SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Qupperneq 40
40 30. janúar 2011 Lífsstíll Ég sé ekki líf mitt birtast fyrir framan migþetta augnablik sem ég svíf fagmannlega tilvinstri. Hins vegar lít ég á H&M-pokannminn troðfulla nokkrum angistaraugum þar sem hann svífur upp úr hjólakörfunni. Það er jú sann- arlega ekkert töff við það að tína brjóstahaldara og nærbuxur upp af götunni. Þar sem ég næ ekki upp á gangstéttina yfir of háan kantinn og missi stjórn á hjólinu gef ég um leið frá mér hljóð. Held það hafi verið einhvers konar einkennilegt bland af bældu ópi, hlátri og undrun. HVAÐ ertu að gera? Spyr samferðamaður minn þar sem ég ligg á gangstéttinni og við getum ekki annað en hlegið. „Þú hefðir átt að fara upp hér,“ segir hann og bendir á gangstéttina þar sem hún hefur verið lækkuð niður. Jaaaá, segi ég örugglega eins og lítill krakki sem skammast sín og held áfram að hlæja. Enda er hnéð á mér sem fór í götuna óslasað og allt á sínum stað í H&M-pokanum. Þá er bara að pakka sér saman á ný, bjarga andlitinu og reiða hjólið heim. Stutt að fara og ég þarf aðeins að jafna mig eftir þetta smávægilega slys. Tvö rokkprik í kladdann minn fyrir þetta. Ég var ekki mjög há í loftinu þegar ég hjólaði í fyrsta sinn. Fyrsta hjólið mitt var svart og gult, útlenskt töfrahjól frá Þýskalandi sem mig minnir að ekki hafi verið hægt að detta af. Bleika hjólið kom næst og gott ef ég fór ekki á því í mikla ævintýraferð niður í bæ og rammvilltist. Fyrir utan það hefur mér gengið ágætlega að hjóla og skil ekki hvað þessi klaufaskapur minn á gamalsaldri á að þýða. Mér finnst ég enn muna þegar hjálpardekkin voru tekin undan og ég þurfti að bjarga mér sjálf. Síðan þá hefur hjólið verið frelsandi ferðamáti sem kemur manni mun hraðar á milli staða en maður notar því miður allt of lítið. Bara ef það væri nú meira hjóla- menning hér eins og hjá frændum vorum Dönum þar sem fátt þykir sjálfsagðara en að hjóla á milli staða. Nú eða í það minnsta að hjóla út á lestarstöð og skilja þar hjólið eftir. Vissulega hjóla margir hérlendis allan ársins hring en þó er varla hægt að tala hér um hjólamenningu sem slíka. Enda er maður hálfundrandi, jafnvel hneykslaður, að sjá fólk hjóla í snjó og hálku. En þegar kemur að því þarf ekki meira til en að skella á sig hlýrri húfu, vettlingum og trefli svo manni verði ekki kalt í framan. Skella ljósunum á ef dimmt er úti og hjóla síðan af stað út í frelsið. Muna síðan bara að passa sig sérstaklega á háum gangstétt- arköntum! Á svíf- andi ferð Það er frískandi að hjóla um stræti og torg með vindinn í hárinu. Ekki alveg jafn hlýtt á veturna og sumrin en þó má vel nota hjólið allan ársins hring. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Morgunblaðið/Ómar ’ Þar sem ég næ ekki upp á gang- stéttina yfir of háan kantinn og missi stjórn á hjólinu gef ég um leið frá mér hljóð. Það er mikilvægt að hugsa vel um hjólið sitt rétt eins og bílinn. Best er auðvitað að geta geymt það inni yfir vetrartímann eða í það minnsta undir svölum eða tröppum þar sem ekki rignir og snjóar látlaust yfir það. Farðu reglulega yfir hjólið og athugaðu hvort allt sé eins og það á að vera. Þú getur gert þetta sjálf/ur eða látið gera fyrir ekki svo mikinn pening. Mikilvægt er að nóg sé af lofti í dekkjunum, bremsurnar eins og þær eiga að vera og allt vel smurt. Þannig er jú miklu örugg- ara og þægilegra að hjóla. Vel með farinn fákur Hugsaðu vel og reglulega um hjólið þitt. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ThisWay er hönnun Tor- kel Dohmar á hjóli sem minnir dálítið á bíl. Enda er jú hönnunin hugsuð þannig að hún sé ein- hvers staðar á milli bíls og hjóls. Helsta ástæðan fyrir því er að verja hjólreiða- manninn fyrir veðri og vindum. Hjólið er með þaki þannig að ekki rigni á þann sem situr undir stýri og á því eru líka LED ljós að framan og aftan. Þau tryggja að hjólreiðamaðurinn sjáist almennilega jafnvel þó að veðrið sé vont og skyggni slæmt. Hjól- ið er því að mörgu leyti frábrugðið öðrum þó vissu- lega haldi það ekki miklum hita á hjólreiðamann- inum. Enda þyrfti til þess nokkuð öfluga vél sem myndi þyngja hjólið og líklegast hafa meiri áhrif á umhverfið. Ýmiskonar skemmtileg hjól af þessu tagi má sjá í tímaritum og á netinu. Eins og t.d. ým- is konar samanbrjótanleg hjól, svo og hjól gerð úr fisléttum efnum þannig að auðvelt er að ferðast með þau. Hjól en þó hálfgerður bíll ThisWay hjólið er óvenjulega hannað. Víða um heim eru þekktar hjólaborg- ir þar sem sérstakir hjólastígar liggja samhliða umferðargötum og hjólið er vinsæll fararskjóti. Dettur manni í þessu tilviki helst í hug lag Stuð- manna þar sem segir í texta aldrei hef ég áður séð aðra eins gommu af reiðhjólum... Það á sannarlega við í eftirtöldum borgum. Amsterdam Nóg er til af hjólum í Kaupmanna- höfn en Amsterdam hefur þó verið kölluð mest hjólaborg heims. Þar eru 40% af fararskjótum í umferðinni hjól og margt hefur verið gert til að stuðla að því að íbúar borgarinnar noti þennan heilsusamlega ferða- máta. Kaupmannahöfn Í borginni hjóla í það minnsta 32% íbúa í vinnuna og segist helmingur þeirra kjósa þennan ferðamáta þar sem hann sé fljótlegur og auðveldur. Hjólastígar eru víða um borgina og oft mun ódýrara að hjóla heldur en að borga í stöðumæli fyrir bílinn. San Francisco San Francisco er önnur þéttbygg- ðasta borg Bandaríkjanna þannig að gott hjólreiðakerfi hefur þar mikið að segja. Í gegnum borgina liggja ótal hjólastígar og eru sums staðar sér- stök umferðarljós fyrir hjólaumferð- ina. Borgin hefur hlotið ótal verðlaun fyrir frumkvöðlastarf í aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Vinsælar hjólaborgir Mörgum finnst þægilegt og fljótlegra að hjóla í vinnuna.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.