Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 6
Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við erum að horfa fram á þriðja árið í alvarlegum niðurskurði til skólans. Þannig að við erum að skoða allt og þar á meðal þetta,“ segir Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Ís- lands, spurð hvort til greina komi að taka upp fjöldatak- markanir við innritun stúdenta í skólann, í sparnaðarskyni. „Ég legg áherslu á að við höf- um ekki tekið neinar ákvarðan- ir. Við erum að bíða og sjá hvernig vinnst úr umsóknum um skólavist næsta vetur. Það fór mjög mikill fjöldi í inntöku- próf í læknadeildina. Spurning- in er hvert fara þeir sem ekki komast áfram? Við eigum eftir að sjá hvernig land- ið liggur fyrir haustið. Þangað til erum við með alla valkosti til skoðunar.“ Óvíst hversu mikið verður skorið niður – Hversu líklegt er að gripið verði til fjöldatak- markana við innritun í Háskóla Íslands? „Ég get ekki svarað því á þessari stundu. Það er enn svo margt óljóst. Það liggur þó fyrir að það verði ekki gert fyrir næsta skólaár. Við erum ekki búin að fá tölur fyrir 2011 um hversu niðurskurð- urinn verður mikill. Þá á eftir að koma í ljós hver hagræðingin verður af samstarfinu við aðra há- skóla. Það er vinna sem er að fara af stað núna. Við erum heldur ekki búin að sjá hvernig nem- endur raðast niður á deildirnar næsta skólaár þannig að það á margt eftir að skýrast. Við erum að skoða hluti eins og að sameina deildir og lækka starfshlutfall. Við erum með allt undir. Fjöldatak- markanir eru aðeins einn liður í því.“ Ber að taka á móti öllum stúdentum Spurð hvort fjöldatakmarkanir af þessum toga yrðu án fordæmis í sögu Háskóla Íslands bendir Kristín á að þær hafi verið við lýði í heil- brigðisvísindum, á borð við læknisfræði, og í öðrum deildum. Hinu sé ekki hægt að horfa fram hjá að skólanum beri að taka á móti stúdentum. „Það hefur verið litið svo á að þetta sé skóli sem beri að taka við stúdentum sem hafa til þess undirbúning en við erum vitaskuld í þeirri stöðu núna að við verðum að spyrja okkur spurninga á borð við þá hversu lengi við getum haldið áfram í niðurskurði á tímum aukins umsóknafjölda án þess að breyta innrit- unarreglum. Ef eitthvað slíkt gerðist þarf að hugsa um úrræði fyrir þá sem ekki kæmust inn. Þetta er stórpólitískt mál, því það er svo margt sem hangir saman.“ Umsóknum fjölgar ört eftir hrunið Innt eftir tölum um aðsókn að skólanum skóla- árin tvö frá hruni segir Kristín að umsóknum í ár hafi fjölgað um 18% á milli ára og um 20% árið þar á undan, aukning sem skýrist fremur af efnahags- hruninu en stærð árganga, þeir hafi verið litlir. Inni í þessum tölum sé ekki gert ráð fyrir þeim 1.400 nemendum sem fengu inni um áramótin 2008 og 2009, þegar stjórnvöld hvöttu til að dyr yrðu opnaðar fyrir nýnemum við háskólann. Spurð um niðurskurðarkröfuna frá hruni segir rektor að fyrsta árið hafi verið skorið niður um 10%, eða um milljarð, og 8% síðara árið. Við- bótarframlag, vegna fjölgunar nemenda í kjölfar hrunsins, mildaði hins vegar niður- skurðinn síðara árið og nam hann því 300 milljónum króna það ár. Alls nemur fram- lag ríkisvaldsins til skólans á þessu ári því um 9 milljörðum, en það er um tveir þriðju af veltu skólans. Afgangurinn, eða þriðjungur, er sjálfs- aflafé og styrkir. Útilokar ekki fjöldatakmarkanir  Rektor Háskóla Íslands segir alla kosti til skoðunar  Stendur frammi fyrir miklum niðurskurði  Skólanum ber að taka á móti stúdentum sem uppfylla kröfur  Úrræði þyrfti fyrir nýstúdenta 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn fengi mest fylgi ef kosið yrði til Alþingis nú. Flokkurinn fengi 34,6% atkvæða, samkvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar sem Miðlun ehf. vann fyrir Morgunblaðið í júní. Í þingkosning- unum 2009 fékk Sjálfstæðisflokkur- inn 23,7% atkvæða og er því 10,9 prósentustigum yfir kjörfylgi sínu um þessar mundir. Næststærst er Samfylkingin, sem 23,8% aðspurðra segjast myndu kjósa. Fast á hæla hennar fylgir Vinstrihreyfingin – grænt framboð með 21,5% fylgi. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er því 45,3%. Framsóknarflokkurinn myndi hljóta atkvæði 7,6% samkvæmt könnuninni og Hreyfingin 5,9%. Þeir sem sögðust myndu kjósa eitthvað annað en flokkana á þingi voru 6,7% aðspurðra. Fylgishrun hjá Framsókn Marktækur munur var á því hvernig kynin sögðust greiða at- kvæði, en hlutfall karla og kvenna var jafnt í könnuninni. Karlar sögð- ust frekar myndu kjósa Sjálfstæð- isflokk, Framsóknarflokk og Hreyf- ingu, en konur sögðust frekar myndu kjósa Samfylkinguna og Vinstri græna. Sjálfstæðisflokkurinn sækir fylgi tt nokkuð jöfnum höndum til höf- uðborgarsvæðis og landsbyggðar og er sérstakur að því leyti. Á sama tíma hefur Framsókn 4,1% fylgi í höfuðborginni en 13,9% úti á landi. VG sækir 26% af landsbyggðinni en 19,1% til höfuðborgarbúa. Samfylk- ingin og Hreyfingin sækja fylgi sitt hins vegar mun meira í borgina. Samfylkingin 27,3% á móti 17,3 á landsbyggðinni en Hreyfingin 6,7% í borginni á móti 4,3 á landsbyggð- inni. Í samanburði við könnun Capa- cent á fylgi flokkanna í maí sýnir þetta, að Sjálfstæðisflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi, eða 4,6 prósentustigum. Hann er því kom- inn í svipað fylgi og hann hafði í byrjun apríl. Fylgið hrynur hins vegar af Framsóknarflokknum og Vinstri grænum síðan í maí. Þeim fækkar um 5,5 prósentustig sem myndu kjósa VG og um heil 6,4 prósentustig sem myndu kjósa Framsókn, síðan í maí. Fylgi Framsóknarflokksins fer því langt með að helmingast á milli þessara tveggja kannana. Í samanburði við fylgi Hreyfing- arinnar í maí síðastliðnum hefur hún bætt við sig 3,9 prósentustigum og nærfellt þrefaldað fylgi sitt síðan þá, en hún hafði aðeins um 2% í maí. Hún er engu að síður vel undir 7,22% kjörfylgi Borgarahreyfingar- innar árið 2009. Miðlun ehf. vann könnunina, sem var netkönnun, frá 11. til 28. júní. Úrtakið var tilviljanakennt úr ald- urshópnum 18-75 ára í þjóðskrá. 849 manns tóku þátt í könnuninni. Spurt var: „Ef kosið yrði til Al- þingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“ Þeir sem voru óákveðnir í þeirri spurningu voru í kjölfarið spurðir „En hvaða flokkur yrði lík- legast fyrir valinu?“ Miklar sviptingar í fylgi flokkanna  Sjálfstæðisflokkur hefur 34,6% fylgi og hefur því bætt tæpum ellefu prósentustigum við kjörfylgi sitt  Samfylking og Framsókn tapa miklu frá kosningum 2009 en VG eru komin aftur niður í kjörfylgið Fylgi flokkanna á landsvísu Skv. könnun Miðlunar ehf. fyrir Morgunblaðið 11.-28. júní 2010 % 35 30 25 20 15 10 5 0 Úrslit í Alþingiskosningum 25. apríl 2009 Sjálfstæðis- flokkurinn Vinstri grænir Samfylkingin Framsóknar- flokkurinn Hreyfingin (áður Borgara- hreyfingin) 23,7% 34,6% 21,7% 21,5% 29,8% 23,8% 14,8% 7,6% 7,2% 5,9% Athygli vekur að aðeins eitt stjórnmálaafl var nefnt oftar en einu sinni þegar þátttakendur sögðust myndu kjósa eitthvað annað en flokkana sem nú eiga sæti á þingi. Það var Besti flokkurinn, sem 21 þátttakandi sagðist myndu kjósa, eða rúm- lega helmingur þeirra sem sögðust kjósa eitthvað „ann- að“. Svo virðist því sem Frjáls- lyndi flokkurinn hafi til að mynda ekki verið ofarlega í huga þeirra sem voru spurðir. Spurn eftir Besta flokki NEFNA EKKI FRJÁLSLYNDA Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra kvaðst ekki hafa heyrt af hugmyndum um fjölda- takmarkanir við innritun í Há- skóla Íslands þegar ummæli rektors voru borin undir hana. Hún ætti því erfitt með að bregðast við þeim. Ráðuneytið hefði ekki rætt þennan valkost með fulltrúum Háskóla Íslands. Hitt væri ljóst að þegar ríkið þyrfti að brúa 200 milljarða króna gjá í ríkisfjármálum væri óhjákvæmilegt að það yrði „ekki gert án sársauka“. Aðspurð um þær raddir innan hugverkageirans að fyrirsjáan- legur skortur á tæknimenntuðu fólki kalli á forgangsröðun í þágu slíks náms kveðst Katrín hafa heyrt þau sjónarmið. Menntamálaráðuneytið sé í samvinnu við félagsmálaráðu- neytið og Vinnumálastofnun að kanna hvernig útfæra megi þá hugmynd að bjóða atvinnulausu fólki upp á að hefja nám í tækni- greinum í framhaldsskólum og háskólum. Innt eftir tímasetningum í þessu efni gefur Katrín í skyn að vænta megi tíðinda í haust. Um 200 atvinnu- laus ungmenni hafi hafið nám í fram- haldsskólum og um 70% þeirra lokið vorönninni, niðurstaða sem lofi góðu. Atvinnulausir í tækninám BRUGÐIST VIÐ KREPPU Katrín Jakobsdóttir „Ég tek heilshugar undir þau sjónarmið að út- litið sé bjart í hugverkageiranum og þeim tækifærum sem felast þar fyrir Ísland. Það er þá skylda skólanna að mennta þá sem hafa áhuga og gera það vel og koma þeim út í at- vinnulífið. Til að svo megi verða þarf að búa þannig um þessar greinar í háskólunum að þeir anni því að koma stærri hópum í gegn,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, um fyrirséðan skort á tæknifólki. Ari Kristinn kveðst jafnframt líta svo á að Íslendingar hafi nú einstakt tækifæri til að hasla sér völl í hvers kyns hug- verkaiðnaði og njóta þar með ávaxt- anna af uppsveiflu í upplýsinga- tækni. Tækifærið geti glatast. „Það er mikill skortur á vel mennt- uðu fólki á þessum sviðum. Vel menntaðir Íslendingar á tæknisviðinu geta í sjálfu sér fengið vinnu hvar sem er í heiminum.“ Tækifæri sem gæti farið forgörðum SAMKEPPNIN UM VINNUAFL Ari Kristinn Jónsson Morgunblaðið/Golli Frá Háskólatorgi Svo gæti farið að stúdentar fengju ekki inni í HÍ vegna fjárskorts. Kristín Ingólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.