SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Side 47
28. nóvember 2010 47
LÁRÉTT
1. Grófgerð og mikil fær vind á móti sér um kvöld.
(11)
5. Þurrka af og flýja. (7)
7. Kollegar eiri einhvern veginn tónlistarmanni.
(12)
10. Hefur ílát undir liti en það er reyndar vafasamt.
(8)
11. Gabba geymslu á tónlist. (5)
12. Tilviljun í braglínu. (7)
13. Horfir á hluta af húsi. (5)
14. Hverfur hró vegna nýrra. (7)
16. Húseignina má gera úr samsettri byggingu.
(10)
20. Drykkfelld neitar sér um mat frá logískum. (9)
22. En galið fær fimmtíu frá himneskum hópi. (8)
24. Dýr til að vera með til spari sem geymslu. (9)
25. Leiðast enn einhvern veginn gimsteinn. (10)
26. Söngur er áfengi, veikt áfengi. (7)
28. Breiður bor, slíkur á við alls staðar. (8)
29. Söngur íþróttafélags leggur fram skerf. (7)
30. Málmmenn eru verkfæri. (10)
LÓÐRÉTT
1. Ílát notað í kofa af glæpamönnum. (7)
2. Íþróttafélag kemur okkur inn í trúfélagið. (8)
3. Syrgir heimskar. (6)
4. Spjaldið sem þú innbyrðir. (6)
5. Prófessjónal missa lesna vegna dómsmáls. (7)
6. Af hálfgerðu í meðallagi kemur þráður sem er
fengsæll. (7)
8. Felandi styrkjandi á einhvern hátt. (7)
9. Klikkar ruglaður alls ekki á einfaldan hátt yfir
dufti. (7)
13. Gála fær mar út af kviðvöðvum. (7)
15. Skoti fær nótu við blótsyrði. (7)
17. Hafnleið sem hljómar eins og örugg lokun (10)
18. Seinasta vonin reynist vera einhvern veginn rit-
málsháð. (10)
19. Spjall rifjahluta. (7)
20. Sagði þessu upp að sögn út af flugeldi. (7)
21. Útgáfufyrirtækið sem gaf út lagið „Ég er að
baka“. (8)
23. Suð af einhverju fyrir neðan. (8)
24. Sonur nær að nudda með túttu. (6)
27. Hljómar frá stúlkum. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 28. nóv-
ember rennur út 2. desember.
Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 5. desember. Heppinn
þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 21. nóvember er Sigurvin Ólafsson.
Hann hlýtur í verðlaun bókina Lifandi dauð í Dallas
eftir Charlaine Harris. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Sennilega var þetta rétt hjá
Bent Larsen. Að þeir hafi komið
inn í skákina með lögmál götu-
strákanna. Og gatan? Þar sem
42. stræti í New York rennur í
gegnum Broadway og heilsar
upp á Times Square sem margir
kalla nafla alheimsins. Larry
Evans, sem lést hinn 15. nóv-
ember sl., 78 ára gamall, sat á
því horni löngum stundum á
árunum í kringum 1950 og
tefldi við vegfarendur upp á 10
sent – og lærði öll „trixin“ í
leiðinni. Hann varð fyrst skák-
meistari Bandaríkjanna árið
1951, 19 ára gamall. Time Ma-
gazine greindi frá því sumarið
’72 að nokkrum árum síðar
hefði annar ungur skákmaður,
sem þá gekk undir nafninu
„The robot“, farið að dæmi Ev-
ans og teflt upp á peninga til
þess að komast í bíó: Bobby
Fischer. Stundum hurfu þessir
ungu menn inn í hrikalega
búllu við 42. stræti, „The Flea
House“, en þangað vöndu
komur sínar ýmsir skrautlegir
karakterar, tefldu, spiluðu
kotru eða póker. Frægastur
fastagesta var sennilega gamli
heimsmeistarinn í fjölbragða-
glímu, Kola Kwariani, betur
þekktur sem „Nick the Wrest-
ler“. Sá lék í mynd Stanleys
Kubricks frá 1956 „The Kill-
ing“.
Nokkrum skrefum frá var
hægt að ganga inn á „Tad’s
Steaks“ og fá gegn vægu gjaldi
verstu nautasteikur í heimi.
Samvinna þeirra Bobbys
Fischers og Larrys Evans er nú
hluti skáksögunnar. Árið 1964
skipulagði Evans fjöltefla-
leiðangur Fischers um flest ríki
Bandaríkjanna. Hvert fjöltefli
kostaði 250 dali sem var dágóð-
ur skildingur í þá daga. Evans
ritaði a.m.k. 20 skákbækur,
ritstýrði „Modern Chess Open-
ings“ og skrifaði pistla í dag-
blöð vítt og breitt um Banda-
ríkin. En þekktast er framlag
hans til hinnar frægu bókar
Fischers „My 60 Memorable
Games“ sem kom út árið 1969.
Evans ritaði inngang fyrir
hverja skák og skrifaði upp eftir
Fischer leikjaraðir, slanguryrði
og nokkra ógleymanlega frasa.
Þegar prenta átti bókina vildi
Bobby skyndilega hætta við allt
saman, en gaf sig að lokum með
þeim rökum, að heimurinn
væri hvort eð er að farast og í
lagi að slíta upp fáeina dali áður
en það gerðist. Í formála þakkar
hann Evans fyrir hjálpina með
óvenju hlýlegum hætti. Evans
var aðstoðarmaður Fischers í
áskorendaeinvígjunum 1971 en
þeim sinnaðist þegar Fischer
tefldi lokaeinvígið við Tigran
Petrosjan í Buenos Aires. Hann
kom til Íslands vegna einvígis
aldarinnar, tefldi fjöltefli í
skákklúbbnum í Glæsibæ og sat
tímunum saman í Laugardals-
höll og vann að bók um einvíg-
ið. Þegar allt var í óvissu um
titilvörn Fischers árið 1974 bár-
ust Evans tvö bréf frá Bobby
Fischer sem birtust í les-
endadálki „Chess Life and Re-
view“. Lesa má sáttatón úr
bréfunum en þó er ekkert gefið
eftir:
Sjá stöðumynd
Chess Life and Review – nóv-
emberhefti 1974.
„Kæri Larry … Þú fullyrðir í
júníheftinu bls. 398 sem svar
við bréfi Larrys Jadzaks að
þetta sé öruggt jafntefli. Alveg
er þetta dæmigert fyrir þá til-
hneigingu þína að setja fram
yfirborðskennda og vitlausa
niðurstöðu. Eftir 29. Kd3 Rxf5
30. Be5 er jafnteflið víðsfjarri
t.d. 30. … Kf7 31. Ke4 Re7 32.
Bc3 ásamt Ke5 sem vinnur.
Kannski tekst þér að sanna fyr-
ir lesendum eitthvert „rinky-
dink“- jafntefli en þú platar
mig ekki – svarta staðan er kol-
töpuð …“
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Larry Evans og samvinnan við Bobby Fischer
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang