Saga - 2003, Page 18
16
EGGERT ÞÓR BERNHARÐSSON
Á sögusýningum er hægt að beita ýmsum aðferðum við miðlun
og framsetningu efnis, m.a. rituðum texta, kyrrmyndum, hreyfi-
myndum, hljóði, snertiskoðun og margmiðlun. Fræðimenn standa
misjafnlega að vígi þegar kemur að því að reyna að tvinna saman
margs konar form í því augnamiði að koma margbrotnu efni til
skila á fjölbreyttan hátt. I sagnfræðinámi hérlendis, þar sem ég
þekki best til, fá nemendur yfirleitt litla þjálfun í því að setja efni sitt
fram með öðrum hætti en í rituðu máh. Mikilvægt er að fólk á þessu
sviði hafi tilfinningu fyrir hinum sjónræna miðlunarþætti og vald á
mismunandi miðlunarleiðum — a.m.k. þekki þær.
Á síðustu tveimur áratugum hef ég haft tækifæri til að vinna
með ýmsa miðla og sem kennari í sagnfræði við Háskóla íslands
hef ég á síðustu árum beint sjónum mínum að miðlun sögulegs
efnis og boðið upp á eins konar tilraunanámskeið í miðlun sögu
sem stúdentar hafa sýnt áhuga. Árin 1994, 1997 og 2002 bauð ég
upp á námskeið þar sem var með ýmsum hætti fjallað um sagn-
fræði, kvikmyndir og sjónvarp, árið 1999 um margmiðlun sögunn-
ar og á vorönn 2003 var námskeið sem fjallaði um sögusýningar.
Afrakstur síðasttalda námskeiðsins varð sýningin Dagur t lífi Reyk-
víkinga — sjötti áratugurinn sem sett var upp í samvinnu við Minja-
safn Reykjavíkur — Árbæjarsafn og var formlega opnuð 1. júní
2003. Sýningin var hluti af sumarsýningum safnsins það ár og
vakti töluverða athygli.3 Þrátt fyrir að reynt væri að halda kostnaði
í algjöru lágmarki tókst tilraunin prýðilega og með samvinnu við
safnið öðluðust nemendur dýrmæta reynslu á þessu sviði sögu-
miðlunar.
Á faraldsfæti
Þegar Ijóst var orðið snemmsumars 2002 að stefndi í sýningu sem
nemendur mínir í sagnfræði kæmu að ákvað ég að kynna mér eftir
föngum það sem væri að gerast í sýningamálum vítt og breitt um
landið. Með slíku yfirliti yrði auðveldara að setja sýningu um
Reykjavíkurlíf á sjötta áratug 20. aldar í samhengi við aðrar sýning-
ar í landinu auk þess sem kennslan yrði markvissari með notkun
3 Víða var fjallað um sýninguna, t.d. í DV 30. maí 2003, í fréttum Sjónvarpsins 1.
júní 2003, í Morgunblaðinu 1. júní 2003 og 20. júní 2003, á morgunvakt Ríkisút-
varpsins 3. júní 2003, í Vikunni 17. júní 2003, í þættinum Sumarstef á Rás 1 í
Ríkisútvarpinu 10. júlí 2003 og í Víðsjá á Rás 1 í Ríkisútvarpinu 11. júlí 2003.