SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Síða 51

SunnudagsMogginn - 28.11.2010, Síða 51
28. nóvember 2010 51 hlýrra og hún var nær fólkinu sínu, sem sýnir góðan hug. En þegar einhver situr í svona kistu í litlum bæ og hljóðar nótt og dag, hrópar, kallar, leiðist, vill komast út, langar þetta, langar hitt, syngur, þá er hægt að verða veikur af tilhugsuninni um að heyra síbyljuna. Þess vegna voru margir hafðir í útihúsum, fjósum, hlöðum, skemmum, jafnvel bundnir á bás með dýrunum, þannig að þeir kæmust ekki burtu. Ég sá óskaplega fína mynd í bók Óttars Guðmunds- sonar, frá því Kleppur var 100 ára, af dárakistu sem var fín og dönsk. Hún var svo fín að hún minnti næstum því á snotra líkkistu, en það kom ekki heim og saman við lýsinguna sem ég fékk á dárakistum. Þeim var slegið upp í snatri, þegar þurfti að koma einhverjum í öruggt skjól, þar sem hann varð hvorki sjálfum sér né öðrum að fjör- tjóni. Það var ekki gert fyrr en í harðbakkann sló. Og svo þegar betur gekk fengu menn að koma út, ef bráði af þeim, en ef þeir sýndu merki um að eitthvað væri að byrja aftur, þá voru þeir settir inn og fengu að dúsa þar. Ég talaði við fólk sem hefur verið með geðhvarfasýki og sagði mér af líðan sinni. Ég get nærri að líðanin hefur ekki verið góð þegar fólk fór í króna.“ – Hún er áhrifamikil lýsingin á því þegar Ljósa reynir að passa sig, svo hún verði ekki lokuð inni. „Svo henni verði ekki stungið inn. Ég hef oft heyrt um hvernig sveiflurnar eru. Ljósa liggur með breitt upp yfir höfuð dögum saman og grætur yfir því hvað hún er vond móðir og húsmóðir og misheppnuð á alla lund, en svo bráir af henni, henni líður betur og betur, hún kemst upp úr depurðinni, kemst á fætur, svo grípur hana gleðin – og þannig gengur þetta í hring. Þetta er samt mjög ólíkt frá einum til annars, en ég reyndi að kortleggja það og kannski er eitthvert sam- ræmi á milli manna. Þetta er ákveðin sveifla, þar sem þú ferð hærra og hærra, ert svo ótrúlega klár og næmur, allt leikur í höndunum á þér, lífið er bara sólskin og bros. Þú hleypur út og faðmar heiminn, syngur og trallar, en dettur svo niður aftur. Þetta er síendurtekin saga. Því fylgir ofboðslega mikið líkamlegt álag að vera í maníu og fólk verður svo þreytt að það liggur eftir. Ég skal alveg viðurkenna, að það var ekki auðvelt að skrifa þetta, því ég hef ekki lent í þessu, og þurfti því að láta segja mér aftur og aftur, og upplifa sjálf á fólki sem ég þekki. Nú höfum við reyndar lyf sem jafna sveiflurnar – þannig að þær eru ekkert hjá því sem var. En ég fór eins langt og ég gat.“ – Og það hefur ekki auðveldað málið að hafa frásögn- ina í fyrstu persónu! „Ég hef skrifað þessa bók ansi oft, gert margar atlög- ur. Ég byrjaði á hefðbundinni skáldsögu í þriðju persónu og það var ómögulegt. Ég prófaði fram og aftur, vildi alltaf komast nær henni, þurfti að komast alveg að henni, og það gerist ekki nema með því að skrifa í fyrstu persónu. Þá valdi ég það. En mér lætur vel að skrifa í myndum, eins og í Sólin sest að morgni, það voru stutt- ar myndir, þannig að ég ákvað að gera eins. Svo þegar hún er orðin mjög veik, þá getur hún ekki sagt lengur frá, og þá varð að koma hjálp. Ég hugsaði mikið um það, hver hjálparinn væri, hvernig ég ætti að kynna hann, og ákvað að hafa hann í annarri persónu, sem er lítið notuð aðferð og gamaldags. Mér fannst það passa inn í þessa bók, var svolitla stund að venjast við það, en svo varð ég leikin í því fyrir rest. Það varð að koma rödd að utan sem sá hana, svo kemur litla barnabarnið síðast og segir frá, líka í fyrstu persónu. Þannig að þetta er allt útpælt – það er ekki eins og ég skrifi bara eitthvað!“ Fólk varð bara að hafa í sig og á – Þú nefnir að engin frávik hafi verið leyfð. Má ekki skrifa það á harða lífsbaráttu í þá daga, þar sem lítið svigrúm var fyrir frávik af neinum toga? „Jú, en ég vil undirstrika það, að þó að ég sé að skrifa sögu konu, þá er ég ekkert að halda því fram að karl- arnir hafi haft meira val eða haft það betra. Ég held að Vigfús í sögunni eigi til dæmis mjög erfitt. Og hvern langaði til að verða sjómaður, bóndi eða vinnumaður? Það var ekkert spurt að því. Fólk varð bara að hafa í sig og á. Það var einstaka gáfumenni eða fólk sem var betur sett sem gekk menntaveginn, en það voru bara örfáir – hinir voru ekkert spurðir. Þannig var lífsbaráttan.“ – Lífsskilyrðin höfðu nánast ekkert breyst á Íslandi svo öldum skiptir! „Þetta var óskaplega hart. Fólk var í torfbæjum, þarna í Suðursveit höfðu menn fjósbaðstofur, það gerðu menn upp á hlýindin, enda söknuðu þeir fjósbaðstofunnar þegar höllin var byggð úr timbri – en hún var óskaplega flott með gardínum! Ef maður skoðar gamlar myndir, þá var verið að bera inn vatnið og elda við mjög frumstæðar aðstæður, það var þvegið úti í læk og það sem gerir það að verkum, að það er svona gaman að þessum afturábakpælingum, er að það er svo stutt síðan þetta var, en samt er það mörg ljósár frá okkur. Ef þú leiðir hugann að því, þá deyr þessi kona sem ég hef til hliðsjónar árið 1938. Þá er byrjað að byggja steinhús, en margir eru ennþá í moldarkofunum. Við látum nefnilega oft eins og lífsskilyrðin hafi alltaf verið eins og núna, en okkur er hollt að líta til baka og sjá hversu ótrúlega margt hefur breyst á skömmum tíma hjá einni þjóð.“ Hún hallar sér fram. „Kannski fórum við of hratt út úr moldarkofunum – kannski er það hluti af okkar óhamingju að við koll- sigldum okkur í ósköpunum?“ Morgunblaðið/Kristinn Kristín byggði skáldsöguna Ljósu á minningum um alvar- lega konu sem hékk í ramma á vegg inni í stofu.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.