SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Síða 37

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Síða 37
30. janúar 2011 37 Gestir sitja á veitingahúsi og þjónninn afhendir matseðla og vínseðla.Hver um sig velur sína rétti en einhver situr uppi með þann Svartapétur að þurfa að velja vínið með matnum. Eftir langa íhugun erákvörðun tekin og pöntun komið á framfæri. Stuttu seinna mætir þjónninn aftur: „Árgangurinn sem þið pöntuðuð er því miður búinn. En við eigum næsta árgang.“ Þögn slær á borðið. Menn horfa hver á annan og spyrja sig – erum við að gera stórkostleg mistök með því að taka sama vín en annan árgang? Væri það rétta í stöðunni kannski að panta annað vín? Hversu miklu máli skipta árgangar þegar upp er staðið? Það er ekki til neitt einhlítt svar við því. En það er hægt að átta sig á ákveðnum meginstraumum. Í fyrsta lagi: Árgangar geta skipt miklu máli á víngerðarsvæðum þar sem loftslag getur verið mjög sveiflukennt, sem í grófum dráttum þýðir flest vín- gerðarsvæði Evrópu fyrir norðan Miðjarðarhafið. Eftir því sem norðar dregur geta sveiflurnar orðið öfgakenndari. Í öðru lagi: Árgangar hafa aðallega úrslitaáhrif þegar verið er að velja mjög vönduð og dýr vín. Þetta auðveldar auðvitað ákvörðun gestanna okkar á veitingahúsinu þó- nokkuð. Ef vínið sem þau völdu var til dæmis Cabernet frá Chile eða Syrah frá Ástralíu er lítil ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af árganginum nema þau séu sérstaklega að sækjast eftir víni sem er mjög ungt eða farið að sýna smá- þroska. Alla jafna eru árgangasveiflurnar sem skipta máli fyrst og fremst bundnar við bestu víngerðarsvæðin í Evrópu. Í Þýskalandi þar sem árin geta skilið á milli feigs og ófeigs er ágætt að vera með meginárgangana á hreinu og það sama á við um bestu héruð Frakklands, t.d. Bordeaux, Bourgogne og Rhone, ekki síst ef verið er að panta betri vín. Þetta segir hins vegar ekki alla söguna. Miðlungsárgangar betri vína falla oft í þann flokk vegna þess að um er að ræða vín sem geta verið heillandi og þægi- leg á fyrstu árunum en munu ekki þroskast og batna árum og áratugum saman. Það getur því verið skynsamlegt að velja vín úr miðlungsárgangi. Bæði er það ódýrara og líka tilbúnara heldur en dýrara vín sem þyrfti helst fimm ára geymslu í viðbót. Að sama skapi gæti dýrt vín frá frábærum árgangi valdið verulegum von- brigðum þar sem að það er lokað og hart ef það er drukkið of snemma. Af þessu má því leiða ákveðna þumalputtareglu: Vín frá góðum framleið- endum úr litlum árgöngum geta verið mjög góð kaup. Vín af „minni svæðum en stórum árgöngum“ geta verið mjög góð kaup. Takið eftir að hér er gerður munur á svæðum og framleiðendum. Bestu vínhúsin gera nær aldrei slæm vín en minni árgangarnir eru ódýrari. Innan hvers víngerðarsvæðis er síðan ákveð- in goggunarröð. Bestu ekrurnar eru dýrastar en eftir því sem svæðið stækkar verða vínin almennari og ódýrari. Samanber þorpið Margaux í Bordeaux eða vín sem kemur einhvers staðar að úr hinu stóra Bordeaux-svæði. Árgangatöflur geta því komið að góðum notum – en fyrst og fremst ef ætl- unin er að kaupa fínni vín. Hér eru nokkrir góðir árgangar: Bordeaux: 2000 2005 og 2009 voru ofurárgangar Rhone: 2007 Kalifornía: 2002 og 2007 Rioja: 2004 og 2005 frábærir, allir síðan góðir Búrgund: 2002 (hvít), 2005 (rauð) Toskana: 2006 frábært, næstu árgangar góðir Ekki velta Chile, Ástralíu og Suður-Afríku mikið fyrir ykkur nema ætlunin sé að fara í allra dýrustu vínin. Hinn eini rétti? Vín 101 Steingrímur Sigurgeirsson Árgangar geta skipt miklu máli á víngerðarsvæðum þar sem lofts- lag getur verið mjög sveiflukennt, sem í grófum dráttum þýðir flest víngerðarsvæði Evrópu fyrir norðan Miðjarðarhafið. Matur að efla forvarnir og þannig sparast kostn- aður í heilbrigðiskerfinu til lengri tíma lit- ið.“ Slys eru kostnaðarsöm og það hefur sparast mikið með fækkun dauðaslysa. „Dauðaslysum hefur fækkað um 65% á síðustu 20 árum og á sama tíma hefur öll- um slysum fækkað um 50%. Við erum komin langleiðina upp brekkuna. Það er lítið eftir til að komast alveg upp á toppinn en það getur líka gerst á stuttum tíma að maður hrapi niður á byrjunarreit aftur ef það er ekki haldið rétt á spöð- unum.“

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.