Morgunblaðið - 01.07.2010, Side 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
n o a t u n . i s
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
Ö
ll
ve
rð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
u
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
Í MATSELDI
NA
GRÆNT
SVALANDI
OGGOTT
ÍSLENSKT
KÍNAKÁL, PAKKAÐ
447KR./KG
MATREIÐSLURJÓMI
0,5 L
219 KR./STK.
ÍSLENSKAR
AGÚRKUR
179KR./STK.
SVALI, APPELSÍNU
OGEPLA, 3 X 250ML
129 KR./PK.
Við gerum
meira
fyrir þig
JARÐARBER
250G, BOX
KR./PK.
GRÍSAKÓTILETTUR
KRyddAÐAR
AÐEIGINVALI
KR./KG
998
28%
afsláttur
1398
299
BESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, varð fyrir miklu pólitísku
áfalli þegar forsetaefni sem hún
valdi, Christian Wulff, náði ekki
kjöri í embætti forseta Þýskalands
fyrr en í þriðju tilraun á sérstakri
kjörmannasamkomu í gær.
Christian Wulff, forsætisráðherra
Neðra-Saxlands, fékk 600 atkvæði í
fyrstu atkvæðagreiðslunni en þurfti
að fá meirihluta atkvæða, eða 623, til
að ná kjöri í fyrstu atrennu. Helsti
keppinautur hans, Joachim Gauck,
fékk 499 atkvæði. Úrslitin benda til
þess að 44 kjörmenn úr stjórnar-
flokkunum hafi kosið Gauck eða set-
ið hjá. Í annarri atkvæðagreiðslunni
vantaði Wulff átta atkvæði til að ná
kjöri og því þurfti að kjósa í þriðja
skipti. Hann þurfti ekki að fá meiri-
hluta atkvæða í þriðju atkvæða-
greiðslunni og náði loks kjöri með
625 atkvæðum, 56% greiddra at-
kvæða.
Gauck er fyrrverandi prestur og
afhjúpaði glæpi austurþýsku
öryggislögreglunnar Stasí þegar
hann var yfirmaður stofnunar sem
hefur umsjón með skjalasafni Stasí.
Gauck, sem er sjötugur, naut stuðn-
ings stjórnarandstöðunnar en lýsti
sér sem óháðu forsetaefni.
Kosningin fór fram á sérstakri
kjörmannasamkomu, Bundesver-
sammlung, sem er skipuð þingmönn-
um Sambandsþingsins og jafnmörg-
um fulltrúum sem kosnir eru af
þingum sambandslandanna sextán.
Reuters
Niðurlút Angela Merkel og forsetaefnið Christian Wulff hlýða á úrslit ann-
arrar atkvæðagreiðslu kjörmannasamkomu í þinghúsinu í Berlín í gær.
Úrslit forsetakjörsins
áfall fyrir Merkel
Forsetaefni kanslarans náði ekki kjöri fyrr en í þriðju
atkvæðagreiðslu á sérstakri kjörmannasamkomu
Þing Finnlands greiðir í dag at-
kvæði um hvort byggja eigi tvo
kjarnakljúfa í landinu. Fyrir eru
fjórir kjarnakljúfar í tveimur
kjarnorkuverum og verið er að
byggja fimmta kljúfinn sem verður
tekinn í notkun árið 2012.
Nær 30% af raforkuframleiðsl-
unni koma frá kjarnorkuverunum.
Stjórnin samþykkti í apríl sl. tillögu
um að heimila byggingu sjötta og
sjöunda kjarnakljúfsins. Stuðnings-
menn tillögunnar á þinginu lögðu
áherslu á að kjarnakljúfar yllu ekki
losun gróðurhúsalofttegunda og að
kjarnorkuverin fjölguðu störfum í
landinu. Andstæðingar tillögunnar
sögðu hins vegar að nota ætti féð til
að nýta endurnýjanlega orkugjafa.
Fyrr í mánuðinum afnam þing
Svíþjóðar 30 ára bann við nýjum
kjarnakljúfum og heimilaði allt að
tíu nýja kljúfa í stað eldri sem tekn-
ir verða úr notkun.
Vill nýja kjarnakljúfa
Heimildir: International Nuclear Safety Center, Eurostat, World Nuclear Association
*Meðal þeirra eru ef til vill kjarnakjúfar sem hafa verið lokaðir eða eru í byggingu.
KJARNORKA Í ESB-LÖNDUM
Þing Finnlands greiðir í dag atkvæði um tillögu ríkisstjórnar landsins um að
byggðir verði tveir kjarnakljúfar til viðbótar í landinu
Tékkland 31,8%
Slóvakía 57,7%
Ungverjal. 37,0%
Rúmenía
17,3%
Búlgaría
35,0%
Litháen
71,1%
Frakkland
76,3%
Spánn
18,8%
Ítalía
Finnland
29,6%
Svíþjóð
42,6%
Þýskaland
23,3%
Holland
3,9%
Belgía
53,7%
Bretland
13,5%
Slóvenía
38,3%
Ekki starfræktir / lokaðir Í bygginguStarfræktir*Kjarnakljúfar
Hlutfall raforku úr kjarnorku-
verum af raforkuframleiðslunni
í löndum ESB árið 2008
25% 50%
Fjórir kjarnakljúfar Finn-
lands eru á meðal afkasta-
mestu kjarnakljúfa heims
Loviisa Tveir kjarnakljúfar
Olkiluoto Tveir kljúfar
og einn til viðbótar
í byggingu
Meirihluti Þjóðverja vill nú að evr-
an verði lögð niður og markið tekið
upp að nýju í Þýskalandi, ef marka
má nýja skoðanakönnun. Um 51%
aðspurðra kvaðst vilja fá þýska
markið aftur en 30% vildu halda
evrunni. Um 19% höfðu ekki gert
upp hug sinn eða vildu ekki svara
spurningunni. Óánægjan með evr-
una hefur aukist í Þýskalandi eftir
að ríkisstjórn Angelu Merkel kansl-
ara samþykkti að koma Grikkjum
til hjálpar vegna gífurlegra skulda
þeirra.
Vilja fá þýska markið aftur
AUKIN ÓÁNÆGJA MEÐ EVRUNA Í ÞÝSKALANDI