Morgunblaðið - 01.07.2010, Side 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
6 8
6 9 1
4 3
1 9 6
2 3 1
4 7 9 3
9 7 1
8
8 2 4
9
4 2 1
7
8 6
6 9 1 8 5
2 4 9
2 1 4
7 4 5 9
5 1 9 4 2
8 1
1 6 8 5
2
1 9
5 8
3 2 4
1 9 4
6 2 8
9 8 3 4 7 1
2 6 7 5 1 8 9 4 3
3 8 5 4 9 6 2 1 7
1 9 4 3 2 7 8 5 6
7 2 3 9 8 5 4 6 1
9 4 6 1 3 2 7 8 5
5 1 8 7 6 4 3 2 9
4 5 1 8 7 3 6 9 2
6 7 9 2 4 1 5 3 8
8 3 2 6 5 9 1 7 4
4 8 9 1 6 2 3 5 7
6 1 3 8 5 7 9 4 2
7 5 2 3 9 4 1 6 8
9 7 1 4 2 6 8 3 5
2 3 8 7 1 5 6 9 4
5 4 6 9 8 3 7 2 1
8 2 4 6 3 1 5 7 9
3 9 5 2 7 8 4 1 6
1 6 7 5 4 9 2 8 3
3 4 8 5 2 7 6 1 9
9 2 6 1 8 3 4 5 7
1 5 7 4 9 6 3 2 8
2 6 9 7 3 5 1 8 4
7 8 4 2 1 9 5 3 6
5 1 3 6 4 8 9 7 2
8 9 5 3 7 4 2 6 1
6 7 1 9 5 2 8 4 3
4 3 2 8 6 1 7 9 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 1. júlí, 182. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið oss í
Kristi Jesú og búið oss stað í himin-
hæðum með honum. (Ef. 2, 6. )
Sumarið á Íslandi er stutt og þaðborgar sig að nýta það. Vík-
verji þekkir fólk, sem helst vill
vera alls staðar á sumrin. Þegar
það er í bænum vill það vera í
sveitinni og öfugt. Löngu skipu-
lagðar ferðir til útlanda verða allt í
einu að þjófi, sem stelur sumrinu
og björtu nóttunum, sem nær væri
að njóta uppi á Íslandi en í meng-
aðri stórborg eða á skítugri sand-
strönd við skólplitað haf. Þessa
klemmu má yfirfæra á flestallt,
sem hægt er að taka sér fyrir
hendur. Þetta er vandi frelsisins til
að geta valið á milli þess, sem mað-
ur tekur sér fyrir hendur. Um leið
og eitt er valið er öðru sleppt. Sá
sem stendur frammi fyrir slíku get-
ur hins vegar huggað sig við það að
hann er ekki svo fastur í viðjum
vanans að hann sé hættur að líta
upp. Frelsið er vitaskuld tignarlegt
og voldugt hugtak, en nær auðvitað
jafnt til þess smáa sem hins stóra
og þegar best lætur er óskert svo
fremi að það sé ekki misnotað til að
skerða frelsi náungans.
x x x
Víkverji var nýlega staddur þarsem Hringbrautinni sleppir
vestur í bæ skömmu eftir miðnætti.
Erindið var að nýta sér þá þjón-
ustu Nóatúns að hafa opið allan
sólarhringinn og birgja sig upp af
sætindum og nasli fyrir körfubolta-
leik, sem fara átti fram þá um nótt-
ina í annarri heimsálfu. Þarna við
sjávarsíðuna er venjulega hávaða-
rok og strekkingur, en þessa kvöld-
stund var nánast logn, sólin að
setjast og bleikrauður himinninn
speglaðist í haffletinum. Það var
eins og við blasti eldhaf og höfðu
vegfarendur lagt bílum sínum tvist
og bast til að skoða útsýnið. Þetta
var sjón, sem átti heima á póst-
korti, nema hvað hún hefði aldrei
skilað sér á ljósmynd án þess að
verða væmin. Tíu mínútum síðar
var þetta sjónarspil horfið, aðeins
örmjó, rauð rönd eftir við sjón-
deildarhringinn þar sem sólin var
að hverfa og þeir, sem nú áttu leið
fram hjá, höfðu ekki hugmynd um
af hverju þeir rétt misstu.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 götumál, 4 ve-
sældarbúskapur, 7 ávöxt-
ur, 8 styrk, 9 tannstæði,
11 nabbi, 13 skjóla, 14
bjarta, 15 bjarndýrshíði,
17 munnur, 20 borða, 22
hnappur, 23 afkvæmi, 24
hvalaafurð, 25 lifir.
Lóðrétt | 1 skjögra, 2
ímugustur, 3 hlaupalag,
4 stirð af elli, 5 æðar-
fugl, 6 brengla, 10 frá-
leitt, 12 flýtir, 13 flík, 15
stykki, 16 slagbrand-
urinn, 18 votur, 19 sér
eftir, 20 hlífi, 21 tómt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rummungur, 8 lóðar, 9 fæðir, 10 inn, 11 tíran,
13 aurum, 15 stúfs, 18 Eddur, 21 lof, 22 gubba, 23 illum,
24 farkostur.
Lóðrétt: 2 urðar, 3 mærin, 4 nefna, 5 Urður, 6 slit, 7
gröm, 12 arf, 14 und, 15 segl, 16 útbía, 17 slark, 18 ef-
ins, 19 dældu, 20 rúma.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O Bc5 6. c3 O-O 7. d4 Ba7 8. Bg5
h6 9. Bh4 exd4 10. cxd4 d6 11. Bxc6
bxc6 12. Rbd2 g5 13. Rxg5 hxg5 14.
Bxg5 He8 15. Da4 Hb8 16. Hae1 He6
17. e5 dxe5 18. dxe5 Hxb2 19. Bxf6 Dd4
20. Da3 Hxf6 21. exf6 Hxd2
Staðan kom upp á hinu árlega of-
urskákmóti í Poikovsky í Rússlandi
sem kennt er við Anatoly Karpov, fyrr-
verandi heimsmeistara í skák. Ísr-
aelski stórmeistarinn Emil Sutovsky
(2661) hafði hvítt gegn bandarískum
kollega sínum Alexander Onischuk
(2699). 22. He8+! Kh7 23. Hh8+! vinn-
ingsleikurinn en hvítur hefði orðið mát
eftir 23. Hxc8?? Dxf2+ 24. Hxf2 Hd1#.
23… Kg6 svartur hefði orðið mát eftir
23… Kxh8 24. Df8+ Kh7 25. Dg7#. 24.
Dg3+ Kxf6 25. Hxc8 Hd3 26. Dg8 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í léttu skapi.
Norður
♠KG8
♥ÁG
♦ÁD1032
♣Á54
Vestur Austur
♠D9642 ♠Á10753
♥K2 ♥--
♦G7654 ♦8
♣6 ♣DG98732
Suður
♠--
♥D109876543
♦K9
♣K10
Suður spilar 7♥ dobluð.
Ísland mætti Þjóðverjum í 11. um-
ferð EM og vann 24-6 í eftirminnileg-
um leik. Tölvuforritið, sem sá um gjöf-
ina, var í óvenju léttu skapi og dreifði
spilunum fjörlega. Flatar grandhendur
voru ekki á matseðlinum. Í síðasta spili
leiksins tók Sigurbjörn (Bessi) Har-
aldsson upp nílit í hjarta. Magnús Eið-
ur Magnússon vakti í norður á 2♣, sem
er þeirra aðferð til að sýna jafnskiptar
18-19 punkta hendur. Ýmislegt fleira
getur leynst í opnuninni og því ákvað
austur að ræna rými og stökk í 4♣.
Bessi sagði 4♥ og Magnús 5G, sem
áskorun í sjö. Bessi afþakkaði boðið
með 6♥, en austur var ekki hættur og
fórnaði í 6♠. Þá endurskoðaði Bessi al-
slemmuboð makkers og sagði 7♥.
Austur doblaði, en Bessi svínaði fyrir
♥K og tók þrettán slagi: 2.470 og 18
IMPar til Íslands.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gættu þess að taka þig sjálfan
ekki of hátíðlega heldur leyfðu hlutunum
að þróast af sjálfu sér. Önnun barna er
þér eðlislæg.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gleði, rómantík, ánægja og hvers
kyns skemmtanir ráða ríkjum í dag.
Vertu samt ekki þvermóðskan uppmáluð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þorsti þinn sýnir að einhverjum
þínum grunnþörfum hefur ekki verið
svarað. Og fyrrverandi elskhugar finna
nýja elskhuga.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að gefa þér góðan tíma til
þess að velta ýmsum vandamálum fyrir
þér. Vertu þolinmóður því þú hefur allt
með þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sjónrænir kraftar þínir eru á fullu.
Litlu, hugulsömu atriðin sem þú sinnir á
hverjum degi vega þyngra en stopul róm-
antísk viðleitni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Um leið og meyjan heldur að hún
viti við hverju hún á að búast, fara að-
stæður úr böndunum. Krafturinn liggur í
loftinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hvers kyns hugmyndir heilla þig.
Eftir öll þau grettistök sem þú hefur lyft
í lífinu er ekki nema von að leitað sé til
þín.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er mögulegt að snúa göll-
um þínum upp í kosti. Ef þið haldið að þið
séuð ekki nægilega listræn skuluð þið
njóta fallegs umhverfis og verka annarra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Afkastageta þín minnkar
vegna ótta við að tapa! Reyndu að átta
þig á því af hverju þú ert hrædd/ur við að
tapa og sættu þig við það. Fáðu vini þína
til liðs við þig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nú og á næstu vikum er upp-
lagt fyrir þig að ræða við stjórnendur og
yfirboðara. Allt í einu eru umburðarlyndi
og samúð ofarlega á listanum. Reyndu að
vinna í einrúmi ef þú mögulega getur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú verðurðu að halda þér til
hlés og ýta frá þér fólki sem tekur frá þér
orku. Stórhuga ráðagerðir krefjast allra
heilafrumna sem þú hefur yfir að ráða.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnast öll spjót standa á þér
og þig langar mest að draga þig í hlé.
Geymdu stórinnkaup sem tengjast
vinnunni þar til á morgun.
Stjörnuspá
1. júlí 1886
Landsbanki Íslands, fyrsti
banki á landinu, hóf starfsemi
í Reykjavík. Fyrst í stað var
hann opinn tvo daga í viku, tvo
tíma í senn. Bankinn var til
húsa við Bakarastíg en nafn
stígsins breyttist fljótlega í
Bankastræti.
1. júlí 1931
Þýska loftskipið Graf Zeppelin
kom til Reykjavíkur með póst
og tók hér fyrsta flugpóst til
útlanda. Það hafði einnig kom-
ið til landsins ári áður.
1. júlí 1958
Hámarkshraði bifreiða í þétt-
býli var aukinn úr 30 kílómetr-
um í 45 kílómetra á klukku-
stund, samkvæmt nýjum
umferðarlögum, og utan þétt-
býlis úr 60 í 70 kílómetra.
Jafnframt var bílprófsaldur
lækkaður úr 18 árum í 17 ár.
1. júlí 2000
Tveggja daga hátíð hófst á
Þingvöllum til að minnast þess
að eitt þúsund ár voru síðan
kristni var lögtekin hér á
landi. Gestir voru taldir 17-30
þúsund. Á hátíðarfundi á Lög-
bergi samþykkti Alþingi að
stofna Kristnihátíðarsjóð.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
María Sól Kristjánsdóttir og Þóra
María Sigurjónsdóttir héldu tom-
bólu við Bónus, Mosfellsbæ. Þær
söfnuðu 4.700 kr. sem þær færðu
Rauða krossinum.
Hlutavelta
„Ég ætla bara að vera kát, það er ekkert annað
planað,“ segir Ásta Márusdóttir um það hvernig
hún hyggst fagna aldarfjórðungsafmæli sínu í
dag. Tímamótin leggjast vel í Ástu og kveðst hún
ekki finna neinn reginmun á sér þrátt fyrir þau.
Ætlar hún að halda norður í Skagafjörð í tjaldúti-
legu í dag en þangað á hún ættir sínar að rekja.
Hittir hún þar nokkra vini sína og ætlar að hafa
það gott á heimaslóðunum.
Ásta stundar nám í landslagsarkitektúr við
Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og í
sumar vinnur hún að BS-verkefni sínu. Að auki
vinnur hún á Snorrastöðum á Snæfellsnesi við hestatamningar. Hún
er mikil hestamanneskja og það urðu henni nokkur vonbrigði að
landsmóti hestamanna skyldi vera aflýst. „Það var svolítill bömmer en
maður fer bara næsta ár,“ segir Ásta brött.
Afmælisbarnið segir ekki mikið standa til beinlínis í tilefni afmæl-
isins. Þar sem hún á afmæli um hásumar og fólk er gjarna í sumar-
fríum og vant við látið segir hún að ekki hafi skapast mikil hefð fyrir
veisluhöldum á afmælisdeginum. Þó segist hún mögulega ætla að
baka afmælisköku, enda um stórafmæli að ræða. skulias@mbl.is
Ásta Márusdóttir 25 ára
Kát og bakar kannski köku
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is