Fréttablaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 32
6. október 2011 FIMMTUDAGUR32
Bróðir minn og mágur,
Ingi Jóhann Marinósson
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala Hafnarfirði 16. september sl. Að
ósk hins látna hefur útförin farið fram í kyrrþey. Við
sendum starfsfólki St. Jósefsspítala alúðar þakkir fyrir
einstaka umönnun og einnig þeim sem með heimsókn-
um og vinsemd aðstoðuðu hann í veikindum hans.
Erla Eiríksdóttir, Sigurður Hallgrímsson.
Okkar ástkæri
Jónatan Sigurðsson
frá Hólmavík,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
lést föstudaginn 30. september á Landspítalanum
í Fossvogi. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 10. október kl. 13.00.
Vilborg Birgisdóttir Unnsteinn Marvinsson
Eygló Birgisdóttir Auðunn Leifsson
Sigurbjörg Birgisdóttir Arnar Tryggvason
Steinlaug Birgisdóttir Gunnar Kristjánsson
Guðrún Birgisdóttir Eyjólfur Ólafsson
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir sendum við öllum sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna
andláts og útfarar ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
dr. Sigríðar Þóru
Valgeirsdóttur
Ingólfur Hjörleifsson
Sigríður Hjörleifssdóttir og Kristján G. Sveinsson
Dagmar Vala Hjörleifsdóttir og Halldór Jónsson
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
bróðir og mágur,
Jón Lárusson
Brekkubyggð 35, Garðabæ,
sem lést 30. september á líknardeild Landspítala
Kópavogi, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju
Garðabæ föstudaginn 7. október kl. 13.
Sigríður Guðjónsdóttir
Hrefna Lárusdóttir Kvaran Ragnar G. Kvaran
Anna Margrét Lárusdóttir Jónas Hallgrímsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og sambýliskona,
Theódóra G.
Gunnarsdótttir
lést á Landspítala Fossvogi að morgni þriðjudags
4. október. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gunnar Georg Smith Ingibjörg Jensdóttir
Ásbjörn Ketill Ólafsson
Guðný Ósk Ólafsdóttir Kristinn Kristinsson
Kjartan Þór Ólafsson
Sigrún Sif Kristjánsdóttir Helgi Alexander Sigurðarson
Gunnar Loftsson
ömmubörn og langömmubörn.
Í tilefni af ári sjálfboðaliðans standa meðlimir Alliance,
alþjóðlegra regnhlífarsamtaka um sjálfboðaþjónustu, fyrir
farandfána sem gengur milli 38 sjálfboðaliðasamtaka í
26 mismunandi löndum í Evrópu, Ameríku, Asíu og Afr-
íku. Þetta er gert til þess að fagna framlagi sjálfboðaliða-
þjónustu samfélaga, hópa fólks og einstaklinga.
Undanfarið hafa sjálfboðaliðasamtökin SEEDS verið
með fánann og tekið þátt í ýmsum verkefnum. Til dæmis
var fáninn á lofti á degi án ofbeldis 2. október. Þá gáfu
SEEDS-sjálfboðaliðar heitt kakó og aðstoðuðu við skipu-
lagningu þegar fjöldi fólks kom saman til að mynda
mannlegt friðarmerki með blysum.
Fáninn var sendur af stað frá Jerevan í Armeníu í mars
og mun ferðast til landa sem eru meðlimir Alliance í Evr-
ópu, Ameríku, Asíu og Afríku. Frá Íslandi mun fáninn fara
til Tyrklands en ferðinni lýkur í Bretlandi í nóvember.
SEEDS leggur áherslu á þá miklu vinnu sem sjálfboða-
liðar samtakanna leggja til hér á landi en samtökin taka á
móti um 1.000 manns frá ýmsum löndum í 100 mismunandi
verkefni víðs vegar um landið sem öll snúast um umhverf-
is- eða menningarmál á einn eða annan hátt. Þeim sem
vilja kynna sér betur sjálfboðaverkefni SEEDS er bent á
heimasíðuna www.seeds.is.
Fáninn minnir á
ár sjálfboðaliðans
SEEDS-sjálfboðaliðar raða sér upp með fánann á Degi án ofbeldis.
Félag heyrnarlausra heldur tónleika fyrir heyrandi og
heyrnarlausa í Langholtskirkju í kvöld klukkan 20. Eru
tónleikarnir haldnir í tilefni af viðurkenningu íslenska
táknmálsins til jafns við íslenska tungu.
Tónleikarnir bera yfirskriftina Töfrar tónlistar á tákn-
máli en þar er tónlistarflutningur landsþekktra tónlist-
armanna einnig útfærður og fluttur á táknmáli. Sam-
flutningurinn gefur texta tónlistarinnar nýjar víddir
en tónlist, flutt á táknmáli er falleg tjáning á innihaldi
textans og saman myndast einstök upplifun almennings
á tónlistinni og hvernig heyrnarlausir upplifa falleg-
an flutning með tjáningu táknmálsins. Meðal þekktra
tónlistarmanna sem koma fram
eru Gunnar Þórðarson, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafs-
son, Páll Rósinkranz og Ellen
Kristjáns ásamt fleirum.
Miða má nálgast á www.
midi.is. - sg
Töfrandi tónlist
í tákni og tónum
Þrír íslenskir hjúkrunarfræðingar eru nú við störf í Írak á
vegum Rauða kross Íslands. Nýverið hóf Hólmfríður Garð-
arsdóttir, hjúkrunarfræðingur Rauða kross Íslands, störf á
vegum Rauða krossins í Kúrdahéruðum í Írak. Auk Hólm-
fríðar eru Áslaug Arnoldsdóttir og Magna Björk Ólafsdótt-
ir við verkefni í Írak á vegum Rauða krossins.
Hólmfríður er einn reynslumesti sendifulltrúi Rauða
kross Íslands. Hún hefur meðal annars starfað á vegum
Rauða krossins í Afganistan, Bosníu-Hersegovínu, Tans-
aníu, Norður-Kóreu, Súdan, Íran, Indónesíu, Mósambík og
Malaví. Hún hefur meistaragráðu í lýðheilsu í þróunar-
löndum.
Meginverkefni Hólmfríðar í Írak verður að fylgjast
með frumheilsugæslu á svæðinu ásamt því að heimsækja
fangelsi og huga að velferð fanga.
Á síðasta ári heimsóttu starfsmenn Alþjóða Rauða kross-
ins 23.000 fanga í haldi yfirvalda í Írak og 3.500 í haldi
stjórnvalda í Kúrdahéruðum. Þá hefur Rauði krossinn
þjálfað hundruð lækna og hjúkrunarfræðinga í landinu.
Hjúkrunarfræð-
ingar í Írak
Á FÆÐINGARDEILD Í ÍRAK Hólmfríður Garðarsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og ljósmóðir, mun fylgjast með frumheilsugæslu ásamt því að
heimsækja fangelsi og huga að velferð fanga.
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna næstkom-
andi sunnudag, 9. október, verður flutt tónlist eftir Beet-
hoven og Händel. Á tónleikunum kveður sér hljóðs ný söng-
kona, Valdís G. Gregory, og syngur aríur eftir Beethoven og
Händel. Efnisskráin er römmuð inn með Coriolan-forleikn-
um eftir Beethoven, forleiknum að óperunni Júlíus Cesar
og Vatnasvítu nr. 2 eftir Händel. Stjórnandi á tónleikunum
er Oliver Kentish.
Þetta eru fyrstu tónleikar 22. starfsárs hljómsveitarinn-
ar en hún hefur starfað óslitið síðan 1990. Tónleikarnir eru
haldnir í Seltjarnarneskirkju og hefjast klukkan 17.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur, afsláttarverð er 1.000 krón-
ur fyrir nemendur og eldri borgara, frítt fyrir börn.
Aríur eftir Beethoven og Händel
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er að hefja 22. starfsár sitt.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
María J. Jakobsdóttir
Víðivangi 12, Hafnarfirði,
sem lést að heimili sínu sunnudaginn 2. október,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
11. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á minningarkort Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, sjá
nánar á frikirkja.is
Jóhann G. Bergþórsson Arnbjörg G. Björgvinsdóttir
Kristján G. Bergþórsson Sóley Örnólfsdóttir
Bergþóra M. Bergþórsdóttir Björn Sveinsson
Steindóra Bergþórsdóttir Sæmundur Stefánsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður Ólafsdóttir
Garðabæ,
sem lést á heimili sínu 25. september, verður jarðsungin
frá Laugarneskirkju föstudaginn 7. október kl. 15.
Magnús Guðjónsson
Guðjón Magnússon
Ólafur Magnússon Tamara Suturina
Jóhann Magnússon Kristín Björg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.