Morgunblaðið - 01.07.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Nýlegar sveitarstjórnarkosn-ingar og í kjölfarið ný skoð-
anakönnun sem Morgunblaðið
birtir í dag eru váleg tíðindi fyr-
ir Samfylkinguna. Flokkurinn
var stofnaður til að keppa við
Sjálfstæðisflokkinn og sú spuna-
kenning var búin til að þessir
tveir flokkar væru „tveir turn-
ar“ sem kepptu um forystu í
landsmálunum.
Spuninn vareinkum sett-
ur fram til að
Samfylkingin
skyggði á aðra
vinstri- og miðju-
flokka og heppnaðist um hríð.
Nú er staðan breytt og Sam-fylkingin getur með engu
móti látið sem hún keppi um for-
ystuhlutverkið í íslenskum
stjórnmálum. Flokkurinn galt af-
hroð í sveitarstjórnarkosning-
unum og nýja könnunin sýnir að
stuðningur við hann á landsvísu
er einnig hruninn.
Í kosningunum í apríl í fyrrafékk Samfylkingin tæplega
30% fylgi og 20 þingmenn, en nú
mælist flokkurinn með innan við
24% fylgi og mætti búast við að
tapa fimm þingmönnum.
Á sama tímabili hefur stuðn-ingur við Sjálfstæðisflokkinn
vaxið úr tæpum 24% í tæp 35%
og flokkurinn gæti gert ráð fyrir
að bæta við sig sex þingmönn-
um.
Vandi Samfylkingarinnar er aðflokkurinn hefur misst tengsl
við þjóðina í hverju málinu á
fætur öðru, ekki síst í ESB- og
Icesave-málum. Auk þess leiðir
flokkurinn ráðalausa ríkisstjórn
sem landsmenn finna að er ekki
á vetur setjandi.
Váleg tíðindi fyrir Samfylkinguna
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
M
b
l1
15
14
73
fimmtudag, föstudag og langan laugardag
25% afsláttur
af buxum og
skyrtum
Skyrtu-
og
buxna-
sprengja
Veður víða um heim 30.6., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 16 léttskýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Stokkhólmur 23 léttskýjað
Helsinki 24 heiðskírt
Lúxemborg 28 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 22 heiðskírt
London 25 heiðskírt
París 30 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 29 léttskýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 28 léttskýjað
Madríd 33 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 25 skýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 17 skýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
1. júlí Fjara m Flóð
REYKJAVÍK 3.20 0,7 9.21
ÍSAFJÖRÐUR 5.23 0,3 11.12
SIGLUFJÖRÐUR 1.25
DJÚPIVOGUR 0.30 0,5 6.22
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Andri Karl
andri@mbl.is
Þó að efnahags- og viðskiptaráðu-
neytið taki heilshugar undir fram-
komna gagnrýni á fyrirtæki sem
bjóða upp á svokölluð smálán þykir
vandséð að starfsemi þeirra verði
bönnuð. Vísar ráðuneytið þá sérstak-
lega til alþjóðlegra skuldbindinga
sem Ísland hefur gengist undir með
aðild sinni að EES-samningnum.
Neytendasamtökin sendu Gylfa
Magnússyni, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, bréf í lok síðasta árs þar
sem þeim tilmælum var beint til
hans, að gripið yrði til aðgerða gegn
því sem samtökin nefna okurlána-
starfsemi. „Lán sem þessi hafa verið
harðlega gagnrýnd í nágrannalönd-
um okkar enda beinist markaðssetn-
ingin aðallega að yngri neytendum
og þeim sem hafa lítið handa á milli,
auk þess sem ekki er hægt að tala um
annað en okurvexti,“ sagði í bréfi
samtakanna og einnig að kvartanir
hefðu borist vegna þeirra.
Þegar ekkert svar hafði borist
ítrekuðu samtökin fyrirspurn sína í
lok maí sl.
Starfsemin sætir ekki einokun
Um miðjan mánuð barst svo svar
ráðuneytisins. Segir í því, að þó svo
vilji stæði til að gera starfsemi smá-
lánafyrirtækja leyfisskylda og láta
hana lúta strangara eftirliti, t.d. með
því að fella hana undir lög um fjár-
málafyrirtæki, virðist regluverk
Evrópusambandsins setja því skorð-
ur. „Samkvæmt þeim lögum er veit-
ing útlána sem fjármögnuð eru með
endurgreiðanlegum fjármunum frá
almenningi leyfisskyld starfsemi.
Smálán eru ekki fjármögnuð með
þessum hætti.“
Þá segir í bréfi ráðuneytisins að
örðugt sé að bregðast við starfsemi
smálánafyrirtækja. „Skilmálar fyrir-
tækjanna eru, þegar í upphafi, ljósir
neytendum. Þeir bera með sér hinn
gríðarlega háa lánakostnað. Ráðu-
neytinu virðist því sem treysta verði
á dómgreind neytenda.“
Ráðuneytið tekur fram að Neyt-
endasamtökin geti gegnt lykilhlut-
verki í að upplýsa neytendur um
smálánin en einnig er bent á að starf-
semin sætir ekki einokun og „sé það
ætlun neytenda að verða sér úti um
lánsfé þá eru ýmsar aðrar leiðir fær-
ar í þeim efnum.“
Ráðuneyti segir
að dómgreind
verði að treysta
Smálánastarfsemi verður ekki bönnuð
Morgunblaðið/Ernir
Ekki hægt Í bréfi ráðuneytis segir
að starsfemin verði ekki stöðvuð.
Okurlánin
» Tíu þúsund króna smálán í
15 daga kostar 2.500 kr.
» Tuttugu þúsund króna lán
kostar 4.750 kr.
» Þrjátíu þúsund króna lán
kostar 7.000 kr.
» Fjörutíu þúsund króna lán
kostar 9.250 kr.
» Kostnaðurinn við minnsta
lánið er því 25% sem svarar til
600% kostnaðar á árs-
grundvelli.