Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Starfsmaðurinn er látinn 2. Miða við lægstu vexti á hverjum… 3. Andlát: Kjartan G. Ottósson 4. Segir hvatt til lögbrota »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónleikarnir Iceland inspires, sem halda átti að Hamragörðum og sýna í beinni á vefsíðu átaksins „Inspired by Iceland,“ hafa verið fluttir í Hljóm- skálagarðinn vegna veðurs. Auglýst dagskrá tónleikanna stendur. »33 Morgunblaðið/Golli Tónleikarnir fluttir vegna veðurs  Hljómsveitin Pascal Pinon er þessa dagana að fara yfir útgáfu- samning hjá þýska útgáfufyrirtækinu Morr Music í Berl- ín. Allar líkur eru á að ný plata frá þeim verði gefin út af Morr ásamt endurútgáfu af fyrstu plötu sveitarinnar. Morr hefur þegar gefið út plötur íslensku sveitanna Borko, múm og Seabear. Með samning í hönd- um frá þýskri útgáfu  Nýkjörinn borgarfulltrúi Besta flokksins, tónlistarmaðurinn Óttarr Proppé eða Prófessorinn, mun setja Funk í Reykjavík á Nasa kl. 21 í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin, en að baki henni stendur Samúel Jón Sam- úelsson, gjarnan kenndur við Jagú- ar. Hátíðin stendur fram á laugardag. Borgarfulltrúi setur Funkhátíð Á föstudag Austan 5-10 m/s. Rigning norðantil, en styttir upp þar kringum hádegi. Ann- ars staðar skúrir. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast vestanlands. Á laugardag Norðaustan 5-13 m/s. Rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum, annars víða skúrir. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða austan 13-20 m/s og rigning, en 18-23 við suðurströndina. Dregur úr vætu og vindi sunnantil á landinu í kvöld. Hiti 8 til 16 stig. VEÐUR Íslandsmeistarar Vals halda þriggja stiga forskoti á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu en áttunda umferðin í deild- inni var leikin í gærkvöldi. Valur lagði Grindavík á útivelli, Þór/KA skellti KR á Akureyri, Stjarnan burstaði FH, Blikar höfðu betur á móti Haukum og Aftureld- ing vann góðan sigur á Fylki í Mosfellsbænum. »4 Valskonur með 3ja stiga forskot Evrópuþjóðir standa höllum fæti í heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu í Suður-Afríku. Aðeins þrjár eru komnar í átta liða úrslit og svo fá- ar hafa þær ekki verið á þessu stigi keppninnar frá því hún var haldin í Úrúgvæ í fyrsta skipti fyrir 80 árum, 1930. Fjórar Suður- Ameríkuþjóðir eru eftir í keppninni og það hefur aldrei gerst síðan 1930 þeg- ar þær voru fimm á meðal átta efstu. »3 Ekki færri Evrópuþjóðir meðal átta efstu í 80 ár Helga Margrét Þorsteinsdóttir náði næstbesta árangri sínum frá upphafi í sjöþraut í Tel Aviv um síðustu helgi. Hún var þó lengst af ekki bjartsýn á góðan árangur. „Niðurstaðan kom mér skemmtilega á óvart þegar stigin voru talin í lokin,“ sagði Helga Mar- grét við Morgunblaðið. Hún náði þar m.a. sínum besta árangri í spjótkasti frá upphafi. »2 Niðurstaðan kom mér skemmtilega á óvart ÍÞRÓTTIR Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Félagið Landsbyggðarvinir í Reykja- vík og nágrenni stóð á dögunum fyrir verkefni sem höfðar til nemenda á aldrinum 12 ára og upp úr í grunn- skólum vítt og breitt um landið. Verk- efnið gengur út á að nemendur finni hugmyndir að betri heimabyggð. Um 440 nemendur tóku þátt í verkefninu úr 7., 8., 9. og 10. bekk. Verkefnið ber heitið Heimabyggðin mín – Nýsköp- un – Heilbrigði og forvarnir og er í raun langtímaverkefni en um leið ný umgjörð á hverju skólaári. Sérstök athöfn verðlaunaafhendingar fór fram í Norræna húsinu en Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands, stýrði at- höfninni og Björn Bjarnason, fyrrv. menntamálaráðherra, afhenti verð- laun ásamt Fríðu V. Ásbjörnsdóttur höfundi og stjórnanda verkefnisins og formanni félagsins. Félagið var stofnað árið 2003 og er Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, alheimsfegurð- ardrottning 2005 og lögfræðinemi, verndari verkefnisins. Fámennasti skólinn hlaut fyrstu verðlaun Verkefnið skiptist í fyrri hluta, þar sem lögð er áhersla á frumkvæði nemandans og hugmyndir hans til bóta fyrir hann sjálfan og nær- umhverfið. Í síðari hlutanum er lögð áhersla á samvinnu, samlegð kraft- anna og hópverkefni en þar gildir að útfæra þá hugmynd sem fram kom í fyrri hlutanum og sátt næst um. Það sem var merkilegt í ár var að fámennasti skólinn, með einungis átta nemendur alls, hlaut 1. verðlaun fyrir verkefni sitt en það var grunnskóli Önundarfjarðar á Flateyri. Það sem er enn merkilegra er, að af þessum átta nem- endum eru fjórir Pólverjar og einn Filippseyingur sem hafa lítið vald á íslensku. Kennarinn, ásamt hópnum, mun því hafa þurft að leggja töluvert harðar að sér en ella hvað varðar samskipti og fleira. Skól- inn fékk 1. verðlaun fyrir bæði fyrri og seinni hluta verkefnisins en það er í fyrsta skipti í sögu verkefnisins. Verkefni nemendanna, Lausnin, gekk út á að koma á fót fjölskyldu- og dýragarði í Önundarfirði. 2. og 3. verðlaunum deildu 8. bekk- ingar í grunnskólanum á Reyðarfirði í Fjarðabyggð og í grunnskólanum í Þorlákshöfn í Ölfusi. Haft var orð á því hvað unga fólkið væri meðvitað um heilbrigða lífshætti, hreyfingu og útivist. Einnig bar á því hvað það var ánægt og elskt að heimabyggð sinni og hefur metnað fyrir hennar hönd. Lausnin valin besta lausnin Nemendur gáfu hugmyndir að betri heimabyggð Vinningshafar Krakkarnir úr grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri eftir að hafa fengið fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt sem bar heitið Lausnin. Nemendur skólans eru aðeins átta samtals, þar af þrír Íslendingar. Að sögn Fríðu V. Ásbjörnsdóttur, formanns Landsbyggðarvina, höfundar og stjórnanda verk- efnisins, var samkvæmt venju foreldrum, bæjarstjórum og öðrum fyrirmönnum sem ákvarðanir taka, boðið að vera viðstaddir þegar dómnefnd á vegum Lands- byggðarvina í Reykjavík mætti á staðinn til að taka verkefnin út. Að þessu sinni var stutt til sveitarstjórnarkosn- inga. Öllum frambjóðendum var því boðið að vera viðstaddir kynn- inguna, sem í sumum skólum var sett fram sem sérstök hátíð í heimabyggð. Að þeirri kynningu lokinni, á Austurlandi, varð einum frambjóðandanum að orði að þetta hefði sennilega verið það merki- legasta sem hann hefði upplifað í framboðinu og hefði hann þó kynnst mörgu áhugaverðu. Merkilegast í framboðinu LANDSBYGGÐARVINIR Einn sigurveg- aranna úr grunn- skóla Önundar- fjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.