Morgunblaðið - 24.06.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010
fyrir alla sem
heitt grill, kaldar sósur
Kartaflan er eldfjall,sýrði rjóminn er jökulhetta
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Áhugamenn um listaverk á Seltjarnarnesi fengu
draumaveður í Jónsmessugöngu í gærkvöldi þar
sem útilistaverk voru skoðuð undir leiðsögn list-
fræðingsins Aðalsteins Ingólfssonar.
„Við byrjum uppi á hæðinni við kirkjuna og
endum niðri í fjöru á stað sem heitir Kisuklappir.
Á eftir verður boðið upp á drykk og hákarl,“
sagði Aðalsteinn er Morgunblaðið náði tali af hon-
um rétt í þann mund sem haldið var af stað.
Menningarnefnd Seltjarnarness sá um skipu-
lagningu göngunnar, en að sögn Aðalsteins stóð
til að skoða sjö verk. Að göngu lokinni var safnast
saman við fjörubál, þar sem Gunnar Kvaran
harmonikkuleikari spilaði undir fjöldasöng, auk
þess sem boðið var upp á þjóðlegar veitingar.
Listfræðingurinn Aðalsteinn Ingólfsson fræddi áhugasama um útilistaverk á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Skoðuðu list á Seltjarnarnesi í blíðskaparveðri
FRÉTTASKÝRING
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra getur á grundvelli nýsam-
þykkra laga ákveðið að óheimilt sé
að flytja aflaheimildir úr byggðar-
lagi þegar um er að ræða umtals-
verðan hluta heildarafla byggðar-
lagsins. Um neyðarrúræði er að
ræða sem Jón Bjarnason, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, seg-
ist vonast til að þurfa ekki að beita,
en er ætlað að takmarka neikvæð
áhrif af flutningi aflaheimilda.
Slæm fjárhagsstaða margra sjáv-
arútvegsfyrirtækja í kjölfar efna-
hagshrunsins er ein ástæða þess að
ráðist var í gerð laganna, skv. upp-
lýsingum frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu, en um tímabundna heimild er að
ræða sem gildir út fiskveiðiárið 2011/
2012. Við umsögn um frumvarpið
kom fram að um 20% sjávarútvegs-
fyrirtækja eru þegar í miklum
greiðsluvanda.
Staða margra byggðarlaga verður
mjög erfið flytjist aflaheimildir
brott, t.d. vegna gjaldþrots eða end-
urskipulagningar einstakra sjávar-
útvegsfyrirtækja, eins og bent er á í
tilkynningu vegna laganna. Það geti
haft neikvæð áhrif á aðra atvinnu-
starfsemi í byggðarlögunum og þar
með lífsgæði og búsetu fólks.
Samkvæmt lögunum þurfa hand-
hafar aflaheimilda að tilkynna Fiski-
stofu áform um framsal eða ráðstöf-
un aflaheimildar. Fiskistofa tilkynn-
ir svo ráðherra ef tilflutningurinn
nemur meira en fimmtungi af heild-
araflaheimildum í viðkomandi
byggðarlagi.
Fái ráðherra slíka tilkynningu
hefur hann tvo mánuði til að ákveða
hvort hann banni flutninginn eða
grípi til annarra ráðstafana. Hugs-
unin er að hann noti þann tíma m.a.
til að leita vægari úrræða í samstarfi
við t.d. kröfuhafa, viðkomandi sveit-
arfélag og aðra hagsmunaaðila.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu gildir heimild ráðherra
hvort sem um er að ræða að einn
handhafi flytji aflaheimildir sínar úr
byggðarlaginu eða að fleiri flytji
aflaheimildir á næstu tveimur árum
sem samanlagt nema meira en 20%
af afla byggðarlagsins.
Banni ráðherra að kröfuhafi flytji
brott kvóta fyrirtækis sem farið er í
þrot, þarf fulltrúi kröfuhafa að finna
leið til að nýta aflann í viðkomandi
byggðarlagi, t.d. með því að halda
gjaldþrota fyrirtæki gangandi. Eftir
er þó að útfæra ýmsa þætti er varða
framkvæmd og útfærslu laganna,
skv. upplýsingum frá ráðuneytinu,
svo sem hvað nákvæmlega felist í því
að nýta kvóta í ákveðnu byggðarlagi.
Getur bannað tilflutning á kvóta
Sjávarútvegsfyrirtæki standa mörg tæpt en fari þau í þrot er talið líklegt að kvótinn verði fluttur
Ráðherra getur gripið inn í flytji handhafar aflaheimilda meira en fimmtung afla byggðarlagsins
Morgunblaðið/ÞÖK
Ökumaður bifhjóls hlaut djúpt sár á
mjöðm og er mögulega axlarbrotinn
eftir að hafa ekið á ljósastaur í
Jaðarseli um hádegisbilið í gær.
Lögregla segir hann hafa misst
stjórn á bifhjólinu með þeim afleið-
ingum að hann keyrði á ljósastaur-
inn.
Ökumaðurinn lét sig hverfa af
slysstað en lögregla hafði uppi á hon-
um síðar. Hann var án ökuréttinda
og var hjólið á röngum númerum auk
þess sem það var ótryggt.
Lögregla gerði manninum að sæta
blóðrannsókn sökum hugsanlegrar
vímuefnanotkunar en niðurstöður
rannsóknar lágu ekki fyrir í gær-
kvöldi. hjaltigeir@mbl.is
Vélhjólamaður án réttinda
ók á og flúði af vettvangi
Missti stjórn
á bifhjólinu og ók
á ljósastaur
Morgunblaðið/Júlíus
Í klessu Mótorhjólið virðist gjörónýtt og brot úr því dreifðust víða.
Sjávarútvegsfyrirtæki á Norður-
og Vesturlandi standa mörg
hver sérstaklega illa og eru smá
félög gjarnan skuldsettari en
hin stærri, skv. upplýsingum
blaðsins. Forsendur ráðuneyt-
isins um stöðu fyrirtækjanna
byggja á upplýsingum frá bönk-
unum og LÍÚ, en á grundvelli
þeirra telur ráðuneytið fimmt-
ung fyrirtækja standa tæpt.
Minni félög
skuldsettari
EKKI ALLIR Í SÖMU STÖÐU
Starfshópur um
endurskoðun
fiskveiðilöggjaf-
arinnar vinnur
nú hörðum hönd-
um að því að
ljúka við gerð
skýrslu sem átti
reyndar að vera
tilbúin fyrir
nokkrum mán-
uðum. Vinnan
hefur tafist vegna þess hve lengi
þurfti að bíða eftir gögnum sem
voru mikilvægar forsendur fyrir
vinnu nefndarinnar.
Þetta segir Guðbjartur Hann-
esson, þingmaður Samfylking-
arinnar og formaður starfshópsins.
„Við erum búin að vera með tvo
fundi í þessari viku og verðum aftur
með fund á föstudaginn. Við erum
að vinna í ákveðnum köflum í
skýrslunni. Svo það er farið að síga
á seinni hlutann,“ segir Guðbjartur.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur sagt að
ekkert verði af áformum ríkisstjórn-
arinnar um innköllun og endur-
ráðstöfun aflaheimilda næsta haust.
Hvort innköllun hefjist 2011 velti að
miklu leyti á skýrslu vinnuhópsins.
Vilja ljúka
málinu sem
allra fyrst
Guðbjartur
Hannesson