SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 43
28. nóvember 2010 43
N
ýlega glennti sig stútfullt tungl á heiðum vetr-
arhimni og gengu nokkrir af göflunum af þeim
sökum, eins og venjulega. Tunglið togar vissu-
lega mismikið í fólk, sumir finna ekki nokkurn
hlut fyrir þessum áhrifum á meðan aðrir þurfa nánast að
halda sér fast í nærstadda jarðfasta hluti til að hafa stjórn á
varúlfseðlinu sem blossar upp.
Ég veit um fleiri en eina og fleiri en tvær konur sem full-
yrða að blóðið hreinlega sjóði í æðum þeirra á fullu tungli.
Þær ærast af frygð, glenna upp sinn kjaft og finna fyrir
vígtönnum rétt undir tann-
holdinu.
Og upp úr þeim hrekkur
gjörsamlega stjórnlaust span-
gól. Þetta gerist alveg fyrir-
varalaust og þá er nú eins gott
að vera ekki á röngum stað á
röngum tíma.
Líkamans miðja ólgar af
slíkri fullnægjuþörf að óhætt er
að líkja við fárviðri. Vessarnir
streyma fram líkt og leys-
ingavatn að vori.
Vei þeim sem verða á vegi
kvenna í þessu ástandi.
Þær taka menn með slíku áhlaupi að sumir þeirra sem
hafa orðið fyrir þeim ósköpum tala um að þeir hafi upp-
lifað árás. Riðlast hafi verið á þeim af hvílíkum dýrslegum
krafti með tilheyrandi óhljóðum að þeir hafi fundið fyrir
skelk í bringu, jafnvel tapað niður holdrisi af ótta við að
hafa ekki úthald í óseðjandi dýrið sem hamast ofan á þeim.
Skelkur skekur því ekki síður sálartetur veslings fórn-
arlambanna vegna óttans um afdrifin, því hvað gerir dýr í
slíkum ham ef það fær ekki fullnægt sínum þörfum?
Þetta dýr sem þeir héldu að væri kona en virðist í álög-
um einhverskonar skepnu miðað við hvað hún hefur mikla
bitþörf. Karlagreyin hafa sumir komið blóðrisa undan þess
háttar átökum og þakkað sínum sæla að sleppa lifandi frá
hremmingunum.
En sem betur fer gerast þau undur stöku sinnum að
tunglsjúk kona hittir fyrir tunglæran mann og þá geta bæði
notið sökkvandi tanna í hold og fiðrings undan klórandi
úlfaklóm.
Ýlfrið sem fylgir þeim sæluhrolls-slagsmálum á ekkert
skylt við það sem fólk tengir við raunheiminn, það kemur
úr ævafornum fylgsnum hugans.
Hámarkssælan er svo þegar úlfar tveir ná tunglfyllingu.
Tunglsins
tryllingur
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
’
Riðlast hafi
verið á
þeim af
hvílíkum dýrs-
legum krafti með
tilheyrandi
óhljóðum að þeir
hafi fundið fyrir
skelk í bringu.
Óslökkvandi þorsti tunglsjúkra kvenna getur verið ógnvekjandi.
Gatan mín
Þ
órunnarstræti er ég tengdur mjög sterk-
um böndum. Hér ofar í götunni bjó ég
fyrstu fjögur ár ævinnar uns ég fluttist í
Norðurbyggð, skammt hjá, þar sem ég
bjó þar til ég flutti til Dalvíkur. Þar var ég í fimm-
tán ár. Þegar leiðin lá svo aftur inn á Akureyri kom
í raun enginn annar staður til búsetu til greina hér
en Þórunnarstrætið og Brekkan. Hér er best að
vera, þetta er miðsvæðis og hverfið notalegt og
gott,“ segir Stefán Friðrik Stefánsson bloggari og
skrifstofumaður á Akureyri.
Ekki er af Akureyringum skafið að sögulegu
minni eru höfð á hraðbergi eins og götunöfnin til
dæmis eru glöggt dæmi um. Á svonefndum Ham-
arskotsklöppum er líkneski af landnámskonunni
Þórunni hyrnu, en þau Helgi magri karl hennar
voru fyrstu landnemarnir í Eyjafjarðarbyggðum
og sátu að Hrafnagili. Nöfnum þessara frumbyggja
er haldið á lofti í höfuðstað Norðurlands og götur
eru nefndar eftir þeim báðum. Helgamagrastræti
er gróin íbúðagata neðarlega á Brekkunni en litlu
ofar er Þórunnarstærti; löng stofngata sem liggur
milli Hörgárbrautar og suður að kirkjugarði. Lög-
reglustöðin á Akureyri er meðal neðstu húsa við
götuna en talsvert ofar er tjaldsvæði bæjarins. Að
stofni til er þetta íbúðargata - en mörg fjölbýlishús
standa við götuna; til að mynda lítil kassalaga hús
með fjórum til fimm íbúðum, háreistar blokkir og
allt þar á milli. Og þá er ónefndur leikskólinn
Hólmasól sem nefndur er eftir dóttur landnáms-
hjónanna, Þorbjörgu Hólmasól.
„Leikskólinn þar sem gamli gæsluvöllurinn sem
ég var á í æsku var. Með traustum rökum má auð-
vitað segja að Þórunnarstrætið sé ein af lykilgötum
bæjarins. Umferðarþunginn og hávaðinn hér er
fyrir vikið talsverður sem ýmsum kann að þykja
óþægilegt. Við sem hér búum erum þó ótrúlega
fljót að venjast þessu, ég er allavega ónæmur fyrir
þessu í dag. Við búum líka svo vel að þegar snjóar
mikið, rétt eins og fyrr í þessum mánuði, er gatan
rudd afar fljótt. Hún er í forgangi í mokstri, enda
sjúkrahúsið hér ofar í götunni og auk þess sem
lögreglustöðin er hér og það fólk sem þar stendur
vaktina þarf að geta komist af stað í grænum hvelli
bregði eitthvað út af. Reyndar sinnir lögreglan hér
ýmsum fleiri verkefnum eins og veðurathugunum
í bænum á þriggja stunda fresti allan sólarhringinn
eins og lesið er í útvarpi. Þjóðin veit því alltaf
hvernig vindarnir blása hér við götuna,“ segir
Stefán sem býr í fimm íbúða fjölbýlishús sem
byggt var árið 1970. Á svipuðum tíma var lög-
reglustöðin byggð og þá var gatan lögð niður eftir
síðasta spottann þar sem miklar klappir voru áð-
ur.
„Þetta er gróið og gott hverfi, veðursældin jafn-
an mikil og notalegt hér að vera. Hér er auðvitað
stutt í miðbæinn, hvort sem er sá gamli góði við
Ráðhústorg og Hafnarstræti eða nýi, enda vilja
margir meina að verslunarmiðstöðin Glerártorg sé
nýja miðjan í bænum. Þar er gróskan í verslun á
Akureyri og fólk hittist gjarnan þar og ræðir sam-
an. Mesti sjarminn við jólaverslunina á Þorláks-
messu er á torginu okkar nýja og mikið um að vera
þar á meðan hefur róast yfir í miðbænum í verslun
en fólk tyllir sér jafnan niður á besta kaffihúsi
landsins, Bláu könnunni, þar sem Siggi heitinn
Gumm var með leikfangaverslun forðum,“ segir
Stefán.
sbs@mbl.is
Hyrna og Hólmasól
1. Gönguleiðir hér um hverfið eru fjölmargar og
skemmtilegar. Af Hamarskotsklöppum er skemmti-
legt útsýni yfir eyrina og út fjörðinn þar sem Kaldbakur
við mynni fjarðarins austanvert setur sterkan svip á
allt, eins og Davíð Stefánsson gerði að yrkisefni svo
eftirminnilega. Þá er einnig gaman að ganga hér upp á
Brekkuna um Hamarskotstún sem liggur að Þingvall-
astræti; fáfarinn skrúðgarð sem er vin í bænum.
2. Héðan úr Þórunnarstræti er ekki ýkja löng leið
niður í bæ hvort sem farið er um Brekkugötuna eða
Munkaþverárstrætið. Miðbærinn á Akureyri er einn af
fáum stöðum á landinu þar sem hægt er að „fara rúnt-
inn“ eins og sagt og það skapar svolítinn sjarma. Hins
vegar má þetta hjarta bæjarins muna sinn fífil fegurri
frá því sem var. Eitt sinn var Ráðhústorgið grasi gróið
með fallegum sumarblómum en er nú hellulagt og
steingrátt sem voru slæm skipti.
Uppáhaldsstaðir
Þó
ru
nn
ar
st
ræ
ti
Hamarstígu
r
He
lg
am
ag
ra
st
ræ
ti
Brekkugata
Glerárgata
Kau
pva
ngs
stræ
ti
Eiðs
valla
gata
Þingvall
astræti
Od
de
yr
ar
ga
ta
Norðurgata
Akureyri
1
2
Þetta er gróið og gott hverfi, segir Stefán Friðrik Stefánsson sem býr við Þórunnarstræti á Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti