly;
tvö lög sem hún söng inn á
plötu með sveitinni. Maður
heyrir á upptökunum hve
gaman henni fannst þetta. Hún
var orðin veik en það er mikil
gleði í söngnum. Ég get
ímyndað mér að það hafi ein-
mitt verið hennar heimavöllur
að syngja með slíkri stórsveit.“
Á diskunum eru 60 lög sem
fyrr segir, sem spanna allan
feril Ellyjar. „Lögin eru ekki í
tímaröð heldur blandaði ég
þeim á diskana,“ segir Guðrún
sem fannst þetta skemmtilegt
verkefni að fást við. „Hvert
einasta lag er mjög vel flutt,
fagmennskan er svo mikil. Það
er alveg sama um hvað er að
ræða; plötur eða upptökur úr
danslagakeppni útvarpsins,
jafnvel lög sem lítið hafa
heyrst, alltaf er sama alúðin
lögð í verkefnið og fag-
mennskan jafn mikil. Elly gerði
alltaf eins vel og hægt var.“
Fjölda laganna á safndisk-
unum syngur Elly ein, en
einnig er töluvert um dúetta,
aðallega með Vilhjálmi bróður
hennar og Ragnari Bjarnasyni,
en þau sungu mikið saman í
gegnum tíðina.“
Tónleikar á afmælisdaginn
Elly hefði orðið 75 ára hinn 28.
desember næstkomandi eins og
áður segir, og af því tilefni ætl-
ar Guðrún að halda tónleika í
Salnum ásamt fleirum. „Við
ætlum að dusta rykið af tón-
leikunum frá 2002, þó að þeir
verði reyndar með dálítið öðru
sniði. Dagný Atladóttir, barna-
barn Ellyjar, ætlar til dæmis að
segja frá ævi ömmu sinnar og
söngferli – en þess má geta að
Dagný er afar lík ömmu sinni!
Þá kemur Raggi Bjarna og
syngur með mér nokkra dú-
etta, en þau Elly voru mjög
góðir vinir.“
Elly söng inn á nokkrar
plötur, þar sem Guðrún segir
marga gullmola að finna.
Nefnir til dæmis plötu með
lögum úr söngleikjum sem
tekin voru upp í Englandi árið
1965 við undirleik þarlendra
tónlistarmanna. Hún telur það
bestu plötu Ellyar, en mörg
einstök legir nefnir hún líka:
„Til dæmis lagið Sveitin milli
sanda; ég myndi aldrei á æv-
inni treysta mér til þess að
syngja það lag! Það gerir hún
frábærlega og mér finnst það
reyndar hennar glæsilegasta
númer og eitt af þekktustu
dægurlögum Íslands á síðustu
öld. Það getur engin toppað
Elly,“ segir Guðrún Gunn-
arsdóttir.
Elly Vilhjálms. „Þessi einstaka og fallega rödd gat ekki farið framhjá
manni,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir sem heyrði í Elly á gömlu Gufunni.
Elly og Ragnar Bjarnason sungu mikið saman.