SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 40
40 28. nóvember 2010
Seinna eignaðist Carl Olsen stór-
kaupmaður gamla pósthúsið og bjó þar í
nokkur ár.
Húsið varð ekki fyrir tjóni í brunanum
mikla í Reykjavík vorið 1915.
Árið 1916 fékk ungt dagblað í Reykja-
vík, Morgunblaðið, inni í gamla pósthús-
inu. Blaðið hafði haft skrifstofu sína í Ísa-
foldarprentsmiðju en vegna stækkunar
setjarasalarins varð blaðið að finna sér
annan samastað. Skrifstofa og afgreiðsla
Morgunblaðsins voru þó aðeins í hluta
hússins en í útibyggingunni, þar sem
póstafgreiðslan var áður, rak Hjálmar
Gudmundsen kaupmaður verslun.
Vilhjálmur Finsen ritstjóri Morg-
unblaðsins þóttist hafa himin höndum
tekið þegar blaðið flutti í gamla póst-
húsið en hann var sonur Óla Finsen og
fæddur í húsinu. Hermt er að Vilhjálmi
hafi ekki þótt amalegt að sitja við skrif-
borð sitt í stofu foreldra sinna.
Byggt upp í Skerjafirði
Ekki átti það fyrir Morgunblaðinu að
liggja að ílendast í gamla pósthúsinu.
Fyrir því fór eins og póstinum áður, af-
greiðslurúm varð fljótt alltof lítið. Eftir
árið flutti blaðið því í rýmra húsnæði í
Lækjargötu 2.
Segir nú fátt af gamla pósthúsinu fyrr
en farið var að tala um það á ofanverðum
þriðja áratugnum að koma upp veglegu
hóteli fyrir Alþingishátíðina 1930. Var
lóðin sem gamla pósthúsið stóð á, Póst-
hússtræti 11, talinn ákjósanlegur staður
fyrir það. Var húsið því selt til niðurrifs
1928 og festi Jón Kristjánsson nuddari
kaup á því. Á lóðinni reis í staðinn Hótel
Borg.
Jón lét byggja húsið upp að nýju í
Skerjafirði, á mótum Reykjavíkurvegar
og Þvervegar. Þar heitir nú Einarsnes.
Við flutninginn var húsinu gefið nafnið
Breiðabólstaður. Nokkrar breytingar
voru gerðar á því en máttarviðir og inn-
viðir voru í sömu skorðum og verið
höfðu áður. Fyrst um sinn bjó Jón sjálfur
í húsinu en síðar var rekið þar barna-
heimili um tíma. Síðan eignaðist Tómas
Hallgrímsson bankamaður húsið og seldi
það Halli L. Hallssyni tannlækni árið
1941.
Þá var skollið á stríð og Hallur hafði
ekki búið í húsinu nema tvo mánuði
þegar breska hernámsliðið krafðist þess
að hann rifi húsið eða flytti það á brott.
Það yrði að víkja fyrir flugvelli. Enn var
gamla pósthúsið á faraldsfæti.
Hreint ekki vistlegt
Ekki var hlaupið að því að fá góða lóð á
þessum tíma en eftir nokkra leit sættist
Hallur á að flytja húsið í Laugarásinn.
„Þetta land var ekki annað en stórgrýtt
urð og hreint ekki vistlegt að setjast þar
að,“ segir Árni Óla í téðri grein sinni í
Lesbók. „En sá kostur fylgdi þó, að þarna
var nóg landrými og staðhættir þannig
að húsið hlaut að njóta sín mjög vel.“
Bretar rifu húsið og reistu að nýju í
Laugarásnum á undraskömmum tíma.
Litlu var breytt, nema hvað hækkað var
undir loft á stofuhæð með því að setja
þykk tré undir stafi. Seinna var svo byggt
forskyggni við útidyr og hliðarálma baka
til.
Hallur gaf húsinu nýtt nafn við flutn-
inginn – Breiðablik. Lengi var það skráð
Laugarmýrarblettur 35 í opinberum
gögnum, um skeið Breiðablik við Sund-
laugaveg en loks Brúnavegur 8 eftir að
gata var lögð upp ásinn frá Sundlauga-
vegi.
Nánasta umhverfi hússins breyttist
fljótt enda var Hallur með iðagræna fing-
ur. Kom hann sér upp garði sem vakti í
senn öfund og aðdáun. Á afmælisdegi
Reykjavíkur 1951 varð garður Halls hlut-
skarpastur í keppni Fegrunarfjelags
Reykjavíkur um fallegasta skrúðgarðinn í
bænum. Í rökstuðningi dómnefndar
sagði meðal annars: „Þessi garður er að
því leyti frábrugðinn öðrum skrúðgörð-
um í bænum, að hann er skipulagður í
landslagsstíl. Þegar upprunalegri stór-
grýtisurð er breytt í þennan fagra og
gróðursæla reit, ber það tvímælalaust
vott um meiri vinnu, áhuga og fegr-
unarlöngun, en dæmi eru til annars stað-
ar í bænum. Auk þess gefst þar að líta af-
ar fjölbreyttan jurtagróður.“
Amalía Hallfríður Skúladóttir, ekkja
Halls, seldi húsið árið 1971.
Féllu fyrir húsinu
Árið 1982 festu hjónin Bergur Benedikts-
son verkfræðingur og Ragnhildur Þór-
arinsdóttir matvælafræðingur kaup á
húsinu. Var það þá farið að láta á sjá og
Bergur upplýsir brosandi að sumir hafi
álitið kaupin „hálfgerða vitleysu“ enda
hafi söguvitund Reykvíkinga verið minni
á þessum tíma en hún er í dag. En hjónin
féllu fyrir húsinu og varð ekki haggað.
Þau sjá ekki eftir því í dag.
Bergur og Ragnhildur hafa lagt mikla
vinnu í að gera húsið upp í uppruna-
legum stíl og staðfesta myndir að vel
hefur til tekist. Leifur Blumenstein bygg-
ingafræðingur var hjónunum innan
handar við endurbæturnar.
Áslaug Helgadóttir prófessor og Niku-
lás Hall komu að kaupum á húsinu 1982
og uppgerð þess.
Amalía H. Skúladóttir, barnabarn
Halls tannlæknis, sem ólst upp í húsinu,
ber lof á framtakssemi núverandi eig-
enda. „Fjölskylda mín hefur í tvígang
notið einlægrar gestrisni þeirra og ber
okkur öllum saman um að frábærlega
hafi verið staðið að endurreisn hússins.
Það er orðið stórglæsilegt og eigendum
til mikils sóma.“
Bergur og Ragnhildur lögðu niður
nafnið Breiðablik og kalla húsið ýmist
„gamla pósthúsið“ eða einfaldlega
Brúnaveg 8. Þau ráku um tíma gistingu í
húsinu og þá hentaði vel að nota gamla
pósthús-nafnið. „Annars segist ég yf-
irleitt bara búa á Brúnavegi 8,“ segir
Ragnhildur.
Að sögn Bergs er mjög góður andi í
húsinu. Um það séu allir sammála.
Spurður hvort gamlir húsbændur hafi
nokkuð látið á sér kræla svarar Bergur
neitandi. „Svo virðist sem þeir hafi öðr-
um hnöppum að hneppa. Alla vega hef
ég ekki orðið var við þá – ennþá.“
Á hinn bóginn hafa niðjar fyrri eigenda
sýnt húsinu áhuga og bæði fólk Halls
tannlæknis og Thors Jensens fengið afnot
af því til að halda veislur. Bergur og
Ragnhildur segja sér ljúft og skylt að
verða við slíkum beiðnum.
Gamla pósthúsið hefur ekki verið fyrir
neinu í tíð Bergs og Ragnhildar og aldrei
komið til tals að flytja það enn eina ferð-
ina. „Það var auðvitað klaufaskapur að
fjarlægja ekki húsið 2007 og reisa turn,“
segir Bergur sposkur, „en fyrst maður
klikkaði á því tekur því varla að flytja
það úr þessu.“
Gamla pósthúsið á sínum upprunalega stað við Austurvöll. Myndin er tekin þegar konur fögnuðu því að hafa fengið kosningarétt til Alþingis 1915.
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Húsið komið í Skerjafjörðinn, þar sem það stóð á mótum Reykjavíkurvegar og Þvervegar frá 1928 til 1941.