Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 10
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þ
etta byrjaði allt árið 1942
þegar ég var átta ára
gamall, þá bjó ég á
Klapparstíg og var að
flýta mér upp á Skóla-
vörðuholt því það stóð til hverf-
abardagi okkar strákanna á Klapp-
arstíg og þar í kring á móti
strákunum í Norðurmýrinni, svo
þetta var áríðandi.
Ég flýtti mér mikið upp Skóla-
vörðustíginn með sverðið mitt en
þegar ég kom til móts við Hvíta
bandið, sem var þarna lítill spítali,
hljóp ég út á götuna og í því kemur
Ford 31 niður götuna og keyrir á
mig. Bremsur á þeim bílum voru
ekki fljótvirkar svo hann keyrir yfir
vinstri fótinn á mér fyrst og nær að
bremsa á þeim hægri. Ég var dreg-
inn inn á spítalann en þetta var ekk-
ert alvarlegt, það flettist skinn af
báðum fótum. Það alvarlega í þessu
var að sverðið brotnaði. Þessi af-
skipti mín af bílum eða bílunum af
mér urðu til þess að ég fékk bíla-
dellu. Svoleiðis hófst þetta,“ segir
Þorsteinn Baldursson, áhugamaður
um fornbíla og einn af stofnendum
Fornbílaklúbbs Íslands, um upphaf
bíladellu sinnar.
Nýlega birtist auglýsing frá
Þorsteini í Morgunblaðinu þar sem
hann auglýsti sex fornbíla til sölu, en
það er það allt fornbílasafn hans.
„Ég er 75 ára og nenni ekki
lengur að eiga sex bíla svo ég ætla að
selja nokkra. Ég hef fengið mikil
viðbrögð við auglýsingunni, menn
hafa áhuga en fæstir hafa peninga.
Áhuginn á fornbílum er stöðugt vax-
andi, þegar þú kaupir þér venjuleg-
an bíl lækkar hann um helming í
verði á stuttum tíma en þessir bílar
verða dýrari og dýrari með hverju
árinu. Það er markaður fyrir þá er-
lendis og ég hef fengið fyrirspurnir
þaðan en ég vil helst að bílarnir séu
hér,“ segir Þorsteinn og augljóst er
að bílarnir eru honum hjartfólgnir.
Hillman fyrsti bíllinn
- Hvenær eignaðist þú þinn
fyrsta bíl? „Ég var þá í Versló, það
var árið 1952, árið sem ég tek bíl-
prófið. Ég keypti Hillman með Gylfa
Kristinssyni vini mínum. Bíllinn var
þeirri náttúru gæddur að það var
hægt að keyra hann niður brekkur
en hann gat ekki runnið niður
brekkur, hann var eitthvað tregur.
Við áttum hann stutt en næsti bíll
sem við fengum var bíll sem Hafliði
bíóstjóri í Gamla bíó átti,“ segir Þor-
steinn og stendur í því upp og dreg-
ur fram myndaalbúm. Í því eru ein-
göngu bílamyndir frá ýmsum
tímum, snyrtilega raðað upp og bíla-
tegund og ár skrifað við hverja
mynd. „Hér er Hillmaninn sem gat
ekki runnið, þetta er Bjuik sem ég
elskaði, svo er hér Bronco frá Óttari
í Eimskip og þetta er bíll eins og sá
sem keyrði yfir mig. Ég hef átt sömu
tegund, hann fór á safn í Skagafirði,“
segir Þorsteinn um leið og hann
bendir á myndirnar. Þar má sjá
jeppa, kagga og fjölskyldubíla.
- Hvað hefur þú átt marga bíla
um ævina?
„Fornbíla hef ég átt um tuttugu
en önnur bílaeign er óteljandi,“ svar-
ar Þorsteinn. „Ég hef náttúrlega alla
tíð verið með áhuga á fornbílum en
ég byrjaði á þessari dellu af alvöru
um 1970, þá fer ég að kaupa bíla. Ég
var aðeins í því að gera upp sjálfur,
en aðallega í því að redda peningum
og varahlutum til að klára þá.“
Borgarstjóri fæddist í einum
- Hvernig komust bílarnir í þín-
ar hendur?
„Það var allur gangur á því.
Þennan átti Ólafur Þorsteins-
son, læknir á Siglufirði og föður-
Og þá kviknaði
bíladellan
Þorsteinn Baldursson er með ólæknandi bíladellu eins og hann orðar það sjálfur.
Dellan hófst þegar Ford 31 ók á hann átta ára gamlan á leið í mikinn hverfa-
bardaga á Skólavörðuholtinu. Þorsteinn hefur nú auglýst þá sex fornbíla sem
hann á til sölu en hverjum þeirra fylgir mikil saga og tilfinningar.
Lincoln Uppáhaldsbíll Þorsteins sem fjölskyldan bannaði honum að selja.
Á ferðinni Þorsteinn með Erik Alberti, barnabarni sínu, í gömlum Willys.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Áskriftarsjóður
ríkisverðbréfa
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í
síma 460 4700 eða
kynntu þér málið
á www.iv.is
*Árleg meðalávöxtun frá 15.01.2001 til 3 .0 .2010. Ávöxtun í fortíð er ekki
ávísun á ávöxtun í framtíð.
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV
hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér
útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
Við öflum fyrir þig
10, %
100%RÍKISTRYGGING
ÁRLEGMEÐALÁVÖXTUN*
Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík
Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is
3
1 5
10 Daglegt líf
Nú þegar bensínverðið er rokið upp
úr öllu valdi borgar sig að fylgjast vel
með hvar er ódýrast að fylla á tank-
inn. GSMbensín er verðkönnunar-
þjónusta fyrir bensín- og olíuverð.
Upplýsinga um verð olíufélaganna er
aflað reglulega og er verðið á þeim
tíu stöðvum sem hafa lægst verð
hverju sinni birt á vefsíðunni. Það er
verðið hjá Atlantsolíu, N1, Orkunni,
ÓB Bensíni, Olís og Skeljungi sem er
birt á síðunni.
Verðið er flokkað eftir landshlutum
sem eru: höfuðborgarsvæðið, suð-
vesturhornið, Suðurland, Austurland,
Norðurland, Vestfirðir og Vesturland
og smellir maður á hvern landshluta
til að sjá hjá hvaða stöð lægsta veðr-
ið er. Verðið er miðað við sjálfs-
afgreiðslu án afsláttar.
Þetta er góð síða fyrir bíleigendur.
Vefsíðan www.gsmbensin.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Bensínstöð Dælt á bílinn.
Hvar er lægsta bensínverðið?
Full ástæða er til að hvetja fólk til að
skoða Brúðuheima, menningar- og
listamiðstöðina nýju sem er í Eng-
lendingavík í Borgarnesi.
Á brúðusafninu, sem er risastórt,
er hægt að rifja upp gömul kynni við
persónur eins og Einar Áskel og aðra
snillinga.
Brúðuleikhúsmaðurinn Bernd
Ogrodnik er hagleiksmaðurinn sem
hefur smíðað brúðurnar en Hildur
kona hans á einnig stóran þátt í að
skapa þennan töfraheim sem gleður
ekki síður fullvaxið fólk en lágvaxin
börn.
Á hverjum sunnudegi í sumar
klukkan 14:00 er hægt að sjá lifandi
brúðuleiksýningar á Pétri og úlfinum.
Óhætt er að mæla líka með kaffi-
húsi þeirra hjóna þar sem hægt er að
sitja úti á palli og njóta útsýnis.
Endilega...
...hittið Einar
Áskel
Morgunblaðið/RAX
Góður Einar Áskell er vænn piltur.
Salat er létt og sumarlegt og hér
fylgir hugmynd að góðu og einföldu
sumarsalati sem bera má fram eitt
og sér eða t.d. með grilluðu kjöti.
Blandað salat, t.d. rucola, lamb-
hagasalat, lollo rosso
1 lúka graskersfræ, þurrristuð á
pönnu
1/2 lúka kóríanderblöð
parmigiano-ostur, gróft rifinn
vinaigrette
Skerið niður salatið ef þarf. Ristið
graskersfræin á pönnu (án olíu) þar
til þau hafa „poppað“. Setjið í skál,
hellið vinaigrette yfir, blandið vel
saman. Klippið kóríander yfir. Rífið
niður parmigiano-ost á grófu hliðinni
á rifjárninu, stráið yfir.
Ef salatið er borið fram eitt og sér
hentar ferskt og svolítið skarpt hvít-
vín vel, t.d. góður Sauvignon Blanc,
hvort sem er franskur frá Sancerre
eða Bordeaux eða þá Nýja heiminum.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Sumarsalat með graskersfræj-
um, parmesan og kóríander
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á vinotek.is