SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 36

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 36
36 28. nóvember 2010 ’ Einhvern tímann var áætlað að markaðurinn fyrir náttúruvörur og vítamín væri um 1000 krónur á hvert jarðarbarn á ári. B ættur nætursvefn íslenskra karlmanna undanfarin misseri á rót sína að rekja til æva- gamallar jurtar, sem er að taka fyrstu skrefin inn á alþjóðlega markaði, í formi náttúruvörunnar SagaPro. Sem veganesti fyrir langhlaup á þeirri ferð er nú verið að leggja grunninn að klínískri rannsókn á virkni vörunnar, en kostnaður við slíka rannsókn er áætlaður um 20 milljónir króna. „Þetta er fyrsta klíníska rannsóknin sem er gerð hér á landi á íslenskri náttúruvöru, þannig að við erum að ryðja brautina,“ segir Perla Björk Eg- ilsdóttir, markaðsstjóri SagaMedica sem framleiðir SagaPro. „Þessi vara hefur verið á markaði í fimm ár og reynst vel við að hjálpa karlmönnum sem þurfa að vakna á nóttinni til að fara á salerni. Hún dregur úr þeim ferðum og bætir svefninn þar með – ekki bara þess sem er að fara fram úr, heldur líka makans, því þetta brölt í rúminu hefur áhrif á þá sem í rúminu eru.“ Að baki framleiðslu á SagaPro liggja áralangar rannsóknir Sigmundar Guð- bjarnasonar og Steinþórs Sigurðssonar á íslensku hvönninni en auk SagaPro framleiðir fyrirtækið náttúruvörur á borð við Angelicu, sem er ætlað að fyrirbyggja kvef og kvíða, SagaMemo, sem á að viðhalda góðu minni og Voxis hálsbrjóstsykur. „Ástæða þess að við erum að fara af stað með þessar rannsóknir eru auknar kröfur sem nú eru gerðar til nátt- úruvara alls staðar í heiminum,“ held- ur Perla áfram. „Þegar við förum inn á nýja markaði erlendis þarf meira en bara reynslu og notkun vörunnar – það þarf líka að staðfesta virkni efnis- ins með klínískum rannsóknum. Að auki vilja menn hafa tryggingu fyrir því að varan sé örugg, og slík trygging fæst með því að varan fari í gegn um þetta klíníska rannsóknarferli.“ Yfir 20% náttúruvara detta út af markaði Þráinn Þorvaldsson framkvæmdastjóri SagaMedica segir nýja reglugerð Evr- ópusambandsins um náttúruvörur taka gildi í vor, og hann á von á því að hún muni hafa töluverð áhrif á nátt- úruvörumarkaðinn. „Hún gengur út á að ekki verði hægt að markaðssetja vörurnar ef fullyrðingar um virkni þeirra eru ekki rökstuddar með rann- sóknum eða sambærilegu. Ég var á ráðstefnu í Bretlandi í vor þar sem menn voru að spá því að vegna þessa muni yfir 20% varanna falla út af markaði. Við lítum á þetta sem já- kvæðar kröfur því þannig getur neyt- andinn verið öruggari með það sem er á markaði auk þess sem vörunum á markaði mun fækka sem aftur auð- veldar markaðssetningu á okkar vöru.“ Þá segir hann þetta hafa vinnu og verkefni í för með sér fyrir sérmenntað fólk, bæði vegna rannsókna og mark- aðssetningar. „Þegar búið er að rann- saka vörurnar eftir kúnstarinnar reglum verður líka auðveldara fyrir heilbrigðisstarfsfólk að mæla með þeim. Jákvæðu afleiðingarnar eru því margar.“ Þráinn segir markaðinn fyrir nátt- úruvörur af þessu tagi gífurlega stóran og fara vaxandi. „Einhvern tímann var áætlað að markaðurinn fyrir nátt- úruvörur og vítamín væri um 1000 krónur á hvert jarðarbarn á ári. Auð- vitað er það ekki alls staðar, en ef bara er litið til Bandaríkjanna kemur í ljós að hver Bandaríkjamaður eyðir um 6000 krónum í slíkar vörur árlega. Þetta er því gríðarstór markaður og fram að þessu hafa ekki verið gerðar of miklar kröfur til hans. Núna eru þær hins vegar að aukast. Við finnum að áhuginn á okkar vöru hefur aukist mikið en allir virðast vera að bíða eftir þessari rannsókn.“ Perla útskýrir að rannsóknin sjálf verði í höndum Íslenskra lyfjarann- sókna – Encode. „Við byrjuðum að auglýsa eftir þátttakendum í byrjun sumars og tökum ennþá á móti fólki. Þetta er samhliða, slembiröðuð, tví- blind samanburðarrannsókn við lyf- leysu sem tekur ekki nema átta vikur fyrir hvern þátttakanda, en hann tekur þá annað hvort SagaPro eða lyfleysu á þeim tíma.“ Hún segir ágætlega hafa gengið að fá karlmenn til að taka þátt í rannsókn- inni. „Hins vegar hafa fleiri tugir karla hringt til að láta okkur vita af sinni reynslu af SagaPro, en þeir hafa ekki viljað fara í rannsóknina því þá væri óvíst hvort þeir fengju efnið sjálft eða lyfleysu. Þeir vilja ekki eiga á hættu að fara í gegn um erfitt tímabil aftur.“ Gert er ráð fyrir að niðurstöður rann- sóknanna liggi fyrir næsta vor, þannig að þá verði hægt að fara að nýta þær í markaðsstarfi. Rétt komin yfir rásmarkið Slík rannsókn er þó ekki ókeypis en áætlaður kostnaður er um 20 milljónir króna. „Við erum búin að stefna að þessu í mörg ár en höfum ekki haft fjármagn til þess fyrr. Þetta eru gríð- arlegir fjármunir fyrir lítið sprotafyr- irtæki eins og okkar og við hefðum ekki getað þetta ef við værum ekki með fjárfesta sem hafa skilning á því að þetta sé nauðsynlegt og trú á verk- efninu. Sömuleiðis fengum við vegleg- an styrk frá Tækniþróunarsjóði sem skipti verulegu máli.“ Þráinn segir það alltaf hafa verið stefnu fyrirtækisins að grundvalla vöruþróun á rannsóknum. „Sem dæmi var fyrsta varan okkar, Angelican, fyrst prófuð á músum sem fengu 5000 faldan skammt á við það sem væri daglegur skammtur hjá fólki í sex mánuði. Rannsókn á músunum leiddi síðan í ljós að efnin höfðu engin eitur- áhrif.“ Aðspurð segja þau ástæðu þess að ráðist var í rannsókn með SagaPro, fremur en aðra vöru, vera að búast megi við mun skýrari niðurstöðum en hvað varðar aðrar vörur fyrirtækisins. „Það er svo auðvelt að sjá hvort þetta virkar eða ekki – þú bara telur ferð- irnar á klósettið á nóttunni. Þetta er svolítið öðruvísi með vörur eins og SagaMemo, sem hefur verið sýnt fram á í tilraunaglasi að hindri niðurbrot á ákveðnu taugaboðefni sem er mik- Hvönnin okkar græna gull Íslenskar jurtavörur eru komnar í útrás. Eftir árs undirbúning er hvannarafurðin SagaPro á leið á kanadískan markað en samhliða því verður hún fyrsta íslenska náttúruvaran sem verður rannsökuð með klínískum hætti. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Þegar eru farnar að berast pantanir frá Kanada að sögn Perlu og Þráins en hafin er markaðs- setning SagaPro þar í landi. Áhuginn á vörunni er mikill, að þeirra sögn. Morgunblaðið/Kristinn

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.