Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 33
Menning 33FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 á Nasa 1.-3. júlí Miðaverð 1000 kr. á hvert kvöld Í kvöld, fimmtudaginn 1. júlí KR ÍA Mjúkur og notalegur heilgalli fyrir þau yngstu. Heilgalli Verð: 7.250 kr. Húfa verð: 2.000 kr. Samfella Hlýtt, notalegt og andar vel. Barna húfa/vettlingar SPÓIK R ÍA Hlý og kláðafrí samfella úr 100% Merino ull. Verð: 3.900 kr. Vettlingar verð: 1.800 kr. Litir Litir Stærðir 74 62 86 Aðstandendur Iceland Airwaves hafa tikynnt um fleiri sveitir og er um nokkuð auðugan og spennandi garð að gresja. Fyrst af öllu ber að nefna hina ógurlegu nýdiskósveit Hercules and Love Affair frá Brook- lyn, en samnefnd plata hennar frá árinu 2008 þótti eitt það allra besta sem út kom það ár. Af fleiri sveitum má nefna hinar bresku Bombay Bi- cycle Club, Hurts (en dúettinn hafn- aði í fjórða sæti yfir þá listamenn sem BBC taldi líklegasta til vinsælda í ár), Alex Metric, Everything Eve- rything, Mount Kimbie og hina til- raunakenndu og mjög svo ágætu þjóðlagasveit Tunng. Frá Bandaríkj- unum koma svo Tune-Yards og The Antlers, sjóðandi heit Brooklyn- sveit. Fleiri sveitir hafa verið til- kynntar en allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar. Hercules and Love Affair á Airwaves „Kúl“ Hercules and Love Affair verða á Airwaves í haust. http://www.icelandairwaves.is/ verandi eiginmanni sínum, Kevin Federline. Það er fyrrverandi líf- vörður hennar, Fernando Flores, sem hefur sakað hana um að vera vanhæf móðir vegna þess að hún á að hafa hýtt annan drenginn með belti og gefið þeim mat sem þeir hafa ofnæmi fyrir. Þá hermir annað breskt dagblað, The Sun, að heim- ildamaður hafi sagt að Britney vilji ekki vera slæm móðir en Flores finnist hins vegar sem hún eigi við of mörg vandamál að stríða til að henni sé treystandi til að sjá um syni sína. „Hann segir að fyrsta atvikið sem truflaði hann hafi verið þegar hún kom þrammandi í sundlaugarhúsið á setrinu sínu og heimtaði að fá beltið hans. Hann lét hana fá beltið en elti hana svo í aðalhúsið þar sem hann segist hafa orðið vitni að meintu at- viki,“ segir heimildamaðurinn. Brit- ney harðneitar staðhæfingunum en Flores, sem er einnig fyrrverandi lögreglumaður, hætti að starfa fyrir Britney eftir að hafa sakað hana um að hafa beitt sig kynferðislegri áreitni með því að ganga stöðugt nakin um í návist sinni. Að sögn breska dagblaðsins The Evening Standard á Britney Spears að sæta yfirheyrslu félagsmála- yfirvalda vegna ásakana um barna- misnotkun. Söngkonan á tvo syni, Sean Preston, fjögurra ára, og Jay- den James, þriggja ára, með fyrr- Britney Spears sökuð um að hýða börnin Deilur Britney er umdeild og hefur ekki átt sjö dagana sæla. Tónleikarnir Iceland inspires, sem halda átti á Hamragörðum undir Eyjafjöllum, hafa verið fluttir í Hljómskálagarðinn vegna veðurs. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu segir að óvenjukröpp lægð nálgist nú suðurströnd landsins og tónleika- haldarar hafi ákveðið að færa stað- setningu þeirra eftir að hafa ráðfært sig við veðurfræðinga. „Þetta varð niðurstaðan,“ sagði Kári Sturluson tónleikahaldari í samtali við Morgunblaðið í gær, og bætti því við að dagskráin stæði ann- ars eins og hún var auglýst. Tónleik- arnir hefjast kl. 20 og standa til kl. 23. „Spáin fyrir Suðurlandið er vond fyrir svona. Við erum með svo mikið af búnaði og umstangi fyrir þetta náttúrlega. Það stóð til að hefja upp- setningu á græjunum í kvöld en þeg- ar þetta kom í ljós með veðrið frest- uðum við því.“ - En hvernig er spáin fyrir Reykjavík? „Hún er allt í lagi, var það a.m.k. fyrir klukkutíma (kl. 17). Það er reiknað með einhverri smárigningu en það er allt í lagi.“ Þeir listamenn sem koma fram á tónleikunum eru m.a. Spiritualized Acoustic Mainlines, Damien Rice, Glen Hansard, Seabear, Amiina, Dikta, Steindór Andersen, Lay Low, Hilmar Örn Hilmarsson, Mammút, Pondus, Hafdís Huld, Páll á Húsa- felli og Parabólur. Mynd- og hljóðupptökur verða svo sýndar með Gus Gus, Hjaltalín, For a Minor Reflection og Retro Stef- son. holmfridur@mbl.is Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Iceland inspires Tónleikarnir verða haldnir í Reykjavík vegna veðurs. Dagskráin stendur. Innblástur í Hljómskálagarðinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.