Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fasteignaverð í Macau, í grennd við Hong Kong, hefur hækkað gífurlega að undanförnu. Fram kemur í South China Morning Post í gær að ferfet- ið í lúxusturnunum í Macau seljist nú á vel yfir 6.000 Hong Kong-doll- ara, eða rúmlega 100 þúsund krón- ur, og allt upp í 7.400 HK-dollara eða liðlega 122 þúsund krónur. Í Morgunblaðinu fyrir ári var greint frá því að skilanefnd Glitnis og Sjóvá hefðu rift kaupsamningi um kaup á 68 lúxusíbúða turni í Macau og tapað við það um 3,2 milljörðum króna. Þar kom fram að í október 2006 gerði Sjóvá (Mile- stone) samning við Shun Tak í Hong Kong um kaup á stórri fast- eign, með 68 lúxusíbúðum, í Macau, sem er í nágrenni Hong Kong. Heildarsamningurinn var upp á um 100 milljónir bandaríkjadala eða um 13 milljarða króna á núvirði og hafði Sjóvá greitt um þriðjung af samn- ingnum þegar kaupunum var rift og samið um verð sem þá var um 25% undir markaðsverði. Urðu af miklum hagnaði Miðað við þróun fasteignaverðs í Hong Kong og Macau á undanförnu ári er því óhætt að fullyrða að í stað þess að tapa yfir þremur milljörðum króna á verkefninu hefðu skilanefnd Glitnis og Sjóvá hagnast um yfir tíu milljarða á því, ef kaupunum hefði ekki verið rift. Íbúðirnar í Turni IV, sem Sjóvá átti í, fóru í sölu í desember 2009 og samkvæmt Þresti Jóhannessyni, framkvæmdastjóra ráðgjafarfyrir- tækisins Cosamajo, sem er meðal annars í ráðgjöf og fasteignavið- skiptum í Hong Kong, höfðu allar íbúðir turnsins verið seldar í apr- ílmánuði, utan þrjár, eða innan við fimm mánuðum eftir að þær fóru á markað. Íbúðirnar hafi verið seldar á 5.500 til 7.400 HK-dollara ferfetið. Verðið fari hækkandi eftir því sem íbúðirnar séu ofar í turninum. Þröstur telur það sæta furðu að skilanefnd Glitnis skuli í fyrra ekki hafa hlustað á neinar spár um þróun fasteignaverðs í Hong Kong en þær hafi allar verið á einn veg, að fast- eignaverð myndi hækka mikið á næstu mánuðum og miss- erum og nú sé komið á daginn að spárnar hafa ræst. Varð af 10 milljörðum kr.  Sjóvá tapaði yfir 3,2 milljörðum króna á því að rifta kaupsamningi í Macau, í grennd við Hong Kong, en hefði hagnast um 10 milljarða með því að klára verkið Hækkun Verð lúxusíbúðanna í Macau-turnunum, þar sem Sjóvá átti 68 íbúð- ir, hefur hækkað gífurlega undanfarna mánuði og misseri. Þröstur Jóhannesson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði frá upphafi talið rangt af skilanefnd Glitnis og Sjóvá að rifta samningnum vegna lúxusíbúðanna í Macau, sem Sjóvá gerði við Shun Tek í október 2006. „Það lá fyrir í júní í fyrra, þegar samningnum var rift, að Sjóvá hefði getað fengið mun betra verð fyrir hlutinn en fékkst, því þeir seldu á um 25% undir markaðsverði,“ sagði Þröstur. „Hinn 20. apríl sl. var búið að selja allar íbúðirnar nema þrjár í turninum, þannig að kaupendurnir sem keyptu af Sjóvá hafa hagnast um a.m.k. 10 milljarða króna á inn- an við sjö mánuðum. Þeir settu íbúðirnar á markað í desember í fyrra og flestar þeirra seldust strax á fyrstu tveimur vikunum,“ sagði Þröstur jafn- framt. Taldi alltaf rangt að rifta HONG KONG Þröstur Jóhannnesson „Það eru smá- skjálftar og öðru hvoru hafa komið svona öskuskot, svo við erum aðeins á varðbergi,“ segir Magnús Tumi Guð- mundsson, jarðeðlis- fræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, um eldgosið í Eyjafjallajökli. Að- spurður kveðst hann ekki tilbúinn til að lýsa því yfir að gosinu sé lokið. „Við erum kannski ekkert óróleg yfir þessu, en viljum ekki lýsa neinu yfir heldur,“ bætir hann við. Í gosinu sem stóð yfir 1821 til 1823 komu löng tímabil þar sem ekkert gerðist. Síðast lét jökullinn á sér kræla hinn sjöunda júní síð- astliðinn. Nú hefur hann því haft hægt um sig í 24 daga. Þumalputtareglan er sú, að sögn Magnúsar Tuma, að miða við að eldgos liggi niðri í þrjá mánuði til að hægt sé að lýsa yfir goslok- um. Breska veðurstofan miðar til dæmis við þau tímamörk, en eng- ar sérstakar reglur eru um við- miðin. Hann nefnir sem dæmi að í ágúst árið 1980 gaus aðeins í þrjá daga í Heklu. Svo þagði hún þar til aftur byrjaði að gjósa um páskana árið eftir. Í dag er það talið hafa verið eitt og sama gos- ið, í jarðfræðilegum skilningi. „Með hverjum deginum sem líð- ur verður líklegra að þessu gosi sé lokið,“ segir Magnús Tumi. onundur@mbl.is Ekki tími til að lýsa yfir goslokum Magnús Tumi Guðmundsson Þessar ungu stúlkur gripu til þess ráðs að tefla frá sér vinnustundirnar í gær. Óhætt er að segja að það hafi vakið lukku, enda streymdi fólk að meðan á taflinu stóð. Í málshættinum segir að hver tefli um tvo kosti, að tapa eða vinna. Það átti við í þessari skák eins og öðrum. Að tafli loknu fengu þær þó eflaust báðar að vinna. Morgunblaðið/Eggert Teflir hver um tvo kosti, að tapa eða vinna Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Fjöldi bifreiða sem ekki má selja stendur nú á bílasölum um land allt. Í kjölfarið á dómi Hæsta- réttar um lögmæti gengistryggingar lána hafa kaupleigur landsins stöðvað öll eigendaskipti á bifreiðum með áhvílandi erlendum lánum. Óvíst er hversu lengi ástandið mun vara, en því lýkur ekki fyrr en málefni skuldara skýrast betur. „Þetta er þannig séð stopp. Maður veit eig- inlega ekki neitt. Þetta er bara algjört rugl og er að stoppa fullt af sölum. Við finnum alveg fyrir því og kollegar mínir segja það sama,“ segir Stef- án Sigurjónsson bílasali. Hann segir söluna hafi farið ágætlega af stað eftir dóminn, en nú hagg- ast bílarnir með erlendu lánin ekki. „Það eru náttúrulega einhverjir bílar með ís- lensk lán og það er ekkert mál að sýsla með þá. En þorrinn af þessum bílum var seldur á bíla- samningi með erlendum lánum.“ Guðfinnur Halldórsson bílasali segir að hann hafi þurft að vísa mörgum hugsanlegum kaup- endum frá vegna málsins. „Söluskráin er í tómu tjóni þessa stundina. En við erum heppnir að lifa á fornri frægð og seljum ennþá ódýra, skuldlausa bíla,“ segir Guðfinnur. „Þessi lán eru ólögleg, það fer ekkert á milli mála. Á meðan að eitthvað ólöglegt er í gangi, þá er ekki hægt að vinna við það.“ Bílasalar vonast til þess að ástandið muni ganga hratt yfir, svo allt geti komist í eðlilegt horf á ný. „Við bílasalar krossleggjum fingur, að þetta fari af stað og það komist einhver botn í þetta,“ segir Stefán Sigurjónsson. Bifreiðarnar fara ekki fet  Bílasölur mega ekki selja bíla með áhvílandi erlendum lánum fyrr en afleið- ingar dómsins skýrast  Bílasölur líða fyrir ástandið og bíða átekta eftir lausn Lögregla í Míl- anó handtók fimm Íslendinga aðfaranótt þriðjudags. Sak- irnar voru drykkjulæti og eignaspjöll. Sam- kvæmt fréttasíð- unni Milano Cro- naca breyttu fimm ungir menn frá Íslandi einni af götum borg- arinnar í sinn eigin skemmtigarð. Mennirnir skiptust á um að stökkva upp á bíla og milli bílþaka, og tóku myndir hver af öðrum á meðan. Samkvæmt fréttinni eru menn- irnir allir á þrítugsaldri. Þrír þeirra eru háskólanemar, sá fjórði viðskiptafræðingur og fimmti jarð- fræðingur. Þegar lögreglan innti þá svara kváðust mennirnir ein- göngu hafa verið að skemmta sér. gislibaldur@mbl.is Íslendingar til vandræða Á bíl Uppátækið náðist á mynd. Sjálfstæðir Evrópumenn hörmuðu á fundi sínum í gær samþykkta ályktun landsfundar Sjálfstæð- isflokksins um Evrópumál. Í álykt- un fundarins segir m.a. að sam- þykkt landsfundarins „fæli í sér áhrifaleysi flokksins í einhverjum mikilvægustu samningum sem Ís- land hefði gengið til á þýðing- armesta tíma samningagerð- arinnar“. Einnig að samþykktin væri and- stæð þeirri eðlilegu lýðræðiskröfu að fólkið í landinu fengi úrslitavald um niðurstöðu málsins. Sjálfstæðir Evrópumenn telja að breið pólitísk samstaða sé líklegust til að skila Ís- lendingum góðri niðurstöðu í aðild- arviðræðunum við ESB. Samþykktin hörmuð Íslenska landsliðið í brids er í þriðja sæti eftir fyrsta dag úrslitakeppni Evrópumótsins í brids í Belgíu. Tutt- ugustu og fyrstu umferð Evr- ópumótsins lauk í gær með sigri Ís- lendinga gegn Hollendingum, 19:11, en fyrr um daginn tapaði liðið fyrir Dönum, 12:18. Íslenska sveitin er með 178 stig, en fyrir ofan hana eru Ítalir með 182 stig og á toppnum tróna Ísraelar með 183 stig. Það er því spennandi barátta um toppsætið, því stutt er á milli sveita. Sjö umferðir eru eftir og því getur margt breyst. Sex efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í haust. Í fyrramálið spila Íslendingar gegn þremur sveitum. Fyrst mæta þeir Svíum, síðan Eistlendingum og ljúka deginum á viðureign við Pólverja. Íslenska landsliðið í brids í þriðja sæti eftir gærdaginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.