Morgunblaðið - 01.07.2010, Page 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ALÓHA! ÉG ÁKVAÐ AÐ HAFA
STRANDARÞEMA Í KVÖLD
MIG KLÆJAR REYNDAR DÁLÍTIÐ
UNDAN ÞESSU STRÁPILSI
ÉG HEFÐI EKKI
ÁTT AÐ FARA Á
FÆTUR Í DAG
BÍDDU
HÆGUR,
FÉLAGI!
SEGÐU, „ELSKU FALLEGA
SYSTIR MEÐ FALLEGA BROSIÐ,
MÁ ÉG FÁ SMÁKÖKU?“
ELSKU FALLEGA SYSTIR
MEÐ FALLEGA BROSIÐ,
MÁ ÉG FÁ SMÁKÖKU?
FYRIR SMÁKÖKUR
SEGI ÉG HVAÐ SEM ER
ÉG VISSI ALLTAF AÐ
HRÓLFUR GÆTI SÉÐ FYRIR
FJÖLSKYLDUNNI SINNI...
HELGA, ÉG ER
KOMINN HEIM
FRÁ SKOTLANDI
GALLINN ER BARA SÁ
AÐ FJÖLSKYLDAN GETUR
EKKI LIFAÐ Á VISKÍI
ER SATT AÐ ÞÚ
REYNIR AÐ FÁ KRAKKA
TIL AÐ BIÐJA UM
ÓDÝRAR JÓLAGJAFIR?
EF ÞÚ
VISSIR ÞAÐ
EKKI ÞÁ ERUM
VIÐ AÐ REKA
VERSLUN!
KANNSKI ÆTTI ÉG
BARA AÐ HÆTTA
PABBI HENNAR ÖDDU FÆR VINNU YFIR JÓLIN
NÚ ERU ERFIÐIR
TÍMAR. ÉG HÉLT
AÐ FÓLKI ÞÆTTI
VÆNT UM ÞAÐ
ER EKKI
LÍKA GOTT AÐ
SÝNA VIÐ-
SKIPTAVINUM
OKKAR AÐ
OKKUR SÉ EKKI
SAMA UM ÞÁ
EN HANN GETUR
EKKI STÖÐVAÐ
BYSSUKÚLU!
ÞAÐ KEMUR EKKI TIL GREINA
AÐ ÉG TAKI ÞÁTT Í MORÐI!
ÚÚPH!
HANN BJARGAÐI
FYRRVERANDI KONUNNI
MINNI OG JAMESON
ÞAÐ ER FRÁBÆRT AÐ
VERA HÉRNA UPPI! ÞAÐ ER
ALLT FULLT AF ORMUM!
Þankar
Einar Kristinn Guð-
finnsson fór mikinn á
Alþingi Íslendinga í
morgun. Þrátt fyrir að
áætluð framlenging
þinghalds væri að
mestu leyti til bjargar
útbrunnum heimilum
landsins, þá fór hann
villt um vangerða vegi
landsins, þó einkum á
vegum hans heima-
slóða, sem ekki var
vanþörf á. Ekki mælti
hann eitt orð um vand-
ræði heimilanna. Von-
andi er hann ekki á
flæðiskeri staddur, þau eru kannske
ekki eins holótt hans fjármála-
viðskipti eins og hann lýsti með
sanni vegum vítt og breitt um Vest-
firði.
Kólnar nú í kolunum
karlinn orðinn hryggur.
Hossast nú í holunum
helst til mikið styggur.
Heimilin eru grafin, gleymd,
gangur mála dofinn.
Þau mega líða angur, eymd,
alþingisstefnan klofin.
Ekki gat ég fylgst með framhaldi
hans máls, því Ríkisútvarpið rændi
mig því frelsi, sem ég hélt mig hafa,
til að fylgjast með mál-
um sem þar eru rædd,
og í staðinn kom sjón-
varp frá boltaleikjum,
sem er nú ekki minn
smekkur. Það er lúa-
legt að við sem úti á
landi búum séum ekki
eins rétthá og aðrir
landsmenn, en við
verðum að borga sjón-
varpsgjaldið fyrir því.
Ég vona bara, að vanda
þeirra heimila, sem
bágast eru stödd, verði
komið í lag sem allra
allra fyrst. Ég er ekki
verst stödd, þótt ég
væri rænd aleigunni
þegar ég hætti búskap og varð að
taka lán, sem hækkar og hækkar, til
þess að eiga húsaskjól í ellinni. Með
virðingu fyrir lífinu,
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir.
Hálsfesti tapaðist
Hálsfesti úr ljósu rafi (amber) týnd-
ist í síðustu viku í Reykjavík.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band við Katrínu í síma 865-5186.
Ást er…
… flóð og fjara.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Boccia kl. 9.30, leikfimi
kl. 11. Helgistund fellur niður í júlí.
Árskógar 4 | Leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fundur með þátttakendum í ferð um-
Vestfirði verður á morgun fimmtudag
kl. 13.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vegna sum-
arleyfa starfsfólks fellur starfsemi og
þjónusta niður frá og með 1. júlí. Í fé-
lagsmiðstöðinni Árskógum er hádegis-
verður, panta þarf með dags fyrirvara
í s. 535-2700. Nánari uppl. í Þjónustu-
miðstöð Breiðholts, sími 411-1300.
Hraunsel | Rabb og samvera kl. 9,
vatnsleikfimi kl. 14.10. Dagsferð um
Borgarfjörð 21. júlí. www.febh.is
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16.
Böðun fyrir hádegi, boccia kl. 10, fé-
lagsvist kl. 13.30, verðlaun, kaffisala.
Norðurbrún 1 | Sýning á ljósmyndum
eftir Bergþór Sigurðsson.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin og spilað.
Miðsumarferð 5. júlí á Gullfoss og
Geysi - Brúárhlaðir - Flúðir og kaffi
Hótel Heklu. Uppl. og skráning í síma
411-9450.
Pétur Stefánsson bregður á leik ílimru:
Oft dreymir hænurnar hanana
og Húngerði Ameríkanana.
– Er skeði sá fjandi
þeir fluttust úr landi,
þá fór hún að kaupa sér banana.
Það er gaman að lesa Reginfjöll
að haustnóttum eftir Kristján Júl-
íusson. Frásögnin er einlæg og ná-
kvæm og viðfangsefnið með orðum
Halldórs Laxness, sem ritar for-
mála:
„Bók Kjartans á Skáldstöðum
Efri er einkum og sérílagi um það
sem gerist í sjálfum honum af því
að stíga inní þessa mynd sem hann
hefur einlægt haft fyrir augum
heima á bæarhellunni, þessi fjöll
sem hann þekkir í sjón einsog þau
gnæfa á björtum degi í sveitinni;
þau hafa dregið hann inní veruleik
sinn.“
Kjartan lýsir því meðal annars er
hundur úr nágrenninu, svartur að
lit, stökk yfir trjágarðsgirðinguna
og beit kindina Dimmu, sem lá í
blóði sínu í garðinum hjá tré, hreyf-
ingarlaus. Kjartan brá þegar við,
snaraðist út og tók vesalings lambið
og bar inn. En lífi þess varð ekki
bjargað. Lokaorð bókarinnar fellu
af því tilefni: „Ég veit, að Dimmu
litlu sakna ég sárlega allt til dauð-
ans. Það er ekki alltaf gott að lifa í
endurminningunum.
Í öðrum heimi, elsku kind,
áttu góða daga,
þar við bláa bunulind
blómin sérðu í haga.“
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af könum og kind
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.