Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 ✝ Fríða Helgadótt-ir fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1923. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 22. júní 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Helgi Sigurðsson, f. 23.7. 1878, d. 15.7. 1959 og Málfríður Ágústa Runólfsdóttir, f. 27.8. 1884, d. 23.12. 1974. Systkini henn- ar voru Elín Jónína, f. 1907, d. 1978, Guðrún, f. 1910, d. 1996, Eð- varð, f. 1912, d. 1933, Sigríður, f. 1917, d. 1994 og Þorvaldur Ísleifur, f. 1920, d. 2005. Upp- eldissystir Fríðu er Erna Guð- jónsdóttir, f. 1931, dóttir El- ínar. Fríða ólst upp á Grímsstaðaholtinu í Reykjavík, á Arnargötu 10. Eiginmaður Fríðu var Páll Magnússon pípulagningameist- ari, f. 20.12. 1922, d. 21.8. 1995. Páll var Reykvíkingur, sonur hjónanna Magnúsar Gunnars Dætur þeirra eru Svava, f. 1.9. 1967 og Fríða María, f. 29.7. 1971. 4) Svavar, starfsmaður Bílaleigu Akureyrar, f. 13.6. 1954. 5) Helgi pípulagn- ingamaður, f. 21.1. 1957. Kona hans er Pálína Reynisdóttir, f. 21.9. 1957. Synir þeirra eru Reynir Páll, f. 18.8. 1982 og Haukur Þór, f. 9.9. 1986. 6) Mál- fríður Ágústa, búsett á Spáni, f. 17.5. 1959. 7) Páll Garðar raf- magnstæknifræðingur, f. 4.4. 1962. Langömmubörnin eru sex- tán og eitt langalangömmubarn. Fríða og Páll hófu búskap í Höfn við Kringlumýrarveg, sem síðar varð Skipholt 62. Árið 1965 fluttu þau í Skipholt 64 og bjuggu þar þangað til þau slitu samvistir 1979. Fríða flutti þá í Efstaland 4 og bjó þar allt til ársins 2008 að hún fór á hjúkr- unarheimilið Skjól. Fríða hóf störf í mötuneyti Borgarspít- alans og síðan á slysadeild 1973 og starfaði þar í 13 ár. Tvö sumur var hún ráðskona í síma- vinnuflokki Jóns tengdasonar síns á Norðurlandi. Fríða var lengi í Klúbbi 44, félagi eig- inkvenna pípulagningamanna, og einnig starfaði hún í Kven- félagi Bústaðasóknar. Útför Fríðu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 1. júlí 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Guðmundssonar, f. 13.9. 1894, d. 29.7. 1945 og Svövu Sigurð- ardóttur, f. 11.2. 1893, d. 20.2. 1966. Börn þeirra eru 1) Magnús Gunnar flugvirki, f. 18.9. 1945. Kona hans er Þóra Jóhanna Hólm, f. 10.12. 1945. Sonur þeirra er Karl Óskar, f. 29.11. 1968. 2) Bertha Steinunn, f. 20.7. 1947, búsett í Reykjavík. Sonur hennar og Matthíasar Guðmundssonar er Páll Róbert, f. 30.9. 1966. Eiginmaður henn- ar var Jón Kjartansson síma- verkstjóri, f. 24.4. 1945, d. 26.10. 1999. Börn þeirra eru Kjartan, f. 10.10. 1971, Þórhild- ur, f. 25.10. 1972 og Friðrik, f. 31.8. 1975. 3) Sigurður pípu- lagningamaður, f. 21.10. 1948. Kona hans er Hanna María Baldvinsdóttir, f. 23.11. 1947. Þegar ég kynntist Fríðu, tengda- móður minni, fyrir rúmum fjörutíu árum var hún húsmóðir á barn- mörgu heimili í Skipholti. Hún stjórnaði þessu stóra og gest- kvæma heimili með miklum mynd- arskap og oft fannst mér nær óskiljanlegt hvernig hún komst yfir öll verkin. Þegar börnin flugu úr hreiðrinu eitt af öðru varð Skipholtið sam- komustaður og fréttamiðstöð fjöl- skyldunnar. Hún var mjög fé- lagslynd og hafði mikla ánægju af að umgangast fólk og hafði lifandi áhuga á öllu sem afkomendurnir og tengdabörnin tóku sér fyrir hendur og kom enginn að tómum kofunum þegar leitað var frétta af fólkinu hennar. Minnist ég ótal góðra stunda á heimilinu og einnig í sum- arbústað tengdaforeldra minna við Meðalfellsvatn. Eftir að hún flutt- ist í Efstaland hélt heimili hennar þar áfram að vera sannkölluð fjöl- skyldumiðstöð. Tengdamóðir mín hafði yndi af að ferðast og var sérstaklega góður ferðafélagi. Mjög minnisstæð er Danmerkurferð fyrir tveimur ára- tugum þegar ekið var frá Lúxem- borg til Jótlands í einum áfanga. Allir voru orðnir þreyttir og pirr- aðir á þessum langa akstri nema tengdamamma sem hélt jafnaðar- geðinu og góða skapinu alla leið. Mikið hlógum við síðar þegar við „klifum“ Himmelbjerget af mikilli færni! Á efri árum fór hún árlega til Spánar að heimsækja dóttur sína, Ágústu. Voru þessar haust- ferðir henni alltaf mikið gleði- og tilhlökkunarefni. Tengdamóðir mín var falleg og glæsileg kona, smekklega klædd og átti alltaf vistlegt og notalegt heim- ili. Hún var heiðarleg, ósérhlífin, samviskusöm og mjög barngóð. Að eðlisfari var hún léttlynd, glaðvær og lífsglöð. Þetta góða lundarfar létti henni án efa áföll í lífinu. Og er það ekki mesta gæfa manns að milda skopi slys og þrautir unnar að finna kímni í kröfum skaparans og kátleg bros í augum tilverunnar. (ÖA) Fyrir nokkrum árum fór að bera á veikindum hennar, sem leiddu að lokum til algjörs minnistaps, en alltaf hélt hún fallega brosinu. Síðustu árin dvaldi hún á hjúkr- unarheimilinu Skjóli, þar sem hún naut einstakrar umhyggju. Þessi langa samfylgd okkar hef- ur verið mér ómetanleg. Hún var alltaf boðin og búin til að hjálpa og aðstoða og okkur sinnaðist aldrei í öll þessi ár. Ég kveð Fríðu Helgadóttur, kæra tengdamóður mína, með trega og innilegu þakklæti fyrir allt sem hún var mér og mínum. Blessuð sé minning hennar. Þóra. Elsku langamma, það var alltaf gaman að heimsækja þig í Efsta- landið. Þú varst góð langamma og áttir skemmtilegt dót fyrir okkur inni í skáp. Þú varst svo sæt og fín og hafðir alltaf fallegan hatt á höfð- inu þegar þú komst í heimsókn til okkar þegar við vorum yngri. En þegar þú fluttir á Skjól þá varst þú orðin svo veik, en það glaðnaði samt alltaf yfir þér þegar þú sást okkur. Viljum við kveðja þig með þessu bænaversi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þóra Margrét og Magnús Gunnar. Fríða Helgadóttir Ætli það hafi ekki verið brosið sem ég man fyrst eftir hjá móðursystur minni, Gunnu í Keflavík, eins og hún var kölluð á mínum bæ. Það var svo fal- legt og ljúft – eiginlega eins og stór faðmur. Í augunum var óborganleg glettni sem kom öllum í gott skap. Átta ára gamall var ég sendur til Keflavíkur til þeirra hjóna Guðrún- ar Elísu Ólafsdóttur og Magnúsar Jóhannssonar og strákanna þeirra, Ómars, Rúnars, Óla og Viðars. Minningin um þetta sumar hjá þeim hefur verið mín veisla í farangr- inum í gegnum lífið. Eins og þeir vita sem voru svo lánsamir að alast upp í sjávarþorpi á þessum tíma, var lífið eitt stórt ævintýri. Börn Guðrún Elísa Ólafsdóttir ✝ Guðrún ElísaÓlafsdóttir fædd- ist á Ísafirði 3. febr- úar 1932. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 23. maí 2010. Útför Guðrúnar fór fram frá Keflavík- urkirkju 1. júní 2010. voru frjáls og allt að því sjálfala. Leikvöll- urinn var fjaran og höfnin. Á heiðinni voru alvöru tindátar lokaðir innan girðing- ar og allt þar á milli var okkar heimur. Ég held að Gunna sé ástæðan fyrir því að ég var friðhelgur þetta sumar. Þótt ég væri samsekur í prakkaraskapnum upp fyrir haus í bernskubrekum okk- ar frændanna var ég aldrei skamm- aður. Í þeim tilvikum tók Gunna mig afsíðis inn í eldhús og við töl- uðum saman á lágu nótunum. Hún strauk mér um kollinn yfir kleinu og kókómjólk. En bak við þilið heyrðum við að Magnús las sonum sínum pistilinn. Svona getur lífið verið yndislega sanngjarnt í sínum einfaldleika. Þegar ég var fjórtán ára var ég í erfiðum málum og vissi ekki hvað var rétt og hvað var rangt. Þá gerði Gunna frænka sér ferð til Reykja- víkur og sagði mér sannleikann, ein manna. Fyrir það verð ég alltaf þakklátur. Og á níunda ártugnum, á leið heim frá vinnu minni í Noregi, tók Jón Baldvin Hannibalsson, sem þá var utanríkisráðherra, eitt sinn á móti mér. „Velkominn til Íslands, Þóarinn,“ sagði hann við mig þegar ég kom út úr flugstöðinni. En eftir nokkur vel valin orð hvarf hann á braut. Ég horfði forviða á eftir manninum, enda vorum við ekki málkunnugir. Ég skildi svo samhengið þegar ég sá móður mína og Gunnu álengdar. Þá hlógu þær systur sem aldrei fyrr. „Dugar ekkert minna en að fá utanríkisráðherrann til að taka á móti frænda,“ sagði Gunna við Jón þegar hún hitti hann af tilviljun og hann hlýddi henni, vitandi að hún var líka Krati – með stóru kái. Í nærfjölskyldunni var Guðrún kletturinn sem gaf skjól og hlýju þangað til hríðinni slotaði. Þar var pláss fyrir alla. Hún vann nær alla sína tíð að verkalýðsmálum þar sem hún var í forystuhlutverki. Í stuttu máli gekk lífshlaup hennar út á það að gera morgundaginn betri og réttlátari fyrir okkur öll en gærdag- inn. Það gerði hún með ósérhlífni. Orð verða óþörf; verkin hafa talað. Sendi aðstandendum hennar ein- lægar samúðarkveðjur. Þórarinn Haraldsson. Grein þessi er birt aftur vegna þess að hluta hennar vantaði í fyrri birtingu. Árið 1952 vann ég á Vífilsstaðahæli og hafði kynnst Garðari Halldórssyni lauslega nokkrum mánuðum áður en hann kom á hælið í annað skipti vegna berkla. Kynntist ég Garðari enn betur á hælinu og þrátt fyrir veikindin var hann ávallt fullur af þrótti, lífsgleði og framtíð- aráformum. Þetta var um svipað leyti og Garðar kynntist Sigrúnu, sem einnig var sjúklingur á hælinu, en hún varð síðar eiginkona hans. Ég held að Garðar sé sá maður, sem ég hef kynnst á lífsleiðinni, er lifði lífinu hvað mest lifandi og þá í mjög já- kvæðri merkingu þessara orða. Garðar kallaði einu sinni í mig, þegar hjá honum voru gestir, og sagðist ætla að kynna mig fyrir „ein- um af verðandi skipstjórum flotans, sem vert væri að líta á“ – líkt og hann orðaði það. Í heimsókn hjá Garðari voru þá vinirnir Einar Ólafsson og Guðbjörn Jensson. Það er skemmst frá því að segja, að með því að kynna mig fyrir Guðbirni kynntist ég ekki einungis eiginmanni mínum, heldur einnig verðandi mági mínum Einari, en hann kynntist fljótlega, og í gegn- um sameiginlegan vinahóp, systur minni Sigríði og kvæntist henni. Þessi „hjónamiðlun“ Garðars var einmitt svo einkennandi fyrir hann, því hann var allt sitt líf svo opinn, skemmtilegur og félagslyndur mað- ur. Upp frá þessu vorum við hjónin meira og minna í sambandi við Garð- ar og Súu og áttum með þeim marg- ar af okkar bestu stundum, hvort sem það var heima hjá þeim eða okk- ur eða á ferðalögum, t.d. á æskuslóð- ir mínar vestur í Dali, þar sem við fórum í reiðtúra og í veiðiskap. Þá var oft glatt á hjalla og gaman að lifa, Garðar Halldórsson ✝ Garðar Hall-dórsson fæddist í Reykjavík þann 4. nóvember 1928. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi aðfaranótt 15. júní. Útför Garðars var gerð frá Hafnarfjarð- arkirkju 22. júní 2010. enda Guðbjörn og Garðar miklir gleði- menn og með afbrigð- um miklir söngmenn. Stundum settu þeir á plötuspilarann gríska „Sorba-lagið“ og döns- uðu af hjartans list gríska þjóðdansa í frumsaminni útgáfu þeirra sjálfra. Að mínum dómi átti maðurinn minn heit- inn engan jafn góðan og einlægan vin og Garðar heitinn Hall- dórsson og á þá vináttu bar aldrei nokkurn skugga. Ekkert er jafn mikils virði og sönn vinátta og kær- leikur og þetta ber að virða og þakka að leiðarlokum. Ég votta börnum Garðars, barna- börnum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð á sorgarstund. Viktoría Skúladóttir. Garðar Halldórsson var besti vin- ur pabba. Það var óperan og söng- urinn sem er eitt af því eftirminnleg- asta frá æskuárunum. Þeir voru báðir með góðar söngraddir og voru ekkert feimnir við að nota þær. Garðar var einstaklega skemmti- legur, jákvæður og duglegur maður. Það voru menn eins og hann sem byggðu upp þetta þjóðfélag eins og við þekkjum það í dag. Ég vann svo- lítið hjá honum við pípulagnirnar og er ég honum ætíð þakklátur fyrir að umbera mig, en ég var örugglega ekkert auðveldur með mína athygl- isbresti og listamannsdrauma. Garðar vann síðan lítillega fyrir mig hér á Brunnstígnum þegar ég standsetti kjallarann hjá mér. Hann hafði engu gleymt og tók stutta og vel valda kafla úr óperum eða ís- lenskum einsöngslögum milli þess að „unionin“ voru hert vel að eða rör snittuð eftir kúnstarinnar reglum. Garðar kunni að njóta augabiksins sem er mjög eftrisóknarverður eig- inleiki. Mér þykir vænt um að hafa fengið að kynnast Garðari stóra eins og hann var oft kallaður. Ég sendi afkomendum og vensla- fólki góðar kveðjur. Daði Guðbjörnsson, listmálari. Okkur bræðrum þótti það fremur óvænt er kær föður- systir okkar lést ný- verið eftir stutta sjúkrahúsdvöl, tæplega níræð að aldri. Við vissum þó að hún kveið ekki hinstu stundinni, var tilbúin og hafði gengið frá sínum málum, því það var háttur hennar að vera skipu- lögð. Ingibjörg var glæsileg og smekkvís kona. Hún var björt yfirlit- um, glaðsinna og lifandi í allri fram- komu. Í seinni tíð varð henni stund- um rætt um lífaldur sinn, fannst hún vera gömul en var ein um það álit, því hún bar aldur sinn mjög vel jafnt lík- amlega sem andlega. Traust, ná- kvæmni og samviskusemi einkenndu hennar daglegu verk. Hún lét sér annt um sína nánustu og gaf mikið af sér og sínu til þeirra. Hún fylgdist vel með þroska hvers og eins og reyndi alla tíð að örva og ýta undir áhuga þeirra til uppbyggilegra verka í víðum skilningi. Sjálf var hún nám- fús og vildi fræðast, sem ýmiss konar nám hennar vitnar um. Hún var jafn- framt áhugasöm um þjóðmál, fylgd- Ingibjörg Jónsdóttir ✝ Ingibjörg Jóns-dóttir fæddist á Nesi í Norðfirði 2. ágúst 1922. Hún and- aðist á Landspítala – háskólasjúkrahúsi 10. júní 2010. Útför Ingibjargar var gerð frá Bústaða- kirkju 28. júní 2010. ist alla tíð vel með allri þjóðfélagsumræðu og hafði sterkar skoðanir á umróti síðustu miss- era. Ófáar stundirnar var hægt að sitja og ræða við hana um ólík- legustu hluti á heimili hennar á Sléttuvegin- um, lá hún þá ekki á skoðunum sínum en lagði jafnan sitthvað uppbyggilegt til mál- anna. Þar leið henni vel meðal góðra granna og vina. Frá unga aldri bjó Ingibjörg í Reykjavík en þangað fluttist hún frá Neskaup- stað með móður sinni, er þá var orðin ekkja, og móðursystur, ásamt eldri systur og tveimur yngri bræðrum. Hún ræddi oft um æskustöðvar sínar sem voru henni hjartfólgnar enda áhugasöm um uppruna sinn og ættir. Samheldni systkinanna var mikil og þá sérstaklega systranna en þær voru einnig bestu vinkonur. Ingi- björg naut í ríkum mæli umhyggju hennar og dætra hennar. Fráfall systur hennar á síðasta ári var henni mikið áfall og var það augljóst þeim sem til hennar þekktu. Lífsgleðin hafði minnkað og á vissan hátt varð hún ekki söm og áður enda öll systk- ini hennar þá látin. Nú hafa þau sam- einast aftur en eftir standa góðar minningar. Við leiðarlok þökkum við bræður ásamt fjölskyldum frænku fyrir samferðina. Jón Ingvar og Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.