SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Page 45
28. nóvember 2010 45
Lífsstíll
N
ú um helgina gengur kakótíminn mikli í garð
þegar aðventan hefst og smákökur og kakó eru
reidd fram við hvert tækifæri. Mig langar strax
að árétta að með heitu kakói á ég við það sem
sumir kalla heitt súkkulaði. Alvöru heimagert með góðu
súkkulaði og svo fullt af rjóma ofan á. Margar góðar minn-
ingar tengjast rjúkandi heitum kakó-
bolla. Allt frá kakóinu sem ég drakk
sem lítil skíðastúlka í Bláfjöllum til ka-
kósins sem móðursystir mín keypti
handa mér á bar í Cambridge um
tveimur áratugum síðar. Hún lét lauma
út í það appelsínulíkjör og sjaldan eða
aldrei áður hafði ég frussað út úr mér
kakói. Ekki að þetta væri vont, mér
bara brá svo mikið við að finna áfeng-
isbragð af þessum saklausa drykk og
hef ekki endurtekið slíka drykkju síð-
an.
Heitt kakó með ostasamloku klikkar aldrei, sérstaklega
þegar farið er í lautar- eða skíðaferð. Um leið og snjóföl
sést á jörðu og hitinn fer niður fyrir fimm gráður vaknar
kakóaðdáandinn innra með mér fyrir alvöru. Hann liggur
að mestu í dvala yfir sumarið en á veturna er frábært að
byrja kaldan helgarmorgun með ljúffengum kakóbolla og
nýbökuðum heimagerðum bollum. Ég vil helst hafa dálítið
mikið af rjóma í mínu kakói og finnst nokkuð djarft að
setja chili eða annað slíkt bragðefni út í drykkinn góða.
Vinkona mín sagði mér um daginn að hún hefði smakkað
slíkt í London á dögunum og fundist gott. Nú væri hún að
gera tilraunir og myndi kannski halda eldheitt kakópartí
ef það gengi vel. Gott og vel, ég ætla ekki að vera neinn
kakófasisti svo það er um að gera að prófa eitthvað nýtt.
Tel samt líklegt að ég muni enn halda
mest upp á hið hefðbundna. Sumir
prófa sig líka áfram með að blanda
saman dökku og ljósu súkkulaði, jafn-
vel hvítu. Svo er auðvitað engu líkt að
nota lífrænt kakóduft, svo ekki sé talað
um ef það er fair trade. Þá fer kakóið
bara einhvern veginn öðruvísi niður í
mallakútinn og yljar bæði líkama og sál.
Þegar nær dregur jólum er sunnu-
dagskaffi á aðventunni með kakói og
smákökum ómissandi. Ég læt yfirleitt
móður mína um að bera þetta í mig en faðir minn er þó
einnig orðinn liðtækur í kakógerð nú í seinni tíð. Eins og
með margt held ég að æfingin skapi meistarann þegar
kemur að þeirri list að laga heitt kakó. Ég geri það stund-
um sjálf og vanda mig mikið en það verður aldrei alveg
eins og hjá mömmu. Jafnvel þótt ég setji vanillu út í og allt
saman. Ætla þó eigi að örvænta heldur taka minn tíma í
þetta og eftir x mörg ár verð ég örugglega færandi skæl-
brosandi barnabörnum besta kakóið hennar ömmu!
Kakó og
kökur
Aðventan hefst um helgina og
þá gengur kakótíminn í garð.
Fátt er betra en bolli af rjúkandi
heitu kakói með rjóma og ný-
bökuðum smákökum.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Fátt er betra en að sitja inni í snjókomu og kulda með ilmandi kakóbolla og gæða sér á smákökum með.
Morgunblaðið/Frikki
’
Um leið og snjó-
föl sést á jörðu
og hitinn fer nið-
ur fyrir fimm gráður
vaknar kakóaðdáand-
inn innra með mér
fyrir alvöru.
Þegar kalt er í veðri er gott að fá sér heitt súkkulaði og
ekki verra ef það rífur dálítið í. Sérstaklega ef maður er
með kvef. Hér kemur uppskrift að heitu chilli-súkkulaði
sem ætti að ná að trylla bragðlaukana dálítið. Í þetta
eldheita súkkulaði þarf 1 lítra af mjólk, tvö rauð chilli,
200 g af góðu súkkulaði og 200 ml af rjóma. Skerið
chilli-ið í tvennt og fjarlægið fræin. Hitið síðan mjólkina
með chilli-inu út í, fjarlægið það síðan og bætið út í
súkkulaðinu og rjómanum. Ef þú vilt hafa súkkulaðið
sterkara skaltu hafa chilli-ið úti í allan tíma. Leyfið svo
öllu að blandast saman í rólegheitunum.
Súkkulaði sem rífur í
Chilli og súkkulaði getur farið mjög vel saman.
Heitt súkkulaði eða
kakó er alltaf vel þegið
og tilvalið vinarhót að
búa til nokkra góða
bolla þegar gesti ber að
garði. Söngkonan Lady
Gaga er greinilega alveg
með þetta á hreinu. Fyrr
í haust var hún svo
rausnarleg að bjóða
írskum aðdáendum sín-
um, sem beðið höfðu
heila nótt fyrir utan hót-
el hennar í þeirri von að
berja stjörnuna augum,
ilmandi heitt kakó.
Söngkonan sendi lífvörð
sinn út á örkina til að kanna hversu margir væru að
bíða til að allir fengju nú bolla. Eftir það fengu allir
sinn bolla og vakti þessi gaga gjörningur mikla
lukku en aðdáendurnir sátu skælbrosandi fyrir á
myndum með kakóbollana. Sennilega ekki það vit-
lausasta sem Lady Gaga hefur gert en hún er þekkt
fyrir nokkuð óvenjuleg uppátæki og öðruvísi og oft
ögrandi sviðsframkomu á tónleikum. Hún hefur
greinlega ætlað að sjá til þess að írskir aðdáendur
myndu minnast hennar með yl bæði í hjarta og lík-
ama.
Alveg Gaga heitt kakó
Uppátæki söngkonunnar
eru af ýmsum toga.
Samkvæmt elstu heimildum var
kakórækt hafin á sjöundu öld og jafn-
vel fyrr. Það voru Mayar sem urðu
fyrstir til að rækta kakórunna og nota
í bragðmikinn drykk sem þeir kölluðu
xocolatl og þaðan er orðið súkkulaði
komið. Kakó varð fyrst vinsælt í Evr-
ópu eftir að hafa borist þangað frá
Mexíkó og var lengi vel notað til að
lækna ýmsa kvilla eins og magapest-
ir. Í dag er heitt kakó drukkið um víða
veröld en áferð þess er nokkuð mis-
jöfn eftir löndum. Á Ítalíu er kakóið til
að mynda mjög þykkt borið saman
við það sem þekkist hér og í lönd-
unum í kringum okkur.
Lúxus á 17. öld
Kakó varð fljótt vinsælt í Evrópu en
það ku fyrst hafa borist til Spánar og
varð efri stéttin afar hrifin af því. Þar
í landi varð kakó meira að segja part-
ur af heimanmundinum þegar
spænsk fyrirmenni voru gift öðru
erópsku mektarfólki. Hirð Karls
fimmta hafði líka ekkert á móti góð-
um kakóbolla en á þessum tíma var
kakó afar dýrt í Evrópu og var alvöru
lúxusvara. Evrópubúar gerðu þó kakó-
ið að sínu og vildu hafa það sætara
en hin upprunalega uppskrift Ma-
yanna sagði til um og án chilis. Því
var bætt út í það sykri til að vega
upp á móti beiskjunni og vanilla not-
uð í stað chilisins. Kakóið var þannig
drukkið í lítratali og víða opnuð fín
kakókaffihús þar sem bollinn kostaði
sannarlega sitt.
Kakóbollinn
var lúxus
Mayar urðu fyrstir til að rækta kakórunna og nýta hann til að búa til kakó.