Morgunblaðið - 01.07.2010, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
Maður hefur
óneitanlega á til-
finningunni, þeg-
ar rennt er í
gegnum gagnrýni
um þessa aðra
endurkomuplötu
Eminem (sú fyrri, Relapse, kom út í
fyrra), að fólki vilji að Eminem mis-
takist. Enda er varla til hollari nær-
ing fyrir meinfýsnina en að fylgjast
með mönnum með stærilæti og upp-
blásið egó hrasa. Sú var tíðin að Em-
inem réð lögum og lofum í rapp-
heimum en ríki hans leið undir lok
haustið 2004 eftir að platan Encore
kom út. Eftir það tók Eminem sér
frí, sagðist ætla að einbeita sér að
útgáfumálum en festist þess í stað í
neti eitulyfjafíknar. Á Relapse (orðið
sem áfengis- og fíkniefnafræðin nota
yfir fall) gerði hann þennan tíma upp
og nú er komið að batanum eða
Recovery, því skeiði þar sem fíkill-
inn er búinn að finna fótum sínum
forráð og er að ná persónulegum ár-
angri og þroska.
Auðvitað er útilokað að Eminem
nái aftur þeim hæðum sem hann átti
að venjast í upphafi ferils. Ímyndum
okkur að Bítlarnir hefðu komið sam-
an aftur árið 1975 og skotið út einum
eða tveimur plötum. Heiminum
hefðu þeir varla breytt aftur en ekki
er loku fyrir það skotið að tónlistin
hefði verið sæmileg og vel það.
Nokkurn veginn það sama gildir um
hann Eminem okkar. Tónlistin
hérna, nei rímurnar og rappið öllu
heldur, er drífandi og hart; flutt af
einhverju sem kalla mætti knýjandi
þörf. Tónlistin sjálf er hins vegar la
la, taktar og hljóðbútar sveiflast frá
því að vera andlausir yfir í að rúlla
þekkilega undir hasarrímum Em-
inem. Gestir á borð við Lil Wayne og
P!nk gera svo lítið umfram það að ljá
límmiðanum á umslaginu nafn sitt.
Niðurstaðan er því hvorki né; kon-
ungssætið verður varla endurheimt,
en strákurinn hefur greinilega þörf
fyrir að tjá sig og gerir það enn bara
býsna vel. Ef Eminem getur sætt sig
við að dreifa boðskapnum til nokkuð
færri viðtakenda en áður, og sýnir
um leið æðruleysi og auðmýkt, á
hann kost á fínasta bata.
Í góðum
bata?
Eminem - Recovery
bbbnn
Arnar Eggert Thoroddsen
Barátta Er Eminem lentur á báðum? Hann á a.m.k. kost á fínum bata.
Can’t Be Tamed
er þriðja plata
fyrrverandi ung-
stirnisins Miley
Cyrus, en með
henni hefur hún
sagt skilið við
Disney-risann fyrir fullt og allt.
Plötuumslagið segir allt sem segja
þarf, Cyrus er orðin „vonda stelpan“
eða það vill hún alla vega láta hlust-
endur sína halda. Platan er ekki upp
á marga fiska, enda fer hún hér eftir
sömu formúlu og helstu tyggjópopp-
söngkonur nútímans á borð við Brit-
ney Spears og Christina Aguilera.
Fyrsta hlustun er í raun ekki fyrsta
hlustun, því lögin hefur maður heyrt
þúsund sinnum áður. Þessi unga
söngkona hefur þó ansi góða söng-
rödd, en þar sem hún er einungis 17
ára er beinlínis ógerningur fyrir
eldri hlustendur að gefa grænt ljós á
textasmíði hennar og „hegðun.“ Það
er líka bara allt í lagi því markhópur
Cyrus er yngri kynslóðin. Ég verð
þó að viðurkenna að það er alveg
hægt að detta í stuðið með Cyrus,
sérstaklega á svokölluðu „girls night
out,“ en þá þurfa nokkrir kokteilar
að hafa komið við sögu … allnokkrir.
Týpísk tyggjó-
poppplata
Miley Cyrus- Can’t Be Tamed
bbnnn
Hugrún Halldórsdóttir
Hinn magnaði
bandaríski gítar-
leikari Ry Cooder
hefur stillt
strengi sína sam-
an við hljómsveit-
ina Chieftains á
plötunni San Patricio en auk þess
kemur fjöldi góðra gesta við sögu,
m.a. sveitin Los Folkloristas, söng-
konan Linda Ronstadt, Los Tigres
del Norte og leikarinn Liam Neeson
svo fáeinir séu nefndir. Paddy Molo-
ney, forsprakki hinnar írsku The
Chieftains, ritar grein í plötubækl-
ing með býsna langri söguskýringu
um stríðið milli Bandaríkjanna og
Mexíkó á árunum 1846-48, nánar til-
tekið herdeild liðsforingjans John
Riley sem gekk í lið með óvininum
og hlaut nafnið herdeild heilags Pat-
reks, en platan er nefnd eftir þeim
dýrlingi upp á spænsku, San Patri-
cio. Plata þessi geymir söngva her-
deildarinnar, að sögn Moloneys, og
mætti lýsa tónlistinni sem írsk-
mexíkóskri. Það kann að hljóma ein-
kennilega en þessi ólíka tónlist
smellur oftast nær bráðvel saman og
ekki síst fyrir ilmandi gítarleik
Cooders.
Mexíkó, Írland
og Cooder
The Chieftains með Ry Cooder -
San Patricio bbbbn
Helgi Snær Sigurðsson
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 3:30 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Leikfangasaga 3D kl. 3:30 - 5:45 íslenskt tal LEYFÐ
Killers kl. 8 - 10:10 LÚXUS Toy Story 3D kl. 3:30 - 5:45 enskt tal / ótextað LEYFÐ
Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ The A-Team kl. 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 LÚXUS Get Him to the Greek kl. 8 - 10:25 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
H E I M S F R U M S Ý N D
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
-S.V. - Mbl.
-J.I.S. - DV
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 8 LEYFÐ
The A-Team kl. 10 B.i. 12 ára
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng