Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 9
Str. 38-56
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Útsala
30-70% afsláttur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Fjölbreytt úrval
Bikinídagar
15-25 %
afsláttur
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsalan
er hafin
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
Laugavegi 84 • sími 551 0756
M A S A I
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SUMARÚTSALAN HAFIN
20%-50% AFSLÁTTUR
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Málsmeðferð og úrlausn samgöngu-
ráðuneytisins um hæfi forseta bæj-
arstjórnar Akraness var ekki í sam-
ræmi við stjórnsýslulög. Þetta
kemur fram í áliti Umboðsmanns Al-
þingis um málið.
Tildrög málsins voru þau að þá-
verandi minnihluti bæjarstjórnar
Akraneskaupstaðar vildi að endur-
skoðuð yrði ákvörðun meirihlutans
um að semja beint við fyrirtækið
Securstore um að sinna tölvuþjón-
ustu fyrir bæinn, eftir að fréttir bár-
ust af því að sonur Gunnars Sigurðs-
sonar, forseta bæjarstjórnar, hefði
keypt hlut í fyrirtækinu.
Samgönguráðuneytið blandaði sér
í málið. Það sagði að það að útboð
hefði ekki farið fram vegna tölvu-
þjónustu sveitarfélagsins og að
gengið hefði verið til samninga við
fyrirtækið Securstore um tölvuþjón-
ustu, væri ólögmætt.
Umboðsmanni Alþingis þótti úr-
skurðurinn brjóta í bága við stjórn-
sýslulög. Umboðsmaður taldi að
ráðuneytinu hefði ekki verið fært að
byggja niðurstöðu sína um hæfi for-
seta bæjarstjórnar einungis á þeim
takmörkuðu upplýsingum sem fyrir
hefðu legið í ráðuneytinu. Ráðu-
neytið hefði því ekki getað í ljósi lög-
mælts eftirlitshlutverks síns lagt, án
frekari gagna- eða upplýsingaöfl-
unar, til grundvallar að ekkert hefði
komið fram í málinu sem sýndi fram
á að forseti bæjarstjórnar hefði haft
vitneskju um aðkomu og tengsl son-
ar síns við tölvufyrirtækið.
Samgönguráðuneytið starfaði ekki
í samræmi við stjórnsýslulög
Morgunblaðið/ÞÖK
Akranes Samið var við Securstore.