SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Qupperneq 2
2 30. janúar 2011
Við mælum með
29. janúar
Listasafn Reykjavíkur og nútímatónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar
hafa gengið til samstarfs um tónleika á Kjarvalsstöðum laugardaginn
29. janúar. Á fyrri tónleikunum, kl. 14:30, leikur Blásarasveitin
Hnúkaþeyr en á þeim síðari, sem hefjast kl. 20, kemur fram Íslenski
saxófónkvartettinn.
Músík á Kjarvalsstöðum
4-8 Tígur og Gray
Umdeildar uppeldisaðferðir kínverskra mæðra og karlremba verður
breskum sparkskýrendum að falli.
10 Smæðin í alheiminum
Dagur í lífi Ólafs Jóhannessonar kvikmyndagerðarmanns.
20 Með hár á heilanum
Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarmaður, sem hlýtur Norrænu text-
ílverðlaunin í ár, vinnur mikið úr hári.
26 Fagleg umfjöllun
Þriðja og síðasta grein Unnar H. Jóhannsdóttur um birtingarmyndir
geðraskana og fólk með geðraskanir í fjölmiðlum.
28 Meira en bara
popp og kók
Í viðtali ræðir Ásgrímur Sverrisson kvik-
myndagerðarmaður meðal annars um kvik-
myndagerð og menningarlegar skyldur RÚV.
40 Á svífandi ferð
Það er frískandi að hjóla um stræti og torg
með vindinn í hárinu. Ekki alveg jafnhlýtt á
veturna og sumrin en þó má vel nota hjólið.
.Lesbók
44 Spenna og uppskrift
Utangarðsbörn eftir Kristinu Ohlsson og Prjónaklúbburinn eftir Kate
Jacobs eru splunkunýjar kiljur frá JPV.
47 Orðið óheyrilega langt
Út er komið sjötta bindi af níu af hinni viðamiklu Byggðasögu Skaga-
fjarðar sem Hjalti Pálsson frá Hofi ritstýrir.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Ballinu á Bessastöðum.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
24
38
Augnablikið
Þegar ég opna útidyrnar stendur gráhærðkona á stéttinni fyrir utan. „Sæl,mamma,“ segi ég áður en ég næ aðkveikja ljósið. Átta mig svo á að þetta er
ekki mamma.
Ég segi konunni að ég eigi því miður ekki pening
og geti hvorki keypt merki, harðfisk, klósett-
pappír né happdrættismiða.
Þá verður hún fokvond. Ekki vegna þess að ég
eigi ekki pening, það skipti ekki mestu máli skilst
mér, heldur vegna þess að sex leikmenn hand-
boltalandsliðsins skutu viljandi fram hjá.
„Er það mér að kenna?“ spyr ég.
„Já, þú hefur oft horft á liðið spila. Og þú gisk-
aðir á það á Lengjunni að þeir myndu skjóta fram
hjá.“
„Það er ekki satt.“
„Víst.“
Hún segir þjóðina hafa krafist þess að „strák-
arnir okkar“ ynnu leikina í milliriðlinum og tap,
þegar óvönduðum meðulum er beitt, sé óásætt-
anlegt. Hefur líklega verið að meina óviðunandi.
„Þið eruð skíthræddir, skíthræddir,“ segir hún.
„Við?“ styn ég. „Hvaða við? Við hvað?“
Konan er horfin en á stéttinni stendur vel hald-
inn, eldrauður ísbjörn með alskegg.
Blá lundapysja flýgur hjá, gjammandi eitthvað
sem ég heyri ekki hvað er.
Björninn rauði dregur upp kort af Evrópu og
glottir. Ég sé ekki betur en hann hafi klippt Ísland
út og límt það spölkorn frá Istanbúl, nema hvað
Vestfjarðakjálkinn er í námunda við Barcelona.
Oft fínt veður þar.
„Ég hygg, ég hygg, að annars staðar myndi fólk
íhuga stöðu sína,“ segir dökkhærð kona um leið
og hún stekkur fram fyrir ísbjörninn. Á eflaust við
þá sem skutu fram hjá. Eða landsliðsþjálfarann.
„Þetta er ykkur að kenna,“ heyrist í fjarska.
Líklega krakkar að leika sér á skaflinum.
„Nei, ykkur.“
„Nei, ykkur.“
„Nei.“
„Víst.“
„Nei.“
„Víst.“
„Þetta er enn eitt dæmið, enn eitt dæmið, um
það hvað getur gerst þegar bæði liðin nota sama
búningsklefa,“ segir dökkhærða konan og kíkir
upp úr blómapottinum. „Andstæðingarnir hafa
heyrt allt sem þjálfarinn sagði þegar hann fór yfir
leikkerfin. Þeir skilja að vísu ekki íslensku en það
er alveg sama.“
Gráhærða konan er komin upp á svalir. „Ég vil
að við keppum aftur við Þjóðverja, Spánverja og
Frakka. Við áttum að vinna. Strákarnir skutu vilj-
andi fram hjá. Og dómararnir svindluðu.“
„Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn.“
Krakkarnir greinilega enn á skaflinum.
Hvað ætli kosti aðra leiðina til útlanda? hugsa
ég, kófsveittur. Mér er létt þegar vekjaraklukkan
hringir.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Lífið er ekki alltaf einfalt og ekkert sjálfgefið. Til dæmis er ekki alltaf nóg að setja X á réttan stað á kjördag.
Ljósmynd/Kjartan
Mér að kenna
29. janúar
Í Horninu á
Þjóðminja-
safninu verð-
ur opnuð
sýningin
Stoppað í fat. Á henni má sjá
ýmsa viðgerða nytjahluti en í
haust hóf safnið söfnun heim-
ilda um heimatilbúið, viðgert og
notað.
30. janúar
Í Hofi verða fluttar söngperlur
og dúettar úr helstu rómantísku
söngleikjum 20. aldarinnar.
30. janúar
Fjársjóðsleit
með Ísgerði er
nýtt leikrit þar
sem krakk-
arnir taka
virkan þátt í ævintýralegu
ferðalagi um Norðurpólinn á
Seltjarnarnesinu
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
11
ÚTSALAN
ER Í FULLUM GANGI
25-60%
AFSLÁTTUR
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18