Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ RíkisstjórnÍslands hef-ur vitað það sama og allur al- menningur að von væri á niðurstöðu Hæstaréttar um lagagrunn geng- istryggðra lána. Sú vitneskja er að verða ársgömul. Málin voru þannig lögð fyrir dómstólana að einvörðungu var hægt að vænta einnar niður- stöðu af tveimur. Kostirnir voru með öðrum orðum aðeins tveir og mikið var í húfi. Það hlýtur því að koma mjög á óvart og vera ámælisvert, að þegar dóm- ur fellur sem skekur þjóðfélag- ið, þá skuli ríkisstjórnin vera al- gjörlega óundirbúin og koma af fjöllum. Af því fyrirhyggjuleysi hafa þegar hlotist mikil vand- ræði og tjón, sem ekki sér fyrir endann á. Til þessa fyrir- hyggjuleysis ríkisstjórnarinnar má rekja að Fjármálaeftirlit og Seðlabanki skuli reyna að bæta úr stöðu málsins á seinasta degi mánaðar, alllöngu eftir að hinn sögulegi dómur féll. Það er gert í formi tilmæla til annars aðila í samningsréttarlegu sambandi á markaði og sérstaklega tekið fram að enginn sé bundinn af þeim tilmælum. Lagagrundvöll- ur hinna sameiginlegu tilmæla er ekki tilgreindur. Hafa þegar komið fram miklar efasemdir um lögmæti tilmælanna og hvort jafnræðis hafi verið gætt við útgáfu þeirra. Þótt vissulega sé hægt að hafa samúð með því að þær tvær stofnanir sem í hlut eiga reyni að berja í þá bresti sem óundirbúið og óhæft ríkisvald hefur skapað, er ekki endilega víst að flækjustig máls- ins hafi minnkað með framsetningu tilmæla af þessu tagi. Skýrt er frá því í fjölmiðlum að Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra „segir að rík- isstjórnin hafi þær upplýsingar innan úr dómskerfinu að nið- urstaða í máli gengistryggðu lánanna gæti komið snemma í haust“. Hvaðan „úr dómskerf- inu“ eru slíkar upplýsingar komnar? Í hvaða farvegi eru viðræður ríkisstjórnarinnar við „dómskerfið“? Ráðherrann verður að gæta sín mun betur en þetta, því að upplýsingar sem gefa til kynna samkrull eða sérstakt samráð ráðherra við „dómskerfið“, án þess að það sé skýrt nánar, sá fræjum tor- tryggni í þjóðfélaginu. Á slíkt er naumast bætandi. Ekki er vitað til þess að málatilbúnaður sé opinberlega hafinn í því formi að kröfuhafi hafi stefnt meintum skuldara. Rík- isstjórnin hafnaði svo sem kunnugt er að afgreiða laga- frumvarp Sigurðar Kára Krist- jánssonar, sem var til þess fall- ið að skapa skilvirkari úrræði en nú eru fyrir hendi. Það eru miklir hagsmunir í húfi og síst má ganga þannig fram að af- skiptin veiki traust á úrlausn- um dómstóla. Ríkisstjórnin hafði haft marga mánuði til að undirbúa sig fyrir dómsniður- stöðu í gengistrygg- ingarmálum. Samt kom hún af fjöllum} Viðbrögð veikja traust Þýska þjóðin varaldrei spurð hvort hún vildi kasta þýska mark- inu fyrir evruna. Ekki var talið lík- legt að hún hefði nokkru sinni samþykkt slíkt. Hins var hin stjórnmálalega hástétt mjög samstiga í því máli og mjög í öðrum takti en þjóðarviljinn. Talið var víst að stuðningur við evruna myndi vaxa smám saman í Þýskalandi, enda mætti færa fyrir því rök að það land hefði mest að vinna með hinum sameiginlega gjaldmiðli. Stuðningur við hana hefur þó sjaldan náð meirihluta í könnunum og nú er svo komið að aðeins um 30% Þjóðverja styðja áframhald- andi tilvist hennar á meðan yf- ir 50% þjóðarinnar vilja þýska markið aftur. Þetta hlýtur að vera alvarlegt áfall fyrir þá sem setja allt sitt traust í efnahagsmálum álfunnar á hina sameiginlegu mynt. Nýlegar kannanir sýna að stuðningur frönsku þjóð- arinnar við evruna er um þessar mundir enn veikari en hinnar þýsku. Vissulega er það rétt sem oft er bent á að Evrópusambandið gerir ekki mikið með afstöðu almennings og fer sínu fram, hvað sem fólki finnst. Það á þó einkum við um álit smærri þjóðanna í sambandinu, sem verða að kjósa aftur og aftur í þjóðaratkvæðagreiðslum þar til sú niðurstaða fæst sem Brussel hugnast. Þar á bæ verða menn á hinn bóginn vafalaust órólegir þegar þeir sjá svart á hvítu hversu naum- ur stuðningurinn er orðinn við evruna í burðarríkjunum tveimur, Þýskalandi og Frakk- landi. Sú staða bætist við hreinskilnisleg skrif helstu efnahagssérfræðinga heimsins að undanförnu um að vaxandi líkur séu á að botninn detti al- veg úr myntsamstarfinu innan tiltölulega skamms tíma. Þjóðverjar og Frakk- ar vilja sínar gömlu myntir til baka} Enn hitnar undir evru F élagi minn danskur, sem þekkti vel til Íslands og Íslendinga, sagði mér eitt sinn að lýsa mætti ís- lensku þjóðinni með tveimur orð- um: „Þetta reddast“. Hann var þó ekki að slá þessu fram eins og svo títt er gert nú um stundir, þ.e. nota það til að sýna fram á glanna- og galgopaskap Íslendinga, heldur vegna þess að hann hafði hrifist af bjartsýni þjóðarinnar og jákvæðu viðhorfi gagnvart erf- iðleikum. Það er nokkuð til í þessari greiningu þessa frænda okkar og þótt menn geti verið sammála um að bjartsýnin hafi verið fullmikil framan af öldinni, þá er bölsýnin sem nú hefur tekið við öllu verri – í stað þess að menn séu sífellt að sjá bjartar hliðar á lífinu eru allir komnir á kaf í svartagallsraus sem sannast á þessari óskemmtilegu og óspennandi ríkisstjórn sem við nú sitjum uppi með. Víst er henni vorkunn að þurfa að glíma við erfið verkefni, en af hverju eru allir alltaf með hundshaus (nema Katrín Jakobsdóttir reyndar, hún er ljós í myrkrinu)? Að mínu viti felst í orðunum „þetta reddast“, sem eru mér ekki síður töm en öðrum Íslendingum, bjartsýni á að allt fari vel og að ef það fari kannski ekki svo vel þá getum við gert gott úr öllu saman. Undir lok síðasta árs og byrjun þessa var það mikið rætt vestan hafs og austan hvort hægt væri að vera of bjartsýnn, en kveikjan að þeirri umræðu var bók banda- rísku blaðakonunnar Barböru Ehrenreich, Brostu eða deyðu, Smile or Die, þar sem hún sagði frá því er hún greindist með krabbamein og allir kepptust við að hughreysta hana. Í bókinni (og viðtölum við hana) kom fram að hún vildi enga fjandans huggun – hún vildi sannleikann hráan og ómengaðan og síðan glíma við sjúkdóminn á eigin forsendum. Ehrenreich hefur rétt fyrir sér í því að mað- ur á aldrei að neita að horfast í augu við sann- leikann, en hún skilur aftur á móti ekki að hægt er mæta sannleikanum með bros á vör, vera vongóður og glaðvær, jafnvel bjartsýnn þótt einhverjum öðrum finnst lítil ástæða til þess. Málið er nefnilega það að bjartsýnum gengur betur í lífinu (eða finnst þeim ganga betur sem ber sama árangur), þeir verða sjaldnar veikir og ef þeir veikjast batnar þeim fyrr. Þeir lifa líka lengur og lifa betra lífi í þokkabót – það hafa vísindin sannað. Í viðtali við blaðið fyrir stuttu sagði íslenskur ljósmynd- ari sem búsettur er í Los Angeles að sér hefði komið óvart að það væru allir grenjandi í dag á Íslandi: „Fólk keyrir um grátandi á nýjum bílum, en í Los Angeles er ég að hjálpa til við að úthluta mat til fólks sem býr á götunni.“ Skýring á þessu er helst sú að það er í tísku að tala eins og allt sé hér að fara til fjandans, ef það er þá ekki þegar löngu farið norður og niður. Því er öðru nær, ágæti lesandi, og þú mátt treysta því að þetta reddast, og ef þú treystir því þá reddast það. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Þetta reddast STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is F rumvarpi um háar fjár- sektir fyrir að selja mjólk sem framleidd hefur verið utan greiðslumarkskerfisins hefur enn verið frestað á Alþingi. Formaður Landssambands kúa- bænda segir að verði það látið óáreitt að afurðastöðvar selji mjólk sem framleidd er utan greiðslumarks- kerfis muni það á endanum leiða til þess að kerfið bresti en það leiði til verðhækkana og samþjöppunar. Efa- semdarmenn um frumvarpið benda á móti á að það geti trauðla staðist ákvæði um atvinnufrelsi að banna mönnum að gerast kúabændur. Lengi hefur staðið til að leggja á sektir við að framleiða mjólk utan greiðslumarkskerfisins. Leggja átti slíkt frumvarp fyrir vorið 2009 en því var frestað og enn var frumvarpinu frestað en þingið fór í frí 24. júní. Andstæðingar sammála Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem tóku til máls um frumvarpið studdu það allir, líkt og þingmenn Vinstri grænna. Eina andstaðan sem kom fram við þetta stjórnarfrumvarp var úr röðum þingmanna Samfylkingarinnar. Helgi Hjörvar sagði m.a. að með frumvarp- inu væri verið að festa einokun Mjólkursamsölunnar í sessi. „Ef nið- urgreitt opinbert kerfi getur ekki staðist frjálsa samkeppni við ónið- urgreidda framleiðslu hlýtur úrkynj- un þess að vera algjör,“ sagði hann. Atli Gíslason, þingmaður VG og for- maður sjávarútvegs- og landbún- aðarnefndar, var á öndverðum meiði og benti m.a. á ástandið í svínarækt, máli sínu til stuðnings. Það kerfi væri án eftirlits og stýringar og í „nokkuð mikilli rúst“. Allt stefndi í að einn framleiðandi næði 55-65% markaðs- hlutdeild. Dökk spá um afleiðingarnar Verði frumvarpið að lögum verð- ur sekt fyrir að selja hvern utankerf- islítra á innanlandsmarkaði 110 krón- ur. Morgunblaðið greindi á föstudag frá áformum Vesturmjólkur um að hefja framleiðslu á mjólk og mjólk- urafurðum, m.a. úr mjólk sem fram- leidd er utan kerfis, og sagði for- svarsmaður Vesturmjólkur að frumvarpið gæti riðið fyrirtækinu að fullu. Frumvarpið var m.a. unnið í samvinnu við Bændasamtök Íslands. Sigurður Loftsson, formaður Lands- sambands kúabænda, segir að til- gangur greiðslumarkskerfisins sé að koma í veg fyrir offramleiðslu á inn- anlandsmarkaði og tryggja að stuðn- ingsgreiðslur ríkisins nýtist sem best til lækkunar vöruverði. Eins sé því ætlað að jafna aðstæður þeirra bænda sem búa fjarri aðalmark- aðssvæðinu á SV-horninu og vera um leið grundvöllur þess að hægt sé að tryggja neytendum tilteknar grunn- vörur, s.s. drykkjarmjólk, skyr og fleira, á sama verði úti um allt land. Auðvitað sé þetta kerfi ekki galla- laust fremur en aðrar markaðs- aðferðir, en það hafi virkað vel og því til stuðnings bendir hann á að sam- kvæmt nýrri könnun séu mjólk- urvörur ódýrari hér en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Verði mönnum gert kleift að selja mjólk ut- an kerfis leiði það til þess að minna seljist af mjólk frá þeim bænd- um sem starfa innan þess. Þetta grafi undan kerfinu sem muni á endanum bresta. Líkleg afleiðing verði sam- þjöppun, líkt og hafi átt sér stað t.d. í svínaframleiðslu, algjört vald smásölunnar á markaðnum, hærra verð á grunnvörum, s.s. drykkjarmjólk, og minna vöruúrval. Kúabændur telja að kerfið muni bresta Morgunblaðið/Árni Sæberg Mjólk er góð Landssamband kúabænda bendir á að núverandi fram- leiðslukerfi hafi gefist vel. Gagnrýnendur spyrja um atvinnufrelsi. Framleiðsla mjólkur er bundin við greiðslumark en í daglegu tali er þetta kerfi nefnt kvóta- kerfi. Samkvæmt samningi við Bændasamtökin greiðir rík- issjóður tiltekna fjárhæð fyrir ákveðið magn af mjólk, á þessu ári 4,7 milljarða króna fyrir 116 milljónir lítra af mjólk. Greiðslumarkið er ákveðið með tilliti til sölu og söluspár. Seljist lítið af mjólk lækkar greiðslumarkið. Í reglugerð um greiðslu- markið segir að mjólk sem framleidd er umfram greiðslu- markið skuli fara á erlendan markað á ábyrgð hvers framleið- anda og viðkom- andi afurða- stöðvar. Þó er hægt að fá heim- ild til sölu innan- lands ef sala og birgðastaða gefa tilefni til. Út með um- frammjólk 116 MILLJÓNIR LÍTRA Á ÁRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.